Vísir - 29.02.1912, Blaðsíða 2

Vísir - 29.02.1912, Blaðsíða 2
42 V I S I R ái einnig það sem eftirer. Og síð- an ljet hann sig falla aftur á bak í sjóinn. — Þá sáu þeir að þarna var 20 feta hákarl, sem hafði verið að leika sjer við hann. Báðir fæt- urnir höfðu verið »kliptir« af hon- um um mið lærin og hákarlinn sinti fram og aftur í blóðlitum sjón- um og velti sjer við í hvert sinn er hann klipti af honum. Þeir sáu aldrei framar örmul af fjelaga sínum. Eftir stundar þögn hjelt hann áfram: »Fyrrum fengum við 50 og jafnvel alt að 80 krónur fyrir hákarlslýsis tunnuna. Nú er verðið aðeins 26 krónur. — Lýsið er það eina sem notað er af hákarlinum og lifrin í honum verður hjer um bil öll að Iýsi. Hún er stór í hon- um lifrin, hún nær alt framan frá höfði og aftur að sporði. Oft er lítið annað í hákarlinum en lifur og hinu af hákarlinum skilum við aftur í sjóinn.« »Til hvere er lýsiðnotað? Fyrr- um var það notað í götu ljósker, en nú eftir að farið er að veiða hvali með sprengikúlum og eftir að þeir hafa fundið' upp gasið, raf- magnið og allan þann djöfulgang, þá er það nær eingöngu notað til sútunar.* Nú fjekk hann sjer tvær langar strokur úr krítpípunni. — »Og«, sagði skipstjórinn, »auk þess er ekki til í öllum heiminum annar eins öldulægir og hákarlslýsi, það segi jeg. — Þekkið þjer hann Jón gamla Jónsson frá Seyðisfirði? — Svo, ekki það, hann er líka hrein- asti fábjáni en útgerðarmaðurinn hans, hann Pjetur Hansen, hann er piltur sem vert er um að tala. Takið nú eftir! Jón var skip- stjóri á skonnortu sem Gerða hjet og hann var einmitt í þetta sinn, sem jeg sit hjer og tala um, áleið frá Eskifirði til Noregs, með há- karlalýsi í lestinni og PjeturHansen í káetunni. Þeir fengu slæma ferð — eilífan storm og þokur — og þegar þeir voru komnir upp undjr land í Noregi, hleypur Gerða á blindsker og verður mjög lek mið- skipa. Jón varð undir eins ráðalaus því að því meira sem dælt var, því meiri sjór hljóp {• skipið. Upp við land var bullandi brim og ekki var hugsandi til að hleypa henni gegn um það. Björgunarbáturinn? segið þjer — já, gáið þjer að, þeir höfðu raunar gamlan fúinn flatbotna bát, en hann var hlaðinn af rusli og engar árar voru til við hann. Frh. Flatarstærð Reykjavíkur í örum (a) og hekiörum (ha). Allir smáfletir: húsagrunnar, smálóðir, gólfrúm, veggfletir o. þ. h., sem útheimtir mikla nákvæmni er mælt í fermetrum (m2). Stærri svæði, svo sem tún, matjurtagarðar, engjar, skóglendi, þorp o. fl. í örutn (a)t eða hektörum (ha). Stór landsvæði og heil lönd í ferkílömetrum (krn2). Grunnar undir meðalstóru húsi — 10 m á lengd og 10 m á breidd — er 1 ari (a) eða 100 m2. Grunnflötur Vinaminnis er líklega (sjá ísafold XXXIX. 3) 1 a (reitur). Fjórar línur, hin fyrsta frá miðjum Herkastalanum að útnorður- horninu á Hotel ísland, önnur þaðan austur að dyrum Vöruhússins, þriðja frá dyrum Vöruhússins suður að útnorðurhorni Alþingishússins og hin fjórða vestur í byrjunardepilinn við Herkastalann, innilykja flöt, sem er rjettur ferhyrningur, 100 m á hlið eða 10000 m2. Þessi flötur er nefndur 1 hektari (ha) og er hann 100 arar (a) (== teigur). Ferhyrndur flötur, sem hefur hliðarlínur, hina fyrstu frá Laufási vestur á íþróttavöll, aðra norður í Dráttarbrautina (»Slippinn«), þriðju austur að trjesmíðaverksmiðjunni Völundi og hina fjórðu í byrjunardep- ilinn við Laufás, er 1000 m á hlið eða 1000000 m2 og kallaður 1 fer- kílómetri (km2) eða 100 ha (—ferröst). Eftir lauslegri mælingu hafa mjer virst ýmsar flatastærðir í Reykja- vík á þessa leið: A. Vesturbœrinn: 1. Fyrir vestan Bræðrab. st. norður að Vesfurgötu 21,50 ha 2. Fyrir sunnan Vesturg. millum Bræðraborgarst. og Vesturg. 40,00 — 3. Svæðið millum Vesturg. og sjáfar 11,00 — 72,50 ha. B. Miðbœrinn: Svæðið millum Hafnarinnar og Tjarnar- innar, frá Aðalstr. aö vestan austur að Læk 7,50 — D. Austurbœrinn: 1. Millum Tjarnarinnar og Skólavst. að Bankastræti, að undantekinni Skólavörðuhæðinni sv. til 15,00 ha 2. MiIIum Laugav. og Skólav.stígs, þríhirningur a. í Rauðarárlæk 15,00 — 3. Frá Læknum, mill. Laugav. og sjáfar, a. að Rauðarárlæk 30,00 — 60,00 — Tjörnin Flatarstærð Reykjavíkur Samtals 140,00 — 10,00 — 150,00 —‘ eða 1,5 km2 Þessar stærðir skiftast þannig: Húsagrunnar um 10 ha Götur, gangstjettir og torg — 20 — Tún — 50 — Matjurtareitir, opin svæði og fiskireitir — 40 — Óbygðar lóðir — 20 — Tjörnin — 10 — Alls 150 —

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.