Vísir - 22.05.1912, Blaðsíða 1
301
VÍSIR
20
Kemur venjulegaút kl.2 síðdegis sunnud-
Þriðj miðvikud.Jimtud. og föslud.
25 blöð frá 25. apríl kosta:Ás'eifst.50a.
Send út um landóO au. — Einst. blöð 3 a.
Afgr. ísuðurend á Hótel ísland l-3og5-7
Óskað að fá augl. sem tímanlegast.
Miðv.d. 22. maí 1912.
Háflóð kl. 9,41 ‘ árd. og kl. 10,14‘síðd.
Háfjara 6 tím. 12‘ síðar.
Augnlœkning ók. Lækjarg. 2, kl. 2-3.
Afmœli.
Friðrik Jónsson kaupmaður
Kofoed Hansen skógfræðingur
Á morgun:
Póstar.
Ceres kemur frá Austfjörðum og útl.
Sunnanpóstur kemur.
Sigurðar Gissurssonar (föður Jóns
Sigurðssonar járnsmiðs) Laugaveg
54. fer fram á morgun (fimtudag)
frá heimili hans kl. 1l/..
*\J\s\s
Pósthússtræti 14A — Sími 218 —
opin útkomudaga blaðsins venjulega
kl. 8-10, 2—4 og 6—8.
I,ílrlriltlirnnr viðurkendu, ódýru, fást
LílKKIblUI lldl ávalt tilbúnar á Hverfis-
götu 6.—Sími 93.—HELGl og EINAR.
Úr bæntím
Ceres fór frá Vestmanneyum kl.
7 í morgun á leið hingað.
Kong Helge fór frá Vestmann-
eyum kl. 11. í gærkveldi á hingað-
leið.
Flóra fór í gær til Færeyja og
útlanda (ekki norður um land) og
með henni Smith símastjóri með
frú Jón Stefánsson frá Þverá o. fl.
Ingólfur. Svo sem áður er frá
skýrt hefur Ounnar Egilssen ritstjóri
selt blaðið Ingólf. Kaupendur eru
Benedikt Sveinsson alþm. Brynjólfur
Björnsson taunlæknir Gísli Sveinsson
yfirrjettarmálaflutningsm.Jakob Möll-
er banlcaritari. Söluverðið var um
2200 kr. Blaðið á að halda áfram
stefnu sinni sem andanningablað, og
mun eiga að vera andvígt kolaein-
okuninni og bræðingnum.
óskast á Hotel Island. Hátt kaup.
M
Q
s
Ð
il
G
13
it
o
m
o
m
o
&
Hvltasunim?örar
eru eins og að un.danförnu langbestar í
„LIVERPOOL”.
Ágætis kökuefni: Hveiti frá 0.12—0.16. Gerhveitið
góða 0.18. Pillsburyhveiti í 10 pd. pokum fæstað-
eins hjer.
Allskonar krydd í kökur: Eggjadupt, Citronolia,
Candem, Vauilledrodar, Möndlur, Succat.
Plöntufeiti, Sultutöj blandað, Hindberja og Jarðar-
berja, frá 0.40—1 kr.
Chocolade margar tegundir t. d. Consum. Cacao,
Kaffi brent og óbr. The.
tfSL L . Mýsu, Mejeri, Nýmjólkur, Geitar, Steppe,
VJSvaX • Eidamer, Rochefort, Scweitser.
Pylsur ágætar, sneiddar niður, ef óskað er.
Ávextir í dósum: Ananas, Epli, Ferskjur, Perur,
Plómur og Jarðarber.
Allskonar niðursoðinn matur: Kjöt, Lax, Síld
og Sardínur í afarstóru úrvali.
Glervörur nýkómnar smekklegar og geypilega ódýrar:
Bollapör frá 0.12. Disksr frá 0.10.
KOMIÐ ÆTÍÐ FYRST í LIVERPOOL. Símí 43.
Fundargerð
Samkvæmt ákvörðun Kaupmanna-
ráðsins og stjórnar Kaupmannafje-
lags Reykjavíkur, hafði öllum kaup-
mönnum og útgerðarmönnum ver-
ið boðað á fund í Bárubúð sunnu-
daginn 19. maí 1912, kl. 4 síðd.
til þess að ræða og taka ályktun
um kolaeinokunarfrumvarp milli-
þinga nefndarinnar.
Fundur þessi var settur á tiltekn-
um stað og degi, af formanni kaup-
mannafjelagsins Ásgeiri konsúl Sig-
urðssyni, en fundarstjóri var kos-
inn Brynjólfur H. Bjarnason og
fundarskrifari Karl Nikulásson. Frum-
mælandi var Þórður Bjarnason, versl-
unarstjóri, næstur honum tók til
máls Thor kaupmaður Jensen; mæltu
þeir báðir eindregið gegn frum-
varpinu, bæði í heild sinni og lið
fyrir lið. Þá talaði fundarstjóri nokk-
ur orð frá sæti sínu í sama anda
og hinir. Thor Jensen lagði því
næst fram til samþyktar svohljóð-
andi tillögu:
»Fundurinn mótmælir eindreg-
»ið einokunarfrumvörpum fjár-
»málanefndar þeirrar, er skipuð
»var af Alþingi 1911, og telur
»frumvörp nefndarinnar um ein-
»okun á kolum og steinolíu hina
»mestu skaðsemd fyrir sóma og
»efnalega hagsæld landsins, með
»því hvortveggja hlyti í senn að
»hafa þá miklu ókosti í för með
»sjer, að útiloka kosti frjálsrar
»verslunarsamkepni, að því er
»þessar vörur snertir, og draga
»tilfinnanlega úr arðsvon aðal-
»atvinnuvega landsins. Fundurinn
»skorar á Alþingi og stjórn lands-
»ins að standa á verði gegn
»hverskonar einokun, og gæta
»þess, að ekkert haft v'erði lagt
»á frjálsa verslun eða atvinnu-
»vegi landsins.«