Vísir - 20.07.1912, Page 2
V I S I R
Frá Mexiko.
,Eldyatn‘ Mexikómanna:
Pulque
Þjóðarbölið mikla.
Margt er eftirtektarvert og undr-
unarefni í borginni Mexikó. Nám-
fús ferðamaður, sem ánægju hefur
af fornfræði, getur aukið þar þekk-
ingu sína í mörgum greinum, því
margt ber þar óvænt fyrir augu og
eyru.
í þjóðmenjasafninu sjer hann alla
kynjasögu ríkisins opna eins og
minnismörk yfir blóðhitanum, blóð-
þorstanum og grimdinni, en einnig
yfir stórkostlegri, ríkri fegurðarþrá.
Þessir voldugu minnisvarðar eru
menjar Aztekanna og Toltecanna,
fornþjóðanna í Mexikó á löngu
liðnum öldum, — þeir vísa oss
inn í myrkur, þar sem óljóst grillir
í forna speki Mongólanna og mynd-
letur Egypta. Blótsteinninn frægi
þar sem Aztekarnir slátruðu óvin-
um sínum og rifu úr þeim hjört-
un, og tímatalssteinninn varpa ein-
kennilegum bjarma á kynflokk, sem
virðist hafa komið fram á tíma-
mótum þeim, er austræn og suð-
ræn menning runnu saman.
Ef lengi er gengið og leitað vel
í kirkjum borgarinnar, getur hittst
á dýrmæt málverk eftir Murillo*).
Vert er og að aka til Tacuba, og
sjá trjeð, sem Fernando Cortez,
blóðhundurinn hrausti, grjet undir,
*) Bartholomé Estiban Murillo. spán-
verskur málari, 1617—1'82, — málaðí
einkum biflíumyndir og atvik úr götu-
lífi í spánskum borgum. Var einhver
hinn mesti litbrigðameistari í heimi,
- Þýð. —
þegar íbúarnir höfðu veitt honum
ráðningu.
Ferðamenn ættu líka endilega að
fara um K/gn-skurðinn í Tlalpam,
þar sem vatnið streymir krystals-
tært um trjágöngin löngu, eða San
Angel-gistihúsið, sem ergamaltklaust-
ur breytt í nýtísku gistihöll og um-
hverfis bústaðir auðkýfinga milli
blómgarða og fegursta gróðrarlífs.
Og sje manni ekki mjög sárt
um líf sitt, er rjettast að fara til
Amecameca, undur-fagra þorpsÍHs í
forsælunni af Popocatepetl.*) En
bæði í þessu þorpi og í Cuernavaca
sem kallað hefur verið Ódáinsakur
Mexíkóríkis, er nú sem stendur
höggormur, sem er hættulegri en
biflíuhöggormurinn gamli. Það er
Zapata, stigamaðurinn, sem Iifir á
því að ræna járnbrautarlestir þær,
er voga sjer yfir fjallið hjá Tres
Maria.
Að vísu veit jeg það, að góðar,
leiðbeinandi ferðamannabækur eru
gefnar út og margan fróðleik er
þar að finna um þjóðina og land-
ið. En flestum mun þeim, er ekki
dvelja í landinu langvistum, sjást
yfir skuggann, sem >eldvatniðc kast-
ar á íbúana og voöa þann sem af
því stafar innbornum Mexíkómönn-
um.
»EIdvatnið« pulque er andinn illi
í sögu Indíánanna, háskadrykkurinn,
sem veldur ánægju og æði, freyðandi
eitrið hannar Circe**), sem breytir
mönnum í svín.
Menn geta lengi átt heima í Mexiko
áður en þeir verða þess varir að
eldvatnið sje til. Það er ekki veitt
*) Fjall í Mexikó, 5452 stikur á hæð
í suðaustur frá Mexíkóborg. — Þýð.—
**) Circe galdranorn á eynni Aia, sem
breytti fjelögum Odysseifs í svin. Sjá
Hómer Odyseifskvæði.
— Þýö. —
á bestu og dýrustu gistihúsum. Það
er selt og drukkið í útkjálkum bæj-
arins, í skuggahverfunum, þar sem
fátæktin á heima, í afkimunum, þar
sem óþrifnaðurinn er mestur og
bólan deyr aldrei út.
Þar rennur eldvatnið sem grugg-
ugur straumur illra hvata og vilja-
deyfandi eitur saman við letiblóö
Mecikómannsins.
En enginn sjer glöggt, hve voða-
legt þetta þjóöarböl er, fyrri en hann
hefur reikað um verkmannahverfin
á sumardegi. Ekki er það áhættu-
laust að koma á eldvatnsknæpurnar
þegar drykkurinn rennur þar í
straumum, því þá er rauði maður-
inn eins og grimmur urrandi rakki
við alla sem ljósari eru á hörund.
En sleppi komumaður heill á hófi
úr greipum hans, hefur hann fengið
ljósari þekking á sálarsaurgun þjóð-
arinnar.
Ótrúlegt er það, en hagskýrslurnar
sanna það samt, að daglega eru
drukknir 500000 pottar af eldvatni
í Mexikoborg. Járnbrautarvagnarnir
mikluflytja það þangaðúr nágrenninu
þar sem maguey jurtin vex á margra
ferrasta frjóengi.
