Vísir - 12.11.1913, Síða 1
798
Vísir er elsta — besta og út- ||
Sf?
breiddasta dagblaðið á
íslandi.
"0\
13
S\Y
Vísir er blaðið þitt.
Hann áttu að kaupa meðan samkeppnin
varir.
‘X
1
Kemur út alla daga. — Sími 400.
Afgr.í Hafnarstr. 20. kl. llárd. til 8 síðd.
25 blöð(frá 1. nóv.) kosta á afgr. 50 aura.
Send út um land 60 au,—Einst blðð 3 au.
Skrifstofa í Hafnarstræti
opin kl. 12-3.
20. (uppi),
Sími 400.
Langbesti augl.staður i bænum. Augí,
sje skílað fyrirld. 6 daginn fyrir birtingu.
ÍViiövd. 12. nóv. 1913.
ðrátta í dag:
•p s J3
r "O C >
bfl
a
3
*o
Vestme.
Rvík.
ísaf.
Akureyri
Qrímsst.
Seyðisf.
Þórshöfn
739,8 0,1
745,1 0,5
751,2| 4,7
744.7
726,5
738.8
2,2
3,5
3,3
738,4j 8,5
i
N
N
N
NV
N
Heiðsk.
Hálfsk.
Skýað
Hríð
Hríð
OÍSkýað
3iSkýað
N—norð- eða norðr.n,A- aust-eða
austan,S—suð- eða sunnan, V—vest-
eða vestan
Vindhæð er talin ístigumþann-
ig: 0—logn,l—andvari, 2—kul, 3—
gola, 4—kaidi, 5—stinningsgola, 6—
stinningskaldi,7—snarpur vindur,8—■
hvassviðri,9— stormur, 10—rok,l 1 —
ofsaveður, 12—fárviðri.
Skáleturstölur í hita merkja frost.
Bíó
Biografteater
Reykjavíkur
Bfó
Ást Pierrots.
Sjónleikur í 3 þáttum.
Aðalhlutverkin leika
Frú Edith Psilander.
Hr. Einar Zangenberg,
Fögur og áhrifamikil
________ástasaga.___________
„Aldan”.
Fundur í kvöld kl. 81/2 í '■Bárubúðc.
Fjalagsmenn beðnir að mæta.
Stjórnin.
■ tkklstur fást venjulega tilbúnar
á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og
gæði undir dómi almennings. —
Sími 93. — Helgi Helgason.
Cr bænum
verða haldnir í dag (miðvikudag) kl. 9 síðdegis
undir sijórn
Aðgöngumiðar verða seldir allan daginn í bókaverslunum
og Sigf. Eymundssonar, svo og við innganginn, og kosta 1,25 og 1,00.
Nínara á götuaugl.
ísafoldar
í
SIMFRJETTIfl
í Sílóam hafði það vcrið sem
kviknaði á fimtudagskvöldið,] en
ekki Betel. Lampi hafði fallíð nið-
ur, en búið var að slökkva þegar
brunaliðið kom.
Edinboro’ Castl, botnvörpuskip
frá Grimsby kom Vaiurinn með í
gær hingað inn. Hafði hitt það að
ólöglegum veiöum í landhelgi. Skip-
ið var sektað hjer um 1800 kr. en
afli og veiöarfæri gert upptækt.
Ekki er útkljáð enn um hvortskip-
ið fær að kaupa afla sinn og veið-
arfæri utan uppboðs. Aflinn er 600
körfur. — Sektin er svona há af
því að skipið var brotlegt áður.
Föðurnafn eins brúðgumans var
skakkt í blaðinu í gær. Átti að
standa: Ö. K. Jósepsson en ekki
Jónsson.
Samsæti hjeldu nokkrir kunn
ingjar Matth. Jochumssonar honum
í Bárubúð í gærkveldi. Margir fleiri
hefðu viljað vera þar með en vissu
ekki um þetta fyr en um seinan.
Fro botnvörpuskip frá Geeste-
munde kom í gærkvöld með bilaða
vjelina.
