Vísir - 30.12.1913, Side 4
ii ii i iim ii— iiirrnriMi innrnmnn t ■
Þjer vitið að þjer hýsið hjer og
berið fyrir brjósti argvítugan svik-
ara, er situr um að ofurselja yður
og frelsi yðar Frökkum í hendur.
Berið eigi hönd fyrir höfuð bófa
þeim, ef þjer eigi viljið hrópa yfir
höfuð yðar hefnd konungs, er hef-
ur skipað öllum embættismönnum
sínum og lýð að grípa Játmund
Akkúr lífs eða liðinn.«
Þá varð þögn á þingi, því eng-
tnn þorði að efa orð klerks og
enginn vildi verða sekur um ó-
hlýðni við boð konungs, — not-
aði Hugi sjer þögnina og mælti:
»Ætlar þú að gefast upp, Ak-
kúr? Eða eigum vjer og borgarar
Dúnvíkur, sem úti fyrir bíða, að
taka þig höndum og menn þína?«
Akkúr snjeri sjer við og mælti
eitthvað í ákafa hljótt við Nikulás
prest, meðan söfnuðurinu starði
hljóður og höggdofa á þá Huga.
Þá gekk fram Jón Kleifa-lávarður,
er til þessa hafði horft fram og
hlustað sem í draumi á orðskiftin,
og mælti:
-Hugi frá Krossi! Seg þú mjer,
hefur hátíginn konungurinn ritað
stefnu á hendur Jóni Kleifa-lávarði.«
»Nei,« svaraði Hugi. »Jeg sagði
hátíginn konunginum, að þú værir
heiðursmaður, en værir í þorpara
höndum!« Frh.
FRÁ líTLÖNDUM jj
i £otvdon.
London 20. des. 1913.
Jólaverslunin stendursem hæðst
hjer i London þessa dagana, og
hefur aldrei verið meiri en í gær.
Versianir láta hið besta af hag
sínum og segja, að salan hafi
aldrei verið jafnmikil sem nú.
Svo er þröngin mikil sumstaðar,
að lögreglan verður að hafa gát
á, að fólk troðist ekki undir. Það
er fært í frásögur, að konungur
og fjölskylda hans hafi aldrei
sjest fara í búðir eins oft sem
nú. Hjer er líka Manúel Portú-
galskonungur tíður gestur’ í búð-
um, og kona hans með honum,
þótt íslensk blöð télji þau skilin.
Óvanalega mikið er hjer keypt
af demöntum eða demantsskreytt-
um hlutum. Hálsbyndisnælur,
sem kosta frá 50 kr. allt að
3600 kr. eru mjög algengar.
í gær voruíeinni búð afgreidd-
ir 20 000 menn, en giskað á,
að 100 000 hefði komið inn í
búðina. Önnur verslun sendir
80 000 póstböggla á dag til við-
skiftavina sinna.
Morðingjar,
lyfsala Hallbergsson í Hammerby
voru um daginn gripnir í Upsala.
Voru það 2 ítalskir loddarar.
Rakhnífar með eitruðum
blöðum.
Tveir stjórnleysingjar frakknesk-
ir, er lögreglan hafði lengi leitað
að, náðust í Nancy á leið frá
París 17. þ. m. Þeir voru einn-
ig innbrotsþjófar. Höfðu þeir
meðferðis rakhnífa allmarga og
voru blöð þeirra'hert í banvænu
eitri (Curare), einnig höfðu þeir ;
í fórum sínum allmargar skamm-
byssur. Peir voru teknir, er þeir
stigu út úr járnbrautarvagni og
vörðust eins og Ijón, en urðu
þó ofurliði bornir.
Worðurför Viíhj. Stsfán-3-
sonar.
Lane skipstjóri á hvalveiðaskip-
inu »Polar Bear« kom til Seaítle
í Washington norðan úr íshafi
19. þ. m. og telur hann víst, að
skip Vilhj. Stefánssonar, »KarIuk«,
hafi farist í ísnum. Hann segir
að afarstormur hafi geisað norð-
ur í höfum síðari hluta septem-
bersmán., einmitt mestur um
það bil, er Karluk hvarf, og tel-
ur óhugsanlegt að skipið hafi
ekki farist þá. Hvalveiðaskip'ð
var einmitf um það leyti á sömu
slóðum, en sá ekkert til Karluk.
SÍMI 281. SÍMI 281.
hafa birgðir af ýmsum vörum til heildsölu handa
feauipmÓYituxm o$ ^aup^elb^um,
þar á meðal:
Stjórnaróhæfa í Austur-
ríki.
