Vísir - 23.10.1913, Blaðsíða 2
V I S I R
v^§)
;CW
£lísabet. Amerísk
saga. Rvík. Prentsm. D.
Östlunds 1913. 8vo bls.
112. Verö: kr. 0,40.
Saga þessi lýsir fjölkvænis-svívirð-
ingum Mormónakirkjunnar og háska-
legum afleiðingum þeirra. Mormón
ar munu svara því til, að nú sje
kirkja þeirra sýkn þeirra saka, þar
setn Ingbann gegn fjöikvæni hafi
verið gefið út af stjórninni 1870 og
síðar ítrekað. En kutinugra álir er
það, að ekki sje háskastður þessi
aldauður enn meðal Mormóna og
fulla trú hafi »feður« kiikjunnar enn
á rjettmæti fjölkvænis og geti lög-
bannið þar engu um þokað. Saga
þessi er þýdd úr dönsku og hefur
lestur hennar erlendis orðið ungum
og óspiltum stúlkum vörn gegn
veiðibrellum Mormóna og ekki ólík-
Iegt að svo fari hjer. G. G.
Hallgr. Jónsson og Stein-
gr. Arason. Leikföng.
Lesbóká eftir stafrófskveri.
U g. JörundurBrynjólfsson.
Gutenberg 8vo 112 bls.
Þetta er smásögu kver og sögurn
ar allar snotrar, miðaðar við þroska-
hæfi barna, er byrja að lesa að loknu
stafrófskversnámi. Efnið er látlaust
fram sett, og flestar sögurnar hafa
einhver góð frækorn að geyma fyr
ir barnssálina, er þroskast geta og
blómgast við samtal og skýringar
góðs kentiara. Málblærinn er ljettur,
víðast hvar, þótt fyrir bregði á stöku
stað stirðu eða miður rjettu máli,
en það er svo örsjaldan að slíkt er
óþarfi að tína til. Myndir eru í
kverinu, laglegar og eru þær jafn-
au börnnm kærkomnir gestir; hver
einasta barnabók ætti að vera með
myndum, góðum myndum. Þær
vekja og auka lestrar.öngun, vilja
og skilning, ekki aðeins barna á
þeirra reki, er bók þessi er ætluð,
heldur og miklu eldri barna og —
fullorðinna líka.
Allar eru sögurnar í kverinu frum-
samdar, og er það kostur, þegar vel
er samið, því best skilja börnin og
kærastar eru þeim sögur úr sínu
ríki, — bæði umhverfi því, er þau
lifa í, og æfmtýraheimi þeim, sem
vinir og vandamenn beina fyrst hug
þeirra inn í á bernskuskeiðinu.
G. G.
innlendai og erlendar, PAPPÍR og RITFÖNG
kaupa menn í
BÓKAVER8LUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR.
l.ækjargötu 2.
werður selí á bryggur.ni í dag og á morgun
B0IS* mjög ódýrt,
Jón frá Vaðnesi.
ag;anes
*******
f)
Borðið aðeiris Suchards
súkkulaði. Án efa besta át-
súkkulaðið. Fæst alstaðar.
Frá bæarstjórnarfundi.
16. okt.
Um hafnarsiysið 11. júní.
Borgarstjóri las upp brjef frá
stjórnarráðinu þess efnis, að það
fyndi ekki ástæðu tii að verða við
þeirri ósk bæarstjórnarinnar að krefj-
ast rannsóknar út af slysi því er
varð við hafnargerðina 11. júní
í sumar, eftir svar, er bæarfógeti
hafði sent því um slysið. (Svar
bæarfógeta stóð í brjefinu.) Meðal
anpars var það í, að bæarfógeti hafi
fsest keyptur í því ástartdi, sem hann nú er í, í Slippn-.
um. SKrifieg tilboð sendist
H P. J. Thorsíeinsson & Co.
í Reykjavík, fyrir 25. þ. m.
sem var í þurkhúsinu í Viðey fæst keyptur. Mjög hentugur til iniðstöðv-
arhitunar. Uppiýsingar hjá
H
f P. J. Thorsíeinsson & Co.
Reykjavík.
talað við bæarverkfræðinginn uni
slysið, og hafi hann skýrt svo frá,
að hans fyllsta sannfæring hafi ver-
rð sú, að verkpallarnir (er brotnuðu)
hafi verið nógu sterkir, en verið
mikið útsettir fyrir skemmdir af
grjóti, sem lenti á þeim, enda þurft
endurbóta við eftir hverja grjótferð.
Það hlýtur að hafa eitthvað bilað
að kvöldi þess 10 júní, sem ekki
hefur verið tekið eftir eða endur-
bæft, er hefur orsakáð slysið að
morgni þess ll.júní, er fyrsta lestin
rann út á pallana. — Ekkert hegn-
ingarvert orsakað slysið. Hafnar-
nefnd heldur ekki haldið lcröfu um
lögreglurannsókn til streitu, er hún
æskti rannsóknar út af slysinu. —
Sv. Björnsson : Það hefur staðið
lengi á þessu svari til stjórnarinnar,
3 mánuðir, síðan rannsóknarinnar
var krafist. Og er mjög- óheppilegt
hve tregur bæarfógeti er að rann-
saka svona mál, sem undir öllum
kringumstæðum var lögreglumál.
