Vísir - 30.04.1911, Síða 1
47
16
Kemurvenjulegaút kl.ll árdegis sunnud.
þriðjud., miðvd. fimtud. og föstud.
25 blöðin frá 1. apr. kosta: A skrifst. 50 au.
Send út um Iand 60 au. — Einst. blöð 3 au.
Afgr. í Pósth.str. 14A. Opin rnestan hluta
dags. Óskað að fá augl. sem tímanlcgast.
Sunnud. 30. apríl 1911.
Sól í hádegisstað kl. 12,25“
Háflóð kl. 6,12“ árd. og 6,36“ síðd.
Háfjara kl. 12,24“ síðd.
Póstar.
E/s Botnia frá útlöndum.
. Afmæli.
Eiríkur Gísli Eiríksson,skipstj.,32 ára.
Erlendur Jónsson, íshúsvörður,50 ára.
Frú Jóhanne Jónsson.
Poul Otto Bernburg, verslunarmaður,
29 ára.
Sjera Jóhann sextugnr.
Höfuðstaðurinn flöggum
prýddur?
Það þarf oft ekki mikið tilefni
til þess að flögg komist nálæga
á hverja stöng í þessum bæ.
Jafnvel mjög óverulegir við-
burður, sem ekki tekur að nefna,
geta komið þessu á stað.
En nú var meiri ástæða fyrir
hendi en mjög oft annars, þegar
dómkirkjupresturvorsjera Jóhann
Þorkelsson varð sextugur síðast-
liðinn föstudag; en þann dag
sást hvergi flagg á stöng. Það
vildi ekki einu sinni svo vel til,
að önnur tilefni væru þá heldur
fyrir hendi, sem eru þó nær dag-
lega.
Sjera Jóhann er hvers manns
hugljúfi hjer í bæ og hefur verið
mjög vinsæll alla sína prests-
þjónustutíð hjer, sem nú er orð-
in 20 ár, svo að þetta hlýtur
að vera gleymska; en það er
gremjuleg gleymska.
And vari.
Fósthræður.
Jeg fór í gær á samsöng Fóst-
bræðra og skemti mjer allvel.
Einar var þó ekki rjett vel upp-
lagður, en »söng sig upp«, og
síðasta lagið söng hann mjög vel.
F.insögur hans tókst ekki vel.
Orænlandsvísurfóru vel að vanda,
en eru orðnar slitnar. »Kveðju«
sungu þeir allt of veikt. Þeir hafa
ekki svo mikla rödd, að þeir
þurfi að gera svo lítið úr henni
og hægt er; það heyrðist varla
til þeirra fremst í húsið í þessu
lagi, t. d. alls ekki til annars
»tenórs«, sem er ljelegasti söng-
maður þeirra. Annars sungu þeir
margt mjög laglega, og var gerð-
ur að góður rómur að verðleik-
um. Pollux.
Endurskoðunarmaður Lands
bankans til næstu tveggja ára var
kosinn í sameinuðu þingi í gærBene-
dikt Sveinsson alþm. með 21 atk.
Þetta starf hefur hann haft á hendi
síðastl 2 ár. Jón Laxdal kaupm.
hlaut 16 atkv.
Bankaráðsfulltrúar fslandsbanka
voru kosnir í sameinuðu þingi í
gær.
Til aðalfundar 1914: Sigurður
Hjörleifsson alþm. með 20 atkv. Áður
hafði Lárus H. Bjarnason gegnt
þessu starfi og hlaut hann nú 19
atkv.
Til aðalfundar 1915: Ari Jóns-
son alþm. með 22 atkv., var hann
endurkosinn til starfsins. Stefán
skólameistari Stefánsson hlaut 15
atkv., Lárus H. Bjarnason 1 atkv.
og einn seðill var auður.
Verðlaunanefnd til þess að úr-
skurða um verðlaun úr »Gjöf Jóns
Sigurðssonar« var kosin í gær í
sameinuða þingi og hlutu kosn-
ingu:
Dr. Jón Þorkelsson 27 atkv.
Dr. B. M. Ólsen 18 —
Hannes Þorsteinsson 11
Erindi til þingsins.
(s. u. — sækir um.)
104—107. Búnaðarfjelag íslands
fer fram á 20000 kr. heimild í fjárl.
til lánveitingar til kornforðabúra—að
árstilag til sín sje hækkað um 2000
kr. — að 25000 lán sje heimilað
handa áveitu á Miklavatnsmýri —
Frá
Landslmanum.
Tvær stúikur geta átt kost á að læra símritun og
talsímun f þeim tilgangl síðar meir að taka að sjer
störf í forföllum eða fjarveru símaþjóna, annaðhvort
hjer í bænun eða annarsstaðar á landinu.
Eiginrituð umsókn, hvar f aldur skal t Igreindur,
< .éíi-' ? >;«;#.s-.Cú'. i • Sf 11160•
staðfest eftirrit af læknisvottorði og kunnáttuvottorði
sendist landsímastjóranum fyrir 6. maí næstkomandi.
Reykjavfk 28. apríl 1911.