Vísir - 10.08.1913, Blaðsíða 2

Vísir - 10.08.1913, Blaðsíða 2
V I S I R Draugurinn í Aðalstræíi. Dularfull fyrirbrigði í Vesturheimi á síðastliðnum vetri. Eftir T. f. Thomas. [Kynjafrásögur þær, er hjer fara á eftir, eru birtar í breska íímaritinu »Wide World’s Magaz.«, júní 1913. — Höf. kveðst[engan’veginn vera andatrúarniað- ur eða trúa á tilveru drauga, en hann liefur bæði sjeð og athugað hús það, er draugagangurinn gerðist í og kveðst þekkja þá, er drauginn sáu og heyrðu, og ekki hafa minnstu ástæðu til þess að rengja þá.] August Schill heitir maður, er býr í borginni Cleveland í Ohio. — Kveld eitt sat hann og var að lesa í blaði eftir máltíð, en konan hans var að taka af borðinu og ætl- aði svo að hátta börnin. Hann leit á gamanmyndir í blað- inu og brosti að. En alt í einu hælti Schill að brosa og misti blaöið á gólfið úr hendi sjer. Hann fann að strokið var kaldri, rakri hendi um vanga sjer. Hann snjeri sjer við,til þess að sjá, hver Iæðst hefði að honum svo hljóðlega til að hrekkja sig, því hann hafði ekki heyrt neitt fóta- tak. En honum brá í brún, er hann sá engan og var aleinn inni. Schill bar hönd að enni sjer og fann að hann löðraði í köldum svita. Hann stóð upp, fór fram í eldhús, þar sem kona hans var að þvo diska og börnin hlupu og Ijeku sjer. Hann spuröi hvort nokkur hefði komið inn í stofuna, en kon- an kvað nei við því, — hvorki hún nje börnin höfðu farið eitt fet úr efdhúsinu og því síður nokkur ókunnugur komið. — Schill fór þá aftur inn, ljet sem ekkert hefði ískor- ist og reyndi að fara að lesa í blað- inu aftur, en það vildi ekki ganga greitt. Hann var altaf að hugsa um þessa kaldstömu liönd, og því tneir sem hann hugsaði um þetta, sann- færðist hann um, að sjer myndi hafa runnið blundur í brjóst og þetta hefði verið draumur. Hann sagði konunni ekkert um þetta og fólkið fór að hátta að vanda. Ekkert bar frekar til tíðinda fyr en klukkan rúmlega 2 eftir miðnætti, þegar allir lágu í fasta svefni og niðamyrkur var í öllu húsinu. Alt í einu vöknuðu allir við, að gengið var mjög þungan um stig- ana, eins og stór og þungur jötun gengi þar á járnvörðum sjóstígvjel- um. Schill hljóp á fætur, greip hlaðna skammbissu, gekk að loftsgatinu og lýsti niður með ljósi, en varð einsk- is vísari. Hann furðaði mjög á þessu, fór og þaggaði niður hræðsluna í fólki sínu, en meðan hann var að þessu, heyrði hann og allir í húsinu, að drepið var all þungt högg á úti- dyr. Schill þaut ofan, með lampann í annari hendi en skammbissuna í hinni, og athugaði útidyrahurðina, Hún var harðlæst, með sömu um- merkjum og hann hafði skilið við hana um kvöldið. Hann fór til bak- dyra, en þær voru ekki aðeins læst- ar, heldur og slagbröndum slegið fyrir. Gluggar voru allir lokaðir, og hvergi var hugsanlegt að nokkur hefði getað komist inn eða út. _________ Frh. Cymbelína hin fagra. Skáldsaga eftir Charles Garvice. ---- Frh. Nú brá Cymbelínu og jarl fók eftir því, að hún kreisti fast gluggatjaldið. »0-jæja, jeg held Bellmaire komist af án hans, — ætli ekki það!« sagði North yfirforingi. »Jeg veit ekki, — við höfum mist af honum,« sagði jarl. »En þetta eru nú ekki aliar frjettirnar. Jeg hef markverðari frjettir en þetta. Þú veist, að Brandon af- rjeð fyrst að fara í gærkveldi. Jeg fjekk miða frá honum, þar sem hann segir, að óvænt og áríðandi störf kalli sig til Lon- don.« Cymbelínu sveið sáran. Hún vissi vel, hve Godfrey lá ríkt á hjarta, að fara sem lengst burtu þaðan, sem hún hafði sært hann sárast og valdið honum þyngsta hugarstríðsins. »Mjer þykir verst, að jeg eyði- lagði miðann; jeg vildi að jeg hefði ekki gert það, því eitthvað mjög þýðingarmikið er í sam- bandi við þessa skyndilegu burt- för hans — mjer liggur við að kalla þetta strok.