Vísir - 18.02.1914, Blaðsíða 4
V I S 1 R
þjer þurfið að styrkjast í góða loft-
inu hjá okkur hjerna undir hlíðum
Vesúvs. Það verður ekki nema
nokkra daga, ef allt gengur vel!«
»Svo þið haldið að jeg s'e ekki
með öllum mjalla?«
»Nei, ekki alveg — og það er
yður fyrir bestu eins og þjer sjáið
síðar, þegar þjer heyrið hvað þj°r
hafið gert í kvöld.«
»Heyra hvað jeg hafi gert í kvöld!
Jeg veit vel hvað jeg hef gerí;
jeg hef varið hendur mínar fyrir árás
íllþýðis og bófa, og þótt jeg sje
sár, þá slapp jeg með öllu viti úr
greipum þeim.«
->Árás! Það er bara ímyndun
yðar. Enginn hefur ráðist á yður.
En við skulum ekki þrátta um það
komið þjer nú!«
Meðan þeir töluðu þannig saman,
hafði Lee fært sig hægt og hægt út
að glugganum. Allt í einu lauk
hann honum upp, þreif hljóðpípu
upp úr vasa sínum og bljes í hátt
þrisvar.
Öllunr hnykkti þeim við þetta.
Þeir þekktu þelía blísturhljóð. Það
var merki það, er lögreglumenn gefa
hver öðrum, þegar þeir kveðja fje-
laga sína til aðstoðar í þraut.
Og um leið hneppti Bretinn frá
sjer jakkanum. Á brjósti hans sást
merki milli klæða. Þeim hælismönn-
um varð nú Ijóst, hver maðurinn var,
Lee reif af sjer rauða granarskeggið,
hvessti á lækninn og mennina augun
og mælti hátí með drynjandi röddu
á ítalska tungu;
jjeg er Cyrillo Conti, formaður
leynilögreglunnar í Neapel! Þjónar
mínir koma þegar í stað. Jeg fyrir-
býð ykkur að hreyfa ykkur úr stað
hjeðan. Þið eruð allir fangar mínir,
staðnir að ódáðaverki, sem þið sjálf-
sagt ætlið að vinna sem verkfæri í
annara höndum, en frá því skuluð
þjer fá að skýra á morgun. Þið
verðið í varðhaldi í nótt! Hreyfið
yður ekki, herrar mínir!«
Beljökunum frá geðveikrahælinu
varð öllum orðfall.
Það var fótatak á ganginum all-
ómjúkt og inn þustu 8 lögreglu-
menn.
»Takið þessa menn og geymið
þá í varðhaldi til morguns!« hróp-
aði Conti. Frh.
Frimerki
íslensk og útlend kaupir alltaf
J. AALL-HANSEIM.
Þingholtsstræti 28.
Allir vita,
að vel skorna
neftóbakið hjá
Levi
er best.
FYRiR KAUPMENN
er alltaf á,Lager‘:
Rúsínur
W8T Gráfikjur *j3KÍ]
M* Cacao
msr The Tggti
J. AALL-HANSEN.
Þingholtsstræti 28.
HÚSNÆÐI
I dag og næstkomandi daga stendur
Rýmingarútsalan
í »Nýju Verslunirmr
í Vallarstræti.
10—25% afsláttur af öllum vörum.
Elsta dagblað á íslandi.
Stærsta blað á islenska tungu.
Ódýrasta blaðið eftir stærð.
Sannfróðasta og margfróðasta blaðið
innlendar og útlendar frjettir.
3 au. tölubl. — 60 au. mánuðinn,
Kr. 1,75 ársfjórðuninn—7 kr, árgangurinn
Allir verða að lesa Vísi
E n s ka
er alheimsmálið, sem allir þurfa að kunna,
Eflaust eru enn einhverjir í borginni, sem þurfa að
læra meira en þeir kunna.
Tækifærið býðst nú að verða fullnuma.
Komið á Laugaveg 30 A, til
Jóns Runóífssonar.
NÝ SÁPUYERSLUN
-— *\5estttv<ýót\i Z&. —
Allskonar sápur til þvotta,
20—30 teg. af handsápum,
svampar,
greiður,
kambar,
ilmvötn o.fl. o.fl.,
yfir höfuð flest, sem að hreinlæti lýtur.
gT Fyrir kaupmenn
alltaf á ,Lager‘:
Vindlar & Cigarillos,
■lr og smáir.
J. aall-hansen.
Þingholtsstræti 28.
f TAPAЗFUNDIÐ
Lyklar á smáhring tapaðir á
ugavegi. Skilist á afgr. Vísis.
LEIGA
4—5 herbergja íbúð vantar
mig 14, maí. Jón Ófeigsson, Spít-
alastíg 9. Sími 357.
1 herbergi með húsgögnum
er til leigu nú þegar með öðrum.
Uppl. Laufásveg 41.
2—3 herbergi og eldliús ná-
lægt miðbænum óskast til leigu nú
þegar eða frá 1. maí. Afgr. v, á.
Litla íbúð vantar barnlaus
hjón frá 14. maí. Afgr. v. á.
Rúmgóður bær, fast við sjó
nálægt miðbænum, fæst leigður
frá 14. maí. Uppl. hjá B. Jóns-
syni, Frakkastíg 12.
4 herbergi og eldhús er til
leigu á Njálsgötu 16 frá 14.
maí. Semjið við Guðm. Egils-
son, Laugav. 42., sem hefur ótak-
markað umboð.
Gott herbergi, helst með ofni,
óskast til leigu nú þegar til 14.
eða lengur. Upplýsingar á Lauga-
vegi 23 niðri.
Jónína Jónsdóttir.
VINNA
3 stúlkur óskast nú á gott
heimili á Norðurlandi, helst í árs-
vist. Hátt kaup. Uppl. á Lauga-
veg 21. (niðri).
Stúlka óskast í vist nú þegar
á fámennt heimili. Afgr. v. á.
Stúlka óskast til morgunverka
á fámennt heimili. Afgr. v. á.
Stúlka óskast í vist nú þegar.
Gott kaup. Afgr. v. á.
Jónas Guðmundsson, löggilt-
ur gaslagningamaður, Laugavegi
33. Sími 342.
Gramalt gert nýtt.
Allskonar viðgerðir á orgelum og
öðrum hljóðfærum hjá
Markúsi þorsteinssyni.
Frakkastíg 9.
Hálslín
fæst strauað á Hverfisgötu 26 B.
uppi. Fljótt og vel af hendi leyst
Vinnumaðurj
má vera 16—18 ára að aldri,
dyggur og reglusamur, óskast í
ársvist á gott heimili hjer í bæn-
um. Afgr. v. á.
KAUPSKAPUR
Gott orgel óskast til leigu.
Hverfisg. 32.
Legubekkur (dívan) óskast til
leigu nú þegar. Afgr. v. á.
Dívan óskast til leigu. Afgr.
v. á.
Östlunds-prentsm.
Buffet
brúkað óskast.
Afgr. v. á.
Mótorvjei, nærri ný, 6 hesta,.
er til sölu með tækifærisverði.
Björn Guðmundsson,Vesturg. 50.
Eikartrjes-buffet, mjög fallegt
og vandað, er til sölu hjá W. F.
Schram, Hverfisgötu 10., trjesmíða-
vinnustofu H. Frederiksens. Sími
408.
Útgefandi
Einar Gunnarsson, cand. phil.