Vísir - 08.10.1913, Blaðsíða 1

Vísir - 08.10.1913, Blaðsíða 1
759 24 Ostar bestir og ódýrastir í verslun Einars Árnasonar. vsw Stimpía og Innsigllsmerki útvegar afgr. Vísis. Sýnlshorn llggja frammf. Kemur út alla daga. — Sími 400. Afgr.í Hafnarstræti 20, kl. 11-3 og 4-6. 25 blöð(frál8.sept.) kosta á afgr. 50 aura. Send út um land 60 au.—Einst. blöð 3 au. Skrifstofa i opin kl. 12-3. Hafnarstræti 20. (uppi), Simi 400. Langbesti augl.staður bænum. Augl. i sje skilað fyrirkl. 6 daginn fyrir birtingu. Miðvikud. 8. okt. 1913. Háflóð |kl. 12,28’ síðd. Afmœli. Frú Margrjet Þorláksdóttir. Eyvindur Árnason, trjesmiður. Gestur Kristinn Guðmundson stýrimannask.lærisv. Jón Bjarnason, trjesmiður. Bíó Biografteater Reykjavíkur 7., 8. og 9. okt.. JButttwxttútx (amerískur gamanleikur). Lifandi frjettablað. JS©?W\t\t\ (Sjónleikur). Gamli hatturinn hans pabba. (Vitagraph gamanleikur). Fallegustu líkkisturnar fást hjá mjer—altaf nægar birgS- ir fyrirliggjandi — ennfr. lik- klæði (einnig úr silki) og lík- kistuskraut. Eyvindur Árnason. Eistur fást venjulega tilbúnar fverfisg. 6. Fegurð, verð og >i undir dómi almennings. — Sími 93. — Helgi Helgason Hrís 200 baggar, til uppkveikju og reykingar er til sölu á 2J/2 eyri pundið. Skógræktarstjórinn Hverfisgötu 33. Heima 4Y2—572- FUNDUR f kvenfjel. Fríkirkjunnar á morgun fimmtudag 9. okt. kl. 5 á venjulegum stað. Mjög áríðandi mál á dagskrá. S'wv]jt\ett\v. Kaupmannahöfn f dag. Landsþingið setur »Grund- lovssagenc í nefnd. Yuan-Shi-Kai kosinn for- seti Kínverja. Ú R BÆNUM Misprenast hefur kartöfluverð á Akureyri í gær. Tunnan kostar þar 10 kr. Kong Helgi fór í gærmorgun frá Leith, á hingaðleið. Ceres kom til Vestmanneya ld. 5 í morgun, á hingaðleið. Baron Stjernblad fer norður á vetlut Uifeitv \ 31t\&? atmatvwatósiwu \ at\t\aB fevotd M. J^SalMubetliin teifva SulmmdsdóWvt ^etvs JS. “\Öaa^e, Með íækifærisverði fást: klyfsöðlar, koforf, svefnpokar, fjöid, akfygi, flufningsvagn, hjófbörur, báfar o.fl. Sími 144. kaupir hæsta verði ISEBARN Aðalstræti 2, Sími 384. Húnaflóa í kveld eða á morgun. Kemur á þessar hafnir: Önuudar- fjörð, Súgandafjörð, Bolungavík, ísa- fjörð, Steingrímsfjörð, Borðeyri, Hvammstanga og Blönduós. Vesta kom til ísafjarðar í morgun kl. 8. Fer þaðan í fyrramálið kl. 7 beint hingað. Eldeyarförin. Frh. Skipið nam staðar kl. 7 skamt frá eynni. Ekki voru tiltök að Ieggj- ast, því hyldýpi er hjer og varð að andæfa með gufuvjelinni. Var nú farið f bát og róið að eynni norðvestanverðri, þar er eini staðurinn sem hugsanlegur er til uppgöngu, er þar þrep nokkurt all hátt að austan, er lækkar til norðurs og gengur þar í sjó, var nú flóð- mikið og stórstreymt. Þeir náðu eynni kl. 8, öldugangur var þar mikill þótt logn væri og harður súg- ur, varð því að hafa alla aðgæslu. Stukku þeir á land einn og einn í einu þar til 5 voru komnir og gekk það klaklaust, en hinir þrír reru síðan bátnum nokkuð frá og biðu þar, var það nokkur róður, því fall var all mikið. Þeir fimm fóru nú að leita fyrir sjer um uppgöngu á eyna en þar var ógreitt umferðar, ýmist glerhál- ar klappir og vofar af ölduslettum eða sleipar af fugladrit, er ofardró. Eftir mikla örðugleika komust þeir þó upp þar að er var festin, sú er Hjalti skipsfjóri Jónsson hafði sett árið 18941) og