« »Pýðingarmikið? Hvað erþað?« spurði yfirforinginn. Cymbelína hlustaði ákaft þegjandi. »Já jeg fjekk heimsókn í morg- un,« sagði Bellmaire jarl mjög seint og greinilega, eins og hann væri hræddur um að Cymbelína myndi missa af einhverju orði. »Það var hvorki meira nje minna en hertoginn af Coverlands.« »Hvað, hertoginn?* hrópaði yfirforinginn forviða. »Já,« hjelt jarl áfram alvarlegur mjög. »Hann fór að heiman í mesta flýti. Þú hefðir naumast þekt hann,---svo breyttur virt- ist hann og beygður af sorg.« »Hvað þá? Er náðug hertoga- frúin — dáin?« »Nei, en ungfrú Marion er farin að heiman, skjótt sagt, — hún er strokin! Alveg eins og óvandaðar stelpur gera stund- um.« »Farin! Strokin! Hvaða vit- leysa! Það er alveg ómögu- legt!« »Því miður er það dagsanna! Hún skildi eftir brjef, sem sýnir, að hún hefur ákveðið þetta nokkrum dögúm fyrirfram.« »Herra minn trúr og heilagur Georg! Er heimurinn genginn af göflunum! En hvað kemur þetta við þessum klessulitara?« »Ekki svo lítið, að því er virð- ist!« svaraði Bellmaire jarl 'dræmt. Ungfrú Marion hvarf ígærkveldi! Godfrey Brandon fór í gær- kveldi!« Frh. Sendið auglýsingar tímanlega I Bækur, innlendar og erlendar, PAPPÍR og RITFÖNG kaupa menn í BÓKAVERSLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR Lækjargötu 2. Ágætur reyktur lax fæst I verslun Gunnars Þorbjörnssonar. ^2LSS\mUS\ol nýkomin neð »Botníu« til Jóns Björnssonar & Co. V. B. K. 8 hefur með »Botníu« fengið aftur hin eftirspurðu Kassimírsjöl. § Ennfremur mikið af Tvisttauunum góðkunnu á kr. 0,72. § B 1 ANN, Hjermeð er ölium bannað að taka sand og möl úr fjörunni á Eiðsgranda á leigulandi voru. Verði bann þetta brotið, munum vjer tafarlaust hæra það fyrir lögreglunni. Reykjavík 9. ágúst 1913. HlfP.J.Thorsteinsson &Co. Loftskip 7 á Iþróttavellirsum. Mánudagskveldið kl. 8l/2 fara 2 Zeppelinsloftskip upp frá íþrótta- vellinum. Verða fylt með gasi áður. Þetta er fyrsta sinni, sem Rvíkurbúum gefst færi á að sjá loftferðalag, og ætti enginn, sem vetlingi getur valdið að sitja sig úr færi, að sjá þessa nýstárlegu sjón. Aðgangur: 35 aura fullorðnir, 20 aura börn. Allur ágóði rennur til íþrótta- vallarins. S N Æ D 1 2 herbergi með sjerstökum inn- gangi eru til leigu á Laugaveg 46A. Kristján Þorgrímsson. 2— 3 herbergi og eldhús ósk- ast 1. okt. Látið afgr. vita. 3— 4 herbergi óskast til Ieigu nú þegar. Afgr. v. á. L E I G A ; Barnakerra óskast nú þegar til leigu um mánaðartíma. Uppl. á Skólastræti 5. Útgefandi: Einar Gunnarsson, cand. phil. KAUPSKAPUR Góðar skammbyssur eða marg- hleypur óskast keyptar nú þegar. Finnið ritstjórann. Harðfiskur er til sölu á Klapp- arstíg 11. uppi. Kjóll nýr og vandaður, handa unglingsstúlku til sölu. Afgr. v. á. V I N N A Kaupakona óskast nú þegar. Gott kaup í boði. Semjið við Jón Bjarnason kaupm., Laugav. 33. Kaupavinna. 2 duglegar stúlkur og 1 karlmað- ur geta fengið atvinnu við heyvinnu á góðu sveita-heimili ekki tangt frá Reykjavík. Afgr. v. á. TAPAÐ-FUNDIÐ Rautt skinnveski með pening- um og verðmætum skjölum hefur tapast í eða við sláturhúsið. Ráð- vandur finnandi skiti því til Tómasar Tómassonar í sláturhúsinu gegn fundarlaunum. Reiðhestur brúnstjörnóttur, fjör- ugur vekringur, hefur tapast frá Skitd- inganesi 8. þ. m. Finnandi skili í Þingholtsstræti 26. Regnhiíf gleymd í fyrrakveld á grindunum kringum Thorvaldsens- mynd á Austurvelli. Finnandi skili gegn fundarlaunum í Pósthússtr. 15. Östiundsprentsm.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.