Vísir - 01.05.1912, Blaðsíða 1

Vísir - 01.05.1912, Blaðsíða 1
Kemur venjulegaút kl.2 síðdegis sunnud- Þriðj.i:!., miðvikud. fimtud. og föstud. 25 blöð frá 25. apríl kosta:Áskrifst.50a. Send út um landóO au.— Einst. blöð 3 a. Afgr. í suðurenda á Hotel Island 1-3 og5-7 Óskað að fá augl. sem timanlegast. Miðvikud. I. maí 1912. Futt tungl. Háflóð kl. 5,7‘ árd. og kl. 5,23‘ síðd. Háfjara 6 tím. 12‘ síðar. Afmœli. Hans M. Kragh, símaverkfræðingur. Oddur O. Gíslason, málaflutningsm. Jónas Jónsson, kennari. Augnlœkning ók. Lækjarg. 2, kl. 2-3. Á morgun. Póstar. Ingólfur kemur frá Borgarnesi. Úr bæntim Á sunnudaginn voru fermd 53 börn í dómkirkjunni. — Vegna fermingarinnar voru send gegnum landsímann út um bæinn 160 heilla- óskaskeyti innanbæar, og mjög mörg utan af landi. Er þetta hinn besti siöur, og ólíku fyrirhafnar minni, en að ganga í mörg hús til að »gratúlera«. Fyrir skeytin innanbæar eingöngu, fjekk land- sjóður 120 krónur. Á. Var póstur frá Islandi í Ti- tanic? Síðan það vitnaðist að um 8000 póstpokar hefðu sokkið með Titanic hefur mikið umtal orðið um það hjer, hvort íslenskur póstur hafi verið í skipinu. Vísir hefur leitað upplýsinga um þetta, og má fullyrða að svo hafi eigi verið, eftir þvi sem slóð á ferðum hjeðan til útlanda um þær mundir. Sundskálinn verður opnaður á sunnud. og verður opinn daglega kl. 8 árd. til 10 síðd. Botnia kom frá útlöndum á sunnudaginn um hádegi. Meðal farþega voru þeir Skúli S. Thor- oddsen og Sigurður Sigurðsson frá Vigur. Frá Vesturheimi kom Jón Finnbogason fyrrum versl- unarstjóri á Búðareyri í Reyðar- firði, með fjölskyldu sína. Fundarhöld hafa verið þessa dagana um stórmálin. kolaeinok- unina og »bræðinginn«. Fjelagið »Fram« hjelt fund um kolaeinokunina á laugardags- frá bestu verksmiðju Norðurlanda höfum við fengið: Stuttkápur, buxur, síðkápur, svartar fyrir fullorðna og unglinga frá kr. 3,80 til 8 kr. og glanskápur allar stærðir stakka stutta og síða, frá 3,40 til 7,50, olíupils og ermar og kápur ómissandi við fiskverkun og heyskap. AUSTURSTRÆTI 1. Ásg. G. Gunnlaugsson & Co. alþektu eru nú komin aftur. Verð frá 1,80, 5,50 pr. stykki. Austurstræti 1 y Versl.Asg,G.Gunnlaugsson&Co. kveldinu íTemplarahúsinu. Pang að var boðið ýmsum utanfjelags- mönnum. Með einokun töluðu nefndar- ! mennirnir Hannes Hafstein og Klemens Jónsson. Á móti mæltu Lárus H. Bjarnaason, Pórður Bjarnason verslunarstj., Jón Þor- láksson og Brynjólfurkaupmaður Bjarnarson. Stúdentafjelagið tók »bræðing- inn« til umræðu á mándags- kveldið. Fundurinn var mjög fjölsóttur og stóð nærfelt 5 kl.st. Guðmundur Hannesson talaði langt málogvirtistvera hliðhollur bræðingnum. Á móti mæltu þess- ir: Sigurður Guðmundsson mag. art., Gísli Sveinsson lögfræðing- ur, Mattías Þórðarson fornmenja- vörður, Andrjes Björnsson, Einar M.Jónasson lögfræðingur, Jakob Möller og Benedikt Sveinsson. Háskólakennararnir Einar Arnórs- son og L. H. Bjarnason töldu bræðinginn gallagrip, óaðgengi- legri bæði Dönum og íslending- um en gamla frumvarpið. Ríkis- ráðherrann væri ekki til annars en hirða laun sín úr landssjóði. Sveinn Björnsson, Árni Pálsson og Guðm. Finnbogason mæltu með »bræðingnum«. Líkkisturnar viðurkendu, ódýru, fást ávalt tilbúnar á Hverfis- götu 6.—Sími 93.—HELGl og EINAR. Stórkostlegt eldgos. Víðar lendur eyðast. Um 3500 manns ferst. í fylkinu Ciriqui, sein er vestast af fylkjum Panamaríkis er eldfjall mikið sem einnig heitir Ciriqui og og er 3650 stikna hátt. Það er

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.