nota varð til að komast uppá brúnina. En nú var festin slitin. Hafði efri endinn sleg- ist fyrir klettanybbu og náðist ekki til hans, en hinn neðri hjekk f keng er hann hafði verið festur við. Frh. RAÐDIR ALMENNIMS, Æ Lýðveldi í Noregi. Þann 29. f. m. hefur »Vísir« tek- ið eftir íslenska blaðinu »Lögberg« i Vesturheimi grein um konungs- valdið í Noregi; leyfi jeg mjer að biöja um rúm fyrir nokkrar línur ]) Hann var fyrstur maður svo sög- ur fara af, sem fór upp á Eldey. Það var 30. mai 1894. Vóru þeir í þeirri för 3 bjarggöngumenn úr Vestmanney- um, Ágúst og Stefán Gíslasynir auk hans. Vorið áður hafði Hjalti gert veg upp íláadrang undan Dyrhólaeyu, og var hvorttveggja þrekvirki. til þess að skýra nánar ástandið eins og það í raun og veru er. Sem kunnugt er, eru menn fil í öllum löndum, sem á einn eða ann- an hátt hafa hrakist úr upprunalegri stöðu sinni í mannfjelaginu og hafa ekkert að gera og enga ákveðna lífsstöðu. Það eru inatarstrits-stjórn- málamennirnir og jafnaðarmennsku æsingamenn og að, nokkru leyti bindindisöfga menn, sem fyrirhafnar- lítið og auðveldlega vilja fá sjer tekjur. Slík sníkjudýr mannfjelags- ins eru ekki fá í Noregi, og með- an heimskan lifir, fá slíkir menn allt af einhverja á sitt band. Það hefur talsvert minnkað um pólítíska beitu í Noregi eftir skiln- aðinn við Svía, og verður því að reyna nýtt agn. Og þetta nýa agn er konungsvaldið, því að hinir allra róttækustu Norðmenn ætla, að jafn- skjótt sem skilnaðurinn fór fram við Svía, skyldi grípa tækifærið ti þess að koma á lýðveldi þegar í stað. Þegar þessi skoðun kom í ljós 1905, fjekk hún enga áheyrn, og svo er enn í dag í raun og veru, því þjóðin lætur sjer vel lynda fyrir- komulag það er nú er og æskir engra breytinga til hins óvissa. Það er auðsætt, að »Lögberg« hefur ummæli sín eftir einhverju litiu hjer- aðsblaði í Noregi, — það er feikna fjöldi blaða í Noregi — málgögn allra hugsanlegra stjórnmálaflokks- brota og fjelaga. Og meiri hluti þessara blaða er engan veginn túlk- ur á skoðun þjóðarinnar og skiln- ingi á aðalatriðunum. Það er því blátt áfram blekkjandi að fara eftir ummælum þeirra um stjórnmála- afstöðu landsins alls. En það er ekki fyrsta sinni að slíkt ber við. Þegar Þýskalandskeisari var í Nor- egi í sumar og var viðstaddur há- tfðahöldin, er Friðþjófslíkneskið var afhjúpað, sættu nokkur smáblöð þeg- ar lagi til þess að láta uppi dylgjur um ófriðaráform af hálfu Þjóðverja. Og þótt hlægilegt sje frásagnar, gáfu þýsk blöð ummælum þessara blaða fúslega gaum og vöktu allmikla at- hygli, — athygli, er Noregi var engan veginn í hag. Sem Norðmaður, búsettur hjer á landi, fylgist jeg jafnan með í norsk- um stjórnmálum og hef haft tæki- færi til þess að sjá, að einstök um- mæli smáblaðanna um konungs- valdið hafa sætt öflugum andmæl- um af helstu höfuðborgarblöðun- um. Það er mönnum fyllilega Ijóst í Noregi, hve stórmikils virði það er landinu, frá stjórnarfarslegri hlið skoðað, að konungurinn er mágur núverandi Bretakonungs. Konungs- veldið í Noregi er svo rótgróið frá elstu tímum og of fast grundvallað í meðvitund þjóðarinnar til þess, að órökstutt ritgutl einstakra æsinga- blaða um afnám þess fái nokkra samhyggð eða jákvæði. Norðmaður.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.