Vísir


Vísir - 31.07.1912, Qupperneq 3

Vísir - 31.07.1912, Qupperneq 3
V I S I R ........Þvottadufiið, sem rtú er að ryðja burfu allri sápu og soda úr heimjnum( fæSt hjá flesfum kaupmönnum borgarinnar. Panfanir á skrifsfofunni eru orðnar geysimikiar, einnig utan að iandi, og hvaðanæfa frá streyma þakkiætisbrjefán, meðmælisbrjefin og; vottorðin um ágæti Vasguits. þvottakonurnar heimta Vasguif Húsmæðurnar heimta Vasguif. Húshændurnir sömuleiðis, og allir aðrir, þvt hver maður vill hafa hreinan þvoft og óslitinn. VASGUiT STAR BESTIR OG ÖDÝRASTIR í VERSLUN EINARS ÁRNASONAR. Botnvörpuskip til sölu. Folio 1109. — 139 feta. — Byggður 1906. Lloyds-þrFgangs vjelar 67 fullk. hestaöfl 10 inílur á kl. tímanum með lítilli kolaeyðslu. Folio 1103. — 130 feta. — Byggður 1911. Lloyds-þrí-gangs vjelar, 75 fullk. hestaöfl. 10 mílur á kl. tímanum með 6 tonna kola- brúkun á sólarhringnum. — Hvalbak. Folio 1078.—130 feta—Byggður 1904. Lloyd þrí-gangs vjelar 70 fullk. hestöfl. IOV2 mílu á klt. 6 tonna kolabr. á sólarhr.— Hval- bak. Lágt verð. Folio 1063. — 120 feta — Byggður við endir ársins 1901. Lloyds þrí- gangs vjelar. Árið 1908 voru vjelarnar teknar úr skipinu og fullkomlega endurbættar — þá var einnig núverandi ketill, sem var að mestu leyti nýr 1905, settur í skipið. Kostuaður um 36 þús. krónur. Endurbótin með tillögðum Acetylen Gas- tækjum kostaði í heild sinni allt að 50 þús kr. Folio 1073. — 100 feta — Byggður af járni 1891 til Lloyds, C. S. C. vjelar, 45 fullk. hestöfl. Nýr ketill innsettur við enda ársins 1909 er þoldi 120. c. pda. n. þrýsting. Mikið nýtt 1911. Nýr skrúfu ás 1909 Lágt verð. Viðvíkjandi frekari upplýsingum, uppdráttum o. s. frv. snúi lysthafendur sjer tii Sharp Brothers, Baltic Chambers Newcastle-on-Týne, sem iiafa til sölu allskonar fiskiskip. Símnefni: »Speedy«, Newcastle-on-Tyne. Scotts Code. NESTI í ferðalög og útreiðartúra er best og ódýrast í versl. Einars Árnasonar. Land blóðLefndarinnar. Eftir A. Pitcairn-Knowles. Þarna er hún, æfintýraeyan Kor- síka, umflotin bláöldum Miðjarðar- hafsins, hjer um bil 50 enskar míl- ur í vestur frá ítalfu, hundrað míl- ur í suður frá Frakklandi. Hún sefur þarna eins og einbúi, útilokuð frá umheiminum og þó nærri því í augsýn frægustu og fegurstu mið- stöðva Norðurálfumenningarinnar. íbúar hennar virðast ekki geta vaknað úr doðamókinu, þeir eru líkastir nátttröllum, sem hefur dagað uppi, og gestirnir frá menningar- löndunum stara forviða á þá eins og eitthvert furðuverk. Ekkert virð- ist hafa áhrif á venjur og lifnaðar- háttu eyarskeggja, og framfarir nú- tímans fara algerlega fyrir norðan garð og neðanhjá þeim yfirleitt. Yfir Korsíku hinni fögru grúfir ský, dimmt og ægilegt. Frjósömu, sígrænu dalirnir hennar, fannhvítu fjallatindarnir hennar eru blóði stokknir, blóði þjóðarinnar, sem út- hellt er til þess að fullnægja villi- menskulögumblóðhefndarinnar,þess- ari voðalegu venju eyarskeggja, sem eiga í eilífum ófriði sín á milli, heilar ættir, heilar kynkvíslir. Og í þeim ófriði er ekki sókst eftir lífi söku- dólgsins, heldur sakleysingjans. Þeir sem horfa á fegurð og unað þessa fegursta bletts á jarðríki, en þekkja ekki sögu eyarinnar, hafa litla hugmynd um ógnir þær, er svert hafa álit Korsíku og íbúa hennar í augum Norðurálfunnar,— ósköp þau, er valda því að menn- ingarþjóðirnar horfa með fyrirlitn- ingu á þessa ógæfusömu þjóð, sem örlögin hafa skapað svo ótrúlega ómannúðlegt hugarfar, en jafn- framt óeigingjarnt og göfugt á sína vísu. Fortíð Korsíku er menningarvana og meini blandin, svo hverjum friðarvini, sem flettir upp sögu hennar, hlýtur að ofbjóða og ógna það, sein hann verður vís- ari um. En því meir sem menn kynnast því sanna hugarfati eyar- skeggja, því frekar breytist viðbjóð- urinn og fyrirlitningin í djúp- sára meðaumkvun með veslings fórnarlöirbunum þessarar grátlegu þjóðarvenju, sem gengur í arf frá kyni til kyns og enn í dag vekur hroll og óhug, ógn og skeifingu meðal þeirra, sem ekki geta sagt skilið við þennan óttalega álaga- dóm og fullnægja