Vísir - 13.04.1913, Page 1
bM
21
besHr ug ódýrastir
í versiun
Einars Árnasonar.
Fæðingardagar.
Besta afmælisgjöfin, fæst á afgreiðslu
Vísis.
Kemur venjul.út alla daga nema laugard.
Afgr.í Hafnarstræti 20. kl. U-3og4-8.
Sunnud. 13. apríl 1913.
Háflóð kl.9,53‘árd. og kl. 10‘36‘ síðd.
Háfjara hjerumbil 6 st. 12‘ síðar.
Afmœli:
Ögm. Sigurðsson, klæðskeri
Jes Zimsen, verslunarmaður
Ungfrú Þorbjörg S. Árnadóttir
Björn Jakobsson, kennari
Frú Ólína Ág. Hafliðadóttir.
Á morgun:
Pðstáœtliin :
lngólfur kemur frá Borgarnesi.
Sterling fer til útlanda.
Álftanesspóstur kemur og fer.
. Hafnarfjarðarpóstur kemur og fer.
\ JSeW
í kveld ld. 7- Efni: Hin sjö
innsigii (Opinberunarb. 6. kap.).
Alvarlegir og fræðandi við-
burðir birtir í hinu spámann-
lega orði.
Allir velkomnir.
O. J. Olsen.
Myndir sýndar fyrirlestrinum til
skýringar.
1. Söfnuður S. d. adventista:
Samkomu- Grund-
húsið ^VwaTu arstíg.
Opinberar samkomur á sunnu-
dögum kl. 61/* síðd.
Allir velkomnir. D. Östlund.
>
Ur bænum
Fríkirkjusöfnuður er þessa dag-
ana að myndast í Hafnarfirði og
virðist muni verða allfjölmennur.
Hafa forstöðumenn þessarar hreyf-
ingar farið þess á leit við fríkirkju-
prest sjera Ólaf Ólafsson hjer, að
hann gerði prestsverk fyrir þá. Söfn-
uður sjera Ólafs hjer 'nefur leyft
honum að taka að sjer starf þetta,
en stofnfundur er enn ekki haldinn
og því ekkert útkljáð um þessi mál.
Gefin saman:
iO. apríl. Páll Óskar Lárusson
snikkari og ym.Jakobína Þorgríms-
dótti r.
Oamanleikar þrír verða leiknir
í G. T. húsinu í kveld. (Sjá augl.
í blaðinu). Tveír af leikunum eru
gamalkunnir, og ejnn i,jer j fyrsta
sinni á íslensku. Tveir góðkunnir
leikarar frá ísafirði leilca þar meðal
anr>ara : Magnús Ólafsson prentari
°S Helga kona hans.
Silfurbrúðkaup hjeldu 9. þ m.
Þorleifur Jónsson kennari og kona
hans Anna Torfadóttir.
Um Rómverja og fslendinga
talar Bjarni frá Vogi alþýðuerindi í
Iðnó kl. 5 í dag. Inngangur að-
e'ns 10 aura, eins og menn niuna.
25 blöð. frál7. mars kosta áafgr.50- aura, Skrifstofa í Hafnarstræti 20. Venju- Langbesti augl.staður i bænum. Aug'.
Send út um !and 60 au,—Einst. hlöð 3 au | lega opin kl. 2—4. Simi 400. sjeskilað fyrir kl.3 daginn fytir birtingu.
Taflfjelag Reykjavíkur.
Fundur á hverju kveldi kl. 8V2 '
Bárubúð uppi.
Hvað viknblöðin segja.
Þjóðviljinn (9.): Bankamálser-
indi.
Reykjavík (12.): Reimleikarnir
í Hvammi eftir Kr. Linnet.
ísafold (12. tvö blöð): Lengi
skal manninn reyna eftir Ólaf Björns-
son. — ísfirskt vor kvæði eftir Gitðm.
Guðmundsson. — Tóbaksbindindis-
fjelag Islands eftir J. D. — Gull-
kistan á Snæfellsnesi (sveitarlýsing)
eftir Ferðalang. — Rjetta stefnan.
— Eimskiparfelagið — Jdrnbraatin
austur eftir Gamma.
Kveldskemtún
í kveld kl. 9
í Goodtemplarahúsinu.
Þrír fjörugir gamanleikar
verða sýndir:
Fólkið í húsinu,
Aprílshlaup og
Frúin sefur.
Leikar þess'rverða aðeins sýnd-
ir í þetta eina skifti á þessum
vetri. Sjá götuáuglýsingarnar.
— nógar byrgðir —
í AUSTURSTRÆTI 1.
Ásg. G. Gunnlaugsson & Co.
Líkkisturnar
viðurkendu, ódýru,tást
ávalt tilbúnar á Hverfis-
götu 6.—Sími 93.—HELGI og EINAR,
Þinglýsingar
10 apríl.
1. Magnús Magnússon o. fi. selja
20. jan. þ. á. H. P. Duus skipið
Hafstein fyrir 14000 kr.
2. Hannes S. Btöridal selur 17. febr.
1912 Jóhanni Jóhannessyni hús-
ið nr. 46 við Vesturgötu, fyrir
9500 kr., og Jóhann selur aftur
sama hús, 20. s. m., h/f P. I.
Thorsteinsson & Co. fyrir' sama
verð.
3. Jóhann Jóhannesson selur 11. f.
m., Þorleifi Guðmundssyni hús-
eignina nr. 37 við Bergstaðastræti
fyrir 3800 kr.
4. Jóhann Jóhannesson selur sama
manni s. d. lóð við sömu götu
fyrir 2500 kr.