Það er rangt eða niisminni hjá
bæarfógeta, að hafnarnefnd hafi ekki
haldið fram kröfu sinni um rann-
sókn út af slysinu.
P. G. Guðmundsson : Ábygg-
ing úrskurðar þessa frá bæarfógeta
virðist veik, byggð á ummælum bæ-
arverkfræðingsins, er í brjefinu
standa, er geta vart álitist fullnægj-
andi og á sömu ástæðu byggir
stjórnarráðið og sinn úrskurð. Hafi
verkpallarnir verið álitnir nógu
sterkir, hversvegna voru þeir hafðir
þá sterkari og traustari á eftir, er
við þá var gert? Mjer finnst þar
með viðurkennt, að þeir ekki hafi
verið nógu sterkir áður. Annars
virðist ekki nægilega mikil aðgæsla
höfð við grandagarðsbygginguna,
Núna við síðari slysið er varð þar,
er maðurinn drukknaði, var enginn
bátur nærri til björgunar.eða björg-
unarhringur að kasta til mannsins.
Œtli út af því slysi verði rannsókn
hafin fremur hinu ?
K- Zimseu : Það er of fljótt að
gera aðfinnslur út af því slysi, á
meðan próf standa yfir út af því.
Rangt, að bátur hafi ekki verið
nærri. Hann var svo sem 400
metra í burtu. Nóg af lausum
staurum við hendina að kasta til
mannsins, sem var gert, en reynd-
ist árangurslaust.
P. G. G.: K. Z. vill verja þetta
mál. Það var enginn bátur við
garðsendann; ekki sama, hvar bátur
er, hvort hann er 400 meter uppi á
þurru landi eða úti á sjó. Frh.
Massage læknir
Guðm. Pjeiursson.
Heima kl. 6—7 e. m.
Spítalastíg 9. (níðri).
Sími 394.
Fisksala.
Frumvarp til reglugerðar fyrir
fisksölu í Reykjavík.
1. gr. Enginn iná hafa fisk,
sem veiddur er í sjó, hverju nafni
sem | nefnist, á boðstólum fyr-
ir bæarbúa, nema hann hafi
þar til fengið skriflegt leyfi bæar-
stjórnar. Bæarstjórnin veitir slík
Ieyfi er fullnægt er þeim ákvæð-
um um tilhögun fisksölubú'ða,
sem talin eru í reglugerð þessari.
Undanþegnir þessari grein eru
þó þeir, sem stunda sjálfir sjó-
róðra frá Reykjavík.
2. gr. Fisk má eigi selja á
öðrum stöðum en í fisksölubúð-
um, sem útbúnar sjeu á þann
hátt, sem reglugerð þessi mælir
fyrir um. Þó skal þeim, sem stunda
sjóróðra frá Reykjavík, heimilt að
selja nýan fisk úr róðri á lend-
ingarstaðnum.
3. gr. Öll fisksala á götum bæ-
arins er bönnuð.
4. gr. Fisksölubúðir má eigi
hafa á öðrum stöðum en þar,
sem fráræsli er um neðanjarðar
holræsi.
5. gr. Fisksölubúðum skal haga
eftir fyrirmælum heilbrigðisnefnd-
ar.
í slíkum búðum má eigi hafa
aðrar vörur á boðstólum en fisk,
og skulu þær að minnsta kosti
fullnægja þeim skilyrðum er hjer
fara á eftir, enda má eigi taka
þær til afnota fyr en fengið er
leyfi heilbrigðisnefndar.
1. Gólfið skal vera steinsteypt
og í því skolpop; slcal það hafa
halla að skolpopunum, en þaðan
holræsi til sjávar eða í götuhol-
ræsi.
2. Búðin skal eigi vera lægri
en svo, að 4 álnir sjeu undir loft.
Loft skal gipsa. Veggi skal fóðra
með gleruðum flögum, ella rjóða
á þá vandaðri sementsblöndu.
3. Söluborð skal vera í búð-
inni, skal á því, svo og öðrum
borðum, sem fiskur er lagður á,
veramarmarahella eðaflögusteins-
þynnur eða sinkþynnur.
4. Hafa skal í búðinni vatns-
þró og vatnshana og veita að
vatni svo auðvelt sje að skola
fiskinn og þvo.
5. Búðin skal vera björt og
gluggar skuiu vera á tveim mót-
settum hliðum og þá hægt að
opna svo að blásið geti í gegn-
um búðina.
6. Fiskinnýfli, slor eða úrkast
úr fiski má eigi hafa í búðun-
um.
7. Fast við fisksöiubúð skal
vera vatnshelt, lokað slorilát eða
slorgryfja, sem útbúin sje á þann
hátt, sem segir í 20. gr. heil-
brigðissamþykktarinnar um áburð-
argryfjur. v
6. gr. Bannað er að selja fisk,
sem er úldinn.
Næturgamlan fisk má selja ó-
slægðan fram til kl. 3 e. h. á
daginn. Eftir kl. 3 e. h. tná
engan fisk selja óslægðan.
Eldri fisk en næturgamlan má
eigi selja óslægðan.
Bannað er að frysta skemnid-
an fisk til þess að hafa liann síð-
an á boðstólum.