Vísir - 16.07.1912, Blaðsíða 2

Vísir - 16.07.1912, Blaðsíða 2
V I S I R SktWinifrecL Ensk skólasaga eftir F. W. Farrar. ---- Frh. Wilton fjekk bestu einkunn. Kenn- arann furðaöi að vísu, hvernig á þessu .stóð, því Wilton var ekki vanur að standa sig svo vel. En hann sá ekki við hrekkjum hans og Wiiton fullvissaði hann alt af um það, að hann fengi hvergi hjálp. Nú þótti Wilton tími kominn til þess að draga fánann í fulla hæð, — svo óheyrilega óskammfeilinn var hann, að hann gekk með Char- lie út úr skólastofunni, mælti flátt og fagurt við hann, sem ekkert hefði í skorist og tók loks í hand- legg hans og leiddi hann. Nú var Charlie nóg boðið. Hann vildi ekki vamm sitt vila, kipti að sjer handleggnum, nam staðar og horfði beint framan í hann. »Nú«, sagði Vilton, — »kjóstu nú, vinir eða fjandmenn? Hvort eigum við að vera? Ef þú vilt fá mig til að svíkja, ljúga og vera lubbamenni,—verð- um við ekki vinir.« »Gott og vel, mundu þá að vi& erum fjandmenn, — en varaðu þig á afleiðingunum, Evson litli. Má jeg bara spyrja þig um eitt: ætl- arðu að segja bróður þínum frá þessu ? Charlie Joagði. »Nú, jeg sje að þú ætlar að kjafta frá. Jæja, mjer er sama. Það er þjer sjálfum verst!« »Jeg skal þegja!« sagði Charlie stuttur í spuna, og gekk í þungu skapi inn í borðstofuna og hugs- aði um vanda þann, er að höndum fór. Og þess var ekki lengi að bíða, að hann fengi að kenna á afleið- ingunum. Alt var honum gert til meins og óþæginda. — Reynt var að gabba hann og tæla á allavegu, og er það tókst ekki, þá að svívirða hann í orði og verki. Af því að hann tók ekki þátt í drykkju með þeim Noelítunum, heltu þeir víni í rúmið hans, yfir höfuð honum, í skyrtuna hans. Ekkert þýddi að kvarta, því þjónustufólkið var keypt til að bera Ijúgvitni ef á þyrfti að halda. Eldri strákarnir börðu hann og spörkuðu í hann, yngri strák- arnir hæddu hann og smánuöu. Charlie þoldi alt og þagði yfir öllu. Loforð sitt brá hann ekki. Walter vissi, að illa var með hann farið, en fjekk engu að ráði til veg- ar komið honum til hjálpar. Ken kærði sig kollóttan um alt og skól- inn var á fleygiferð niður á við. Bliss var sá eini, er var Charlie til nokkurs trausts og reyndi að hughreysta hann, en bæði kennarar og piltar höfðu horn í sfðu Bliss. Hann reyndi að hjálpa Charlie á marga vegu, en hafði engin áhrif. Þeir Charlie festu með sjer trausta vináttu er hjelst meðan Bliss var í St. Winifred skólanum. Noel kennari tók o.ft yngri dreng- ina tali, sem hann gjarna vildi varð- veita fyrir freistingum. En því miður var hann gufa, sem ekkert vissi hvað fram fór í húsinu. Einu sinni sagði hann við Char- lie: »Áttu nokkra vini hjerna í skól- anum?« »Ekki marga.« »Einmitt það! Það er slæmtjjeg vildi gjarna, að piltar yrðu vinir æfilangt. Hjer eru margir snotrir piltar, t. d. er nú harin Wilton. Fellur þjer ekki vel við hann? Hvarfús er hann og latur, en jeg held hann sje besti piltur inn við beinið.« Charlie gat varla varist því að fara að brosa, en þagði. »Hverjum piltanna ertu samrýnd- astur?« spurði Noel. »Bliss!« svaraði Charlie undir eins. »Bliss? Hvað er nú að tarna? Hver vegna gefur þú þig að hon- um? Er hann ekki dutiungafullur og heimskur? Charlie var nú ekki á því. »Bliss er besti náungi; bara að fleiri væru hans líkar hjerna. Hann er perlan í húsinu okkar og sáeini sem rjett- ir mjer hjálparhönd þegar mikið liggur við.