Vísir - 06.11.1913, Page 4
V í S t R
Eftir
H. Rider Haggard.
----- Frh.
»-— Yðar Hátign!« las Hugi.
»Jeg bið vðar konmiglepu náð- j
unnr og miskunar til handa þeim
Huga frá Krossi og Ríkarði boga-
bendi fyrir víg' þessi; vænti jeg
þess, er þjer hafið iesið brjef þetta
allt, að það mál muni auðsótt—«
»Ekki er nú sýnt að svo verði!«
mæiti konungur.
»■—- Yðar Hát'gn! Játmundur
Akkúr, sem hefur lent hjer í
Suðurfyiki, greifi af Noyónu í
Normanndíi og herra af Kattrínu
á Ítalíu, « j
»Jeg þekki manninn,« mælti kon-
ungur við drottningu sína, ,»og þú^
líka. Fríður riddari og gerfilegur
og hinn kurtéisasti, en einn þeirra ;
er jeg hef aldrei borið traust til.«
»— er líka ástfanginn af Rögnu
frá Kleifum og vill kvænast henni
að vilja föður fiennar. En hún
hatar hann, og samkvæmt Dún-
víkur tilskipuninni, þar sem hún
á heima, má hún neita nauðung.
argjatorði.
»Ve! er það að ekki eru til margar
slíkar tilskipanir!« mælti konungur.
»Það er gamla sagan, — bestu menn
bíða bana fyrir sakir kvenna, og er
það elcki ófyrirsynju að Ragna þessi
er kennd við rauða litinn!*
»— Lávarður minn og herra!
Jeg bið yður að lesa brjef það
er hjer er innan í. Hugi frá Krossi
mun tjá yður með hverjum at
burðum það komst í mínar hendur,
því ekki nenni jeg að rita þá sögu
alla. Ef Yðar Hátign er mjer
samdóma um mikilvægi máls þess,
er þar um ræðir, bið jeg yður
að gera orm þennan höfði styttri
meðan hann er í garði yðar, svo
hann lifi ekki til þess að bíta í
hæl yðar, er þjer eruð úr Iandi
farinn. Ef þjer gefið þeim, er
brjef þetta ber yður, konunglega
skipun um að setja hann í varð-
hald og skorið á aðra góða og
trúa íbúa Dúnvíkur borgar að
aðstoða hann í því, efast jeg ekki
um að það takist að koma honum
fyrir kattarnef. Meö því yrði miklu
og sviksamlegu samsæri á knje
komið og snúið yður til frægðar
og óhappa mikilla öllum óvinum
yðar í Frakklandi, sem hyggja á
að taka veldissprota Englands
morðingjahöndum.
Yðar Hátignar auðmjúkur
þjónn og þegn
Andrjes Arnaldar.«
Frh.
^fxí úUötxdum.
Dinizulu dáinn.
Þar er hann fallinn að velli, harð-
svíraði gamli Zulu-manna foringinn
sem lengst hefur verið Englend-
ingum erfiður. Dinizulu dó laug-
ardaginn 25. f. m á búgarði sínuin
við Middelburg í Transvaal.
Dinizulu var sonur Cetewayo
konungs, Zuluaforingans mikla, er
dó 1884. Hann gerði Bretum jafn-
an allt til bölvunar sem hann mátti.
Árið 1888 var hann dæmdur sekur
1
um landráð við r>reta, rekin í út-
legö og fluttur út á St. Heiena, þar
sem Napoleon mikii dó. Hann fjekk
þó náðun níu árum siðar og varð
foringi og höfðihgi Usutu-manna.
Ekki leið þn á b'mgu áður en
svikræðisgrunur fjell á hann af nýu
og 1909 var mál höfðað gegn
honum og Ifarm dæmdur í 4 ára
fangelsi og I 800 kr. sekf. Árið
1910, er sambandsþing Suður-Af.
ríku kom saman fyrsta s:nn, var
samþykkt á því að náða Dinizulu
og var honum gefin jörð í Zulu-
landi, þar sem hann gæti bfað með
konum sínum, •— hann var kven-
hollur, karlinn —, og þjónum, og
veittur 9 000 kr. styrlcur á ári.
