Vísir - 18.10.1911, Blaðsíða 1

Vísir - 18.10.1911, Blaðsíða 1
18 Ketnur venjulegaút kl.2 síðdegis sunnud. lniðjud, miðvd., fimtud. og föstud. Miðvti. t8. okíóber 1911. Sól í hádegisstaö kl. 12,13“ Háflóð kl. 2,41“ árd. og 3,14“ síöd. Háfjara kl. 8,53“ árd. og 9,2ó síðd. Afmseli 1 dag. Frú Lilja Kristjánsdóttir Jón Þorvaldsson cand phil. Magnús Stephensen fv. landshöfðingi Tryggvi Ounnarsson fv. bankastjóri Þorfinnur Kristjáusson, prentari. Frí augnlækning, Lækjarg. 2, kl. 2-3. Póstar á morguns Ingólfur kemur frá Borgarnesi mcð norðan og vestanpóst. ^jxi utt'éndum Viðsjár í Poríugah Altaf hafa verið viðsjárí Portugal síðan Manúel kunungi var steypt og liafa konungssinnar gertalt sem þeir hafa getað til þess að halda uppi óeirðum í Iandinu, verkföllum og ýnasum óskunda til þess að al- þýða snerist í móti núverandi stjórn- arfyrirkomulagi. Sá sem hefur herstjórn konungs- sinna heitir Concerio og er hers- höfðingi. Hann sendi um miðjan síðastl. mánuð ávarp til land og sjó- hers, þar sem hann skorar á þá að vera reiðubúna á hverju augnabliki að styðja sig. Einnig hefur hann sent alþýðunni ávarp þar sem hann lofar að hún megi velja konung, ef hann geti kollsteypt lýðveldinu. Aðal stjórn uppreisnarmanna hefur annar herforingi Joao d’ Almeida. En uppreitarmenn hafa naldið sig mest á Spáni við landamærin, því að Portugalsstjórn leggur sig mjög í framkróka með að ná þeim, sem von er. Hinn 22. f. m. hafði Joao d’Almeida þó verið narraður inn- fyrir landamærin og er minst varði var hann tekinn þar höndum og færður til varðhalds. Um leið og hann steig niður úr vagninum sem hann var fluttur í til fangahússins kom motorvagn í hendingskasti þar að og þaut hann þar uppí og kvaddi, 25 blöðinfrá24. sept. kosta: Áskrifst.50a. Afgr. ísuðuiendaáHotellsland l-3og5-7 Send út mn landóO au. — Einst.blöð 3 a. Óskað að fá augl. seni tínianlegast. en þeir sem böfðu haudsamað hann og áttu von á miklum launum fyrir, sátu eftir með sárt ennið. Laugardaginn 30. f. m. reyndu konungssinnar að ná borginni Opor- to á sitt vald. Klukkan 4 um morg- uninn læddust nokkur hundruð mams inn á völlinn fyrir framan Krystals Slotið. Erþar skemtistað- ur bæarmanna, en hermannabúðir þar á eina hlið. Konungssinnar hugðu að herdeild sú, er þar var, væri sjer fylgjandi og höfðu þeir mútað einum hershöfðingjanum til þe?s að drepa deihiarforingjann á eitri. En hershöfðingi þessi sveikkon- ungssinna ogsagði til þeirra. Komu þá að vörmu spori nokkrar her- fylkingar og luktu göturnar er láu i't frá vellinum og var þar með tekið að skjóta á konungssinna, en þeir gáfust þegar upp og voru teknir höndum nokkuð á fjórða hundrað manns, en fáeinir höfðu fallið. Meðal hinna handteknu voru prestar, ýmsir embættismenn og j kaupmenn. Voru þeir allir fluttir á herskipum til Lissabon. Hinn 5. þ. m. var hátíðlegt hald- ið afntæli lýðveldisins í ölluni helstu borgunr landsins og var þar svo almenn hluttekning að búast nrá við aö konungssinnum veiti ervitt að vinna landið. Á Spánarströnd rjett fyrir norð- an Portugal er borgin Vigo við samnefndan fjörð og eru þar 25 þúsund íbúar. Þar hafa konungs- sinnar frá Portugal aðal bækistöð sína. Eru þeir búnir að konta sjer þar upp álitlegum her sjálfboða- liðá og verður aðal áhlaupið gert þaðan. Næsla heimsfriðarþing verður háð í Róntaborg að vori og hefst 21. mars. Francesco Madelro sá er stóð fyrir uppreistinni í Mexiko er nú valinn forseti lýðveldisins. S,L,D; SÍLÓAM við Grundarstíg á hverju sunnudagskveldi kl. ö'/2, þangað til samkomiihúsið Betel verður notað. Fundur í fjelaginu »Aldan« á morgun kl. 8 síðd. á Hótel ísland. Áriðandi að allir mæti. Stórfengleg uppgötvun. Að nota sjávarföllin til framleiðslu rafmagns. Þýskur verkfræðingur Pein að nafni hefur fundið ráð til þess að nota sjáfarföllin til þess að framleiða með rafurmagn. Á ferð sinni um Þýskaland hitti Edison, hugvitsmaðurinn heimsfrægi, Pein og rannsakið tæki hans og hrósaði þeim mjög. »Nú eigum við að eins eftir að ná fullum notum af sólinni« sagði Edison. Áttahundruð stúdentar voru innritaðir við danska háskól- ann í haust og er það miklu meiri aðsókn en nokkru sinni áður. 1% af hinum innrituðu voru íslendingar. Dr. Cook sá er þóttist hafa komist á Norðurskautið hefur nú samið bók mikla unr ferð sína. Er hún með fjölda af myndum eftir ljósnryndum og teikningum og út- gáfan hið ytra hin prýðilegasta. Dr. Cook ber þar þungar sakirá Peary og mótniælir því algjörlega að hann hafi náð Norðurskautinu. Fáir eru þeir orðnir sem trúa Cook, en sumir halda því fram að hann sjegeggjaður. Fermingarföt nýkomin til Th. Torsteinsson & Co.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.