Vísir - 10.10.1913, Blaðsíða 1
Kemur út alla daga. — Sími 400.
Afgr.í Hafnarstræti 20. kl. 11-3 og 4-6.
Fostud. lO. okt. 1913.
f-allegustu líkkisturnar fást
hjá mjer—altaf nægar birgð-
ir fyrirliggjandi — ennfr. lik-
klæði (einnig úr silki) og lík-
kistuskraut.
Eyvindur Árnason.
Estur fást venjulega tilbúnar
iverfisg. 6. Fegurð, verð og
ii undir dómi almeunings. —
Sími 03. — Helgi Helgason
3ótV ^tttlMJsSOTV spyr:
\\zx enstó
eigi, þá komið þjer, »mínir
herrar og dömur«, og lærið hjá
honum, bæði fljótt og vel, að lesa,
rita og — tala það mái; því að
enskan, eins og íslenskan, er einkum
gefin til þess, að tala hana. Tii
skýringar skal þess getið, að Jón
heíir verið um 33 ára skeið í hin-
U|n enskumælanda heimi oglagtsig
eftir ensku. Stór stofa og skemmtileg
neð forstofu-inngangi. 30A Laugaveg.
Bæarstjórnarumræður.
---- Frh.
Um innheimtu brunabótagjalda
o. fl.
(Þetta mál stóð ekki á dagskrá,
en kom inn í umræður við kosn-
'ngu manna til að virða hús til
brunabóta.)
Kr. Þorgrímsson: Álít mál til kom-
'ð að skipta um virðingarmenn,
virðingar þeirra sem undanfarið
hafa virt hús til brunabóta, geta
ekki staðist. Vil benda á í stað
Þeirra Einar Pálsson og Jón Jóhann-
esson. Innköllun á brunabótagjöld-
uni hjer í bænum er óhafandi, því
hlutaðeigendum eru hvorki sendir
reikningar eða tilkynningar, þegar
horga skal gjöldin, heldur er bæar
fógeta send skrá yfir þá er ekki hafa
borgað á rjettum tíma, til að taka
þau gjöld lögtaki. Brunamálastjór-
inn hefur 1200 kr. ílaun fyrir verk
sitt og ætti að geta varið 15—20
kr. f aö senda út tilkynningar til
nanna, þegar gjöldin eiga að greið-
ast. Þá myndi sárahtið þurfa að taka
af gjöldum með lögtaki og ýms
óþægindi og aukinn kostnaður spar-
ast, sem leiöir af fjárnámi. Vii því
láta bæarstjórnina finna að þessu við
brunamálastjórann og krefjast þess
að hann sendi mönnum tilkynning-
ar> þá brunabótagjöldin falla í gjald-
daga.
Borgarstjórí: Bæarstjórnin getur
ekki krafist þessa af brunamálastjór-
anum, því hann er út nefndur af
brunabótafjelaginu en ekki af bæar-
sfjórn, er því ekki undir yfirráðum
hennar, en hann myndi fúslega
verða við þeirri beiðni bæarstj. aö
senda mönnum tilkynningar ef þess
væri óskað. (K. Þ.: Þá best að gera
þaö.)
25 blöð(frá 10. okt.) kosta á afgr. 50 aura. Skrifstofa í Hafnarstræti 20. (uppi), Langbesti augl.staður i bænum. Augl.
Send út um Iand 60 au.—Einst. blöð 3 au. opin kl. 12-3. Sími 400. sje skilað fyrirkl. 6 daginn fyrir birtingu.
SAMKOMUB 1 BETEL.
Sunnudaginn 12. okt. kl. 6V3 síðd. byrjar fyrirlestraflokkur um spá-
dóma og önnur mikilsvarðandi efni í biblíunni.
Efnið á sunnudaginn verður: Ausiurlandamálið- Hvaða
þýðingu hefur Tyrkland f hinum stjórnarfarslegu byltingum nú-
tímans? Hvað segir biblían að verða muni, þega Tyrkir hverfa
úr Norðurálfunni.
Allir velkomnir
0. J. Olsen.
Sunnudagaskólinn
tekur aftur til starfa næstkomandi sunnudag 12. október.
Samkomur á hverjum sunnudagsmorgni
kl. lO í húsi K. F. U. M. við Amtmannsstíg.
— Öll börn velkomin. *"""~~
„FEIKIRKJAN.”
Safnaðargjöld íil hennar falla í gjalddagá' 1. sept.
Þeir sem því enn eiga óðreidd safnaðargjöld fyrir yfirstandandi ár eða
eldri, eru vinsamlega beðnir að greiða þau til undirritaðs hið fyrsta,
Heima kl. 2—5 e. m.
yaJUBasoxv.
Tr. Gunnarsson: Ef breytt væri
til um virðingarmenn, ætti ekki að
fá í stað þeirra þá, er virtu hús enn
hærra. Virðingar fullháar nú. Hef
orðið sjálfur fyrir talsverðum óþæg-
indum út af fyrirkomulaginu á inn-
köllun brunabótagjalda, menn gleyma
því hvenær gjalddaginn er og
borga þessvegna ekki á rjettum tíma,
sem óðara mundu borga, ef þeim
væru sendir reikningar. Með því
móti myndi innheimtan á gjaldinu
ganga að mörgu leyti betur en nú.
