Vísir - 15.11.1912, Page 2
V í S I R
ÖTORKÚTTER
byggður úr eik, 34,40 br. Reg. Tons, 26 hesta vjel, til sö!u.
JC tiuUmus,
Miðstræti 6.
Fyrir skólabörn
er það nauðsynlegt að vera hlý og þur á fótum og geta þau |S|
með því komist hjá mörgum sjúkdómum. Reynslan hefur p|J
sýnt, að bestu stígvjelin til þessa eru hin norsku hlaupa- K'á
stígvjel mín, er að eins fást í
Brauns verslun Hamborg, Aðalstræti 9,
inu rússneska, Tschagir, flotaforingi,
skaut sig heima hjá sjer 24. f. m.
Auður Svalbarðs. Enskur jarð-
íræðingur Mansfield að nafni, hefur
í sumar verið á Svalbarði (Spitz-
bergen) við jarðfræðisrannsóknir og
er hann nýkominn heim úr þeirri
ferð. Hann hefur fundið gullæðar
nokkrar, mjög dýrmætar marmara-
námur með bláum, gulum, svörtum
og gráum marmara og er náma-
landið fimm enskar fermílur að
stærð. Ennfremur fann hann kola-
námur, járn, kopar, brennistein og
asbest.
Teifun yfir Fílippseyar. Ákaf-
legur hvirfilbylur eða »Teifun« gekk
yfir Fílippseyar 16. f. m. og varð
einkum eyan Ceku mjög illa úti.
Þar stóð ekkert hús eftir eftir
hvirfilbylinn og um fimmhundruð
manns fórust. Víðsvegar um eyarn-
ar strönduðu skip, og er skaðinn
af þessu ofviðri metinn um 50
miljónir króna. Fjöldi fólks erskýlis-
laust og matarlaust og eymdin stór-
kostleg. Bandaríkjastjórnin sendi
þegar nokkur herskip með matvæli
og aðra hjálp.
Hermanna-uppþot mikið var
í sjóliði Rússa á Svartahafinu 18.
f. m. Tilefni þess var, að allmargir
hermenn höfðu verið hneptir í
varðhald fyrir litla yfirsjón. Tóku
sig þá til um tvær þúsundir her-
manna, sprengdu upp varðhaldið
og ljetu lausa fangana. Eftir það
sló í blóðugan bardaga milli upp
reisnarmanna og hinna löghlýðnu
hermanna og urðu uppreisnarmenn
yfirunnir.
Frá stríðinn.
Blöð og símskeyti skýra því nær
daglega frá ófriðnum á Balkans-
skaganum. En fólk hefur óneitan-
lega miklu meira gagn af að frjetta
eitthvað frá verslun Ólafs Ólafs-
sonar, Laugaveg 19.
Verslunin hefur nú fengið mik-
ið úrval af fallegnm, vönduðum og
sjerstaklegaoí/ýramyfirfrökkumhanda
fullorðnum og unglingum.
50 fataefni af ýmsum gerðum,
sem seljast óvenjulega ódýrt.
Saum útvegað, ef óskað er, fyrir
aðeins 8 krónur á klæðnaðinn.
Ennfremur 300 pör af skófatn-
aði af mörgum tegundum, handa
konum, körlum og unglingum, sem
selst með mjög lágu verði.
Allir, sem spara vilja peninga
og hafa í hyggju að eignast ofan-
taldar vörur, ættu tafarlaust að gera
kaup sín j verslun
Ölafs Ólafssonar, Laugaveg 19.
Skipskaðar.
Akureyri, miðvikudag.
Sunnudag og mánudag var hjer
aftaka veður á norðan, sukku þá
þrjú skip, sem voru í vetrarlægi í
Krossanesbót. Var eitt >Samson«:,
eign Ásgeirs kaupmanns Pjeturs-
sonar, var það vátryggt í Sam-
ábyrgðinni fyrir 9000 krónum (2/3
verðs), eri skaðinn talinn um 5000
kr. Annað skipið átti Snorri kaup-
maður Jónsson og hjetþað »Fremad«,
það var óvátryggt og er skaðinn
talinn 6000 kr. Þá var hið þriðja,
norsk eign og hjet »Lima«. Bryggja
þar í bótinni, sem Norðmeun áttu,
skemdist mjög.
Gjallarhorn er farið að koma
út tvisvar í viku, miðvikudaga og
laugardaga.
Melsteðs-hátíð. Stúdentafjelagið
hjer mintist hundrað ára afmælis
Páls sagnfræSings Melsteðs með
samkomu veglegri. Hafði Matthías
skáld Jochurnsson ort kvæði fyrir
tækifærið, en sjera Jónas kennari
Jónasson sagði æfiatriði Melsteðs.
Páll Pálsson Melsteð
(1812-1912).