í ríkisráði Austurríkis hefur
mikið verið rætt um óhæfumál,
er ráðherrann fyrir Oalizíu, Dlug-
osz, hefur gert sig sekan í. Svo
er að sjá sem hann hafi síðustu
árin mútað Stapinski, foringja
pólska þjóðflokksins, með 360 000
kr. til kosningabeitu. Hjelt Sta-
pinski, að fje þetta væri úr
vasa ráðherrans sjáfs, sem foringi
lýðflokksins og milljónamæring-
ur, en sannast hefur nú að fjeð
var tekið úr ríkissjóði. Út af
þessu er búist við stjórnarskiftum
og þingrofi á hverri stundu, áð-
ur en fjárlög fyrir árið 1914 verði
afgreidd og verði þá að grípa
til bráðabirgða fjárlaga eftir 14.
grein, hinni svonefndu »viðlaga-
grein* stjórnarskrárinnar.
Radfum og krabbamein.
Mikla athygli vekja um allan
heim skýrslur tveggja helstu lækna
Vesturheims, dr. Kelfy í Baltimore
og dr. Rob. Abbe í New York um
árangurinn af krabbameinslækning-
um með radíum. Þeir Iýsta því
yfir 17. þ. m., að nú væri óhætt
að fullyrðaað radíum læknaði krabba-
mein að fullu. Dr. Kelly hefur
sýnt myndir af sjúklingum á undan
og eftir radíum-lækningunni, og
skýrir sjúerstaklegafrá að radíum liafi
á 48 klst. læknað að fullu mann með
krabbamein illkynjað mjög í and-
Iiti. Segja læknar þessir að undra
lækningar þær, er þeir hafa sjeð
gerast, sjeu svo fádæma ótrúlegar
að furðu sæti, en nóg vitni og
yfirfljótanlegar áþreifanlegar sann-
anir sjeu á reiðum höndum fyrir
sanngildi þeirra.
Rottur
Mýs
Óskaðlegt mönnum og húsdýru
Söluskrifstofa: Ny Östergade
Köbenh vn.
Kaffí (baunir og export),
Melís (heilan og mulimn),
Cacao,
Ávexfi (ferska og niðursoðna),
Sveskjur,
Döðlur,
Fíkjur,
„Caramels",
Átsúkkulaði (Nestles),
Vindla,
Vindlinga (Three Castles),
Plötutóbak,
Osta (Mysu, Eidam & Gouda),
Víkingmjólk,
Kex,
Margarine (í stykkjum),
Sago,
Hrísgrjón (2 tegundir),
Hveiti (6 tegundir),
Haframjöl,
Baunir,
Bankabygg,
Bankabyggsmjöl,
Hænsnabygg,
Hafra,
Fóðurtegundir (ýmiskonar),
þakjárn,
Saum (ýmiskonar),
Dósablikk,
Cement,
Baðlyf,
Umbúðapappír & poka,
Tvíritunar-bækur,
Eldspítur,
þvottasóda,
Kerti (ýmiskonar),
Sápur (ýmiskonar),
Leirvörur,
Leirrör,
Ritvjelar,
Peningaskápur,
o. fl. o. fl.
Nýárskort
á 5 aura með álímdu
3 aura frímerki í versl.
VON“ Lauga_
„ Vv/Il^ vegi 55.
TAPAЗFUNDIÐ.
Svört silkisvunta tapaðist á
leiðinni frá Laufásvegi vestur á
Vesturgötu. Skilist á afgr Vísis.
Peningabudda með rúmum 15
kr. í tapaðist. Skilist á afgr Vísis
gegn fundarlaunum.
Vettlingar fundnir. Vitja má á
Kárastíg 13 B.
KENNSLA
Börnum innan 10 ára veitt
tilsögn eftir þörfum á Njálsgötu
29.
3—5 börn frá hreinlegum heim-
ilum geta fengið góða kennslu í
miðbænum. D. Östlund gefur upp-
Iýsingar.
Stúllka óskar eftir vist fyrri hluta
dags. Uppl. í Pósthússtræti 14 B.
Stúlka óskast á fámennt og gott
heimili barnlaust. Afgr. v.
Stúlka óskar eftir vist eftir ný-
ár. Helst sem innistúlka. Afgr. v. á
Stúlka óskast í vist fyrri hluta
dags frá 1. jan. n. k. á fámennt
heimili. Afgr. v. á.
Jarþrúður Bjarnadóttir, Grett-
isgötu 59 B, strauar og þvær fyr-
ir lágt verð.
Stúlka óskast í vist nú þeg-
ar og til 14 maí. Upplýsingar
á Skólavörðustíg 15 B, niðri.
KAUPSKAPUR
Mjólkurhúsið á Grettisgötu 38
hefur næga mjólk til nýársins.
Þar ættu hin ýmsu fjelög bæ-
arins að panta mjólk til skemmti-
samkomu sinna.
Nýmjólk fæst kvöld og morgna í
kjallaranum á Uppsölum. Þar fást
einnig ný brauð.
Yfirfrakki,saumaður af klæðskera,
til sölu fyrir tæplega hálfvirði. Til
sýnis á afgr «Vísis».__________
Útgefandi
Einar Gunnarson, cand. phil.