Vísir - 19.01.1914, Blaðsíða 1

Vísir - 19.01.1914, Blaðsíða 1
Vísir er elsta — breiddasta íslandi. besta og út- dagblaðið á Vísir er blaðið þitt. Hann áttu að kaupa fyrst og fremst. Kemur út alla daga. Sími 400. Agr. í Hafnarstr. 20. kl. 11 árd.til 8 síðd. 25 blöð (frá 8. jan.) kostafa áfgr. 50 au. Send út um land 60 au.—Einst.blö 1 3 au. Skrifstofa í Hafnarstræti 20. (uppi) opin kl. 12—3, Sími 400. , Langbestí augl.staður i bænum. Augl. sje skilað fyrir kl. 6tdagin nfyrir birtingu. Mánud. 19. jan. 1914. j Háfl.kl.l0,39’árd.ogkl. 11,20’síðd. Á morgun Afmœli: Björn Guðmundsson, múrari. Jónas Sveinsson, bókbindari, 30 ára. Jón Jónsson, kaupmaður. (í gær hafði niisprentast í af- mælunum Ólafsson í stað Por- steinsson.) Veðrátta í dag: Loftvog ‘-V £ '< Vindhraði Veðnrlag Vm.e. 754,8 4,5 SA 1 Alsk. R.vík 754,2 2,7 A 1 Skýað Isaf. 752,0 1‘8 0 Regn Akure. 754,0 3,1 S 3 Skýað Gr.st. 720,0 2,0 SV 1 Skýað Seyðisf. 755,5 V SV 1 Ljettsk. þórsh. 762,3 4,7 SSV 4 Regn N—norð- eðanorðan,A — aust-eða austan,S—suð- eðasunnan, V— vest- eða vestan Vindhæð er talin í stigum þann- ig: 0—Iogn,l—andvari,2—kul, 3 — gola, 4—kaldi, 5—stinningsgola, 6— stinnmgskaldi,7—snarpur vindur,8 ■— hvassviðri,9 - stormur, 10—rok,l 1 — ofsaveður, 12—fárviðri. Skáleturstölur í hita merkja frost. O' ' Biografteate ÖICJ Reykjavíkur Fagrir fjöirar. Saga leikmeyar fjölleikahússins í 3 þáttum. Miss Saharet, hin víðfræga dansmær, leikur aðalhlutverkið. Fallegustu líkkisturnar fást fe hjá mjer—alltaf nægar birgð- 88 ir fyrirliggjandi — ennfr. lík- klæði (einnig úr silki) og lík- kistuskraut. m Eyvindur Árnason. f’: fkklstur fást venjulega tilbúnar á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og gæði undir dómi alniennings. — Sími 93. — Helgi Helgason. Hjermeð tilkynnist vinum og vandamönnum, að systir okkar, Helga Pjetursdóttir, andaðist á Landakotsspítalanum fimmtudag- inn 15. þ. m. Jarðarför hennar er ákveðin næstkomandi miðvikudag og hefst í Fríkirkjunni kl.12 á hád. Systkini hinnar látnu. frá Sendisveinaskrifstofunni. Sími 444. Sendið augi. tímanlega. Leikfjelag Reykjavíkur. Leikið næstkomandi miðvikudag kl. 8 síðdegis. Ljenharður fógeti, Aðgöngumiða má panta í bókaverslun ísafo I dar. Atkvæðamagn í Eimskipafjelaginu. Við fyrri umræðu utn lög Eimskipafjelagsins skildist mjer að ætlast væri til, að hlutfallslegt,;atkvæðamagn hluthafa hjer, hluthafa í Vesturheimi og landssjóðs, væri sem hjer segir; 1. Atkvœðamagn landssjððs til mðts við aðm hluthafa: Á meðan hlutafjeð alls (að meðtöldu hlutafje landssjóðs 400 000 kr.) fer ekki yfir 1 000 000 kr., hefur landssjóður 4 000 atkv. — eða 1 atkv. fyrir hverjar 100 kr. (með öðrum orðum fullt atkvæðamagn fyrir 100 0C0 kr., en ekkert fyrir þau 300 000 kr., sem gert er ráð fyrir að gangi ti] strandferöaskipanna). — En er hlutafjeð fer yfir 1 000 000 alls, fær lands- sjóður 1 atkv. fyrir hverjar 125 kr. í aukningunni, uns hlutafje fjelagsins nemur svo miklu, að Iandssjóður hefur með þessum hætti hlotið 1 atkv. fyrir hverjar 25 kr. í hlutafje sínu (16 00U atkv.) — Skýrt «með tölum þannig: Hlutafje Atkvæði Alrr>. hluthafar 600 000 kr. gerir 24 000 Landssjóður 400 000 — — 4 000 Alm. hluthafar 600 125 kr. gerir 24 005 Landssjóður 400 000 — — 4 001 Aim. hluthafar 600 250 kr. gerir 24 010 Landssjóður 400 000 — — 4 002 o. s. frv. 2, Hlutfallslegt atkvœðamagn á fjelagsfundum: Sje gert ráð fyrir 400 000 kr. hlutafje hjer á iandi, 400 000 kr. frá landssjóði og 200 000 kr. frá Vestur-íslendingum, skildist mjer atkvæða- magnið eiga að vera þeíta, ef fund