honum í tryllingi æsinganna af fremsta megni, uns síðasti kynkvisturinn oft og einatt er liðinn undir lok. Sem betur fer, eru þeir dimmu dagar orðnir minningin ein um óttalega fortíð, þegar Korsika var öll einn blóðdrifinn vígvöllur þar sem heilar ættir bjuggu hver ann- ari banaráð og reyndu að þurka hver aðra af yfirborði jarðarinnar. Nú trúum vjer varla augum og eyrutn, þegar skýrslurnar sýna oss svart á hvítu, er innbornir sagn- fræðingar eyarinnar hafa birt, að á árunum 1539 til 1729 voru 300000 manns vegin þar í blóðhefnd og á rúmum 30 árum, frá 1821 til 1852 voni morð á eynni talin 4300! En það er alveg óþarft að leita -angt aftur í tímann að blóöhefnd- ar morðvígum þar. Ekki er lengra en frá 1889 síðan að voða atburð- ur af því tagi varð í þorpinu Zicavo, þar sem fjórum fjandmönnutn lenti saman við bæarbrunn einn; þeir skutu hverir aðra til bana og tóku samtímis síðasta andvarpið. Slíkar blóðhefndar svaðilfarir milli 4 manna í senn hefur að sönnu ekki verið getið um síðan, en engu að síður fellur fjöldi nianna enn sem fórn þessa villisiðar við og [ við og er ekki annað að sjá, er. að svo verði meðan Korsíku blóðið er yfirgnæfandi í æðutn eyarskeggja. Hvað gerir Frakkastjórn til þess að stemma stigu fyrir þessum glæpa- venjum þegna sinna, sem ekki meta Iíf meðbræðra sinna meira en slát- urfjenaðar? Frakkar hafa reynt að útrýma blóðhefndinni með því að leggja fangelsisvist við því að bera á sjer kníf eða skammbyssu leyni- lega. En Korsíkumenn virða lög- in að vettugi og lögreglan verður að játa, að karlmennirnir þar að minsta kosti skoða þau sem dauð- ati bókstaf, Þeir sem kunnugir eru best kor- sikönskum siðvenjum, vita, að það er algerlega frágangssök að ætla sjer að útrýma blóðhefndinni með harðýðgi laganna. Meðan ófær; r fjallauðnir og ódáðahraun eyarinnar veita þeim örugt hæli og skjól, er flýa til fjalla eftir framin morð og runnarnir eru jafn aðgengilegir til fyrirsátra—, meðaii þjóðin lítur svo á, að sakamennirnir hafi aðeins innt af hendi heilagt skylduverk, og gerir allt sem í hennar valdi stendur til þess að vernda þá gegu lögum og lögreglu, — á meðan verða þeir, sem bölvun bióðhefndarinnar vofir yfir, að ganga með vopnurn til þess að verja líf sitt. Af því að þeir mega alltafbúast við því, að á þá sje ráðið og þeir eru alt af á varðbergi, telja margir þeirra óhyggilegt að fara heiman að, nema þeir hafi á sjer tvö til þrjú vopn, - meira að segja hef jegsjeð menn stundum vopnaðameð byssu,, skambyssu og tveim eða fleiri rýtingum í senn. Fáir drengir, seni 12 ára eru orðnir, kunna eigi að fara nieð skotvopn og beita rýt- ingum og eiga þeir allir að minsta kosti eitt vopn af einhverju tagi. Frh. SktWmifred. Ensk skólasaga eftir F. W. Farrar. --- Frh. »Oott og vel, kona góð !« sagði Henderson og gaf henni pening. i »Jeg vona, að strákurinn áreiti þig 1 ekki framar og nú getur þú farið. En, heyrðu Penn! Fyrst þú hefur ekki tekið glasið, stendur þjer auðvitað á sama þótt leitað sje á þjer.« »Er það meiningin að það eigi að gera hjá mjerþjófaleit?« sagði Penn og reyndi að smokka sjer út úr þyrpingunni; hann bjóst við að geta fleygt bannsettu glas- inu svo lítið bæri á. »Bíddu, góður!« sagði Whalley, »þú sleppur ekki alveg svona.« Nú settust alliraðþeim. Noel- ítarnir reyndu að hindra að mis- boðið væri virðingu þeirra með því að leita á Penn; þeir þóttust vita að liann væri sekurog reyndu nú að fá Kenrick, sem kom þangað líka, ti! að skerast í Ieikinn. Loks unnu þeir hann til þess að hrópa hátt: »Pið hafið engan rjett til þess að leita á honum, þið megið ekki gera það.« »Hjerna er skóladúxinn! Hann skal skeraúrþví«, sagði Hender- son þegar Rower og Walterkomu. »Segðu honum málvöxtu, Ken- rick!« »Svo stendur á, að ilnivatns- glasi hefur verið stolið frá f.ú Hart, og Penn getur ekki sjeð fremur en jeg ástæðu til að láta leita að því á sjer«. »Pú nefnir ekki það smáræði, að Charlie segist hafa sjeð Penn taka frá henni glasið.« »En hvað hefurðu verið að

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.