Vísir - 22.04.1914, Side 2

Vísir - 22.04.1914, Side 2
V í S I R íslensk mál í dönskmn blöðmn Knútur Berlín' eyðir nv.klu rúmi í Köbenhavn 6. þ. m. undir venju- legar æsingar gegn íslendinguni út af fánamálinu. Ávítar iiattn enn Zahle forsætisráðherra fyrir slælega framkomu gegn oss fyrir hönd Dana, Nokkra stoð fyrir skilningi sinum á því, að Danir skuii eiga jaínan rjett íslendingum á því, að ákveða hvernig sambandi íslend- tnga og Dana skuli háttað stjórn- arfarslega í framtíðinni, svo iremi ekki komi íil skilnaðar, þykist pró- íessorinn finna í orðum þórhalls biskups í Nýu Kjrkjtiblaði 1. jar. síðastl, og er gieiður yfir. — Ann- ars er þessi grein, sem aðrar rit- smíðar hans, moldveður hið mesta, — óljóst hvort hann vil! helst skiln- að, sem fyrir bregður hjá honttni í öðru orðinu, eða eitthvert sam- band. En eitt er víst og auðsætí a' skrifum hans, að síst vill hann oss hið besta kjósa eða unna oss rjeíí- ar í neinu. Nat. Tid. 3. þ. m. og Kolding Avis 31. f. m. geta uni sjóðþurð í riánarbúi Guðlaugs heitins bæar- fógeta á Akureyri, og lýkur hið síð- arnefnda blað máli sínu á þessa leið: »Mál þetta hefur vakið slórkost- lega athygli á íslandi, þar sem sljfk- ir atburðir eru ekki daglegt brauð eins og hjer heima« (þ. e. í Dan- mörku). Frásögnin er öil hrottaleg og röng, t. d. er bæaffógetinn nefndur Gunlög Gudmundsen og sagt, að það sje ætlun manna, að synir hins látna hafi með líferni sínu leitt föður sinn út í giæpinn. AJtenposten 6. þ. m. hermir þær frjettir frá Akuieyri úr brjefi, að verið sje að reisa áburðarverksmiðju (Guanofabrik) mikla á Seyðisfirði. »Hún á að búa til áburð úr fiskl- afurðum og láta Jítiiin gufubát sækja þær á aðra firði þar eystra og kaupa af sjómönnum. Þar verði í vinnu 50—60 rnanns og fyrir verk- smiðjunni stendur þýskur verkfræð- ingur, en iiæstur honum gengur að yfirstjórn ungur íslendingur, Henrik Dal að nafni, er í mörg ár hefur verið afgreiðslumaður þýskra botnvörpuskipa á Seyðisfirði. Þýskt hlutafjelag á verksmiðjuna og er höfuðstóliinn 50 þús. ríkismörk, sagöur innborgaður.« Extrabladet 31. f. m. skýrir frá því, að þýskt skip hafi flutt 300 smálestir af byssum frá Hamborg, er var umskipað í norskt skip »Fanny« á Langalandi. Kvað norska skipshöfniri byssur þessar allar eiga að flytjast til íslands. Virðist ekki iaust við að óhug nokkrum hafi slegið á Dani við frásögn þessa, en þó getur blaðið þess tii, sem eflaust er rjett, að hjer sje um mis- mæli eða misheyrn að ræða, — vígbúnaður þe.si hafi átt að fara til írlands, en ekki íslands. Tmiofunar- fiÆi. hringa smíðar OLSENS NAUTICAL ALMANAC 1914 (kostar 1 kr.), sem er alveg ómissandi eign fyrir útgerðarmenn og sjómenn, fæst alltaf í Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar. rSendið auglýsíngar í VÍSI tímanlega. Reynið Virsolia Raksápu. Kjöífars og Fiskifars er ávali íil í Er besta uppspretta fyrir allskonar góðar og ódýrar nýíenduvörur. U m boðsmenn: f|cemundsen, sgúbbers §■ Go. Aiberistrasse 19—21. Harriburg 15. Vjeistjórar. Hjer með eru allir meðlimir vjelstjórafjelagsins „Eimur“ vinsam- lega beðnir að greiða ógoldin gjöld sín til undirritaðs f’yrir 14. maí þ. á. Gjöldunum