sækir helmingur hjerlendra hlut- hafa eða umboðsmenn þeirra: íslendingar hjer: 400 000 kr. hlufafje, mæta rtieð 200 000 gerir 8 000 atkv. Landssjóður: 400 000 — hefur atkv. fyrir 100 000 — 4 000 — Vestur-ísl.: 200 000 —■ teljast þá hafa 120 000 — 4 800 — Er þá atkvæðamagn Vestur-íslendinga gert 3/5 móts við hlutafje þeirra (i2oooo^ooooo — salveg eins og atkvæðamagn íslendinga á fundinum (200 000 kr.) og landssjóðs (100 000 kr.) er 3/6 af atkvæðisbæru hlutafje þeirra tveggja aðila. Ymsum fundarmönnum þótti torskilin laga-ákvæðin um þetta og þörf á, að gera þau ljósari. Og sje um misskilning að ræða í þessum skýringum, það sein þær ná, væri æskilegt, að rjettir hlutaðeigendur vildu leiðrjetta — áður en kemur til annarar umræðu. Fjelagsmaður. Helgi Helgasson tónskáld og fv. kaupmaður kemur hingað á morgun með Ceres alkominn frá Vesturheimi. í dag eru 40 ár síðan þýska skáldið Aug. Heinrich Hoffmann andaðist. Hann var fæddur,1798. Varð háskólakennari 1830, en rekinn frá embætti 13 árutn síð- ar fyrir nokkur ættjarðarkvæði er hann hafði ort. Hann hefur skrifað margt og merkilegt bókmenntalegs efnis og ljóð hans eru/rómuð mjög, eink- um náttúrukvæði. Stgr.Th. hefur þýtt nokkur kvæði hans ogGuðm. Guðmundsson eitt. Skallagrímur kom ígæraffiski. Aflaði 50 smál. í salt og 300 körfur í ís. Tekur hjer ís og fer aftur út í dag. Ceres liggur enn kl. 9. í Vest- manneyum, tafðist í gær við upp- skipun, vegna íllviðris, og fer þaðan varla fyr en í kveld. Vestmannaeyum í gær. Fiskur er hjer nú allmikill, en gefur sjaldan á sjó. Lúðrafjelagið hjer liafði í gær grímuball — það er hið 3. hjer í vetur — og var Iroðfullt húsið og þótli einstök shemmtun. Afmæli sýslumanns er í dag og hefur hann boð inni hjá sjcr all- mikið. Ceres liggur hjer og varla búist við að hún fari fyr en í fyrramálið. Frægur söngvari myrtur. Sonarmorð. Frægurbresk-frakkneskur söngvari og gamanleikari, Harry Fragson, var skotinn til bana í París 30. f. m. Það gerði faðir hans, 83 ára þulur, dálítill kubbur, 5 fet á hæð. Þeir feðgar höfðu lengi búið saman og óvenju mikið ástríki verið með þeim, En er karl þóttist sjá son sinn líta dansmeyj nokkra hýru auga, ætlaði hann af göflunum að ganga, ætlaði fyrst að fyrirfara sjer, en lauk svo að hann skaut soh sinn til bana. Var karl þá fluttur í fangelsi, játaði hann glæp sinn viðstöðulaust, en læknar dæmdu hann vitfirrtan og var þá karl fluttur í geðveikrahæli. En blöð Fiakka segja, að bæði vitn- isburður hans og dansmeyarinnar fyrir rjetti beri það “augljóslega með sjer, að sonarmorð þetta hafi verið fyrirfram afráðið. Dr. Cook í London. Dr. Frederick A. Cook, norður- fari, er að halda fyrirlestra í Lon- don um þessar mundir. Fáa fær liann áheyrendur. En hann held- ur því fast fram enn sem fyrri, að norðurheimskautið hafi hann fundið og kveðst sannfærður um það, að fyrir dómstóli almenn- ingsálitsins muni hann að lokum ná rjetti sínum. Kveður hann upp harðan dóm yfir vísindafje- lögum þeim, er ekki vilja trúa sjer. Hann sýnir skuggamyndir við þessa fyrirlestra af ís, bjarn- dýrum, skrælingjum o. fi.— Sem kunnugt er, á Cook enn allvíða ítök í áliti manna, þótt flestir telji hann lygara og svikara. Jlerliilegt liandrit til sölu. Á Englandi er boðin til sölu gerðabók Whigga-flokksins frá átjándu öld. Þar eru m. a. undirskriftir þeirra Fox, Burke, Sheridan’s, Cannings o. fl. nafn- frægra stjórnmálamanna. Búist er við gífurlegu verði á hand- ritinu og vekur furðu tnikla, að hók þessi skuli vera á boðstól- um.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.