Vísir - 09.08.1912, Page 1

Vísir - 09.08.1912, Page 1
3Ö7 Föt og Fataefni s1íaáú?;ímes0tf úrval. Föt saumuð og afgiddd \ 12-14 tímum Hvergi ódýrari en í ,DAQS3RÚ N‘. Simi 142. Kernur venjulega út kl. 12alla virkadaga. Afgr.í suðurenda á Hótel Isl. n‘/2-3og5-7 Föstud. 9. ágúst 1912. Háflóð kl. 2,4‘ árd. 2,41‘ síðd. Háfjara hjer um bil 6 st. 12‘ síðar. Afmæli. Bened. Gröndal, skrifari Frú Elinborg Christjansson Brynjólfur Magnússon, kennari. Á morgun. Póstar. Póstvagn til Þingvalla. Hafnafjarðarpóstur kemur og fer. Veðrátta í dag. Loftvog r iVindhraði Veðurlag Vestm.e. 761,5 6,7 .0 Móða Rvík. 761,3 8,0 N I Skýað ísaf. 761,6 5,7 A 3 Alsk. Akureyri 761,1 3,5 0 Skýað Grímsst. 726,0 5,6 0 Heiðsk. Seyðisf. 762,2 5,6 0 Ljettsk. Þórshöfn 754,8 10,4 ANA 1 3 Alsk. Skýringar. N—norð-eða norðan, A —aust-eða austan, S—suð- eða sunnan, V—vest- eða vestan. Vindhæð er talin í stigum þann- ig: 0—logn,l—andvari, 2—kul, 3— gola, 4—kaldi, 5—stinningsgola, 6— stinningskaldi,7—snarpur vindur,8— hvassviðri,9—stormur,10—rok, 11 — ofsaveður, 12— fárviðri. Ulrlmturnsir viðurkendu, ódýru, fást ullUUollll Ildl ávalt tilbúnar á Hverfis- götu 6.—Sími 93.—HELGl og EINAR, y Ur bænum. Vesta fór frá Akureyri 7. ágúst síðdegis. Botnia fór frá Leith 7. ágúst árdegis. Ceres kom til Leith 6. ágúst ár- degis. Hestaskip Zöllners kom í nótt með kol til Edinborgar. Frá Alþingi. Dagskrá alþingis í dag. Nd. (kl. 12) 1. Peningalotterí 3. u. 2. Vatnsveita á Sauðárkrók 2. u. 3. Nýnefni 1. u. 4. Vatnsveita í verslunarst. 3. u. 5. Sírhakerfi íslands 2. u. (Zf. d. kl. 1) 1. Hafnarlög Reykjavíkur 2. u. 2. Flateyrar verslunarióð 2. u. Till. til þingsál.um meðferð fjár- kláðans 1 umr. Nefndarálit minni hlutans um frv. til laga utn stofnun peninga/otterís fyrir fsland. Enga samleið á jeg við hina nefnd- armennina i þessu máli. Ber eink- um tvent til. Þaö fyrsta, að jeg vil með engu móti bendla nafn Iands- ins við slíkt fjeglæframál. Hitt aun- að, að jeg er þeim ósamþykkur um 25 blöð írá 30. júlí kosta: Á skrifst.50a. Send út um landóO au. — Einst. blöð 3 a. fyrirkomulagið á happdrættinu, ef það á að komast á fót. Happdrætti nefni jeg slík fyrir- tæki, því að jeg Ijæ eigi mitt lið til þess að Iögfesta orðskrípið lotíerí í íslensku máli. Ágæti happdrætt- is sjest ljósast á ætt þess og upp runa. Það er runnið af veðmálum og fjárhættuspilum og hefur enn einkenni þeirra, þótt menn hafi leit- ast við því, að gera áhættunaskap- Iegri fyrir þá, sem kaupa happdrætt- ismiðana. Hefur það verið gert með því, að takmarka miðafjöld- ann og fjölga happadráttum, koma föstu skipulagi á dráttinn og hafa eftirlit með því, að eigi sje svikið. En eigi að síður hefur bæði Frakk- land og England lagt niður þau happdrætti, er þar höfðu verið, og allir kannast við, að peningahapp- j drætti sjeu fjeglæfrar. Sama má auðvitað segja um iðnaðarhapp- drætti, en þó er hættan þar langt- um minni og einkum er freisting- in margfalt minni fyrir almenning. Svo er og um góðgerðahappadrætti í eitt og eitt sinn og eins um vaxta- happdrætti. Hitt et* alkunna, að í peningahappdrætti eru menn gintir með voninni um að geta unnið stór- auð, 1000000 kr., eða þar um bil. Auk þess er hlutum skift í sundur, jafnvel í tíundir, til þess að fátækl- ingar ginnist til að kaupa. Eru