Vísir - 10.07.1911, Side 2
34
V I S I R
Bm.: »Vitiö þjer ekki maður að
pósthúsinu er jafnan lokað milli 2
og 4 á daginn?«
Sm.: Ónei, ekki var jeg svo fróð-
ur. — En bíðum við, þarna er hleypi-
lok á hurðinni, mjer ernóg, að það
sje opnað, því jeg ætlaði að koma
af mjer brjefum, áður en jeg stíg
á bak.« (Lemur í hleypilokið.)
Bm. (kýmir): »Verið þjer ekki að
því arna. Þeir eru allir að borða
póstþjónarnir.*
Sm: »Það er ómögulegt, — eru
þeir svo matbundnir allir? — Til
hvers er þetta hleypilok þá?«
Bm: »Jeg veit ekki. Mig minnir
að það væri búið til í fyrstunni til
þess að hægl væri að selja frímerki
um gatið um þetta leyti dags, en
það varð aldrei úr því, og nú mun
vera ramgjör járnslá fyrir því að
innanverðu, svo að enginn skyldi ná
því frá.«
Srn.: »Nú er jeg aldeilis grallara-
laus, jeg hjelt það væru svo margir
menn hjer á pósthúsinu að einhver
þeirra gæti verið hjer um þelta leyti,
og borðað annaðhvort fyr eða síð-
ar en hinir. Þeir þyrftu ekki að
bjóða okkur þetta kaupmennirnir,
og hafa þó þjónar þeirra minni
Iaun en póstmennirnir.«
Bm.: »Teljið þó ekki eftir laun
póstmannana, þeir eiga oft mjög
annríkt, — en hitt er satt að það
er ómynd að pósthúsið skuli ekki
vera opið allau daginn.« — —
Útlendingur: (kemur að í þessu
og ætlar að ganga inn en rekur
sig á harðlokaða hurðina og segir
á móðurmáli sínu):
»Afsakið, góðir hálsar, hvar er
gengið inn í pósthúsið?«
Bm.: »Hjerna, en það verður ekki
opnað fyr en kl. 4; ef þjer eruð
með frímerkt brjef, má láta þau í
kassann.«
Útl.: »Mig vantar einmitt frímerki,
en tók jeg rjett eftir að pósthúsið
væri lokað núna um hádaginn?«
Bm.: »Já það er jafnan lokað
milli 2 og 4 á daginn.«
Útl.: Það kom sjer illa, því að
jeg var sendur í land með allmörg
brjef og á að vera kominn aftur
kl. 3, því þá förum við. — Fyrir-
gefið, en mjer þykir þetta undarleg-
ur siður að loka pósthúsinu 2 tíma
um hádaginn. Það er eins og
það væri suður í Afríku þar sem
hitinn er svo óþolandi um hádag-
inn að allir sitja lieima. Það munu
vera seld frímerki einhverstaðar hjer
á næstu grösum?«
Bm.: »Ekki svo jeg viti.«
Útl:. Það er hver silki húfan upp
af annari, en fátt er svo með öllu
ílt; nú get eg sent Extrablaðinu dá-
lítinn greinarslúf um framförina uppi
á íslandi. — Verið þjer sælir.«
Sm.: • Þarna sjáið þjer, að þetta
kemur fleirum illa en mjer. Þið
eruð þolinmóðir bæjarmenn að una
þessu; en komi einhver af póstþjón-
um eða úr sljórnarráðinu, — því
að þar mun aðalsökin vera — til
mín um miðjan dag, segi jeg:
Það er lokað hjá mjer milli 2
og 4.« —- — —
Borgarí.
Standmyndin.
Nú er bráðum von á standmynd-
inni aí J. S. — Hún kemur áreið-
anlega nógu snemma fyrir nefnd-
ina. Nefndin hefði verið í Iaglegri
klípu ef myndin hefði komið í
maí, eins og upphaflega var ætlast
til. Þessi dráttur verður mesta Ián
fyrir hana, ef hún skyldi á endan-
um ranka við sjer og velja alnienni-
legan stað. Fagur gras og blóm-
garður þarf að vera um líkneskið —
Svo fagur sem nokkur tök eru á —
og staðurinn þarf að vera í miðri
borginni.