Bragi kom af fiski í gær. Hafði
aflað 1200 körfur. Fór til Englands
f nótt.
$QYwaYmov5’\.
--- Kaupmannahöfu í gær.
Rússneski gyðingurlnnn Beilis, er sakaður hafði
verið um að hafa fórnfært kristnum dreng, hefur
af dómstólunum verið aisýknaður af þessum áhurði-
Gyðingaofsóknir er gusu upp, þegar’fórnfæringar-
frjeftin barst út, eru nú rjenaðar.
Báglega gengur að koma á
skautasvellinu á Austurvellli. Var
bunað á hann úr einum vatnsveitu-
hanar.um tvo daga og nóttina milli
og sáust lftil vegsumerki, svo lagði
snjó yfir og þá kom þýðvindi svo
ekki sjer annan árangur af þessu
þriggja dægra starfi, en kostnaðinn.
Nú er aftur frost og tækifæri að reyna.
Gefin saman f gær Finnbogi
Sveinsson og ym. Sæunn Sæmunds-
dóttir frá Lágafelli í Mosfellssveit.
Ilfl ÚTLÖNDLfM B
Tammany-flokkurinn
gjörsigraður.
Svo mikinn ósigur beið hinn
illræmdi Tammany4iringur í New-
York við ríkisstjórakosningarnar
4. þ. m., að slíks eru engin dæmi
í manna minnum.
Tammany-flokkurinn studdi fil
kosninga McCatl, stjórnmála-
mann, en sá er í móti honum
keppti, írinn John Purroy Mitchel,
34 ára gamall, var kosinn ríkis-
stjóri með 110 000 meiri hluta
atkvæða. Sömuleiðis hafa and'
stæðingar Tammany-flokksins ver-
ið kosnir á allar lausar lægri
ríkisstjórnarstöðvar með 20 til
40 þúsund atkvæða meiri
hluta; slíkt hið sama dómarar,
er andstæðir eru Tammany-
flokknum. í ríkisráði New-York
ríkis hafa ándstæðingar flokksins
79 atkv. meiri hluta, og í öld-
ungaráðinu 15manna meiri hluta.
Republikanar, demókratar og fram'
sóknarmenn gengu allir í einn
flokk við kosninparnar gecrn
Tammany-flokknum og nefndist
sá sameinaði flokkur »fusiónist-
ar«. Svo fór og að í New-Jersey
var kosinn ríkisstjóri af demó-
krata-flokki, J. F. Fielder, sem
þeir Wilson og Bryan höfðu mjög
mælt með, og hlaut hann 20 000
atkv. meiri hluta. Svo er ósigur
þessi mikill fyrir flokkinn að tal-
inn er hann gjöreyðilagður fyrst
um sinn; eru þetta ávextir af
hreinsunarverki því hinu mikla
er Roosevelt hóf, en Wilson og
aðrir foringjar hinnar nýu stefnu
hafa öruggir fylgt fram.
Járnbrautarslysið
á Frakklandi-
.Nánari fregnir en stóðu í sím-
skeytinu hjer í blaðinu 6. þ. m
eru nú komnar af því. Slysið varð
við Melon járnbrautarstöð, 28 mílur
frá París. Rakst hraðlest.frá Mar
seille á járnbrautarvagn frá Lyon
var þetta að kvöldi dags uin kl. 10
á brautamótum. Tók hraðlestarstjór
inn, er ekið hafði með 66 enskra
mílna hraða á klukkustund, ekki eftir
merkjum þeim, er hinn vagninn
gaf og rákust svo gufuvagnarnir á,
svo mjög að þeir klemmdust hvor
inn í annan. Vagnarnir stóðu þegar
í ljósum loga, en svo var mikil
þoka á, að ekki sást gerla yfir alla
hrúguna. Mölbrotnuðu þeir og
sprengdust sundur með braki og
brestum, en fyrst að morgni sáu
menn til hlíta, hversu umhorfs var.