H. Hafliðason: Er sammála þeim
sem talað hafa, um að innheimtan
á brunabótagjöldum sje óhafandi.
Hef aldrei fengið tilkynningu frá
brunamálastjóra um gjaldið, þótt
gleymst hafi aö greiða það, fyr en
krafa hefur komið um það frá bæ-
arfógeta. Fyrirrennari núverandi
brunamálastjóra P. Petersen sendi
alk af seðla út til manna fyrir gjald-
daga.
Er á móti því að breytt verði
um virðingarmennina, álít þá góða.
Ekki rjett að virðingar þeirra geti
ekki staðist, hefur verið mjög lítill
munur á yfirvirðingum og þeirra.
Yfirmat getur líka verið vafasamt.
K Zimsen: Ef skift er um virð-
ingarmenn, að meta hús til bruna-
bóta, ætti að hafa annan trjesmiö
en annan steinsmið, því nú er orð-
ið svo mikið af steinsteypuhúsum
byggt í bænum.
Kr. Þorgrímsson: Hefi ekki á móti
því, mætti kjósa Guðjón Gamalíels-
son.
(Brunabótavirðingarmennirnir voru
endurkosnir sem áður er getið í
Vísi.)
200 baggar, til uppkveikju
og reykingar er til sölu á 2l]t eyri
pundið. Skógræktarstjórinn
Hverfisgötu 33. Heima —5V2Í
Eldeyarförin.
----- Frh.
Varð að snúa aftur og ná í krók-
stjaka úr bátnum. Þeir úti heyrðu
ekkert fyrir sjávarhljóðinu, er kallað
var til þeirra, en þeir skildu brátt
og komu, er eyarmenn gátu látið
þá taka eftir bendingum sínum.
Loks náðist í festarendann, var
• festin skeytt saman og svo komust
þeir upp. Hafði uppgangan tekið
4 klukkutíma, enda varð víða að
nema staðar til að reka nýa járn-
fleyga í bergið eða treysta aðra er
þar voru fyrir.
Ekki urðu þeir nema tveir sem
lásu sig upp keðjuna, enda var
þar vís bráður bani þeim sem af
festinni misti og því óvarlegt alls
óvönum *6 leggja sig f þá hættu,
en þeir fjelagar voru allir óvanir
bjarggöngu.
Þeir sem upp komust, voru Sig-
urður Gíslason sjómannaskólapiltur
og Ágúst Sædal, fullhugar miklir.
Þegar upp á eyarbrúnina kom
gafst á að líta. Eyin er ósljett
mjög, eins og verstu hraun með
gjótum og sprungum, eru sumar
fullar af fugladrit og sekkur mjög
í ef á er stígið, en vart sjer til
bótns í öðrum. Eyin er nokkuð
ílöng, um 90 faðmar frá suð-vestri
til norð-austurs en á hinn veginn
um 50 faðmar.
Þess varð þegar vart að eyarbúum
— súluungunum — þótti illir gestir
komnir til þeirra, því þeir þyrpt-
ust að þeim fjelögum og gerðu
að þeim óp mikið og lögðu til þeirra
með nefinu, þeir sem hugaðastir
voru. Var auðsæ full alvara þeirra
að verja land sitt fyrir illþýðinu
svo sem framast voru föng til.
Þeir fjelagar komu tómhentir og
þóttust hafa illa aðstöðu í bardaga
þessum og tóku þeir að kalla til
fjelaga sinna, er stóðu niðri í berg-
inu, og biðja þá um barefli, en
illa heyrðist sem fyr og varð að reyna
með bendingum að láta vita, hvað
þeir vildu, og tókst loks eftir ítrek-
aðar tilraunir.
Voru nú bátnum gefnar bendingar
og í hann sóttar kylfur tvær.
Þeir Sigurður höfðu snæri með
sjer og ljetu það renna niður og
voru kylfurnar bundnar þar í og
dregnar síðan upp.
Ætluðu súluungar þá að fara að
fagna sigrinum er þeim virtist fjend-
ur sfnir vera að leggja á flótta, en
sú gleði stóð ekki lengi, því þegar
kylfurnar voru komnar lögðu þeir
fjelagar til orustunnar fyrir alvöru,
fjellu nú súluungar í hrönnum, en
er þeir sem fjær voru sáu hvað
vera vildi lögðu þeir á flótta og
hentu sjer upp á líf og dauða fram
af berginu niður í sjó, en enginn
getur um það sagt hversu þeim
farnaðist, Þeir voru ekki nærri
fleygir sumir hverjir og hafa ef til
vill lent á klettasnösum og orðið
þar illa úti.
Eftir fjórar klukkustundir var
eyin rudd og höfðu þeir þá og
varpað niöur fyrir björgin öllum
valnum, rúmum fjórum hundruðum
af súluungum.
Sjálfir voru þeir fjelagar svo til
reika að hvergi sást í þá fyrir
óhreinindum.
Frh.
Sr Húsaleigusamninga-
eyðublöð á 5 au. selur D.Östlund.
Auglýsingum
í Vísi sje skilað sem tímanlegast, að
hægt er. Stórum auglýsingum ekki
síðar en kl. 6 daginn fyrir birtingu,
nerna öðruvísi sje umsamið.
JJJ Auglýsingum í Jaugardags-
; blaðið sje skilað á föstudag fyrir
i kl. 3 e. h.