Vísir - 24.01.1912, Blaðsíða 1
10
fCemur venjulegaúf kl.2 síðdegis sunnud-
Þriðjud., miðvikud.,iimtud. og föslud.
Miðv.d. 24. jan. 1912.
Sól í hádegisstað kl. 12,40'
Háflóðkl, 8,21, árd.og kl. 8,38' síðd.
Háfjara er um 6 stundum 12 mín.
eftir háflóð.
Afmæli f dag■
Bjarni Þorkelsson, skipasmiður.
Vilhjálmur Bjarnason, Rauðarár.
Á morgun.
Ingólfur fer til Keflavíkur.
Ceres kemur frá Vesturlandi,
Skrifstofa almennings.
Austurstræti 3.
Opin 1—3 og 5—8 e. h.
Tel. 140. Tel. 140.
Úr bænum
Skemtun U. M. F. R. sem aug-
lýst var hjer í blaðinu í gær verð-
ur eflaust einhver allra bestaskemt-
un ársins þó hún verði ódýrari en
margar aðrar (líkl. 1 kr. sæli).
Kaupið aðgöngumiða sem fyrst,
því búast má við að þeir þrjóti.
íslenskir íþróttamenn hafa
sótt um það til forstöðnefndar Olym-
pisku leikanna að mega taka þátt í
þeim sem íslendingar. Leikarnir
verða haldnirað sumri í Stokkhólmi.
Eklci líst Svíanum á að við getum
talist sjerstök þjóð, en hver þjóð
kemur fram við þessa leika í hóp
sjer. Þóerekki fullnaðar úrskurður
um þetta faliinn en.
Ekki Iíst íþróttamönnum okkar
að koma frarn sem Danir og hætta
heldur við hluttökuna.
Tílboð ætlar fyrverendi ræöis-
maður Frakka hjer, Brillouin að gera
í hafnargerðina hjer. Er ekki ósenni-
legt að þcssu verði tekið, ef ekki
verður þvf nieira kappi beitt til þess
að koma því verki á danskar hend-
ur. Brillouin stendur hjer betur að
vígi þar sem hann hefur aðra hafnar-
gerð með höndum og verður honum
því allmiklu ódýrara að gera þessa
höfn og getur þá eðlilega boðið
lægra en aðrir.
Ráðunautar búnaðarfjelagsins
þeir Einar Helgason, Ingimundur
Guðmundsson og Sigurður Sigurðs-
son alþm. lögðu allir af staö 3. þ.
m. með e/s Ingólfi til Borgarness.
25 blöðin frá 7. jan. kosta: Áskrifst. 50a. Afgr. ísuðurendaáHotelIsland l-3og5-7.
Send út um landöO au. — F.inst. blöð 3 a. Óskað að fá augl. sem tímanlegast.
Þaðan fór svo Ingimundurtil Hvann-
eyrar og verður þar fram á vor.
Er aðalstarfi hans þar fóðurtilraunir
við kýr, en síðar heldur hann fyr-
irlestur á bændanámsskeiði þar.
Einar og Sigurður fóru að Hjarð-
arholti í Dölum og hjeldu þar bún-
aðarnámsskeið 8.—14. þ. m. Sóttu
það um 45 bændur og bændaefni.
Þar hjelt Torfi í Ólafsdal fyrirlestra
svo og Jón H. Þorbergsson fjár-
ræktarmaður. úr Þingeyarsýslu, Ól-
í afur prófastur Ólafsson, sjera Björn
1 Stefánsson kennari við lýðskólann og
Páll Ólafsson kaupmaður. Mátti
svo heita að stöðugir fyrirlestar og
ræðuhöld væru allan daginn frá kl.
11 árd. til kl. 10 síðd. og er látið
hið besta yfir námsskeiði þessu.
Einar kemur aftur með Ingólfi á
föstudaginn, en Sigurður fer um
Snæfellsnessýslu og heldur þar fundi
með bændum. En þaðan heldur
hann til Hvanneyrarnámsskeiðsins,
sem byrjar um næstu mánaðamót
og kemur að því loknu,
Dánir Sigríður Sigurðardóttir,
ekkja. Garðbæ, 72. ára, dó 21. þ. m.
Ungfrú Solveig Thorgrímssen,
Lækjarg. 14, 64 ára, dó 22. þ. m.
‘Jpvá vúl’ótvdum.
Bandztríkjasijórn hefur
komið upp hjá sjer 50 þúsund Ioft-
skevtastöðvum víðsvegar með strön-
uui fram handa fiskiskipaflota sín-
um. Stöðvarnar vara við óveðri, og
eftir að þær komu upp er sjald-
gæft orðið að fiskiskip farist, en
títt var það áður.
Hverstöð kostaöi um 540 kr.
SttSsVjÓtVVLsttt ösu“r„dDi
samkomuhúsinu »SÍLÓAM« við
Grundarstíg á sunnudagskveldum
kl. 6Vg._____Allir velkomnir.
Eggerí Claessen
Yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Pósthússtræti 17.
Venjulegaheima kl. 10—11 og 4—5'
Talsimi 16.
'Mtan aj latvdv.
Sumarlegt var í Hrútafirði á
þriðjudaginn var. Auð jörð að sjá
er litið var til norðurs, Þröstur í
lofti en Vepja á gangi í sjávarsand-
inum og vegfarendur urðu fyrir
hverjum mýflugnahópnum á fætur
öðrum. Sólin hafði vakið þær til
þess að njóta góða veðursins.
v Y^s&vx
ensku og dönsku fæsi hjá
cand. Halldórl Jónassyni
Kirkjustræti 8B". Hittist helst kl.
2-3 og 7—8.
------------r-----------
Raddir
almerniings.
Meira um Barfódprest.
Það er nokkuð einhliða frásagt,
sem stendur nýlega í Vísi, að »prestar
og önnur guðsbörn í Danmörkue
beri sig aumlega út af þvi að Barfód
prestur skyldi segja af sjer. Satt
er það að þeim sárnar að roskinn
prestur skuli snúa baki við kristin-
dóminum, en á hinn bóginn virða
þau manninn fyrir hreinskilni hans,
þar sem hann afsalar sjer góðum
Iaunum vegna trúarskoðana sinna,
og vill ekki sigla undir fölsku flaggi
og prjedika þann Krist, er hann
trúir ekki á, eða þyggja uppeldi sitt
hjá kirkiufjelaginu, en reyna þó að
smárífa niður meginatriði kristinnar
kirkju, — — og heföi hann þó
getað sagt: »Jeg er ekki sá eini,
er það brallar«. — — —
Sá er drengur, sem viö gengur;
hann leggur stefnuskrá sína hrein-
skilnislega á borðið og ber afleiö-
ingarnar, en reynir ekki með tví-
ræðutn orðum að ná í hlunnindi,
sem öðrum eru ætluð.
Heill sje einurö Barfods prests.
S.