Vísir - 15.03.1912, Side 1
253
22
TISIR
Kemur venjulegaútkl.2 síödegis sunnud- 25 blöðin frá 15. feb. kosta:Áskrifst.50a. Afgr. ísuðurendaáHotelIsland l-3og5-7
Þriðjud., miðvikud.,iimtud. og föstud. Send út um landóO au.— Einst. blöð 3 a. Óskað að fá augl. sem tímanlegast.
Föstud. 15. mars 1912.
y
Ur bænum
Sakamálsrannsókn segir síð-
asta >Lögrjetta« að stjórnarráðið hafi
nú skipaöáhendur gjaldkera Lands-
bankans. Bæarfógeti framkvæmir
rannsóknina. í gær var gjaldkera
vikið frá starfinu. Jón Pálsson gegnir
því fyrst um sinn.
Fyrsta rjettarhald í gjaldkera-
málinu var í morgun.
Sterling fór hjeðan ígær áleiðis
til útlanda. Á að koma við í Eski-
firði. Hfeðan fór fjöldi manna, bæði
til Austfjarða og útlanda. Þarámeöal
frú Guðlaug kona Bjarna frá Vogi,
Friðrik Jónsson kaupmaður, Hjalti
Sigurðsson verslunarmaður, fröken
Anna Sigurðardóttir verslunarm. og
um 100 frakkneskra skipbrotsmanna-
Gestir í bœnum. Sjera Jón
Jóhannesson á Sandfelli í Öræfum, (
kom hingað ásamt skipbrotsmönn- '
unum af skipi því, er strandaði á
Skeiðarársandi og fyr var getið. —
Lárus bóndi Helgason á Kirkjubæ
á Síðu var hjer og á ferð (með j
skipbrotsmönnum þessum) en mun
vera farinn heimleiðis.
Guðm. Eggertz sýslumaður fór
alfarinn frá Stykkishólmi á Sterling
til sýslu sinnar á Austfjörðum.
Lögþlngisbækur, eða alþingis-
tíðindi frá fyrri öldum, er nú byrj-
að að prenta í Fjelagsprentsmiðj-
unni. Síðasta þing veitti fje til út-
gáfunnar, en dr. Jón Þorkelsson sjer
um hana. Verk þetta mun byrja
um 1570 og er afarmikið, svo að
útgáfu allra hinna fornu alþingis-
tíðinda (til 1880) verður varla lok-
ið fyrr en um 1930 — eða á 1000
ára afmæli alþingis.
Færeysk fiskiskúta kom hing-
að um daginn. Hafði skipstjórinn
hrokkið útbyrðis og druknað. Skip-
ið er nokkuð lekt og verður því
skoðað hjer.
Botnia fór frá Leith í gærkveldi.
Botnvörpuskipin íslendingur og
Jón Forseti komu í gær.
Vesta fór frá Húsavík miðviku-
dagskveld,_________
Símskeyti
London töstndag.
Yerkfallinu
lj ett.
Haflð þjer heyrt?
Hafið þjer heyrt, að rottueitur er
meinlaust skepnum?
— og að rottur eru þá líklega
ekki skepnur?
— Að Bogi Th. Melsted hefur
svarað öllum betlibrjefum sem hon-
um hafa borist nema tveimur?
— Að bæarskráin nýa telur upp
alla sýslumenn á landinu?
— Að Eiffelturninn er hærri á
sumrum en vetrum?
Gríma.
ííáma á Yestfjörðum.
Ný auðsuppspretta.
Motto:
»Margt er smátt
í vetling manns, —
og gettu sands!«
Presturinn í Sauðlauksdal í Patr-
eksfirði hefur veitt þeim Guðmundi
sýslumanni Björnssyni og Pjetri kon-
súl Ólafssyni einkarjett til þess að
taka skeljasand í Sauðlauksdals-Iandi
og vinna úr honum kalkstein eða
og önnur efni um 50 ár. Hafa
þeir, að sögn, heimild til að setja
bryggju og önnur mannvirki, er
að rekstri þessum lýtur, í Iandinu.
Stjórnarráðið hefur staðfest samn-
ing þann, sem aðilar hafa gert með
sjer um þetta.
Hingað til hefur sandurinn í
Sauðlaukdal verið mesta landplága;
Frímerki brúkuð kaupir hæsta
verði Inger Östlund, Laufásv. 43
SKOTAU
hvergi eins ódýrt og í
Versl. VOIM Laugaveg55.
&2^dvaö\^ftttYt\av
fást á afgr. Vfsis.
Kosta 25 au.
Iítið vantað á, að jörðin færi í eyði
af sandfoki. Á 18. öld kvað svo
ramt að sandfoki, að sjera Björn
Halldórsscn prófastur (mágur Egg-
erts Ólafssonar) lagði þá kvöð um
hásláttinn á alla sóknarmenn sína
að hlaða garð utan við tún í Sauð-
lauksdal til varnar sandfokinu. Bænd-
ur þorðu ekki annað en hlýða
prófasti, en þótti þetta þungar bú-
sifjarog kölluðugarðinn »Ranglát«
Heitir hann »Ranglátur« enn í dag.
Búist er við, að byrjað verði á
verkinu á komanda sumri.
*yxí úUöudum.
Ling Breta
var sett miðvikudaginn 14. f. m.
Konungur setti þingið og var mik-
ið um dýrðir. Eru ensk blöð fjöl-
orð um athöfnina. Konungur las
þingsetningarræðuna af blöðum, er
hann tók af kanslara sínum, flutti
siijalt og skilmerkilega, svo að gjörla
heyrði um allan salinn.
Ræða konungs
var á þessa leið:
»Lávarðar mínir og mætismenn !
Með mjer og erlendum ríkjum
helst vinátta.
Því miður helst enn ófriður milli
Tyrkja og ítala. Stjórn mín er al-
búin, hvenær sem færi býðst, til