Vísir - 24.04.1912, Blaðsíða 2
98
V í S I R
FERÐAMENN
sem koma til höfuðstaðarins í sumar mega ekki — sjálfs
síns vegna — undanfella aö líta inn í bestu klæðskerabúð
Iandsins og fá sjer þar ný föt og annað, er með þarf til
búnaðar.
Þar er alfatnaður fullgerður á tveim dögum.
En öllum, sem reynt hafa, ber saman um, að sú búð
er Á HORNINU Á HOTEL ISLAND hjá
Reinh. Andersson.
Nokkrir
duglegir hásetar
geta komist að á fiskiskip á Vestfjörðum frá 14. maí sem hálfdrættingar
Upplýsingar hjá
Jes Zimsen.
4. gr.:
í stað orðsins. »deriblandt« í
danska textanum komi: »saasom.«
5. gr.:
Aftan við 1. málslið bætist: »að
öðru jöfnu«.
6. grein orðist svo:
Þangað til öðruvísi verðurákveð-
iö með lögum, sem ríkisþing og
alþingi samþykkja og konungurstað-
festir, fara dönsk stjórnarvöld einnig
fyrir íslands hönd með ríkisvaldið
fyrir málum þeim, sem sameiginleg
teljast samkvæmt 3. gr. sbr. 9. gr.,
þó þannig, að ísland lætur íslensk-
an ráðherra, búsettan í Kaupmanna-
höfn og með ábyrgð fyrir alþingi
sem ekki hefur öðrum stjórnarstörf-
um að gegna, gæta hagsmuna sinna
gagnvart hinum dönsku stjórnar-
völdum í stjórn allra sameiginlegra
mála, og skal hann eiga rjett til
setu í ríkisráði Dana.
7. gr. fyrri málsgrein orðist svo:
ísland leggur fje á konungsborð
og til borðfjár konungsættmanna
hlutfallslega eftir tekjum Danmerkur
og íslands. Framlög þessi skulu
ákveðin fyrir fram um 10 árísenn
með konungsúrskurði, er forsætis-
ráðherra Dana og íslenskur ráðherra
undirskrifa. Að öðru leyti tekur
ísland ekki, meðan það tekur ekki
annan þátt í meðferð hinna sam-
eiginlegu mála, annan þátt í kostn-
aöi við þau en að greiða laun hins
íslenska ráðherra í Kaupmannahöfn.
Niðurl.
Ný „land“-ráð,
Fyrir skömmu hafa Templarar
leigt »HóteI ísland« frá 1. maí næst-
komandi og hættir »landið« þá að
vera gistihús.
Leigjandi er herra Carl Sæmund-
sen umboðssali o. fl. — Leiga ár-
langt er sögð um 11 þúsund kr.
og er þar í reiknað viðhald, skatt-
ar og skyldur, sem leigjandi tekur
að sjer að inna af hendi.
Salirnir, sem vita út að Veltu-
sundi, verða hafðir í einu- lagi til
kvikmyndasýninga. Þarf þar að
gera breyting á húsinu, hækka loft-
ið í sölunum o. fl. —Herra Pjetur
Brynjólfsson hirðljósmyndari mun
standa fyrir kvikmyndafjelagi þessu.
Aðrar stofur hússins verða sumar
hafðar til sölubúða, ennfremur vöru
sýninga. Rakarabúð á að verða
þar sem nú er knattborðið, o. s. frv.
Sagt er, að dálítill »klúbbur«
verði einhversstaðar um miðbikið,
svo sem endurminning fornrar frægð-
ar »Iandsins«.
Uppi á Ioftinu verða herbergi
leigð einstökum mönnum, — skrif-
stofur o. fl. S.
Leiðrjetting.
Vísir segir að skipið »Titanic«
hafi verið 45000 smálestir og ísa-
fold kemst upp í 63000 smálestir.
Hvorugt er rjett. »Titanic« var
43000 lestir, næststærsta skip heims-
ins, »Ohmpic« er 45000. »Gi-
gantic*, sem nú er verið að smíða
fyrir »White Star« á að verða 65000
smál. >Grosser Kurfúrst« er ekki
mesta skip sem hingað hefur kom-
ið, það varskipið »Cincinnali« sem
er 16000 smál., og kom hingað
í fyrrasumar.
M u n i n n.
pjrímerki brúkuð kaupir hæsta
* verði Inger Östlund, Laufásv. 43
Dóttir
okurkarlsins.
(Þýtt).
--- Frh.
Að vísu skrifaði hann alt sem
með þurfti hjá okurkarlinum, og
þar þurfti bæði að skrifa og reikna
talsvert.
En auk þess fór hann allar sendi-
ferðir, heimsótti viðskiftamennina
og njósnaði um kringumstæður
þeirra er leituðu eftir peningaláni
hjá Tucker. — Auk þess var það
starfi hans að halda skrifstofunni
hreinni, og þurfti hann að verja
hálfri stund á hverjum morgni til
að sópa þar og taka til. Þegar
Tucker var í málaferlum varð herra
Spring að mæta hans vegna fyrir
rjettinum. Fyrir öll þessi marg-
háttuðu störf sfn fjekk herra Spring
hin konunglegu laun, — eitt ster-
lingspund um vikuna.
Það er hjer um bil nægilegt