Vísir - 18.02.1912, Blaðsíða 2

Vísir - 18.02.1912, Blaðsíða 2
V i S 1 R 1&-____—- _————----- 2>vesW \3öv\xvuav yerða seldar hjá ÁMTJIDA ÁEIASTII kaupmanni á Hverfisg’ötu næstu vikur GJAFVERDI. Þar má fá meðal annars: SpatVW»?tia? - SpovVJöV - SpovVVve^uv - S\omawtiatve^uv - "ySivJvali&a - SfaautaesU - Vitvu 3^atV(&e^^UYXVav - fcvitav S^tuv - £a*V\tv$a\: allaoe^a iitiv Joíuv aj v^ttvsutti te^uuAum. Þeir sem voru á uppboðunum síðasfl. haust kannast vlðt að aldrei hafa flust jafngóðar og jafnódýrar vörur til landsins. Slfkt tsekifæri til að gjöra góð kaup gefst aldrei aftur. hans var hent út á götunaen kona hans og börn fengu í bráð inni hjá kunningjum mansins. Nú sneri Husson sjer til skrifarans í fjelagi leiguliða og skrifaði hann borgar- ráðinu um máið og bað um að fá leigðan grunn undir bráðabyrgða- skúr handa þessum manni, en beiðn- inni var neitað. f>á tók skrifarinn til sinna ráða. Hann ljet byggja flytjanlegt hús og setja það upp í Tullierigarðinum, en hann er ætlað- ur öllum almenningi og það áleit skrifarinn að væri rjettur staður fyrir skýli handa heimilislausum. Lögreglunni komu njósnir af þessu og er fjölskyldan var komin í húsið var hvortveggja fært burtu og var fjölskyldan flutt á lögreglustöðina. Husson slapp þó þaðan án hegn- ingar og góðgjarn efnamaður bauð þeim hjónum grunn fyrir hús sitt á lóð sem hann átti utarlega í borg- inni. Boðið var þegið með þökkum og um kveldið þann sama dag voru hjónin búin að fá heimili. En marga daga var þarna múgur og marg- menni fyrir utan að skoða þetta nývirki og lesa á stórt spjald sem þar hjekk og á var letrað: »Hús og garöur gefiö af leiguliða fjelag- inu húsnæðislausri 10 manna fjöl- skyldu sem var rekin úr íbúð sinni og gat ekki fengið aðstoö hins opin- bera«. Skemfunarskaitgjald. Danir hafa lögleitt skattskyldu fyrir ýmsar skemtanir og koma þeir skattar meöal annars mjög hart niður á sönglistamönnum, þar sem krafist er 50 au. skatts fyrir hvern sönglista- mann sem vinnur á samsöngvastof- um eða kaffihúsum og hefur af því Ieitt að mörg kaffihús hafa sagt upp söngflokkum sínum, en annars verða sönglistamennirnir gjarnan að borga þennan skatt af kaupi sínu, þó hann sje heimtur af húseigendum eða at- vinnurekemdunum. Sönglistamenn í Kaupmannahöfn höfðu því stórfelda mótmælagöngu um borgina 1. þ. m. og tóku þátt í henni sönglistamenn af öllu land- inu. Þar var meðal annars söng- lið konunglega leikhússins með söng- stjórann í broddi fylkingar. Þar voru og mörg tónskáld og kennarar frá hinnikonunglegusöngfræðisstofn- un. Þegar fylgdin fór fram hjá þinghúsinu gekk fram A. C Meyer þingmaður og hrópaði húrra fyrir sönglistamönnunum. Um kveldið var haldinn afar fjölmeniiur mót- mælafundur. Frímerki brúkuð kaupir hœsta verði Inger Östlund, Laufásv. 43 Varadómarinn Ungversk ræningjasaga. ---- Nl. Hún fór að gráta, og tárin hrundu ofan á pilsfald hennar. »Guð hjálpi mjer, guð hjálpi mjer«. Hún vatt hendur sínar í örvingl- an. »Hvað á að verða úr mjer«. Hún hikstaði á orðunum. »Hugsið um hina göfugu frú, og hafiö ekki slíkt gaman í frammi, herra minn«. En í staö þess að gugna gramd- ist honum og hann setti rauðan. »Sem þú vilt, barniö gott; jeg þvæ mínar hendur. (Hann fór að vinda hendur sínar eins og kaup- maður sem er versla.) Því ætti jeg að bjarga lífi þínu fyrir als ekki neitt? Það hlýtur þú þó að skilja. Þaö er ekkert vit í því. Annaðhvot játar þú þessu eðajegtala?* Ákveð þú. Á jeg að tala?«

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.