Vísir - 15.02.1914, Blaðsíða 1
Ketnur út alla daga. Sími 400.
Agr. i Hafnarstr. 20. kl. 11 árd.til 8 síðd.
Kostar 60 au. um mánuðinn. Skrifstofa í Hafnarstræíi 20. (uppi)
Einst. blöð3au. opin kl. 12—3. Sími 400.
Sunnud. 15. febr. 1914.
Háfl. kl. 8,38‘árd. og’kl. 9 síðd.
Á morgun
Afniœli:
Magnús Pálsson, verslunarmaður.
Halldór Gíslason, trjesmiður.
Póstáœtlun:
Botnía fer til Seyðisfjarðar og
útlanda.
Hafnarfjarðarpóstur kemur og fer.
Oí A.I BiografteaterírjíA
l5lO| Reykjavíku r| ö 10
Myrkraverk.
Alvöruleikur í 3 þáttum.
Leikinn af kunnum dönskum
leikurum.
Hinar helgu „Gazellur“
i Nara-dýragarðinum í Japan.
Fegurri dýramynd er naum-
ast hægt að hugsa sjer.
Æfintýri á gönguför
eftir C. Hostrup,
sunnudaginn 15. febrúar kl.8.
Verður leikið að eins fáein kveld.
Aðgöngumiðar seldir í Iðnó.
Nemendur kennaraskólans
sýna í Good-Templara-húsinu
í kveld gamanleikina
Kox og Box og Hann drekkur,
Ágóðinn rennur í Nemendasjóð kennaraskólans. Aðgöngumiðar
verða seldir í Good-TempIara-húsinu í dag kl. 12—3 og 4—6 og
kosta kr. 0,75 sitjandi, kr. 0,50 standandi og kr. 0,35 fyrir börn.
HT Leikirnir byrja kl. 9 síðdegis.
Cigarettuverksmiðjan
A. G. Cousis & Co., Cairo &
Malta, býr til heimsins bestu
egyptsku og tyrknesku sígarettur.
Þær eru seldar um víða veröld.
Þýskalandskeisari reykir þær og
Noregskonungur. Engar aðrar sí-
garettur er leyft að selja í Tunis
°g Japan. Þær fást í
Levis tóbaksvers'un.
send\s\)e\w
frá
Sendisveinaskrifstofunni.
Simi 444.
^&UttJ^vwtestttv
í Betel
sunnudaginn 15. febr. kl. 6lf síðd.
Efni: Boðskapur á vorum tíma.
Hið síðasta kall til ibúa heims-
ins (Opinberunarbókin 14,6—14).
Hvað er merki dýrsins?
Allir velkomnir.
O. J. OLSEN.
Myndir sýndar fyrirlestrinum
til skýringar.
5 IKkistur fást venjulega tilbúm
■ á Hverfisg. 6. Fegurð, verð o
S gæði undir dómi almennings. -
■««« Sími 93. — Helgi Helgasoi
I Fallegustu líkkisturnar fást
| hjá mjer—alltaf nægar birgð-
ir fyrirliggjandi — ennfr. lik-
a klæði (einnlg úr silki) og lík-
® kistuskraut.
Eyvindur Árnason.
Trúl ofun a r
hringa smíöar
Björn Símonarsoi
Vallarstr. 4. Sími 15
SwttjYjettu.
ísafirði í gær.
Þingmálafund hjelt sjera Sig-
urður Stefánsson í Vigur hjer á
laugardaginn var og lýsti þar yfir
að hann byði sig fram til þing-
setu fyrir kaupstaðinn. Sýslu-
maður (hinn frambjóðandinn) sókti
ekki fundinn.
Reitingsafli var hjer síðastliðna
viku.
ís segja botnvörpuskip engan,
þau er hjer komu inn nýlega.
Hettusótt fer nú allvíða um
bæinn, en er mjög væg.
Mótórskipin Hrólfur, Freya og
Oeysir eru nú að leggja af stað
suður til Miðness eða Vestmann-
eya.
Vestmanneyum í gær.
Afli er hjer allgóður nú.
Æfintyrið er leikið hjer í kveld
til ágóða fyrir ekkju Sigurðar
Jónssonar.sem drukknaði á mótor-
skipinu ísak um daginn. Áður
hefur verið leikinn hjer Skugga-
sveinn í sama augnamiði og komu
inn 80 kr. og önnur fjölbreytt
skemmtun haldin, sem gaf af sjer
225 kr.
Hettusóttin breyðist nú óðum
út hjer, en væg er hún.
Áburðarverksmiðjan hjer,
þeirra Gísla Jónssonar & Co. er
nú kominn allvel á leið. Skip
með vjelarnar í hana hefur legið
hjer fullar 3 vikur og ekki getað
komið í land enn nema nokkru
af farminum sökum brima.