Hann var ekki smafríður, feitur
mjög, allra manna kátastúr þótt
gamall væri orðinn, og er hann dó
var hann 254 pd. að þyngd.
Skotið á biskupinn um
hámessu.
Meðan March, kaþólski biskupinn
í Harbour Grace í Newfoundlandi
var að messa hámessu í kirkjunni
19. f. m., gekk maðurnokkur,Jam-
es Hore að nafni, inn í kirkjuna og
skaut á biskup íyr:r altari tveim
skotúm. Særði annað skotíð biskup
á höfði, en hitt hæföi hann ekki.
Söfnuðurinn komst í uppnám sem
nærri má geta, — tókst loks að
handsama tilræðismanuinn og var
hann fluttur í fangelsi, en er ekki
talinn með öHum mjalla.
Tvísýnt cr talið um líf biskups.
B' ” - '&yisiÉi
Húsaieigusamninga'
eyðubiöð á 5 au. selurD.Östlund.
Þinglýsingar.
2. okt.
1. Elías Stefánsson selur 21. júlí
þ. á. Þorgeiri Þorgeirssyni x]2
húseignina nr. 4. við Kárastíg.
2. Bæarstjórnin selur á erfðafestu
24. júní þ. á. fjelaginu »Dags-
brún« 1.56 hktr. land fyrir
sunnan tjörnina.
9. okt.
1. Lárus Benediktsson selur 7.
ágúst þ. á. Hjálmtý Sigurðs.
syni V2 húsið nr. 33 A við
Njálsgötu.
2. Hjálmtýr Sigurðsson selur 24.
sept. þ. á. Gesti B. Laxdal
sömu eign.
3. Jónas Jónasson selur 2. maí þ.
á. Ámunda Einarssyni lóð við
Framnesveg.
4. Lárus Benediktsson selur 7.
ágúst þ. á. Hjálmtý Sigurðs-
syni húsið nr. 42 við Berg.
staðastræti.
5. Sveinn Jónsson selur 15. júlí
þ. á. Birni Gíslasyni húsið nr.
4 B við Hverfisgötu.
6. Björn Gíslason selur 26. s. m.
Hjálmtý Gíslasyni sömu eign.
7. Júlíus Sigurðsson selur 4. okt.
Jóni Þorvarðssyni l/2 húsið nr.
2 við Frakkastíg.
16. okt.
lv Þorl. Guðmundsson selur 22.
okt. 1912 Sigurði Jónssyni o.
fl. húseignina nr. 38 við Fram-
nesveg.
2. Jón Jóhannsson selur 25. sept.
E’ýlenduvörudeild
Yerslunarinnar Edinborg
vill leiða athygli almennings að því, að nú sem stendur gefur hún
eftirfylgjandi afslátt á þessum vörum:
Handsápu 'S50/„- Pícklss 20 °/0. Syliufau 20%
Sósum 20 %. Beauvals-nsðursuðu 10 %. Vindlum 1O°/0.
Pípum 15 7„. Óáfeng vín IO 70 og 20 70. Ávextir og
Grænmeti 25 7„.
9
Yms niðursuða
o»
þ. á. Sigurði og Sæmundi :
Þórðarsonum húsið nr. 37 við ■
Grettisgötu.
23. okt.
1. Samúel Jónsson selur 13. ágúst
þ. á. Sigurði Jóhannessyni
0.512 hktr. lóð við Skólavörðu.
stíg.
2. Þorl, Guðmundsson selur 18.
júlí þ. á. Gesti Einarssyni o,
fl. eignina »Andersenshúst.