« Auglýsing. Ný sölubúð opnast á Laugaveg 12. Hjermeð tilkynnist háttvirtum bæjarbúum og nærsveitamönnum að jeg undirskriíaður byrja verslun hjer í bænum á Laugaveg 12, og sel þar flest allar hinar smærri matvörutegundir, ásamt ýmsu fleiru, sem nauðsynlegt er fyrir hvern mann og búanda, en sem væri oflangt lijer upp að telja. — Jegóska eftir viðskiftum við ykkur óg vonaþið gjörið svo vel að líta inn í búðina og sjá, hvað jeg hefi á boðstólum og heyra hvað verðið er. — jeg hefi verslað bæði vestan hafs og austan — og hefi því töluverða reynslu í þeirri grein. — Meginregla mín verður nú sem áður: Góðar og vandaðar vörur, lítill ágóði og greið viðskifti, seinast en ekki síst, gott og alúðlegt viðmót við alla. — Virðingarfyllst Jón O. Finnbogason. Andersson Horninu á Hotel Island. Nýkomið jög fjölbreytt fata- efni Ágætt tækifæri. ir Alþingismenn og ferðamenn í bænum. Reinh. m fýr Það er ekki þýðingarlaust að heyra, hvað ræðismaðurinn segir um horfurnar fyrir erlendan mark- að í Mexíco fyrir ýmsar vörur í framtíðinni — og skal því skýrt frá orðum hans í fáum orðum. (Hjer er það eitt tekið af um- mælum hans, er fslendinga get- ur varðað nokkru.) Um niðursoðin matvœli er það að segja, að hjer seljast ógrynn- in öll af sardínum. Norskar sar- dínur eru eins og kunnugt er, talsvert minni en þær sem koma frá Frakklandi og Spáni, og oft er borið á móti því að það sjeu sardínur. Aftur á móti eru stærri tegundir, er nefndar eru »síld« á einkennismiðunum, útgengi- legri hjer, standast betur sam- keppnina við Frakka og Spán- verja. Enginn efi er á um það, að liílu sardínurnar eru »fínni« vara, en fjöldinn, sem er aðal- viðskiftanauturinn, vill helst fá sem mest að fyrirferðinni fyrir lægsta verð. Mikið er selt af niðursoðinni mjólk. En einkum eru það þekkt firma, er hana selja. Ný firma gæti eflaust úrvegað sjer markað, en þá mega þau hvorki spara meðmæli nje auglýsingar í fyrstu eins og hin eldri gerðu. Norskur saltf'skur fæst alstaðar í Mexico. Og ástæða er til þess að ætla, að hann rými saltfiski annara landa þar út framvegis. Þó er víða kvartað um, að salt- fiskurinn geymist illa og kaup- andi megi altaf búast við tapi vegna skemda. Útflytjendur salt- fisks ættu að gefa þessu gaum, því ágerist þetta, er markaðinum norska þar hætta búin. Þjóð- versk verslunarhús eru milliliðir við söluna. Bein salafrá Noregi á sjer ekki stað. Borgunarskilmálarnir hafa vald- ið þeim mestum örðugleikum, er byrjað hafa starfsýslu í Mexico. Frh. Enskar húfur Afar stórt og fjölbreytt úr- val. Meirá en áður hefur komið í einu til borgarinnar ný- komið á Hornið á Hotel Icland Reinh. Andersson »Jæja, það gleður mig að þú hefur fundið vin, Evson!« sagði Noel góðlátlega. — Meðal annara reyndi Bliss að vekja Ken og kvarta við hann um meðferðina á Charlie. En Ken var kæruleysið sjálft, — hann svaraði illu einu og sýndi Bliss þótta og lítilsvirðingu, Og þó bar hann und- ir niðri virðingu fyrir drenglyndi og hreinskilni hans. Hann fann að jafnvel Bliss, sem allir litu horn- auga til, var sjer fremri að mann- kostum og öllu góðu. Hann gat ekki brotið odd af oflæti sínu og satt að segja leið honum verst af öllum piltum í St. Winifred skólan- um. Frh. Í/Ílílíktlirnar viðurkendu, ódýru, fást LtlhhiolUl Udl ávalt tilbúnar á Hverfis- ötu gö.—Sími 93.—HELGI og EINAR, Líkkistur og líkklæði er best að kaupa í verksmiðjunni á Laufásveg 2 hjá EYVINDI ÁRNASYNI. Teppi lánuð ókeypis í kirkjuna. Útgefaridi Einar Gunnarsson, cand. phil. Östlunds-prentsmiðja.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.