Vísir - 23.04.1914, Blaðsíða 4

Vísir - 23.04.1914, Blaðsíða 4
VÍSIR Svo varð dauðaþögn aftur. Conti þekkti gerla málróm de Vcncours, þótt auðheyrt væri að hann væri ekki með sjálfum sjer. Rubeoli greifi hló í böndnnurn. Frh. Ný íslensk EGG fást allaf í NÝHÖN ÚR BÆNUM. Frh. frá 1. síðu. Lokað er í dag bönkunum báð- um, pósthúsinu eftir kl. 1 og sum- um sölubúðunum, flögg víða um bæinn. Finnur Magnússon á brjef á skrifstofu Vísis. Notre Dame de Ia Meer, frakkneska spítalaskipið, er gert er út af kaþólsku góðgerðafjelagi, sem hefur aðalstöð sína í París. Skip þetta hefur rúm fyrir 12 sjúklinga, en getur tekið allt að 20. Það er mikinn hluta sumars hjer við land, til þess að líkna þeim, sem veikir eru. Tekur það til lækninga og hjúkrunar jafnt menn af öllum þjóðflokkum og trúarbrögðum og er allt gefins, sem það lætur í tje. Hvert skip, sem hefur sjúkan mann eða særðan og sjer til spítalaskips- ins, þarf ekki annað en draga flagg á hálfa stöng, kemur það þá þeg- ar til aðstoðar. Þó ekki sje nema um lítinn skurð að ræða (það er aldrei hægt að vita hvað úr hon- um getur orðið), er sjálfsagt að leita hjálparinnar, og þeim er ánægja að veita hana, hvort hún er lítil eða stór. Njörður kom í gær og hafði aflað 20,000. 3 frakkneskir botnvörpungar eru nýkomnir. Hafa verið við veið- ar hjer á flóanum, en veitt lítið. Lúðrafjelagið Harpa spilar á Austurveili í kveld kl. 71/., Þing’lýsingar 23. apríl. 1. Jóhannes Zoega selur21. þ. m. Jóni Zoega 420 ferálna lóð við Nýlendugötu fyrir 850 krónur. 2. Hjálmtýr Sigurðson selur 20. f. m. Steingrími Jóhannssyni hús- eignina nr. 46 B við Laugaveg fyrir 7 500 krónur. 3. Sigurður Jónsson og Magnús Benjamínsson selja 14. þ. m. Hjálmtý Sigurðssyni þeirra hluta í húsinu nr. 22 við Lindargötu fyrir 8 500 kr. 4. Hjálmtýr Sigurðsson selur 14. þ. m. Sigurði Jónssyni og Magn- úsi Benjámínssyni húsið nr. 5 við Lindargötu fyrir 8 500 kr. 5. Landsbankinn selur 22. þ. m. Guðm. Böðvarssyni húseignina „Bjarka“ fyrir 8 600 kr. 6. þorsteinn þorgilsson selur 17. YASABIBLÍAN er nú komin og fæst hjá bóksölunum í Reykjavík. Bókaverslun Sigfúsar Eymundsnonar. FYRIR KAUPMENN er altaf á Lager RÚSÍNUR og GRÁFÍKJUR hjá J. AALL-HANSEN, Þingholt88træti 28. Fyrir minni íslands. Ylji vonin hvern bæ, eyan svanhvít í sæ, þar sem suugin er tunga svo fögur. Vei i blessuð þín mold, þar sem hvíla þau hold, þessar hendur, sem skráðu okkar sögur. Síð og ár við þitt full íít vort ætthelga gull, gamla ísland, við hróðugir breiðum, því að helst ættu blóð, efni í mannvit og móð, þeir sem mest eiga best undir leiðum. Veri blessuð þau ljóð, sem um svipmikla þjóð ver->a sungin á vorinu nýa. þegar snillinnar tíð geislar göfgi yíir hlíð og þann Gunnar, sem vill ekki flýa. Ríka drotning í sæ, verði veldi þitt æ list og vit kringum stólinn þinn háa, og hjá iandnemum þeim, sem á hólmi við heim sýna höfunum fánann þinn bláa. Þ. E. Sumri fagnað. Enn er sumar, — æskutið allra góðra vona, óskastundin ár og síð ísiands dætra’ og sona. Aftur ljett og ljós og kvik lifna blómin kalin, — djörf og glettin brúna-blik bregða’ á leik um salinn. Hvísl og bros og hjartaslög hömlum bindur enginn, þegar sumar langspilslög leikur mjúk á strenginn. — Þó að roðni eitt og eitt unga blómið dreymið, til þess