Vísir - 12.12.1913, Blaðsíða 1

Vísir - 12.12.1913, Blaðsíða 1
829 19 Vísir er elsta — besta og út breiddasta íslandi. dagblaðið á \) \S\Y Vísir er blaðið þitt. Hannáttu að kaupa fyrst og fremst. - Sími 400. 25 blöð (frá 25. nóv,) kosta á afgr. 50 au. Skrifstofa í Hafnarstræti 20, (uppi), 11 árd.til 8 síðd. Send út um land 60 au.—Einst.blöö 3 au. opin kl. 12—3; Sími 400. Langbestí augl.staður í liænum. Augl. sje skilað fyrir kl. 6 daging fyrir birtingu. Föstud. I!. des. 1913. Btkklstur fást venjulega tiibunar S á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og I gæði undir dómi almeunings. — rnaaam Sími 93. — Helgi Helgason. Komið í dag til Fríkirkjuprestsins með krón- una eða tíeyringinn til jólaglaðn- ings fátækum. Þjóðmmningardagurmn vestra og hjer. Þeim gengur betur Vestur-íslend- ingum að halda »Íslendingadaginn' hjá sjer, en okkur að halda »Þjóð- minningardag« hjer. í Winnipeg var kosin þegar 21. október síðastl. nefndin, sem á að standa fyrir deginum að sumri og sitja í henni 14 manns. Tekjur dagsins urðu í sumar sem leið um 5000 kr. og útgjöld- in um 3 600 kr., en auk sjóðsins (um 1400 kr.) á dagurinn tölu- vert af munum, og þar á meðal vikingaskip. í hvert sinn eru veittir margir tugir verðlauna og eru sumir all- glæsilegir, svo sem silfurbikar einn, sem tekur 6 potta og er að hæð um hálf önnur alin. Ekki væri úr vegi að meiri rækt væri lögð við Þjóðminningardag- inn hjer heima, en hefur verið nú ? um tíma og að ekki sje hann lát- ■ inn liggja niöri árum saman. Best er að hugsað sje fyrir hon- * um sem fyrst, en það er hlutverk 'j Stúdentafjelagsins hjer, að hefja ' undirbúninginn. Má vænta að fje- lagið láti málið ekki sofa lengur ; hjá sjer. v Frá bæarstjórnarfundi 4. des. ---- Frh. Breyting nafns og húsnúmera á Hverfisgötu. — Skúlaskeið. Borgarstj. .las brjef frá bæarfógeta, þar sem farið er fram á, að húsnúmer- um sje breytt við Hverfisgötu, sök- um ruglings þess er það veldur að mörg hús með henni eru með sama númeri. Skýrði hann einnig frá að byggingarnefnd hafi haft mál það til íhugunar og sannfærst um að breyting þessi væri nauðsynleg, en um leið og húsnúmerunum væri breytt myndi heppilegast að breyta nafni götunnar og fallist á að leggja til, að nefna hana Skúlaskeið, svo sem áður hefði komið til tals í nefnd og bæarstjórn að hún hjeti. K Zimsen mælti með tiiiögu nefndarinnar. Nauðsyn væri á að breyta húsnúmerum við þessa götu sökum áðurgreindrar ástæðu. Um götunafnið væri sjer ekkitkappsmál; nefndin hefði fallist á að nafnið væri ekki viðeigandi, verksmiðjur í hefðu risið upp við götuna t. d. Iðunn, og Skúli fógeti sem gatan ætti að bera nafn af, hafi fyrstur íslendinga stofnað iðnaðarverksmiðj- ur. Komið hafi til tals að nefna götuna þetta |áður (1903), en Jpá. var sú uppástunga feld í bæarstjórn. En nú mundi rjettara að breyta nafni götunnar um Ieið og húsnúmerum, hvort sem hún þá yrði nefnd Skúla- skeið eða annað. Kr. þorgrímsson sagði oft hafa komið misjafnt frá byggingarnefnd, en þetta væri það vitlausasta sem hann hefði sjeð þaðan, því þetta gæti enginn maður með heilbrigðri skynsemi fallist á. Veðbrjef öll sem menn ættu í húsum,tþyrfti að þing- Iesa á ný, þar sem húsnúmerum og götunöfnum væri breytt. »Jeg er þó ekki skyldur að sýna þau veð- brjef, sem jeg á í húsum við Hverfis- götu, það varðar engan um þau«. Skrítin bre yting orðin á hug K. Z. áður var hann á móti Skúlaskeiðs- nafninu, hefur nú í 12 ár verið að sækja í sig veðrið, til að snúa við j blaðinu. Skil jeg þó ekki að nafnið J sje betra nú en þá. 7>. Ounnarson sagði Landsbank- ann gæti þessi breyting kostað mikið fje, því þá yrði hann að láta þing- Iýsa öll sín veð aftur, eða hver ætti að borga þann kostnað, bæarsjóð- ur mundi verða skyldaður til þess. Að kalla göluna Skulaskeið væri