veitt móltaka á Skólavörðustíg 42 daglega. Reykjavík 6. apríl 1914. Sigurjón Krisijánsson, gjaldkeri. PSÆMUNDSEN. LUBBERS&CO, &£ HEILDSALAR, selja allar íslenskar afurðir með hæsta verði, fljót af- greiðsla, fljót skil. Skrifið til Sæmundsen, Liibbers & Co., Aíberistrasse 19—21, Hamburg 15, eða (jj^ til Sæmundsen, Lúbbers & Co., Hoibergsgade 18, ^ Kjöbenhavn, K. Sömuleiðis fyrst um sinn til umboðs Carl Sæmundsen & Co., Reykjavík eða Akureyri. ð LUX 0llum ber saman um, að LUX-Sápuspsenir sjeu bestir til að þvo úr ullarfatnað; fatnaðurinn hleypur aldrei, ef LUX-Sápuspænir eru notaðir. Fylgið leiðarvísirnum. Gætið að, að LUX standi á hverjum pakka. Fæst hjá kaupmönnum. BjörnSímonarson. Vallarstr4. Síini 153. Buils Eye Kerti (SUNLIGHT) eru þau ódýrustu, björtustu og bestu. Biðjið ávallt um þau. aaocúiixaatmaajMinaBM Kaupiö Só^V\xvssipuwa, því hún er, eins og öllum er kunnugt, besta þvottasápan. Gætið nákvæmlega að, að »Sunlight« (Sclskin) standi á hverju stykki. Varið yður á eftirstælingum. Skotliríð á lónrnar. Svo sem öllum er kunnugt, ver vor fátæka þjóð mörgum tugum þúsunda króna nær árlega til laga- smíðar fyrir hina friðsömu íbúa landsins og höfuðborgin ver og álif- legri upphæð til reglugjörða á reglu- gerð ofan innan sinna vjebanda. En til að vernda þessi lög og reglu- gerðir er varið raunar hundruðum þúsutida árlega, þegar allt er talið með. Þrátt fyiir allan þeirra tilkostnað og mikla lagasmíö og reglugjörða erum vjer ekki Iengra komnir en það, að lögreglu- og laga-brotin eru framin hjer svo að segja framan í höfuðstaðarbúunum daglega, án þess að nokkur kippi sjer upp við það. Það er eins og þessi dauðífli sjeu ánægð, þegar vel er búið að rubba upp af lagaboðunum. í gærkveldi gekk jeg út á Mela, þegar farið var að dimma. Þar gaf að heyra og sjá fjörlega skot- hríð, svo sem orusta væri þar háð, og vissi jeg ekki með fyrsíu, hverju þetta sætti, en hrátt varð mjer það Ijóst, að hjer voru menn að skjóta lóur. Það er svo sem ekki tiltökumál. Þingið í fyrra var einmitt að semja fuglafriðunarlög og hafði 7 eða 8 umræður um þau, þessir 40 speking- ar, en bæarreglugerðin bannar öll skot í bænum og leggur við all- mikla sekt, — og svo leika menn sjer að því, að skjóta horaðar lóur í myrkrinu rjett á alfaravegi. Byrja strax og þær koma — fyr er það ekki hægt. Vel gætu þessir kumpánar orðið einhverjum vegfaranda að bana og það er raunar varla að búast við, að lögbrotum þessum verði sinnt að nokkru, fyr en svo er komið. Dýraverndunarpostularnir, sem varla geta drepið ógrátandi það kvik- indið, sem einna helst virðist skapað ti! að angra mann, þeir sitja nú hjá og láta sig engu skifta. Menn, sem búa utarlega í bænum, segja að þessi skothríð standi á hverju kveldi. En það er ekki til neins að tala við sofandi menn. Jeg vil því að síðustu snúa máli mínu til ykkar, sem iðkið þessa lóuskothríð. Viljiö þið ekki heldur skjóta lóuna meðan bjart er, því með þessum myrkraskot- um getið þið hæglega drepið hvern annan. Gestur. okkur karimanna- f a t a e f n i, afpössuð í föt, fást með sjerstökum kjarakaupum á Laugavegi 63. Jóh. Ögm. Oddsson.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.