5. Lárus Benediktsson selur 7. f. m.
Sæmundi Skaftasyni og Þórði
Þorsteinssyni húseign nr. 57. við
Laugaveg fyrir 9700 kr.
6. Magnús Þórarinsson selur 30.
jan. 1912, J. Schou húseign nr.
6 við Vatnsstíg fyrir 1400 kr.
7. J. Schou selur 5. þ. m. Sigurði
Gunnlaugssyni sömu eign fyrir
1900 kr.
ttUótvdttm,
Morð Maderos.
Fyrir nokkru Ijet Huerta hinn
nýi forseti í Mexfkó, þá frjett ber-
ast út að Madeiro fyrverandi for-
seti og Suarez varaforseti hefðu ver-
ið skotnir af þeirra eigin mönnum,
er þeir voru fluttir til fangehisins.
Fáir urðu til að leggja trúnað á
þessa sögu enda hefur hún revnst
uppspuni einn.
Nú hafa menn komist að þvíað
þeir voru báðir myrtir í stjórnar-
höllinni. Madero var skotinn í bak-
ið en Suarez kyrktur í rúmi sínu.
Líkin voru svo flutt í bifreið til
fangelsisins og nokkrir menn fengn-
ir til að ieika áhlaup á bifreiðina á
leiðinni, svo betur gengi að breiða
út lygasöguna.
Ernst Shackleton
suðurskautsfarinn frægi, er uni þess-
ar mundir á ferð um Vesturheim
og heldur fyrirlestra’ um suður-
skautslöndin og ferð sína. þegar
hann kemur heim aftur til Eng-
lands ætlar hann að stofna til nýs
vísindalegs Ieiðangurs um Suður-
skautslöndin.
Á konungléga leikhúslnu
í Kaupmannahöfn
hefur Elverhöj veriö leikinn nærri
500 sinnum. Don Juan, Napoli,
og Ritdómarinn og dýrið rúmlega
300 sinnum, Nei og Andbýlingarn
ir nær 300 sinnum. Eigaros brúð-
kaup var lerkið í 250. sinn 25.
f. m. og Einu sinni var — hafði
þá verið leikið 247 sinnum, en
það leikrit er ekki nema 26 ára
gamait.
Einvígi á lelksv'ði-
Skömmu fyrir síðastliðin mánaða-
mót bar svo til að einvígi var háð
á leiksviði í Madrit.
Baryton og Tenor í söngleik
nokkrum höfðu oröið ósáttir og
komu sjer saman um að heya ein-
vígi í þriðja þætti leiksins. Þetta
framkvæmdu þeir svo og særðist
Tenorinn þar banvænu sári.
Þegar áheyrendur sáu hvað um
var að vera sló á þá felmti og
margar konur fjellu í ómegin.
Stóra norræna ritsíma-
fjelagið
gefur hluthöfum 20°/0 fyrir árið
1912, en kr. 1000000,00 (1 milj.)
er lagt í varasjóð.
Loftskeytasambandi
er nú búið að konia á milli loft-
skeytastöðvar Effelturnsins í París
og loftskeytastöðvar í Arlington hjá
Washington-borg í Bandankjunum.
Vegalengdin þarna á milli er yfir
7000 rastir.
Amerískur skápur
fyrir skjöl
(classeur)
óskast keyptur f fyrramálið.
Afgr. v. á.
12 dugiegar stúlkur,
vanar fiskverkun, óskast til Norð-
fjarðar.
Gísli Hjáimarsson,
Klapparstfg 20.
G-ardínu
tanin-
fögTU
eru á förum. Komið sem fyrst
í AUSTURSTÆTI l.
Ásg. G. Gunnlaugsson & Co.
Raddir
almenuings.
Giftu og ógiftu
kennaranir
við
Barnaskóla Reykjavíkur.
»Bæarstjórnin er koinin
inn á hála braut.c
Kristján Þorgrímsson.
Það munu nokkur ár síðan tvær
fastar kennarastöður voru stofnaðar
við barnaskóla Reykjavíkur, aðra
hrepti ógiftur kvennkennari (Laufey
Vilhjálmsdótt r), en hina ári síðar
giftur karlkennari (Bj. Hjaltested).
Nú við síðustu áramót fjekk gifti
karlkennarinn launaviðbót (200 kr.),
en nú fræðir Vísir lesendur sína á
því að ógifti kvenkennarinn fái
enga áheyrn hjá bæarstjórn Reykja-
víkur. Þá var og síðatliðið haust
nokkrum — ekki »öllum« — giftu
stundakennurunum veitt launa-við-
bót, eða nokkrir aurar á hverja
kenslustund. Hvað er nú á seyði?
mun margur spyrja. Ætlar bæar-
stjórnin að fara að veita giftmfólki
verðlaun, og eiga þessi verðlaun
eingöngu að ná til kennaranna við
barnaskólann ? Ætli almenningi verði
ekki á að skoða verðaun þessi eða
launaviðbót eins og nokkurs konar
fátækrastyrk, — því hjer er ekki
verið að launa kenslustarfið, ekki
miðað við störf þau, sem unnin eru,
heldur við þarfir þeirra, sem leysa
verkið af hendi. Og þarfirnar eru
misjafnar og misstórar, vita menn.
Mundi eigi jafnsanngjarnt að veita
kennara, er hefur fyrir ellihrumri
móður eða föður að sjá, launavið-
bót? — og hvað gerði bæarstjórn-
in ef giftu kenriararnir færu nú að
metast um launaviðbætur, gera ný-
ar kröfur, sökum þess að einn hefði
fyrir fleiri börnum að sjá en hinn?
Jú, það mun óefað borga sig
best fyrir barnaskólakennarana að
gifta sig.
Ráðhollur.
I