3. Gestur B. I axdal selur 21.okt.
Gísla Þorbjarnarsyni Vj húsið
nr. 33 við Njálsgötu.
4. Ágúst Flygenring selur s. d. |
L’Azote Organique J. P. Brill-
ouin & Co.mótorbátinn »Hexa«.
5. Sólmundur Kristjánsson selur
15. maí þ. á. Hjálmtý Sigurðs-
syni 430 fer.ál. lóð við Bjarg-
arstíg.
30. okt.
1. Björn Markússon selur 20. okt.
þ. á. Guðjóni Guðmundssyni
húsið nr. 18 við Barónstíg.
2. Sig. Björnsson o. fl. selja Sig-
ríði Einarsdóttur 22. s. m.
1000 ferálnalóð úr Norður-
mýrarbletti no. 2.
3. Th. Thorsteinsson selur J. A. j
Godtfred í Færeyum 23. s. m.
skipið »Guðrúnu Soffíu«.
4. Thor Jensen selur 25. þ. m.
ÞorbjörguGunnlaugsdótturhús1
ið nr. 3 A við Tjarnargötu.
5. Jónatan Jónsson selur 5. s. m.
Siggeiri Helgasyni húsið nr.
34 við Njálsgötu.
6. Þorbjörg Gunnlgausdóttir selur
25. s. m. hlutafj. »Kveldúlfi«
eignina »Móakot«.
Kafli
ódýrast og best í versl.
Ásgríms Eyþórssonar
Austurstræti 18
!TAPAÐ-FUNDIÐ(0
Silfurbrjóstnál töpuð. Skilist á
afgr. Vísis gegn fundarlaunum.
Oskilahestur
hvítur með hvíta liófa er á Esjubergi
mark sýlt v. biti fr.
KAUPSKAPUR $
Kortimóða er til söíu með tæki-
færisverði. Uppl. í Þingholtsstræti
8 B uppi.
Konsólspegill, strauoolti, olíu-
vjel og eldavjel er íil sölu á Grett-
isgötu 18.
Afsláttarhesíur, sumarstaðinn,
fæst til kaups í Kálfakoti í Mos-
fellssveit.
Söðull er til solu á Brekkustíg 5.
rn stofudyratjöld (»portierer«) ®
g Barnarúmsdýna (madressa) Í
^ fæst afar ódýrt í Bergstaðastr. g
I 52, niðri. m
Barnaskólabækur brúkaðar til
sölu. Til sýnis á afgr. Vísís.
Sófi mjög vandaður, nýr til sölu.
Afgr. v. á.
Blómlauka ódýra selur Ragn-
heiður jensdóttir Laufásveg 13.
V I fJ N A
íá
Ðesíu fatakaup á
Laugaveg I.
Jón Hallgrímsson
Útgefandi
Einar Gunnarsson, cand. phil
Östlundsprentsmiðja.
Vetrar stúlka óskast nú þegar.
Vesturgötu 37. S. P. Jónsson skip-
stjóri á s/s Ingólfi.
Góð stúlka óskast á gott barn-
laust* heimili í Vestmannéyjupi.
Aðeins inniverk. Hátt kaup. uppl.
á Njálsgötu 43 A.
Vetrarstúlka óskast á gott heim-
ili í Vestmanneyjum. Hátt kaup.
Uppl. á Grettisgötu 8.
Stúika óskast í vetrarvist. Uppl.
á Bræðraborgarstíg 3.
Stúlka óskast í vist nú þegar.
Vesturgötu 37.
Stúlka óskast í vist á Hverfisgötu
4 D uppi.
Stúlka óskar eftir saumum í hús'
um, fyrri part dags. Afgr. v. á.
Stúlka, þrifin, óskast í vetrarvist
Uj|pi. Bergstaðastíg 3.
1
H Ú S N Æ D I
Stór stofa með góðum hús-
gögnum er til leigu á Spítalastíg
9 uppi.