Innan skanims verður landið að
kaupa hús það sem Halldór yfir-
kennsri Friðriksson átti vestan við
Alþingishúsið. Annars má eiga það
á hættu að hjer verði byggt stór-
hýsi upp að Alþingishúsinu og er
þá lokað fyrir alla glugga á vestur-
hlið hússins og þar með gert myrk-
ur í nokkrum stofuni, svo sem efri-
deildarsal.
Við þenna stað verður ekki betra
gert en að leggja hann til stand-
myndarinnar. Hjer geta verið fyrir
hendi áðurgreind skilyrði og land-
ið þarf að hafa blettinn — hús-
lausan. —
Þó að byrjað sje að grafa á
stjórnarráðsblettinum, þarf það ekki
að vera ónýtt verk. Þar má Chr.
IX. standa.
Ef til vill fullkomnar Fr. VIII.
verk hins og fær þá blettinn hinu-
meginn götunnar að maklegleikum.
Arí.
5)a\í\d Östtund
talar í Siloam við Grundarstíg
á sunnudagskveld kl. (>!/2 síðd.
Allir velkomnir.
Amerika ogVGstur-íslondingar.
Eftir Sigurð Vigfússon.
------ Frh.
Nú skulum vjer virða fyrir oss
Vinnipeg borg að litlu einsoghún
stóð í haust leið, um það leyti sem
jeg yfirgaf liana. Fyrst og fremst
ber oss að hafa í huga að hún er
orðin miðstöð járnbrauta og við-
skifta í Vestur-fylkjum Kanada. Tutt-
ugu og tvær járnbrautir ganga út
frá henni í ýmsar áttir. C. P. R.
stöðvar sviðið eitt samar. innilykur
120 mílur (enskar) af skiptibrautum,
og er að sögn hið stærsta í heimi
undir einn.i stjór. Þá er Winnipeg
og aðal-miðstöð járnbrautarfjelaganna
»Canadian Northern« og »Grand
Trunk Pacific«, sem hafa nú byggt
sjer sameiginlega stöð upp á hálfa
aðra milljón dollara. Árlegir járn-
brautar flutningar nema tveimur
milljónum smálesta. Þrjú þúsund
og sex hundruð menn, búsettir í
borginni, vinna í þjónustu járnbraut-
ar fjelaganna.
Breidd strætanna veltur á 33 fet-
um og allt upp í 132 fet. Lengd
á uppgerðum strætum nemur 330
mílum. 120 mílur þaraf eru steypt
eða steinlögð stræti. En á 100
mílum eru tyrfðir grasfletir (baule-
vards) milli gangstjettar og akbraut-
ar, og er víða plöntuð trjáröð á
þeim. Sömuleiðis standa húsin æ-
tíð nokkur fet út frá gangstjettinni,
svo gera megi einnig grasflöt á þá
hlið stjettarinnar, og planta trje til
beggja handa. Eru víða í betri
hlutum borgariunar slík forsælu-
göng á löngum svæðum, og bætir
trjáplöntun sú rhjög loptslagið. Sam-
anlagðar gangstjettir samsvara 425
rnílurn. Vatnspípna Iagningin á 36
árum, eða síðan borgin hlaut rjett-
indi sín, er áætluð 200 mílur. Neð-
anjarðar skurðir, pípulagðir eða
múrhlaðnir svara 185 mílum.
Fasteignir borgarinnar 1890 voru
virtar á 18A/2 miljón dollara. Ár-
ið 1900 voru þær 25 milljónir.
En 1910 námu þær 1571/2 mill-
jón dollara, og er það ærinn mun-
ur.
í borginni eru 23 löggiltir bank-
ar og fjörutíu og tvö útibú. Banka-
viðskipti árið 1900 námu 106 mill-
jónum, en árið 1909 náðu þau 770
milljónum, og eptir tíu mánuðun-
um að dæma árið sem leið, ættu
viðskiptin að hafa numið allt að
1000 milljónum um nýár í vetur,
eða því sem nær tífaldast á síðasta
áratug. Þá eru og í borginni 122