Jeg man ekki eftir að jeg hafi
nokkurn tíma kynst manni sem hefði
jafn ódrepandi löngun til að fræða,
eins og Páll Melsleð. Og það er
göfug löngun. >íslendingur« sýnir
vel þessa löngun Páls til að fræða,
og önnur blöð sem hann ritaði í,
og sögubækur hans. Sögu kendi
Páll lengi í latínuskólanum fyrir
alt að því 10 sinnum minni borg-
un, en sá kennarinn, sem best var
launað, og þó ekki of vel. Hef
jeg ekki orðið þess var, að þettað
hafi verulega sært rjettlætistilfinn-
ingu nokkurs manns; svo vanir
hafa menn verið því hjer á landi,
að fótum troðinn væri rjettur þeirra,
sem vinna að menningu þjóðarinn-
ar. Munu menn einhvern tíma skilja
betur en nú, að þær þúsundir sem
ekki hefur verið varið til eflingar
vísindum og listum og annari menn-
ing, hafa kostað þjóðina eigi að
eins miljónir, heldur tugi miljóna.
Löngun sína til að fræða og rita
sögu, gat Páll Melsteð fengið bæði
úr fööur- og móður-ætt; langafi
hans Jón Halldórsson, sonarsonar-
sonur Hrólfs sterka, ritaði annál;
og enn þá skiljanlegri verða þessi
einkenni Páls, sje það rjett, að hann
hafi í karllegg verið kominn af Breið-
firðingum, bróður Ara hins fróða.
En móðurfaðir Páls, Stefán Þórarins-
son »konferensráð«, stofnaði fyrsta
lestrarfjelagið á íslandi og var í
karllegg kominn af einum af bestu
latínurituruin og fræðimönnum á
17. öld, Sveini lærða, f. 1603.
13. nóv.
Helgi Pjeturss.
y
Ur bænum.
Ingólfur komst fyrst af stað í
morgun til þess að sækja póstana
til Borgarness.
K?en-
mjög smekklega ogédýra,
hef jeg nú fengið með s/s
Ceres einnig mikið úrval
af hattaskrauti.
Kr.BieringPetersen
, Suðurgötu 10.
Dæmalaust
ódýrt.
Cacao ágætt 0.85
(ódýrara í stærri kaupum).
Consum Chocoiade 0,88
Víking — 0.88
Vanille — 0.67.
Gerpúlver egta, á 0.85.
Syltetöi mjög ódýrt.
Margskonar niðursoðið t. d. Sar-
dínur frá 0.20 au. dósin. Egta
Grísasýlta 2 pd. dós 0.90 au. Sæt
saft, pelinn 0.20.
Ofnsverta 0.07 dósin. Fægiduft
0.04, o. fl. og fleira.
Carl Lárusson.
Laugaveg 5.
Ávextir og
kálmeti
best í
LIVERPOOL.
Líkkistur og líkklæði
er best að kaupa í verksm öjunni
Laufásveg 2. hjá
EYVINDI ÁRNASYNI.
Teppi lánuð ókeypis í kirkjuna.
Vindlar
af mjög mörgum tegundum seljast
frá í dag til Jóla í heilum köss-
um, og stærri kaupum, með alveg
sjerstaklega lágu verði.
Carl Lárusson
Laugaveg 5.
Hvítkál, Rauðkál,
Oulrætur,
Rödbeder,
Piparrót,
Sellerí,
kom nú með »Ceres« til
Jes Zimsen.
Egg
komu nú með »Ceres« til
Jes Zimsen.
viðurkendu, ódýru, fás.
ávalt tilbúnar á Hveríis.
götu 6.—Sími 93.—HELGl og EINAR.
Ung og stilt stúlka óskar eftir
að gjöra húsverk í góðu húsi fram-
yfir miðdag. Uppl. á afgr.
Stúlkaóskast ívist á lítið heimili
nú þegar. Þarf ekki að vera allan
daginn. R.v.á.
KAUPSKAPUR
Hús til sölu nú þegar með stórri
og góðri lóð, sem gefur af sjer
mikla peninga með fiskverkun. Lágt
verð, lítil útborgun. Uppl. á Bræðra-
borgarst. 31.
Blómstur fást keypt á Vestur-
götu 22.
Magasínofn er til sölu fyrir
hálfvirði í Fjelagsprentsmiðjunni.
Mór óskast til kaups. R.v.á.
Karlmannsúr nýtt og vandað
ásamt festi fæst með tækifærisverði
á afgr. Vísls.
TAPAD-FUNDIÐ
Skóhlíf ný, merkt »1«, töpuð;
skilist á afgr. Vísis.
Mansjettuhnappur með kven-
mannsmynd innaní fundinn. Má
vitja á Laugaveg 27 A. gegn fundarl.
og borgun auglýs. Níels Jósepsson.
Peningabudda með 11 kr. í
hefur tapast á veginum frá Alfta-
nesi niður að Pósthússtr. 14. Skilist
á Pósthússtr. 14 B. uppi til Þor-
bjargar Sigurfinnsdóttur.
K E N S L A
Stúlka vill fá aðra með sjer í
þýsku og ensku tíma. R.v.á.
H Ú S N Æ Ð I
Skemtiíegt herbergi fæst til
leigu nú þegar. R.v.á.
Útgefandi :
Einar Gunnarsson, cand. phil.
Östlunds-prentsmiðja.