Vísir - 21.01.1914, Blaðsíða 2

Vísir - 21.01.1914, Blaðsíða 2
V 1 S 1 K Grikklandseya-deilan.' Þýska stjórnin, ítalska og aust- urríkska, hafa allar komið sjersam- an um að standa sem einn maður í deilum Tyrkja og Grikkja um eyarnar í Egeifshafi. Fallast þær á uppástungu Edwards Grey, utan- ríkisráðherra Breta, um að Grikkir skuli fá eyarnar Mytilene og Chios. Aidingarðurinn Eden. William Willcocks lávarður varsá, er rjeð stjórn Ung-Tyrkja til þess að geravatnsáveiturmiklaraustur í Meso- potamiu, þar sem hann og ýmsir aðrir halda því fram að verið hafi í öndverðu aldingarðurinn Eden, á svæðinu milli Babylon og Bagdad. Tyrkjastjórn fól verkið fjelaginu John Jackson, ltd., og þótt við örð- ugleika mikla væri að stríða var fyrsta áveituflóðinu veitt yfir landið 15. des. síðastl. Mannvirki þessi eru stórkostleg, skurðir grafnir, skip- gengir um áveitulímann, garðar hlaðnir og stíflur, er halda vatninu jafnhátt á hverjum ákveðnum tima, og flóðstigar til áveitu á svæði þau er hærra liggja. Vatninu er veitt úr Efraí, og er þar flóðgaröur mikill gerr við Hindia, hjer um bil 47 enskum mílum fyrir norðan Bagdad. Graf- inn hefur verið upp og hreinsaður eldgamall skurður við fornborgina Hiliah og Babylon á 50 mílna svæði flæðir nú vatn um öll hrjóstur þau og sanda, er áður voru einhver frjó- sömustu hjeruð í heimi og fegurstu. Vænta menn sjer mikils gagns af jarðabótum þessum hinum miklu, er ef til vill gera þar aftur Eden á jörð vorri. Dýrasta eignasala í heimi af einstaks manns hendi. Hertoginn af Bedford hefur selt 20. f. m. Mallaby-Deeley þingmanni í Harrow, hina miklu eign Covent Oarden í London. Á lóðinni eru þrjú stór leikhús og sönghöll ein mikil og 26 stræti. Þessi ióða- og eignasala er talin mest, er fram hefur farið af einstaks manns hendi í heimi. Verðið hefur ekki enn verið gert heyrinkunnugt, en bresku stórblöðin »Times« og »DaiIy Mail«, telja kaup- verðið muni vera 52—54 000 000 króna. Kaupandinn er afbragðs vel menntaður auðmaður, og hefur eink-- um auðgast á stórfelldum lóðakaup- um og sölu. Hann kveður enga i breytingu verða á eigninni, þótt kom- in sje í sínar hendur, og verði leik húsum og sönghöll stjórnað með sama fyrirkomulagi og áður. Covent Garden er frægur staður; nafnið er afbakað úr CouventGarden, sem þýðir klausturgarður, enda var svæði þetta í öndverðu bæði garð- ur og greftrunarstaður munkanna í Vesturklausíri (Westminster). En er eignin komst í eign Bedford-ættar- innar á öndverðri 17. öld var hún seld á aðeins 115 kr. Eignin er nú rúmar 19 ekrur enskar í miðri borg- inni. Ársleiga fyrir sölutorgíð þar í Covent Garden er 450 000 kr. og grunnleiga undir leikhúsunum og sönghöllinni er 436 000 kr. Sendið augi. tímanlega. Palladómar. --- Frh. Sá er dómur reyndra þingmanna, er unnið hafa í nefndum með H. St., að hann sje þar kyr og spak- ur, ekki kappsamur og stundum nærri afskifíalítill, en geti þó verið þjettur og ýtinn, ef svo ber undir. Um starfsemi og atorku er minna getið. Aftur er það sagt, að hann muni vera óhvikuil um sínar skoð- anir og þó samvinnuþýður. Eu ekki telja menn hann skjótsýnan, vopnfiman og snarráðan, svo sem flokksforingja hans, og mundihann þó vilja eftir foringja sínum líkja sjer til nytja, ef auöið væri. Menn telja víst, að H. St. unni framförum lands og lýðs, þar með kjördæmis síns. En ekki verður verulega mál í það borið, að hann hafi fyrir það beitst eða farið með nýmæli um þá hluti. Þó má þess ekki dyljast, að hann fjekk á þingi 1912 smeygt inn í lögin um rit- síma- og talsímakerfi íslands tal- símaáímu frá Ólafsvík til Sands, án þess að tillagið frá Snæfellsnesssýslu til símans hækkaði