Vísir - 20.12.1912, Blaðsíða 2

Vísir - 20.12.1912, Blaðsíða 2
V I S I R frændsemi. Á Aðalbóli býr Jón Benediktsson, einn ríkasti. bóndi í Miðfjarðardölum; þar er laglega bygt og myndarlega um gengið og þar sá jeg hlöðu fyrir töðuna, sem er einstakt í dölunum. Á Aðal- bóli var okkur boðinn matur, og get jeg þess af því, að það er fá- gætt, að bjóða ókunnugum mat á bæum, þó þeir komi á matmáls- tímum, heldur kaffi og kökur, og mun það stafa af misskildri gest- risni, fólk vill ekki bjóða gestum sama mat og heimilisfólkinu er skamtaður, heldur taka þeim með viðhöfn; til þess fer iangur tími, sem er dýrmætur bæði heimamönn- um og ferðafólki, enda er borð- haldið oft margrjettað; til dæmis að taka: taldi jeg 13 rjetti á borð- um á einum bóndabæ, þar sem við komum. Við riðum frá Aðalbóli að Hnausakoti; þar býr Rögnvaldur Líndal, og var í önnum eins og aðrir, við heyskapinn; hann er forsprakki Good-Templara fjelags- skaparins í bygðinni og duglegur maður til alls sem hann á annað borð gefur sig við. Þaðan fórum við yfir ána til Skárastaða; þar kannaðist jeg við mig, því að þar var síðasta heimili mitt á íslandi. Synir Guðmundar búa þar nú, sem áður var í Hnausakoti og voru þeir bræður að byggja upp bæinn. Þar tók jeg eftir því, að ein sljetta í túninu, sem pabbi minn hafði lát- ið sljetta, var orðin að smáu þýfi. Jeg hugsa, að ástæðan sje sú, að frost hafi ekki verið komið úr jörðu, þegar gengið var frá henni, syo að sumar þúfurnar hafa ekki verið stungnar í sundur ofan í botn, en það er vitanlega nauð- synlegt, en ekki síður hitt, að torfið sje ekki skorið misþykt ofan af; enn er það eitt, sem ekki má und- an fella, að rennbleyta sljettuna eftir að búið er að sljetta og valsa hana svo með nokkuð þungum vals, á eftir; þetta þarf að gera nokkrum sinnum, en gæta þess vel, að flæða hana fyrst í vatni. í Barkarstaðaseli býr Sigurbjörn Guðmundsson; hann er fálækur og Iangar til Ameríku, en Björn býr enn á Barkarstöðum, og hefur vakandi áhuga á öllu sem fram fer, þó gamall sje og steinblindur. Sunnudaginn þar á eftir fórum við á G. T. fund á Brekkulæk og rið- um þaðan til kirkju á Staðarbakka, og vorum við messu hjá sjera Jóhanni Briem. Hann hjelt góða ræðu sem fyr. Eftir messu var haldinn opinn G. T. fundur og þar töluðum við sjera Jóhann um vínsölubann og bindindi. Hann leiddi mönnum fyrir sjónir, hversu áríðandi bindindi væri fyrir hvern einstakan og heillaríkt fyrir þjóð- ina í heild sinni og gjörði það með viðkvæmum og hlýum orð- um, og sögu, sem hefði átt að snerta hvers manns tilfinningar. Jeg ætlaði mjer og efndi það, að tala hlífðar- og frýuiaust, því að jeg hef komist að þeirri niðurstöðu, að Bakkus hlífir engum og að það er óþarfi að hlífa honum. Eitt- hvað 8 drengir gáfu sig fram til að ganga inn á næsta fundi, og vona jeg að margir fari á eftir. Frh. é m m m Jólaveigar Gullinveigar Guðaveigar Ben. S. Þór. Flestallar sem menn þurfa til jólanna er ekkert viðlit að kaupa annars- staðar en hjá > Yerslun Einars Árnasonar er nú eins og að undanförnu vel birg af flestöllum nauðsynjavörum til jólanna. Sömuleiðis alskonar Jóla sælgasti t. d. Chocolade Kon- fekt, Konf. Rúsínur, Krakmindlur, Hnetur o. fl. o. fl. Ennfremur kerti og spil góð og ódýr. Aðeins vandaðar cg góðar vörur. Hver býður betraP Jón frá Vaðnesi selur Baldwins Epli á 20 aura pd. og Vínber á 40 aufa 16 aura spilin fá Jivers manns hrós, Stór kerti frá 4 aura stk. Barna-kerti er sjálfsagt að kaupa, Leikföng erulíka til Hveitið góða er núkaupandi. Chocliolade frá 65 aura. Viljið þið ekki skoða skautauaP Sykurinn segir til sín. Væri ekki gott að fá sjer hangikjöt og íslenkt smjör fyrir jólin? Veggalmanak fyrir árið 1913 fá þeir sem kaupa fyrir 2 krónur, en til þess þurfa menn ekki að kaupa óþarfa. Jön frá Vaðnesi. í

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.