enginn tekur neitt: tetrið litla’ er feimið. Æskufjörið undir fót ýtir snót og sveini, — þöglra kvölda þýðu-mót, þau veit nú sá eini! Hann fer ekki’ að herma frá, hvað hann vita .kunni; — svona skýst nú sitthvað hjá sjálfri hagstofunni! Gleðin saklaus, söngur, ljóð sál og hendur tengi! Gefum æskuhljómum hljóð, Hörpu, brautargengi! Verum allt af ung og kát, ólmist hver sem getur, — j geri okkur aldrei mát elli bitur vetur! Far þú, vetur, naþur nú norðu’r í Elivoga\ Handan yfir himinbrú Harpa fer í loga. — Ber þú hátt við himininn, heiður, glaður, fagur, fagurbláa fánann þinn, fyrsti sumardagur! Guðm. Guðmundsson. þ. m. Einari þórðarsyni hús- eignina nr. 8 við Kárastíg fyrir 4 500 kr. 7. Dánarbú Fr. Warburgs selur 31. f. m. P. Petersen „Gamla Bíó“ (c: áhöld og rjettindi) fyrir 8 050 kr. Östlunds-prentsmiðja. Rottur Ríkis- ^ WýS, viðurkennt Óskaðlegt mönnum og húsdýrum Söluskrifstofa: Ny Östergade 2 Köbenbavn VINNA Stúlka vön bókfærstu óskast hátf- an daginn. Afgr. v. á. Tvö sólrik herbergi ásamt eldhúsi er til Ieigu í nýlegu húsi í Vesturbænum. Afgr. v. á. Stofa, lítið herbergi ogeldhús, fæst til leigu frá 15. maí. Bakka- stíg 5. 3 herbergí og eldhús til leigu við Laugaveg, Afgr. v. á. 2 ágæt herbergi í miðbænum eru ril leigu um þingtímann. Ein stofa eða tvær samstæðar eru til leigu frá 14. maí. Með hús- gögnum, ef óskað er. Af vissum ástæðum lægri leiga en almennt gerist. Afgr. v. á. Fæði, þjónusta og húsnæði óskast á góðu heimili frá 14. maí. Geir Guðmundsson (fráHáeyri), Ránargötu 29. Piltur, heilsugóður, 15—20 ára, vanur bakaríi, getur fengið atvinnu 15 maí. Afgr. v. á. Stúlka óskast í vist frá 14. maí í góðu húsi hjer í bænum. Upplýsingar á Vesturgötu 18. Hjólhestar eru hreinsaðir og lakkeraðir á Vitastíg 14. Flýtið ykkur, því nú fer færið að koma. Ung stúlka getur fengið hæga vist hjá Skov kaftein, Vesturg. 16. Telpa frá 14—16 ára eða full- orðin stúlka, sem ekki getur geng- ið í erfiða vinnu, óskast í vist nú þegar eða 1. maí. Afgr. v. á. Telpa óskast til að líta eftir börnum, gott kaup. Uppl. á Laugaveg 52. Stúlka, sem vön er að stunda veika, býðst til að vaka, ef á ligg- ur. Afgr. v. á. Kvennmaður óskast um lengri eða skemmri tíma. Uppl. gefur Sigurborg Jónsdóttir, Laugaveg 54. Vandaða stúlku vantar í vist á kaffihús 14. maí. Afgr. y, á. HÚSNÆÐI Loftherbergi ágætt með feg- ursta útsýni yfir höfnina er til leigu frá 1. eða 14. maí handa stiltum og reglusömum manni. Uppbúið rúm og öll húsgögn fylgja, ásamt ræstingu. Afgr. v. á. i KAUPSKAPUR Hús til sölu og ibúöiriil leigu. Uppl. gefur G. Gíslason & Hay, Reykjavík. Morgunkjólar fallegir fást á Laug- avegi 11. Inngangur frá Smiðjust., Til sölu rúmstæði, hjólhestur, grammophon, o.fl. með lágu verði í Bankastræti 7. Frá kl. 11—2. í Þingholtsstræti 7 eru til sölu fermingarkjólar og allskonar fatn- aður, nýr og gamall. Gamalt sínk kaupir Jón Sig- urðsson, járnsmiður Laugavegi 54. TAPAЗFUNDIÐ Peningar fundnir. Vitja má þeirra í Silkibúðina. Tapast hefur ný peningabudda. Skilist á afgr. Vísis gegn fundar- launum. LEIGA Hjólhestar fást leigðirfyrir 25 au. um tímann í Bankastræti 12. pfT Sendið auglýsíngar VÍSI tímanlega. Útgefandi: Einar Gunnarssoi cand. phil

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.