því margir ágætir menn á þeirri skoð- un, sem kemur frani i þessum orð- um Dr. Max von Heckel, kennara í háskólanum í Múnster í W.: »Rík- ið má aldrei nje á nokkurn hátt styðja happdrættisskaðræðið, því að það verður að vita siðferðisskyldu þá, sem á því hvílir, og þekkja verk- efni sín í þjóðarbúskapnum og í lagasetning um alþjóðar hag«. Seg- ir hann þetta bæði um það, er rík- ið rekur sjálft happdrættið, og er það leigir það öðrum eða veitir öðrum leyfi til slíks fyrirtækis, eða ábyrgist eða hefur eftirlit með slík- um fyrirtækjum, og jafnvel um happ- drætti í góðgerðaskyni. Hiu ýmsu ríki líta misjafnt á þetta mál, og hafa sum þeirra peninga- happdrætti. Þó eru hin fleiri, sem hafa aldrei haft það, eða lagt það niður, þótt þau hafi haft það áður. Nú eru peningahappdrætti í þess- um ríkjum: Austurríki, Ítalíu (í þess- um báðum töluveðjanar happdrætti), Þýskalandi (Prússlandi, Saxlandi, Hamborg), Ungverjalandi, Hollandi, Spáni, Danmörku og Serbíu. Hjer af má sjá, að það eru ýkjur hjá meiri hluta nefndarinnar, að »Iotteri er náiega til í landi hverju«. En hitt er rjett, sem þar segir, að ýmist reka ríkin slík fyrirtæki sjálf, eða þau selja þau einstökum mönnum á leigu. En hvort fyrir- komulagið sem haft er, þá er hjer um ríkiseinokun að ræða, ríkisein- okun á vöru, sem ríki er ósam- boðið að versla með, ríkiseinokun Skrifstofa í Pcsthússtræti 14A. Venju- lega opin kl. 8—10, 2—4 og 6—S. á tálvonasölu. Þykir mjer harla ein- kennilegt, er þessi nefnd gleypir við þessari ríkiseinokun, en má enga aðra heyra nefnda. Eru þó sann- arlega færri blóðpeningar í þeim gróða, sem landið gæti haft af því að versla sjálft með steinolíu, tó- bak o. fl. Uppruni happdrættis er iliur, grundvöilurinn er ginning og gróð- inn illa fenginn. Og hvernig verða afleiðingarnar? Árið 1873 var stofn- aður fyrsti sparisjóðurinn hjer á landi. Þá áttu menn enga spari- skildinga, en nú eiga þeir hjer um bil 6 miljónir i sparisjóðum. Þar á sjest uppeldiskraftur þeirrarstofn unar. Peningahappdrætti vinnur í alveg öfuga átt, það tvístrar og kenn- ir mönnum að láta kylfu ráða kasti og að ala blindar vonir. Eru þær afleiðingar fátækri þjóð allhæitu- legar. En þó verða þær afleiðing- ar oss hættulegri, að virðing lands- ins og Iánstraust fer alveg forgörð- um, er aðrar Jojóðir sjá oss taka til slíkra örþrifráða. Mun slíkt vekja grun þeirra um, að hagur landsins allur sje á fallanda fæti, einkum fyr- ir þá sök að fylgismenn þessa frum- varps munu reyna að rjettlæta til- tektir sínar með erfiðum fjárhag. Þó er það á allra vitorði, að fjár- hagur landsins er alls eigi þröng- ur, heldur stafa misfellurnar af því, að of mikið hefur verið lánað úr viðlagasjóði, svo að peningaforði er eigi nægur sem stendur. En sú hin sama nefnd, sem fjallar Uiii þetta mál, hefur með höndum gnægð af frumvörpum og tillögum, sem hvert um sig nægir til umbóta á þessu. Af framantöldum ástæðum verð- ur tillaga mín sú, að ísland setji aldrei peningahappdrætti á stofn, allra síst með þeim hætti, að það selji öörum í hendur einokun á svo glæfralegu gróðafyrirtæki, Skora jeg því á deildina að fella þessi lög. En jeg þykist mega ráða það af undirtektum nefudarmanna og ann- ara þingmanna, að meiri hluti þeirra verði svo frekur til fjárins, að þeir vilji