Vísir - 07.01.1913, Blaðsíða 2

Vísir - 07.01.1913, Blaðsíða 2
V I S I R s&erciUJevcS tvt 3slands. Eftir A. S. Bardal. Frh. Við vorum óheppin að því leyti til, að nú var farið að rigna, og nutum því ekki útsýnisins eins ve! og við óskuðum. Við áðum á Laugarvatni og höfðum þar mat, og þar á meðal þann rjett, er jeg hefi aldrei sjeð áður, en það var »hverbrauð«, þjett í sjer og þungt í vigtina eins og gull, svo að jeg hef aldrei neitt þvílíkt sjeð, og ekki þorði jeg að borða það. »Hver- inn«, sem það ersoðiðí, og líklega flest annað, sem sjóða þarf, er í túninu á vatnsbakkanum, og þar mun verið hafa »laug« sú, er Sunn- lendingar voru skírðir í, eftir að kristni var lögtekin á alþingi árið 1000. — Við/fórum þaðan í mik- illi rigningu og komurn að Qeysi kl. hálf ellefu um kveldið. Þar var enginn, þegar við komum að gisti- skálanum, en eftir litla • stund kom stúlka af næsta bæ og vei'.ti okkur beina. Enginn var til að taka hest- ana eftir k!. 9 á kveldin, svo að við Karl fóru.n á stað með þá og rákurn þá í rneir en klukkutíma í myrkrinu, unr eintóma berjamóa, þangað trl við fundum haga. Þeg- ar við komum afurr til skdlans, var búið að bera a borð, laust fvrir miðnættið, vel til búinn og góðan mat. Við frjettum, að Geysir hefði gosið um tnorguninn, áður en það fólk kom á fætur, sern beið við hann, og vildi jeg ekki, aö eins færi fyrir okkur. jeg ætlaði að fá ein- hvern til að vaka, því aö við vor- um þreytt, og bauð 5 kr. fyrir vöku dreng, en ekkr tjaði það. Andvara ætlaði jeg að hafa á mjer, og það tókst; jeg vaknaði kl. hálf þrjú og vakti í klukkutuna, cn þá tók Karl við, og vakti til kl. 5. Þá byrjaði gamli Geysir ð hlunka, svo að við hlupum öll út, en ekki reynd- ist það umbrot nema gabb í hvern um, en við þoröum ekki að sofna eftir það. Eftir það komu tíynkir öðruhvoru, en ekkert gos. Loksins gaf stúlkan okkur það ráð, að láta í hann sápu, svo að jeg keypti alla sápu sem til var, 15 pund, og offr- aði hvernum, og leið svo til nóns, að hann tugöi liana og rendi nið- ur, en varð ckkert bumbult af, og fórurn við svo búin, að við sáum ekki Geysi gjó>sa. Svæðið umhverf- is hverinn er einkennilegt, soðið sundur af hveragufu, og bullar þar sjóðheitt vatnið upp um ótal gluf- ur. — Jeg er viss um, að það mætti gerá þennan siað að einum hirium mest sóttu siöðum heimsins, ef reynt væri með rjettri aöferð. Banff hefur ekki nema fjallaioftið og brenni- steinsböðin upp á að bjóða; þessi staður hefur það sama og Geysi að auki. Það þarf vitanlega að kosta töluverðu til, að útbúa böð- in og alt annað, sem með þarf, til að gera efnuðum útlendingum til hæfis. Keyrsiuvegur liggur þang- að frá Reykjavík, landið sjálft á Geysi og lanoið í kring, svo að það er vonandi, að eitthvað verði gert, landinu til gagns og sóma, ! Þorskanetagarn, írskt, 4-þætt, sjerlega góð tegund, fæstí Frönsku Versluninni, Hafnarstræti 17. Aðeins kr, 1,10 hespan. Hrognkelsanetagarn, 3-þætt, lægsta verð, sem hjer hefur heyrst. Laugaveg 18. Stór útsala 15°|o—5O°|0 Sjúkraumbúðir — Sápur — Sireiniætisvörur — Ilmvötn, frönsk og ensk. navara o fi. HLAÐNAR sroáar og stórar í verslun en ekki til m'nkunar, eins og nú er. Gistihúsið, sem nú er við Geysi, er laglegt, en lítið; annað er þar ekk- ert af mannavoldum gert, til þess að laða fólk að stað.ium. Frh. Ekki er alt gull sem Skáldsaga eftir Chaiies Oarvicr. ------ Fih. »Ójú jeg held jeg þori það nú,« svaraði hann og kveikti ofur-rólega í leirpípu sinni, og fór aö reykja einstaklega glaðlegnr á svip. »Og svo ætla jeg að segja þjer að það vær.i miklu fljóílegra, ef þú vildir nú hlusta rólega á það, sem jeg ætla að segja þjer, og ekki alt af vera að grípa fram í fyrir mjer.« »Barnið okkar dó í kveld; skil- urðu mig ekki, jeg segi að barnið okkar hafi dáið í kveld,« endurtók hann enn hærra, »og ef þú þorir að mótmæla því, þá drep jeg þig; skilurðu mig.