afkáralegt og illa við eigandi, Iðunn og fleiri verksmiðjur þar inn- fra hefðu ekki verið svo arðsamar, að vert væri að taka tillit til þess með götunafni. Svo mætti taka þetta nafn sem háð. Það væri versti veg- ur á landinu er nefndist Skúlaskeið (á Kaldadal), eða ef það ætti að minna, ökumennina í bænum, sem vart ljetu hestana hreifast. Þá mætti eins vel kalla göíuna *Leggjabrjót«. J. Por/áksson. Vil spyrja lögfræð- ingana um, hvort þinglesa þurfi öll veð á húsum aftur,jjef götunafni og númerum er breytt. Kl- Jónsson: Við því liggur ekkert beint svar í lögum vorum, en hygg að þess mundi þurfa. Borgarstj. Álít að þinglestur á nafni og númerabreytingu dugi.1; Hygg að bæarfógeti sje sömu meiningar. Sá þinglestur mundi Iítinn kostnað hafa í för með sjer, bæarfógeti mundi annast um hana. Síðar mætti breyta nafni og húsnúmerum á veðbrjet'um samkvæmt henni, Eftir það var samþykt að fresta máiinu, uns frekari upplýsingar væru fengnar. Frh. 5^atfct\a vauBs^\^\a. Eftir H. Rider Haggard. ---- Frh. »Getur það verið að þú sjert faðir minn?« sagði hún rólega, en átti auðheyrilega örðugt að mæla. »Það eitt gleður mig, að móðir mín lifði ekki þessa stund!« Svo snjeri hún sjer á hæli og mælti við þá, er handtóku hana: »Heyrið orð mín, menn! Hver, sem snertir mig minnsta fingri, er feigur! Fyrr eða síðar skal hann áreiðanlega deyja þeim dauðdaga, er hann síst mun kjósa! Já, og þótt þið myrðið mig, þá á jeg virii, er komast munu fyrir sannleikann og borga aftur í sarna mæli og með hundraðföldum rentum kveinstafa og kvala. Nú fer jeg. Verið við- búnir, þrælar! og biðjið guð þess að Ragna rauðskikkja stigi ekki aftur fæti yfir þrepskjöld dýflissu sinnar. Biðjið þess líka að þið þurfið aldrei að horfa í sverðseggjar Huga frá Krossi eða heyrið hvininn af örvum Gráa-Rikka, nje að á yður hríni bann og bölvun Arnalds klerks!« Svo var svipur hennar ógnandi skipandi og þóttaþrunginn, og svo ægileg áhrif orða hennar, að þessir örgu bófar hörfuðu undan og kerl- ingin greip fyrir augu sjer. En Jón lávarður ógnaði þeim svo og eggj- aði þá bölvandi og ragnandi, að þeir slógu hring um Rögnu, en þó seint og ófúsfega. Gekk hún þá út með þeim og bar höfuðið hátt mjög og tigulega. Fangaherbergið undir blýþakinu á háturninum var kalt og hráslaga- legt og húsgögn voru þar engin, nema einn stóll og rúm á hjólum. Fyrir því var eikarhurð mikil, er var læst að utanverðu og slagbröndum slegið fyrir, var á henni op örlítið, er sjá mátti í fangann og gefa gæt- ur á honum utan frá. Enginn gluggi var á því, en uppí við þakið voru smá göt eins og skotaugu á víg- turni, er jafnvel barn hefði ekki getað smogið út um. Slíkur bústaður var Rögnu feng- inn. Þarna slcildu þeir við hana. Und- ir kvöld var lokið upp hurðinni og Sjana Mjöll kom inn með brauð- hleif og vatnskrukku og setti á gólfið. »Vilt þú nokkuð annað ?« spurði hún. »Já, kerling,* svaraði Ragna. »Þykku rauðu ullarskikkjuna mína úr herberginu mínu og hettu þá, er henni fylgir, og líka er rauð. Þvottavatn vil jeg líka fá, til þess að lauga mig, því hjer er fúlt og kalt og jeg vil helst deya heit og hrein. Frh. Ágætur Harðfiskur og Riklingur fæst nú í pakkhúsinu austanvið steinbryggjuna. Er nú á förum í jólaösinni. Nýkomið: Epli — Vínber, Kariöflur — Osiar, Mais — Bygg. lýlenduvörur allskonar Margarínið ágæta. Kaffi brennt og malað ódýrast í V e r s! u n i n n i Vesturgötu 39. Jón Arnason. Sími 112. Ý Á B l Ó ‘ Amalíu — ——*—— en ekki meira! e s ^ a UáUneJnv ve t v'a v \ s. Almenningur er vinsamlegast beðinn — sjálfs sín vegna — að panta aðgöngumiðana í tæka tíð, þar eð allir aðgöngumiðar að þessarí mynd hafa til þessa verið seldir fyrir kl. 93/4. í sfðasta slnn í kveld. Munið eftir símanr. leikhússíns 344. Oplð allan daginn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.