Vísir - 25.06.1913, Blaðsíða 4
V I S I R
Hváð vikuböðin segja.
Ingólfur (þriðjud.): Launahœkk-
unin. — Atrúnaður, eftir G. Sv.,
endir. Hver er vilji vor í samgöngu-
málinu? eftir Civis, endir.
Leiðrjetting.
{ blaðinu Vísi, er kom út í dag,
er þess getið, að bæarfulltrúi L.
H. Bjarnason hafi á síðasta bæar-
stjórnarfundí sagt, að jeg hafi
»beðið Odd Gíslason að taka aftur
kæru sína á hendur borgarstjóra
og mundi þá alt lagast, en Oddur
Gíslason hafi neitað að verða við
þeirri bón.«
Til þess að fyrirbyggja misskiln-
ing, skal jeg geta þess, að jeg hefi
aldrei beðið Odd Gíslason að taka
aftur kœruna á hendur borgarstjóra,
nje heldur talað við hann um
málið fyrir bargarstjóra.
Hafi Oddur Gíslason skýrt trún-
aðarmanni sínum í bæarstjórninni,
L. H. B., þannig frá samtali okk-
ar, eins og bæarfulltrúinn segir, þá
hefur Oddur gefið honum rangar
.. upplýsingar.
24. júní 1913.
Guðm. Ólafsson.
Smávegis.
Pegar þið komið til borgarinnar, þá komið og skoðið hinar
fjölbreyttu vörur, sem
Verslunin .Verðandi’,
Hafnarstræti 18.,
hefur á boðstólum, t. d. alskonar NÆRFATNAÐ, HANDKLÆÐI,
OLÍUFÖT fyrir konur og karla, PEYSUR, fjölda tegunda, MANILLA,
ágæta í reipi fyrir ykkur sveitamennina.
Alt þetta selst fyrir mjög lágt verð.
Munið, að verslunin er í
Hafnarstræti 18.
Lax og Sílungur
fæst daglega í
»
I S H lí S Í n U (Hafnarstræti 23).
Hestar til sölu.
í dag verða norðlenskir hestar (er áður voru auglýstir í ísafold)
sýndir og til sölu í hestarjettinni við Laugaveg (Lauganeshestarjett-
inni).
Kæri Vísir.
Mig langar til að biðja þig fyrir
nokkur orð um ýmislegt smávegis,
sem gerist í þessum bæ, og mjer
finnst öðruvísi fara en rjett er. Jeg
skal reyna að vera stuttorður, og
bið þig svo að afsaka, þótt jeg
vaði nokkuð úr einu í annað.
Það er þá fyrst, að mjer finnst
það óþarfi, sem nú er farið að
reyna að fá menn til að gera, að
taka ofan, þá Ieikinn er á lúðra
þjóðsöngur vor. Þetta á illa við
Islendinga flesta, auðsjáanlega, mjer
fyrir mitt leyti er bölvanlega við
það. Enda er það alveg til-
gangslaust og hreinasti óþarfi. Verð-
ur aldrei nema kák, því margir
gera það alls ekki. Best að sleppa
því alveg. Alveg eins að vera að
biðja stóran mannsöfnuð að syngja,
það er að berja höfðinu við stein,
og mesta furða að ekki skuli löngu
hætt við að reyna það. Taka kannske
undir nokkrir vanir söngmenn, all-
ur fjöldinn þegir auðvitað. »Land-
inn^ er of rólyndur og ómontinn,
liggur mjer við að segja, til þess
að standa berhöfðaður, galandi á
strætum og gatnamótum. Getur eins
mikill hugur fylgt máli, þótt þegj-
andi sje hann, og með húfuna sína
á höfðinu. Jeg efast ekki um að
ýmsir eru svo barnalegir, eða þá
svo mikið fyrir að láta bera á sjer,
að þeim finnst þetta skrif mitt óþarft
og öfugt. Þeir ætla sjálfsagt gott
með því. (Meira.) Pollux.
Sunnudagaskólar.
Eins og vikið er að annarsstaðar
í blaðinu, var rætt um þá á »syno-
dus< í gær, og væri þá ekki ófróð-
legt til frekari íhugunar, að heyra
hvernig þeim gengur á Englandi,
þar sem þeir eru stofnaðir og lengst
á veg komnir.
Árið sem leið fækkaði um 33000
börn í sunnudagaskólum nokkurra
utanþjóðkirkjuflokka á Englandi
(Wesleymanna, Baptista, Metodista og
Kongregationalista), að sarna skapi
fækkaði og kennurum við sunnu-
dagaskólana og nokkrir þessara skóla
hættu alveg.
Eins og nærri má geta, hefur þetta
vakið mikla eftirtekt og verið tölu-
vert rætt um það í enskum blöðum.
Er svo skýrt frá í blaðinu »The
Christian«, að hnignun þessi eða
afturför hafi byrjað fyrir 6 árum, en
fari vaxandi með ári hverju, enda
þótt áhangendum þessara trúflokka
hafi alls eigi fækkað, en á hinn bóg-
inn hafi fjölgað mjög í sunnudaga-
skólum þjóðkirkjunnar (biskupakirkj-
unnar), í hitt eð fyrra jafnvel um
40 þúsund. Blaðið sjálft og marg-
ir prestar, sem í það hafa skrifað
um þetta mál, telja hiklaust biblíu-
krítíkinaaðalorsökað þessari hnignun.
