Vísir - 17.10.1913, Blaðsíða 2
V í S I R
Svuntuefni og
Slifsisefni
eru fegurst og best í
vefnaðarvöruversluninni
Laugaveg 18 B.
M. Th. Rasmus.
Radíum lækningar.
Breski skurölæknirinn mikli, Sir
Frederic Treves, formaöur fram-
kvæmdarnefndar Radíumlækninga-
stofnunarinnar í London og líf-
læknir Bretakonungs, hefur látið í
ljós að hann hefði góðar vonir um,
eftir tilraunum síðastliðins árs að
dæma, að takast muni að lækna
krabbamein með radíum. Hefur
hann skýrt frá ýmsum merkilegum
tilraunum er virðast hafa heppnast
að minnsta kosti í svipinn. t>á má
og geta þess, að hann skýrir frá
því, að radíum-útgeislanir (eða »ra-
díum-gas«) hefur sömu verkanir
og radíum sjálft, — er það eink-
'iim notað til gigtarlækninga. Ra-
díum-gasið er innilukt í málmhylkj-
um og sent læknum víðsvegar til
að nota við sjúklinga, er ekki geta
náð til radíum-stofnunarinnar sjálfr-
ar. í sama tilgangi er og notað
»radíum-vatn« til drykkjar þ. e.:
vatn er svo er mettað radíum-gasi
að það Iýsir í myrkri. Radíum-gas-
vatn þetta hjer um bil 5000 sinn-
um sterkara en hið sterkasta náttúr-
lega »radio-adiv« vatn, er þekkist.
Þykja þessar nýþekktu verkanir af
geislunum eða gasi þessa undra-
efnis hinar stórmerkilegustu.
Elsti þegn Bretaveldis
er kona ein í London, Rebecca Qark,
109 ára gömui. Hún er bláfátæk
og lifir af lögboðnum ellistyrk ein-
vörðungu, því fólk hennar er svo
fátækt líka, að það getur ekkert af
mörkum látið.
Leynilögreglu foringi
Rússa á Póllandi var myrtur á
götu í bænum Lomzha að kvöldi
þess 27. f. m. Leynilögreglufor-
inginn ók í ljettivagni um stræt-
in, — kom hann þá að húsi
nokkru, er prestur bjó í, vinur
hans, og stje út úr vagninum.
En er hann var genginn fá fet
þaðan, óð að honum ungur
maður og hleypti 3 marghleypu-
skotum í höfuð honum og háls.
Hnje lögregluforinginn niður
örendur, og í sama vetfangi skaut
morðiriginn sig sjálfan til bana.
Hann var frá Varsjövu.
Bækur,
gg 8S;
innlendar og erlendar, PAPPÍR og RITFÖNO
kaupa menn í
BÓKAVERSLUN SIOFÚSAR EYMUNDSSONAR
L.ækjargötu 2.
I
Allir sem kaupa Iðunnartau og
annaö sem til fatanna þarf fá 10%
afslátt á tillegginu.
Ull og vel þvegnar prjónatuskur eru
teknar í skiftum í
vefnaðarvöruversluninni
Laugaveg 18 B.
M, Th. Easmus.
SU 3Uaxi&s.
(Eftir fimtán ára fjarveru).
fEiR segja þú sjert svo lítil,
að sje þjer ei nokkur vörn
og helst ættu’ að flytja frá þjer
í fjarlægðir öll þín börn.
En segi þeir hvað þeim sýnist
og syngi þjer eyðispár,
mjer nægir þín sjón og saga
um sfðustu fimtán ár.
Þeir segja þú hafir sofið
og svikist um flest þín störf,
en Vesturheims-gyðjan vakað
í vörnum og sóknum djörf.
En beri þeir sögur saman,
og sanngirni kalli til,
og dragi svo, ef þeir dirfast,
úr dæminu sjer í vil.
Peir segja þú börn þín sveítir
og sitjir á röngum stað
og lifir ei hálfu lífi
— því ljúga þeir — guð veit það.
• Þú veittir þeim yl og orku
í æsku, við brjóstin þín,
þeir kasta’ að þjer klaka’ í staðinn —
þeir kunna’ ekki’ að skammast sín. —
Jeg veit að hún Vestur-álfa
fer vel með sín tökubörn;
en bein þeirra margra malar
hann Mammon í aurakvörn.
Og segi þeir hvað þeim sýnist;
jeg syng þjer mitt barnaljóð.