« Marion vissi varla af sjer leng- ur, hún studdi sig við hilluna fyrir ofan eldstóna til þess að detta ekki, hjelt höndunum fyrir andlit sjer og baðst fyrir í hálfum hljóð- um. »Guð hjálpi mjer! Guð hjálpi mjer!« Luke Smeaton horfði á hana með fyrirlitningu, gekk svo til hennar og sagði kuldalega: »Simnon gamli Iæknir dó í kveld og jarlinn er nýfarinn frá London til meginlandsins og kem- ur ekki heim að svo stöddu. Barn- ið, sern liggur þarna inni í innra herberginu, er erfingi að öllum Northbridge auðæfunum, nú vona jeg loksins að þú skiljir hvað jeg á við.« 3. kapítuli. Á fögrum vormorgni stóð há og grönn yngismey viðháan bogaglugga í Darthworthhöll. Lægri hluti gluggans var opinn og inn streymdi angandi vorloft og sólskin; fyrir utan gluggann sungu fughr írunnum og trjám. í efri hluta gluggans voru mislit gler og gegn um þau fjell ljósið á liið föla andlit mærinnar, svo hún Iíktist fremur undurfagurri dýrðlingsmynd, en mannlegri veru. M°nn sögðu sín á milli, að hin mikla vinátta,'sem lengi hafði verið milli húsbæridanna í Darthworíh höll og Norfhbridge lávarðar ætti innanskamms að tengjast enn sterkari böndum, við giftingu háttvirtrar ung- frú Veroniku Darthworth og Ray- monds lávarðar, erfingja Nortbridge auðæfanna. Hvað sem nú að foreldrunum kann að hafa farið á milli um þetta má', þá höfðu hjónaleysin aldrei gefið tilefni til slíks orðróms. Satt að segja virlist Raymond iá- varður liafa nóg með sjálfan sig og sína eigin vellíðan, og ekki hafa tíma tii að hugsa um neitt annað. Hann var að náttúrufari ákaflega eigingjarn; og eins ólíkur jarlinum og móður sinni sálugu í lund eins og í útliti. Venjulega var hann þegjandaleg- ur, stundum önugur og fýldur, og tók svo vel eftir öllu, og öllum ókunnugum fjell oft mjög illa, hve nákvæmlega hann atliugaði þá. Hann var dökkur á brún og brá og mundi hafa verið áiitinn fremur laglegur ef útlit hans hefði ekki borið svo skýr nierki um óreglulegt og slarkfengið líferni. Hann var þrútinn og blár í kringum augun, og gerði það hann fremur óálitlegan. Hann var nýoröinn myndugur, en leit út fyrir að vera miklu eldri. Veronika aftur á móti var rjett tvítug, og hafði hún aðeins óljósa hugmynd um, að það væri ósk for- eldra sinna, að hún giftist hinum svallsama erfingja Northbridge-auðs- ins. En þess skal getið, Darthworth lávarði og konu I ans til afsökunar, að þau vissu eigi hið sanna um líferni Raymonds, en mintust þess aðeins, að hann var eftirlætisgoð besta og elsta vinar þeirra. Veronika sneri frá glugganum og ætlaði inn í lierbergið sitt til þess að skifta um búning, áður en hún stígi á hestbak, því hún var vön að ríða dálítinn sprett á hverj- um morgni, en í því bili kom móð- ir hennar inn. »Ertu hjerna, Veronika?«' mælti hún; »jeg er búin að leita a£^ þjer um alt«. »Northbridge lávarður biður að heilsa okkur og býður okkur til miðdegisverðar hjá sjer í kvö!d.« Veronika leit niður og dró snöggvast fyrir þóttasvip á andliti liennar. »Manstu ekki eftir, mamma mín, að Judy frænka mín kemur í dag ?« »Jú, lávarðurinn veit þaö Og býður henni líka«. »Langar þig til að fara, mamma?« »Já, auðvitað«, svaraði frúDarth- worth, »og jeg er viss um, að Júdy þykir gaman að fara, það er til- breyting fyrir liana. Þar að auki getur faðir þinn ekki neitað heim- boði frá Northbridge lávarði«. jjæja, blessuð, við skulum þá fara,« sagði Veronika og ætlaði að ganga út. Frh. Eggerí Claessen. Yfirrjettarmálaflutningsmaður. Pósthússtræti 17. Venjulega heima kl. 10—11— og4— 5. Talsími 16. Magnús Sigurðsson Yfirrjettarmálaflutningsmaður. f(irkjustrœti 8. Venjulega heima kl. 10—11 árd.. Kensla í þýsku ensku, dönsku o. fl. fæst hjá cand. Halldóri Jónassyni Vonarstræti 12. II. Sími. 278. V I INI N A Stúika óskar cftir vist. Uppl. á Vatnsstíg 8. KAUPSKAPUR Nýmjóík á 16 au, potturinn, er seld á Grettisg. 38. Til sölu 1 Konsólspegill, 1 horn- »Etagere» og skrifborð. Afgr. v. á. Auglýsingar komi fyrir kl. 3 dag- inn fyrir birtingu. Útgefandi: Einar Gunnarsson, cand. phil- Östlunds-prentsm.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.