Vísir - 06.02.1914, Blaðsíða 2

Vísir - 06.02.1914, Blaðsíða 2
Mark Twain og konguióin. þegar Mark Twain, kýmnis- skáldið heimsfræga, var á yngri árum sínum ritstjóri blaðs nokk- urs í Missouri, skrifaði hjátrúar- fullur gamall lesandi blaðsins hon- um brjef og kvaðst hafa fundið konguló í blaði sínu og bað hann segja sjer, hvort þetta væri fyrir- boði góðs eða ílls. Mark Twain svaraði honum í blaðinu þannig: Gamall lesand'ú það er hvorki fyrirboði góðs nje ílls, að þjer finnið konguló í blaðinu yðar. Kongulóin tók sig til og las blað- ið okkar, til þess að ganga úr skugga um, hvaða kaupmenn aug- lýsa þar ekki, því þangað ætlaði hún undir eins að fara og vefa vef sinn í dyrunum, — hún vissi, að þar yrði hún ekki ónáðuð framvegis með aðsókninni!" Palladómar. ---- Frh. Vorið 1908 kom Sambandslaga- uppkast milliríkjanefndarinnar, eins og er margkunnugt. Móti því lagð- ist Kr. J. Gerðist hann til þess, með öðrum atkvæðamönnum, að sýna fram á hverjar bætur þyrftiað ráða á Uppkastinu, svo að viðun- andi gæti oröið. Þóttu það mikil tíðindi, er þaö sannspurðist, og góð þótti þeim tíðindin, er móti Upp- kastinu lögðust. Svo mikils vert þótti fylgi hans, tillögur og rök- , færsla í því máli, enda löngum til orða hans skírskotað um þær mundir. Kr. J. var einn af helstu mönnun- um, er mynduðu Sjálfstæðisflokk- inn á þingi 1909. Var hann einn af meginstoðum flokksins á því þingi, um öll þau ráðin, er vörö- uðu Sambandsmálið, þótt ekki ætti hann þátt í umræðum um það sakir þess, að hann var forseti efri deildar. Og með Sjálfstæðisflokkn- um vann hann á þingi allt það, er hann taldi sjer og flokknum sam- boðið, þangað til flokkurinn riðl- aðist 1911. Þá eða fyr skildu leið- ir hans og flokksins. Hafði margt það gerst frá því, er ráðherra (B. J.) skipaði þriggja manna nefnd 26. apríl 1909 til að rannsaka allan hag Landsbankans og til þess, er hjer var komið (á þingi 1911), ekki síst frávikning alira Lands- i bankastjóranna 22. nóv. 1909, sem j varðaði Kr. J. mikils sem privat- i mann og epibættismann, og þykir j ekki hlýða, aö rekja þær greinar i hjer. En rjett gæti verið að drepa á það, að lyktir þær, er urðu á þess- \ um greinum öllum á þingi 1911, ^ báru ódulinn vott þess, hve afskap- ’ lega sveif úr fyrra horfi forysta og samheldni Sjálfstæðisflokksins, jafnt og þær sýndu, hve djúphygginn, drjúgráður og fasthentur Kr. J. var þá á málin, að mörgu öðru ónefndu því, er rás viðburðanna ljet þá verða. Eftir að Kr. J skildist við Sjálf- stæðisflokkinn, mun hann hafa tal- iö sig utanflokka, þótt hann hins- vegar á tveim síöustu þingum stæði í atkvæðasambartdi við Sambands- flokkinn um sum mál. JEvdasala, hjá Th. Th., Ingólfshvoli. (MT I dag. H|, Eimskipafjelag íslands. Út af fyrirspurnum, sem fjelagsstjórninni hafa borlst víðs- vegar að, vill stjórnin láta þess getið, að tekið er enn við hlutaáskriftum á skrifstofu fjelagsins í Reykjavík, og jafnframt mælist hún til þess, að hlutafjársafnarar úti um land haldi áfram að taka við hlutaáskriftum og innborgunum af hluta- fje. — Til þess að njóta sömu rjettinda og stofnhluthafar, verða menn að hafa skrifað sig og greitt hlutafje að fullu fyrir 1. júlí næstk. Stjórnin. ÚTSALAN hjá Marteini Elnarssyni, Laugavegi 44., stendur nú sem hæst. Allar vefnaðarvörur, sjóföt og II. selt með afar- miklum afslætti; því ætti enginn að gleyma, að koma og kaupa, meðan útsalan stendur. Virðingarfyllst. Marteinn Cinarsson, Laugavegi 44. Hjer með skora undirritaðir á alla þá, sem við fþróttir hafa fengist síðustu ár, og við þær eiga nú, að mæta á fundi, sem haldinn verður í Bárubúð uppi miðvikud. 11. þ. m. kl. 87i síðd. Til umræðu verður aðaláhugamál allra íþróttamanna, og því óafsakanlegt, ef eigi er mætt. Reykjavík 3. febrúar 1914. Eftir umboði í. S. í. A. V. Tulinius, Hallgr. Benediktsson, Helgi Jónasson, Ben. G. Vaage, Sigurjón Pjetursson. Stúkan Einingln nr. 14 heldur tombólu í Goodtemplarahúsinu n«#tk"sunnudag (8. febr.) kl. 8 sfðd. Ekkert núll. Marglr ágætir munir. Meiri hagnaðarvon en nokkru sinni fyr. ftBT’ Ef vel gengur veröur dansað á eftir dálitla stund. HMI Aðgangur 15 aura. Drátturinnn 25 aura. Aðeins fyrir Templara. Þaö var sagt í upphafi þessa máls, hver væri dómur um þing- mennsku Kr. J., þeirra er best kynnu skilin þar á. Og skal því hjer við bætt, að hann hefur að vísu ekki talist til umbrotamanna á þingi, þegar alls er gætt, en hvik- laust hefur hann viðnám veitt, hafi honum þótt það hlýða, enda talinn drjúgvirkur, tillagamikiil um stærri málin og mæta vel máli farinn. Hann hefur verið talinn framfara- maður, en jafnan mun hann hafa þótt varfærinn í þeim málum, eins og hann hefur ávalt þótt varfærinn í meðferð á landsfjánum. Nú er það haft fyrir satt, að Kr. J. muni ekki hyggja á þingsetu framar, og mun ekki verða talin að því þingbót. Hitt er aftur mál margra manna, að þinginu og þjóð- málunum í heild sinni væri það skaðlaust og landsyfirrjettinum al- veg vansalaust, þó dómendur hans sætu ekki á þingi og vösuðust ekki í stjórnmálum og pólitískum deilum. Frh. Waverley heimsfrægu Lindarpennar ' eru seldir í Afgreiðslu Ingólfs, Laugaveg 4. Brent og malað AFFI ódýrast og best í versl. ÁSGRÍMS EYÞÓRSSONAR, Austurstræti 18. I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.