Því móðir er manni kærust,
þótt mörgum sje fóstra góð.
Þá hár mitt er orðið hjela
og hugurinn sól og ský,
sem grætur og gleðst af öllu,
og gerist jeg barn á ný,
hve Ijúft væri þá að lifa
og leika við gullin sín
— og þegar mig syfjar síðast
að sofna — við brjóstin þín.
Sig. Júl. Jóhannesson.
h|f Niðursuðu- og
pjáturs-verksmiðjan ísland
á Norðurstíg
tekur að sjer niðursuðu fyrir almenning, býr til fiskibollur,
fiskirendur, fiskibúdding, kæfu, kjöt- og fiskl-fars og
margt fleira, þegar efni er fáanlegt. Nánar verður auglýst fyrir-
komulag sölunnar á farsinu. Selur einnig kjöt í smásölu og
síðarmeir ferskan fisk. Á vjelaverkstofunni fást tilbúnar dósir og
eftir pöntun margt annað, t. d. pípur, þakrennur o. fl., miklu
ódýrar en áður hefur þekkst.
mr Útsölumenn á farsi o. f!., t. d. mjólkursalar
og kjötsalar o. fl. gefi sig fram.
Vefnaðarvörur
og
Borðið aðeins Suehards
súkkulaði. Án efa besta át-
súkkulaðið. Fæst alstaðar.
Massage Iæknir
Guðm. Pjetursson.
Heima kl. 6—7 e. m.
Spítalastíg 9. (niðri).
Sími 394.
prjonavorur
eru ódýrastar og bestar í
vefnaðarvöruversluninni
Laugaveg 18 B.
M. Th. Rasmus.
Cymbelína
Tiin fagra
Skáldsaga
eftir Charles Garvice.
---- Frh.
»En hvers vegna fór hún frá
okkur?« spurði hertoginn titrandi
af geðshræringu.
»Því svarar hún yður sjálf er
þið hafið fundist aftur,* sagði God-
frey, er örvænti um það með sjálf-
um sjer, að nokkru sinni væri unnt
að koma þessum þóttafulla aðals-
manni í skilning um, hvað hefði
valdið burtför dóttur hans. »En
verið viss um það, að til þess gekk
henni ekkert það, er aðalsmey er
ósamboðið; miklu fremur var ástæð-
an göfugmannleg, háfleyg og sam-
boðin henni.«
»Herra Brandon! Jeg hef gert
yður ákaflega rangt til! En afsökun
hef jeg þó nokkra: Það var illa
Ieikið á mig. Viljið þjer fyrirgefa
mjer?«
»Það hef jeg þegar gert fyrir
löngu«, mælti Godfrey og tók í
titrandi hönd hertogans. »Jeg get
ekki lýst því, hve jeg er guði og
gæfunni þakklátur fyrir að hitta
yður í dag, náðugi herra!«
»Og jeg get það ekki heldur,
því illa hefði farið, ef ofsi minn og
reiði hefði hrakið yður burt, áður
en þjer gátuð fært mjer heimsann-
inn um misgrip mín«, sagði her-
toginn. »En hvað skal nú til bragðs
taka? Afsakið, herra Brandon, en
mjer finnst jeg svo ruglaður af
þessu öllu, að jeg verði að treysta
á dáðríki yðar og úrræði. Jeg er
gamall orðinn, herra minn! ogsann-
færing mín um það, að dóttir mín
hefði hegðað sjer annan veg en
henni sæmdi, hefur fengið mjög á
mig. En þettabrjef? Falsbrjef sögð-
uð þjer?«
»Já, það er faisbrjef*.
»Hver hefur falsað það? Hver
getur hafa gert það? Hver gat haft
hag af því?«
«Við skulum komast að raun um
það!« svaraði Godfrey stillilega.
Hertoginn velti vöngum um stund.
»Hvers vegna færðist Bellmaire
jarl undan að láia mig fá brjefið í
hendur?« spurði hann og varskrít-
inn á svip.
Godfrey sneri sjer undan.
»Við verðum að komast aö ástæð-
unni til þess,« sagði hann og gætti
sín vel að segja ekki hertoganum
hug sinn allan. »Og nú, náðugi
hertogi!—Viljið þjer nú fela málið
mjer á vald?«
»Já, algerlega!* svaraði hertog-
inn. «Jeg á yður mikið að þakka.
Gefið mjer dóttur mína aftur, og
þakkarskuld mín við yður tífaldast,
Brandon!« Frh.