þar fyrir. En því miður Ijet hann sjer þá gleym- ast, að reyna að fá talsímaálmu miili Hjarðarfells og Borgarness, og telur þó syðri hluti kjördæmis hans sjer það mesta nauðsynjamál. Með símalínunni milli Ólafsvík- ur og Sands mun nú upptalið flest það, er H. St. hefur unnið kjör- dæmi sínu til bóta, að ógleymdri 100 kr. fjárveitingu til ljóskersins á Svartatanga hjá Stykkishólmi. Varla mun þurfa að þakka honum fjár- veitingu til Stykkishólmsvegarins í núgildandi fjárlögum. Hún er fram- hald af eldri fjárveitingum, runnin undap rifjum landstjórnarinnar að tilhlutan landsverkfræðingsins. Þá er ekki heldur að telja Svörtuloftavit- ann og breytingu á Öndverðanes- vitanum hans verk. Öndverðanes- vitann bar þingm. Snæfellinga, Sig. próf. Gunnarsson, fram á þingi 1909, og náði í fjáraukalögum 1908—1909 3500 kr. fjárveitingu til ljóskersins á Öndverðanesi. 1911 gerði Krabbe verkfræðingur tillög- ur um bygging vita á Öndverðanesi í brjefi til fjárlaganefndar neðri deildar (dags. 6. apr. 1911), og að tiihlutan hans gerði landsstjórnin til- lögur til fjáiveitingar, 18000 kr.,ásíð- asta þingi til þess að byggja vita á Svörtuloítum og breyta Öndveröa- nesvitanum. Ersennilegt, að síðasta alþingi hefði heimilað þessa fjárveit- ingu, þótt ekki hefði notið þar við þáverandi þingmanns Snæfellinga. Formaður fjárlaganefndar neðri deildar hefði vafalaust reynt, að sjá fjárveitingurmi borgið af gamaili tryggð víð hjeraðið, og þá ekki síður fyrir það, að hann telur skylt að efia og bæta sjávarútveg lands- ins á alla lund. (Sbr. ummæli hans um fjárveitingu til Fiskifjelagsins á síðasta þingi o. fl.). Að sjálfsögðu er vitamál þetta eitt af stór-nauð- synjamálum þjóðarinnar. En það sýnist einnig vera allnúkilsvert fyrir það hjerað, er hlut á að máli, Snæ- fellsnes. Mönnum ber saman um þaö, að H. St. hafi ekki sýnt sig að vtra þingskörungur, og reyndir menn og gætnir telja, að fæst af því hafi komið fram í þingmennsku hans, er beri vott um að svo muni heldur geía orðið hjer eftir. Telja margir auðsæan mun á þingmennsku hans og beggja þeirra þingmanna, er fóru með umboð Snæfellinga næst á undan honum, þeirra Lárusar prófessors H. Bjarnason og Sig- urðar prófasts Gunnarssonar. Starf prófessorsins á 9 síðustu þingum (1901—1913) er svo mikið og víð- tækt, að ekki verður saman jafnað við H. St. Og þá má ekki gleyma því hversu ókvikult og trútt pró- fessorinn bar fyrir brjósti þarfir og framfarir Snæfellinga, þá er hann fór með umboð þeirra, og mætti margt til telja. Er það mál margra, að ekki mundi hafa skilið leiðir hans og þeirra, ef ekki hefði komið til ofurást hans á Uppkastinu. Þá verður heldur ekki borin saman þingmennska prófastsins og H. St. Sigurður prófastur reyndist fyr og síðar á þingi starfgóður og starf- mikill, tillagahollur og tillagadrjúg- ur. Og ekki lagðist hann undir höfuð þarfir og framfarir kjördæmis síns, og mætti þar margt telja. Er og margra mál það, að miður hafi verið ráðið, er prófastur Ijet af þingmennsku. Þeirri spurningu hefur verið varpað fram: Eiga Snæfellingar og Hnappdælir engan mann innan hjeraðs, sem gæti farið með um- boð þeirra á alþingi næst, þann er sýndist vera þar eins og ofuriítið leiðindaminni en H. St., og jafn- framt farið þar með meira erindi en hann í þjóðmálunum og hjeraðs- málum þeirra? Þessari spurningu verður vitan- lega ekki svarað. En geta má þess, að fleygt er því, að foringi Heima- stjórnarmanna megi ekki heyra nefnt, að Snæfellingar eigi annan mann á þingi nú í bráðina en H. St.:) Þá er það ólukkans kvis, — sem getur svo verið ein lygin —, að það hafi einhvern tíma, þegar best Ijet á síðasta þingi, orðið