Vísir - 17.06.1911, Page 1

Vísir - 17.06.1911, Page 1
Kemurvenjulegaút kl. 11 árdegis sunnud. þrjðjud., miðvd., fimtud. og föstud. 25 blöðin frá 21. maí. kosta: Á skrifst. 50 a. Send út um landöO au.— Einst.blöð 3 a. Afgr. á horninu á Hotel Island 1-3 og5-7 Óskað að fá augl. sem tímanlegast. 1811 - 17. JÚHÍ - 1911 Minni ffóns gigurðssonar d hundrað ára afmceli hans. |M|F álfunnar stórmennum einn verður hann ;=!fa og ættlands síns dýrustu sonum; Það stendur svo skínandi mergð uni þann mann Og fornaldar tign yfir foringjann brá, og fagurt var ísland og vonirnar þá, og blessað það nafn sém vjer bárum. af minningum okkar og vonum, svo fjekk hann þann kraft og þá foringjalund að fræknlegri höfum vjer orðið um stund og stækkað við hliðina á honum. Það reis upp sú manndáð í þjóðinni’ um þig, sem þóttist of rík til að sníkja; oss hnykti þá við, er hún vopnaði sig og varð ekki keypt til að svíkja. Og því er það ástfólgnust hátíðin hjer, er hundraö ára’ afniælið skín yfir þjer og flokknum, sem vildi’ ekki víkja. Það brann þeini úr augum, svo okkur varð heitt, hjá öfunum feigum og hárum; þeir sögöu' oss af fundinum fimmtíu’ og eitt og fóru með orðin með tárum. Og skörð ljest þú eftir í eggjunum þeim, sem oss hafa sárastar skorið, og sjálfur af landvarnarhólminum heim, þú hefur vort dýrasta borið. Með því eggjar móðir vor mannsefnin sín; hvert miðsumar ber hún fram hertygin þín og spyr oss um þróttinn og þorið. Og þökk fyrir tuttugu’ og þriggja’ ára stríð. Af þjer verður hróðugust öldin. Við það urðu óðulin okkar svo fríð, er ofbeldið misti þar gjöldin. Og þó að það eigni sjer feðrannna Frón: í friðaðri jörð verða beinin þín, Jón, svo lengi sem lándið á skjöldinn. i.ui A E.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.