Bana biðu þarna 50 manns (aðrir
segja 45—50) þar á meðal 20 póst-
bjónar. Hversu margir hafi meiðst
er enn ekki taiið, en þeir eru
inargjr. Björgunarvagnar koinu til
hjálpar, en örðugt injög var að
bjarga fólkinu því allt var í einni
hrúgu og livarvetna fyrir glóandi
járn og brautarteinar sjóðheitir.
Meða! dáinna er nefndur Dr. Ja-
bóulet, prófessor í læknisfræði frá
Lyon, vísindamaður mikill. — Feikn-
in öll höfðu björgunarliðar fundið
af dýrgripum, gimsteinum og banka-
seðlum í öllu skraninú. Mikið er
látið af dáðríkri framgötigu bróður
flugmaunsins Vedríne í því að
bjarga. ' Hraöleslarstjórinn hefur
verið tekinn fastnr og búist við að
hann verði látinn sæta ábyrgð fyrir
aðgæsluskort er slysið bar að.
Hörmungasögu segir af konu
nokkurri er lá skorðuð í 8 stundir
undir vagnbrotum. Björgunarliðar
hjeldu að þeir hefðu náð öllum úr
hrúgur.ni er á lífi voru og ætluðu
að ná líkum póstmanna, er einn
þeirra heyrði stunur. Ljós voru
borin að og sjer til skelfingar sáu
björgunarliðar konuna liggja þarna
rígskorðaða. Fætur hennar voru fastir
milli járnsláa úr annars flokks vagni
er hún hafði farið í, og yfir brjóst
hennar lá bjálki mikill, og þar á
ofan var hár hennar flækt í einhverju
svo höfuðið var reygt aftur á bak
Ungur björgunarliðsforingi braust
nú til konunnar, gat hann rutt frá
trjám nokkrum, en er að henni kom
sá hann að lítt tnundi auðið að
bjarga henni. »Klippið af mjer hárið
Það rneiðir mig!« voru fyrstu orðin
er hún mælti. Svo bað hún um
vatn, og bað þess að draga sig
undan þessum þunga, áður en Iog-
arnir næðu sjer. En skjótt sást að
það var enginn vegur þá í svip,
því ca. 40 .smálesta þungi af jární
og trje hvíldi á bjálkum þeim er
skorðuðu hana og væri við þeim
hreyft, var auðsælt að aliur sá heljar-
þtijtgi ntundi falla á hana og merja
hana sundur. Tveir rnenn fóru til
hennar með vatn og skæri. Þeir
klipptu har hennar og höfði henn-
ar komu þeir í lag og Iauguðu
andlit hennar. Hún stundi í sífellu
en missti aldrei meðvitund og töldu
bjargliðar henni trú um, að hún
yrði frelsuð von bráðar. Vesiings
konan kvaðst vera lcona Amic liðs-
fotingja. »Hvar er maðurinn minn?
Hví er hann ekki hjá mier?« hróp-
aði hún. Enginn hafði hugrekki
eða brjóst í sjer til þess að segja
henni að hann væri dáinn af slys-
inu. Undir morgun gáfu læknar
henni morfín. Kl. 5 að morgninum
braust dr. Sicard, Iæknir járnbraut-,
arfjelagsins með járnbrautarþjóni til
hennar og var þar inannhætta að
fara vegna hrynjandi járnbolta og
illt vegna smá sprenginga að kom
ast áfram. Var þá auðsætt að kon-
an var að dauða komin; nú gat
hún vara orði upp komið. Síðasta
bæn hennar var sú, að læknirinn
tæki skrautgripi sína og peninga
og afhenti fólki hennar. Henni var
nú gefin af nýu morfín-innspýting
og rjett á eftir gáf hún upp and-
ann. Hafði hún þá legið með marða
limi og moiaðar fætur fullar 8
klukkustundir.
Járnbrautarslys í Belgíu
varð um miðnætti aðfaranótt 5. þ.
m. við Liége. Margir menn rneidd-
ust, þrír biðu bana og þrír voru
taldir af.