Þegar starfsmenn sunnudagaskólans,
sem allir starfa kauplaust við hann-
í frítímum sínum, fara að vantreysta
biblíunni, hætta þeir eða vinna
meö hangandi hendi; eins fer um
börnin og foreldra þeirra, allur áhugi
þeirra á þessu niáli hverfur, þegar
farið er að kenna þeim, að biblían
sje harla óáreiðanleg.
Þetta er aðalinntakið úr vitnis-
burðum fjölda manna, er skrifað
hafa um þessa afturför. Enda er
biblíukrítík og skoðanir nýguðfræð-
innar miklu útbreiddari hjá þessum
flokkum, en hjá biskupakirkjunni á
Englandi.
Einn presturinn enski, D.J.Findley,
skrifar í »The Christian* á þessa
leið:
»Jeg fyrir mitt leyti efast ekkert
um, að vjer sjeum nú í sunnudaga-
skólunum, — eins og á öðrum
sviðum kristindómsstarfsins, — að
uppskera ávextina af hinni svo
nefndu »hærri krítík«. »Nýmóðins«
skoðanir þær um biblíuna, opinber-
unina og Krist sjálfan, sem berast
munnlega og skriflega frá hásætum
guðfræðinnar alla Ieið til sunnu-
dagaskólanna, valda þar reglulegu
satans athæfi. — (Biblían segir að
Satan hafi í fyrstu spurt: »Er það
satt að guð hafi sagt?«) Sunnu-
dagaskólakennarar, sem aðhyllast
þessar »nýmóðins« skoðanir, sjá að
þeir hafa lítið eftir, sem er ómaks-
vert að kenna börnunum og hverfa
frá skólunum þúsundum saman.
Skynsöm börn, sem hafa orðið
áskynja um, að grundvöllur kensl-
unnar eða ein kenslubókin er talin
óáreiðanleg, hætta þá að bera virð-
ingu fyrir öllu saman, og hverfa á
brott í stórhópum.
En guði sje lof, að þótt víða
gangi svona hörmulega, þá er það
ekki alment orðið. í mörgum söfn-
uðum og sunnudagaskólum er sí-
feld framför. En einkenni allra
þeirra skóla eru, að því er jeg veit
best, þessi 4: 1. Afturhvarf barn-
anna er skýrt og ákveðið takmark
kennarans; 2. forstöðumaðurinn og
kennararnir eru sjálfir afturhorfnir
eða sannkristnir menn; 3. fijllkomn-
um innblæstri ritningarinnar og full-
gildi er trúað og kent; 4. starfið er
rekið með bænaranda og kennar-
arnir hafa reglubundnar samkomur.«
S. Á. Gíslason
íslenskaði.
Þorvcitíur FáEsson,
læknir
Laugaveg 18. — Símar:
334 og 178.
Heimsóknartími 10—11 árd.
Sjerfræðingur í meltlngarsjúkd.
yvexiwstákau
^ x s 6 l \3ö
heldur fund í kveld kl. 8x/2.
Meðlimir fjölmenni.
Stúkan
heldur fund í kveld. Umræður um
bannlagadóm Iandsyfirrjettarins.
Fjölmennið.
K. F. U. M.
Kl. 8V2. Væringjar mæti uppi við
Skólavörðu.
KAUPSKAPUR
Taða nýsleginn fæst í Þingholts-
stræti 27.
Ratin til sölu á afgr. Vísis.
Dúfur fást með tækifærisverði á
Vitastíg 17.
Handvagn lítið brúkaður óskast
keyptur. Afgr. v. á.
Skúfhólkur og sjal til sölu. Afar-
lágt verð. Bergst.st. 8.
Söðull til sölu mjög ódýrt.
Afgr. v. á.
Hestur úr Borgarfirði til sölu,
ef um semur. Er í porti hjá G.
Gunnarssyni kl. 3 síöd. á morgun.
Reiðföt nýleg til sölu á Njáls-
götu 47.
| TAPAÐ-FUNDIÐ
2 hestar, grár og rauðskjóttur,
Ujárnaðir, töpuðust úr hesthúsi
Brydesverslunar aðfararnótt mánu-
lagsins. Hafi einhver orðið var við
oá, er hann vinsamlega beðinn, að
gjöra Guðm. Guðmundssyni, Kjíra-
itíg 5., aðvart.
(Q H Ú S N Æ Ð I
2 herbergi sólrík, að minsta kosti
annað stórt, óskast til leigu frá 1.
okt. Afgr. v. á.
2 herbergi eru til leigu í sum-
ar á góðum stað í bænum. Afgr.
v. á.
3herbergi og eldhús óskast til
leigu frá 1. okt. Svar merkt
»300« sendist afgr. þessa blaðs.
Stofa með húsgögnum til leigu
frá 1. júlí. Afgr. v. á.
Herbergi er til leigu á Klappar-
stíg 1 A.
m
V I N N A
Til hreinsunar og »afdönipun-
ar« eru tekin ullar- og klæðisföt
karla og kvenna á Laugaveg 44. —
Ólína Bjarnadóttir.
Stúlka, vön húsverk-
um, óskast í yist hjá
C. Olsen, Laugaveg 20 B.
L E I G A
Ritvjel óskast til leigu. Afgr.v.á.
Útgefandi:
Einar Gunnarsson, cand. phil.
Prentsmiðja D. Östlunds.