Vísir - 07.03.1912, Page 4
58
V I S 1 R
sjó, fór öðru fram á völlunum
hjá ánni. (
Jones gekk þar fram og aftur
með einum sinna nóta, er Mack-
worth hjet. Kenrick var þar einnig
á gangi með Whally vini sínum
og mætti oft hinum.
Kenrick tók þegar í fyrsta sinn
eftir því að þeir Jones hniptu
hver í annan, og glottu hæðnis-
lega til hans. Hann var enginn
vinur þeirra, en var þó hissa á
þessu. Jones hafði farið illa
með hann, frá því hann kom
fyrst til skólans og þangað til
hann ekki lengur þorði það. Því
hafði hann ekki gleymt, enda
aldrei dregið dulur á fyrirlitningu
þá er rætni og ógerðarskapur
Jones verskuldaði. Mackworth
var ógerðarlegur nokkuð á annan
hátt. Hann var frernur greindur
en var ákaflega hreykin af því
að vera af aðalsættum. Bræðrung-
ur hans var barún og lagði hann
sig mjög niður við að rekja ættir
þóttist vera haeverskur í fram-
göngu og barst mikið á í klæða-
burði. Hann hafði ferðast víða
og stældi merkismenn i framkomu.
kölluðu piltar hann því almennt
»franska gljáann«. Yfirleitt voru
piltar hræddir við hæðni hans
því hann var naprastur allra skóla-
pilta í orðum, og ljek sjer að
því að leggja til minstu drengj-
anna.
Pegar Kenrick kom fyrst í skóla
þá var hann bæði í illa saum-
uðum og slitnurr. fötum, vegna
þess að móðir hans var fátæk.
Fyrstu orðin er Mackworth mælti
til hans voru þessi:
»fJú busi, hvað erfaðir þinn?«
»Faðir minn er dáinn«, svaraði
Kenrick daufur í bragði.
»Hvað var hann þá?«
»Hann var prestur í Túsbý«.
»Var hann prestur, — það var
Ijóta vinnan. Ertu viss um að
það hafi ekki verið í Lúsbý.»
Kenrick brá mjög við þessi
orð, reiddist mikið og horfði hvat-
skeytislega framaní Mackworth.
Ekki brá Mackworth við það;
miklu fremur hafði hann gaman
af því, að Kenrick skyldi reiðast.
Hann var ekki enn af baki dott-
inn og sagði:
»Því glápirðu svona á mig,
þjer líkar máske ekki það sem
jeg sagði?« Frh.
Kartöflur fást á Laugaveg 63
hjá Jóh. Ögm. Oddssyni.
o$ \*essa
10§ afslátt að auk.
GOÐ JARÐEPLI
]íú \ ^ötufvú^vuu, jVu^tuvsUæU \ö.
Talsími 158.
Slifsisborðamir
alþektu eru nú komnir í afarmiklu úrval í
VERSLUNIN N I DAGSBRÚN.
Nýkomið mikið af ágætu og ódýru Skótaui
:—til versl. »VON«, Laugaveg 55.
KAUPSKAPUR
Rúmstæði og borð fást með
tækifærisverði á Túngötu 48.
Eikarborð og eikarstóll er til
sölu með hálfvirði. Afgr. vísar á.
uudau
hjá Jóni frá Vaðnesi.
TAPAD-FUNDIÐ
Hjólhestur alveg nýr og óbrúk-
aður, kostaði 150 kr., en fæst nu
með afslætti. Afgr. vísar á.
Dýravininn 1. hefti óska jeg
að fá keyptan. Aðalbjörn Stefánsson,
Gutenberg.
Bátur vel útbúinn undir 5 hesta
vjel óskast til kaups. Upplýsingar
gefur Guðm.Bergsveinsson, Vesturg.
48. Heima kl. 3—4 e. m.
Útgefandi:
Einar Gunnarsson, cand. phil.
Östlunds-prentsm.
Peningabudda með gullhring í
fundin. Vitja má gegn fundarlaun-
um til Sigrúnar Sigurðardóttur Stýri-
mannastíg.
Herbergi til leigu frá 14. maí
á Þingholstsstræti 22.
Eggert Claessen
Yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Pósthússtræti 17.
Venjulega heima kl. 10—11 4—5.
Talsfmi 16.