hafa það fyrir hvern mun. Jeg geri því til vara nokkrar breytingar- tillögur, sem bæta nokkuð úr, ef illa á að fara. Það er vitaður hlutur, að þeir menn, sem nefndir eru í 11. gr„ hafa eigi fjármagn til að reka slíkt fyrirtæki, og að aðrir nienn standa að baki þeirra; En vel má vera, að aðrir menn geti fundið aðra bakhjarla, er byði betri kjör. Er því rjettast að binda heimildina ekki við neitt nafn. Leyfisbeiðendur vilja sleppa með því, að happadrættir nemi 70% af j samantöldum iðgjöldum fyrir alla hlutina í flokknum. En í fleslum flokkuðum happdrættisfyrirtækjum mun þessi hundraðstala vera hærri, Langbesti augl.staður i bænum. Augi. sje skilað fyrir kl.3 daginn fyúr birtingK. a!t að 90%. Sýnist því eigi of- íiátt, þótt þetta væri sett 80%. Því að naumast er ráð fyrir því ger- endi, að þingmenn vilji leigja nafn og heiður landsins, nema fyrir því verði sjeð, að áhætla hlutkaupanda verði eigi meiri en tíökast annar- staðar. Hjer þyrfti að bæta inn í ákvæði um það, hversu rnargir happadrættir skuli vera. Alþingi hefur eigi vald til þcss að setja lög um, að slíkí fyrirtæki sem þetta skuli eiga heima í Kaup- mannahöfn. Því að við höfum engin yfifráð yfir Dönum. Gæt- um vjereins vel sett í lögin að drætt- ir skyldu fram fara í Hamborg cöa Paris. Væntanlegum leyfishöfum yrði slíkt lagaákvæði ónýtt, ef það fengi eigi góðfúslega leyfi hjá stjórn þess lands, eða væri það heimilt eftír þess lögum. Hins vegar get- ur oss enginn liagur verið í því, að binda þá við Kaupmannahöfn, frenmr en einhvern annan stórbæ einkum þar þar sem á öðrum stað í lögunum er bannaðað selja happ- drættismiða í Dantnörku. Mundu og flestir liyggja, að hjer væri um nýtt nýlendu happdrætti (Kolonial- Iotterie) að ræða, enda mundu Dan- ir leyfa slíkt einmitt í þeirri veru (sbr. orðin utan ríkis í 4. gr.). Af- Ielðing þessa er sú, að fyrirtækið verður að eiga heima í Reykjavík. og drættir að fara fram hjer. Þrjátíu ár er langur tími. í Ung- verjalandi leigir stjórnin hlutafjelagi einu rúml. hálfu stærra happdrætti og lætur [jað gjalda 3000000 franka eftir á ári hverju, og þó ekki nema til 20 ára. Árgjaldið til landssjóðs er altof lítið. Ungverjalands var getið hjer að ofan. Prússar borga 1630000 niörk fyrir samskonar leyfi í Brúns- vík. Holland jhefur peningahapp- drætti, þar sem alls eru seldir 105000 seðlar á 90 kr. hver. Upp úr því hefur landið 846,000 kr. eða 8.95%. Hið flokkaða happ- drætti Dana (Klasselotteriet) 100000 hluti á ári fyrir 50 kr. hvern og og græðir á þvíl 550000 kr. (1909) þ. e. 31%. Spánn tekur 27% í Iands - sjóð sinn og græðir 35250000 franka (peseta) [1909]. Serbia selur á ári 60000 hluti á 120 franka hvern og fær í hreinan ágóða 600000 franka eða 8.33%. Hygg jeg að eigi muni vaxa lánstraust íslands, ef það ljær nafn sitt fyrir svo lítið, sem til er skilið í frv. Að setja þjóðbankanní Kaupmanna- höfn inn í þessa lagasmíð er með ölluástæðulaust. Tryggingin áhvergi annarstaðar aö vera en í landsbank- anum. Óskiljanleg er injer sú meir.bægni við Dani og nýlendur þeirra, að banna þeim að freista hamingju sinn- ar í þessu happdrætti, ef þá fýsir Eða mundi leyfið tekið aftur, ef Danir leyfðu sjálfir sölu þar í landi? Hvað þýða orðin »utan ríkis«?

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.