Bjarnl Björnsson skopleikari
hefur haldið hjer tvær eftirhermu-
skemmtanir. Hermir hann eftir
Reykvíkingum aðallega, en er líka
farinn að taka okkur eyarskeggja.
Akureyri í gær.
Ljenharður fógeti verður ieik-
inn hjer um næstu helgi. Leikur
Hallgrímur Kristinsson kaupfjel-
agsstjóri Ljenharð, Jónas Þór-
arinsson vefari Eystein og Mar-
grjet Valdimarsdóttir Guðnýu.
Helgi Magri, botnvörpuskip
Ásgeirs Pjeturssonar kaupmanns,
kom úr Noregsför sinni á mið-
vikudaginn. Var aðeins 31/, sól-
arhring hingað frá Björgvin. Hafði
aflað sæmilega.
Gistihús það, er Scherr, vestur-
heimski auðmaðurinn, ljet reisa
hjer, var opnað 11. þ. m. Fyrir
manninn kostar um nottina 20
aura, en fyrir hestinn 10 aura.
Samsöng halda þeir hjer ann-
að kveld Valdimar læknir Ste-
phensen og Sígurður dýralæknir
Einarsson.
Um sambandsmálið talar Stef-
án skólameistari Stefánsson í
kveld. Hann er formaður Sam-
bandsíjelagsins hjer.
Aflalaust er nú um allan fjörð-
inn.
*þ Þorlákur Jónsson, gamall
bóndi á Torfunesi í Kinn, er ný-
látinn.
Til útlanda brugðu sjer hjeð-
an nýlega Ásgeir Pjetursson kaup-
maður, Vigfússon Sígfússon gest-
gjafi, Rögnvaldur Snorrason versl-
unarstjóri og þórður kaupmaður
Gunnarsson í Höfða.
Samskotin til þeirra er n
biðu af húsabrunanum síðasta í
Húsavík eru nú orðin hjer í bæ
um 7 hundruð krónur, en í Húsa-
vík og þar í grend er talið að hafi
safnast um 1000 krónur.
Grímudans er haldinn hjer í
kvöld og taka þátt í honum á annað
hundrað manns.
Langbestí augl.staður i bænum. Augl.
sje skilað fyrir kl. 6 daginn fyrir birtingu.
ÚR BÆNUM
Landsbókasafnið 1913. Útlán
voru á lestrarsal 24461 bindi, en
lesendur þar 16868, Annars voru
lánuð út 3645 bindi og lánstak-
endur 305. Mest aðsóknin að safn-
inu í janúar og febrúar, núnnst í
júlí og ágúst.
Safninu bættust á árinu 2273
prentuð einlök og 36 handóts-
númer.
íshúsfjelagið hefur verið að
taka ís á Tjörninni undanfarna daga
(8) og er nú gerfyllt húsið suður
frá og hátt orðið í hinu. Býst
við að taka ís einn dag enn. Að
verki þessu hafa atarfað um 140
menn daglega með 12—20 hesta
(með sleða) og er útborgun á vinnu-
launum við verkið orðin hátt á
fjórða þúsund krónur.
Æfintýrið var Ieikið í gærkveldi
fyrir fullu húsi og gerður góð-
ur rómur að því.
Árnesingar hjer hafa ákveðið
Árnesingamót 28.þ.tnán.
Slys það varð í Völundi á föstu-
daginn, að Guðmundur Jóns-
son trjesmiður, er þar var að
vinnu, lenti með vinstri hönd fyrir
hefiltönn og skarst framan af 4
fingrum. Hann gekk upp á Landa-
kotsspítala til umbúnaðar þar.
Vendsyssel, aukaskip hins Sam-
einaða, lagði af stað í gærkveldi frá
Kaupmannahöfn áleiðis hingað beina
leið. Ætti þá að koma um næstu
helgi.
Tribune, botnv. skip frá Grims-
by, kom í gær að fá sjer vistir.
Earl Hereford, botnvörpungur,
kom af veiðum í nótt; hafði fisk-
að um 900 körfur. þykir það
lítill afli og ætlar eitthvað til veiða
um leið og hann fer með afla
sinn til Englands.
Vesta er áísafirði, kemur hing-
að á þriðjudag.
(Frh. bæarfrjetta á öftustu bls.)
Síioam
við Bergstaöastræti
og Grundarstíg :
Samkoma í kveld kl. ó1^. Efni:
*y.\t\ tttikitt oV\3\ttd\.
Allir velkornnir. D. Östlund.
Vítisvjel
sprakk á Carmogötu í Lissabon 27.
f. m. meðan verið var að ganga í
skrúðgöngu til heiðurs Alfonso Costa
forsætisráðherra. Mjög margir særð-
ust. Rjett á eftir rjeðu fjandmenn
forsætisráðherrans á skrúðgöngu-
liðið og dreifðu því. Varð þá skot-
hríð af beggja hálfu, ýmsir fjellu,
fjöldi særðist og tnargir voru hneppt-
ir í varðhald.