að sátt- mála millum foringja Heimastjórn- armanna og Sjálfstæðismanna, að þeir eftirljetu honum kjördæmi H. St. til fullrar og óátaldra umráða og afnota handa sínurn mönnum. Og því sje það, að Sjálfstæðis- menn þykist — en það getur nú verið önnur lygin — hvorki mega nje þora það, að láta innan-hjeraðs- Sjálfstæðismann vera í boði við næstu kosningar hjá Snæfellingum og Hnappdælum. En helst voru ;; [) Sú saga er næsta lygileg, þótt : fyrir henni sje góð heimildin, þar sem er »Lögrjetta«, langbest rit- ! aða blaðið nú á seinni tímum, auk | annara minniháttar heimilda, að H. I St. verði óhjákvæmlega að ná kosn- 1 ingu í Snæfellsnessýslu, til þess að geta lagt niður þingmennsku og fengið það kjördæmi foringja Heima- stjórnarmanna til viðfangs, ef hann (foringi Heimastjórnarmanna) kynni að falla við kosningar annarstaðar. Öllum góðum mönnum er farið um þetta eins og Njáli. Þeir láta segja sjer þrem sinnum áður en þeir trúa, og hafa þar einungis fyrir aug- urn sæmd foringja Heimastjórnar- manna, enda trúa því varla, að til þess þurfi að taka. einhverjir að bera upp ! sjer hræðsluna. í annan staö hefur ef til vill kannske bólað á þeirri reyfarasögu, að ekki þyrðu Sambandsmenn með nokkuru Iifandi móti, að hafa í boði innan hjeraðs Sambandsmann við næstu kosningar hjá Snæfellingum og Hnappdælum. Þeir þættust vita, að þar væri í rauninni að etja við foringja Heimastjórnarmanna, og kviðu því, að þeir bæru þar skarð- an hlut fyrir honum. Þættust eiga þar, er hann væri, við ærnu að sjá í vopnaskiftunurn á heimavett- vangi, þótt ekki seildust þeir um hurð til lokunnar í snerrumiþeim. Og svo er um þá sem Sjálfstæðismenn, að helst er eins og menn beri upp í sjer ótta þeirra. Hvort nokkuð sje til í einhverju af þessu — til í sáttmálanum, til í hræðslu Sjálfstæðismanna og til í ótta Sambandsmanna, er vitanlega reynslan ein áreiðanlegastur vott- urinn um, nú, og svo vilji kjós- enda vestur þar — ef þeir þá ekki eru lamaðir af vetrarfarinu og ann- ari óáran. En ef einhver tilhæfa væri í einhverju af þessu, og Snæfellingar kysu H. St. enn á þing? Hvernig færu Snæfellingar og Hnappdælir þá með ráði sínu? Frh. AGKLEFJALL* Eftir Albert Engström. ---- Frh. Maður fær betri hugmymd um íslendinga, þegar maður veit að þeir komu til landsins fyrir þús- und árum með búslóð sína, þræla, konur og önnur heimilisgögn. þrælarnir voru Lappar og Keltar og Finnar — meðal annara. það varð þess vegna blóðblöndun, því konur og karlar voru eins sköpuð þá og nú. Og sá sem Iesið hefur miðaldasöguna hlýtur að hafa tekið eftir því, að höfð- ingjakonur vildu gjarnan nálgast þræla manna sinna — eða þræla yfirleitt. En það er víst náttúr- unnar eigin þrá og stefna að blessun blóðblöndunarinnar. það kvað vera myndað fjelag í Svíþjóð til að annast þesskonar afkvæmi. Verði þeim að góðu. Eftir að hafa margvillst út af vegum og vöðum út í kletta og klungur og aðrar torfærur og með aukandi undrun yfir fótvissu hest- anna, náðum við loks að Reykja- hlíð. Hún liggur vel við Mývatni. Að ári liðnu mun standa í Bæde- ker: Grand Hotel Reykjahlíð! Bóndinn var að byggja sjer hús úr steinlími og hraunmöl, með stórum gluggatóftum. Hann stóð jafnan með hendurnar í vösun- um, er við töluðum við hann. Við vorum velkomnir og feng- um mat eftir matarseðli Troils. Okkur var boðið inn í bestu stofuna. þar var „pluss“-albúm, brjefspjöld og glansmyndir, vísit- kortahrúga og allir þessir ótelj- andi smáhlutir, sem prýða heim- ilin. Alveg hjá bænum lagði hvíta mekki upp úr iðrum jarðarinnar. Eigandinn var sýnilega örlaga- trúarmaður eins og við.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.