Um uppruna eldvatnsins er þetta
í frásögur fært: Á síðara helmingi
11. aldar á ríkisstjórnarárum Tolte-
canna, rjeð sá konungur ríkjum í
Mexicó, er Tepaucaltzin hjet. Einn
af helstu höfðingjnm hans. Papautzin
að nafni, varð þess vísari ein góðan
veðurdag, að í agave-tegund þeirri
er maguey heitir, er bragðgóður
vökvi. Hann varð svo glaður við
þessa uppgötvun, að hann sendi
dóttur sína, Xochlit hina fögru, til
konungsins til þess að gefa honum
að bragða drykkinn. En það hefði
hann aldrei átt að gera. Því þegar
eldvatnið fór að svífa á konung fór
hann að verða helsti fjörugur,
tók stúlkuna fallegu traustataki og
lokaði hana inni. Hann gat son
við henni, sem drap föður sinn, er
hann varð fulltíða og settist sjálfur
að völdum. En upp frá því áttu
Toltecarnir sjer ekki viðreisnarvon.
Eldvatnið eyðilagði forna ættstofninn
svo hann varð Aztekunum að bráð
og Mexikómenn voru frá því ofur-
seldir ófriði og styrjöldum.
Það er lærdómsrík saga, er ætti
að kenna hverju skólabarni í Mexiko.
Því er nú ver, að Iítt er um skóla-
menntun þar í Iandi; 50% af 15
miljónum Iandsbúa kann hvorki að
Iesa nje skrifa.
En lífið sjálft ætti að kenna þeim
hvað til þeirra friðar heyri. Áhrif
eldvatnsins leynast ekki, — þau eru
auðsæ í þjóðareinkennunum, — eld-
vatnið er gerefni allra innbyrðis
óeirða. Það örfar stigamennsku-
fýsnina, það er verkfærið í hendi
þess sem meira má sín, til þess að
ná tökum á öðrum veikari og nota
hann til illverka. Og þegar skríll-
inn veður við og við inn í Mexíkó-
borg, með eitthvert byltingarslagorð-
ið á vörunum, þá Ieggur af honum
eldvatnslyktina.
Hvað er þá þetta »eldvatn« ?
Það er búið til eins og áður er
að vikið, úr maguey-jurtinni, sem
er risavaxin agavejurt af aloe-ætt-
inni, og vex á afarvíðlendum svæð-
um víðsvegar í Mexíkó. Stöngull-
inn er stuttur og mjög digur eins
og á öðrum agövum og ganga út
frá honum eins og stór stjarna alt
að 2 stikna Iöng blöð randtennt og
eru þau alt að 20 sentimetra breið
og 10 sentimetra þykk.
Þegar jurtin blómstrar, eru enda-
knappanir skornir af; í stöngulinn
myndast hola, sem mánuðum saman
fyllist stöðugt sætum safa, svo mjög
að úr einni einustu jurt fást alt að
því 2000 lítrar. Frh.
Nokkur blöð af Vísi NOo 61 verða keyptá skrifstofunni fyrir 25 au. ef þau eru vel hrein.
Nærföt hvergi betri en hjá Reinh. Andersson Horninu á Hotel Island. L.JOSASXIFTI NÝJAN LJÓÐFLOKK UM KRISTNITÖKUNA Á ÍSLANDI ÁRIÐ 1000 les Guðmundur Guðmundsson frá ísafirði í Bárubúð á laugardagskveld 20. júlí kl. 9. AÐGÖNGUMIÐAR á 50 aura eru seldir í bókaverzlun ísafoldar og við innganginn.
á Jfc.^.^atttúeseus
Botnvörpuskip til sölu. Folio 1109. — 139 feta. — Byggður 1906. Lloyds-þrí-gangs vjelar 67 fullk. hestaöfl 10 mílur á kl. tímanum með lítilli kolaeyðslu. Folioll03. — 130 feta. — Byggður 1911. Lloyds-þrí-gangs vjelar, 75
fullk. hestaöfl. 10 mílur á kl. tímanum með 6 tonna
brúkun á sólarhringnum. — Hvalbak.
kola-
Folio 1078.—130 feta—-Byggður 1904. Lloyd þrí-gangs vjelar 70 fullk.
hestöfl. IOVj mílu á klt. 6 tonna kolabr. á sólarhr.— Hval-
bak. Lágt verð.
Foilo 1063. — 120 feta — Byggður við endir ársins 1901. Lloyds þrí-
gangs vjelar. Árið 1908 voru vjelarnar teknar úr skipinu og
fullkomlega endurbættar — þá var einnig núverandi ketill,
sem var að mestu leyti nýr 1905, settur í skipið. Kostuaður
um 36 þús. krónur. Endurbótin með tillögðum Acetylen Gas-
tækjum kostaði í heild sinni allt að 50 þús kr.
Foilo 1073. — 100 feta — Byggður af járni 1891 til Lloyds, C. S. C.
vjelar, 45 fullk. hestöfl. Nýr ketill innsettur við enda
ársins 1909 er þoldi 120. c. pda. n. þrýsting. Mikið nýtt
1911. Nýr skrúfu ás 1909 Lágt verð.
Viðvíkjandi frekari upplýsingum, uppdráttum o. s. frv.
snúi lysthafendur sjer til Sharp Brothers, Baltic Chambers
Newcastle-on-Tyne, sem hafa til sölu allskonar fiskiskip.
Símnefni: »Speedy«, Newcastle-on-Tyne. Scotts Code.
Útgefandi Einar Gunnarsson, cand. phil. — Östlunds-prentsmiðja.
A
Sauðakjöt og slátur
fæst í dag og framvegis.