Vísir - 19.05.1914, Síða 2
V I S 1 R
V 5 S í R
S/arsía b/að á íslcnska tungu.
Argangurinn (40 i—5> 0 blöð) 'kostar
urlenais kr. 9 00 eða 2'/, dollars, innan-
lands kr. 7 00. Ársfj.kr. 1,75, inán.kr. 0,60.
Skrifsíofa og afgreiðslustofa í Austur-
stræti 14 opin kl. S árd. til kl. 9 síðd.
Sími 400. Pósthólf A. .6.
Riístióri Einar Gunnarsson
vtnmlega til viðtals ki. 5—7.
iSenaisvelnastiiöin (Sími 444) annast út-
rmro um austurbælnn nema Laugaveg.
Anjreiðsla til i ranDæarka pendá er í
Bergstaðastræti 6 C (Simi 144, Póst-
hólf A, 35)J.
Jeg hefi verið beðinn að láta í
ljósi skoðun mína á þessu máli,
og enda þótt jeg þykist vita, að
margir beri þar á betri skyn, þá
vil jeg þó verða við tilmælum
þessum.
Jeg lít svo á, að á máli þessu
sje aðallega tvær hliðar, fisk-
gœðin og fiskverðið.
Um fiskgæðin er það að segja,
að það blandast víst engum hug-
ur um það, að þau má mikið
bæta. Fiskur sá, sem nú er seld
ur hjer í bænum, er oft og ein-
att svo skemdur, að eigi ætti að
vera leyfiiegt að selja hann, alira
síst við fullvirði — fiskurinn er
óforsvaranieg vara eins og hann
er boðinn oft og tíðum. það sjá
allir t. d., hversu góð vara það
muni vera, að láta fiskinn liggja
í marga daga með innýflum öil-
tun í sólarhita; það skilur hver
og einn, að sá fiskur sem þannig
er meðhöndlaður er skemmdur
og óhæfilegt að selja hann sem
nýjan fisk. Hjer virðist mjer þurfa
bráðra aðgjörða, til þess að bæta
úr ef vit á að vera, og sýnist
mjer ráðið vera ofureinfalt. það
þarf að sctja reglu um fisksölu í
bænum, og ákveða í henni að
allan fisk, sem seldur sje í bæn-
um, skuli’afhausa og siægja strax
og hann kemur í land. Er það
nauðsynlegt til að tryggja góða
vöru, að svo sje ákveðið, en
ekki eins og nefnd sú rjeð til,
er bæjarstjórnin fól að athúga
fisksölumálið, að fiskurinH yrði
slægður eftir vissan tíma heldur
strax þegar komið er í land.
Með því að slægja fiskinn strax
vinnst margt, en ekki síst þaö,
að fiskurinn skemmist mikið síð-
ur, ef að það þarf að geyma hann,
einnig það, að fiskurinn mun þar
af leiðandi verða jafnan ódýrari
innkeyptur fyrir það sama ódýr-
ari út aftur. það er líka harla
einkennilegt, er að því er gáð,
að allur fiskur sem seldur er til
útlanda, er slægður strax og hann
kemur upp úr sjónum, en fiskur
sá, er höfuðstaðarbúarnir hjer
kaupa, er látinn — ef til vill liggja
í nokkra daga—óslægður á mark-
aðinum.
Með þessu ákvæði yrði fisk-
urinn betri.
þá er hln hlið málsins fiskverð-
ið.
Fiskterðið hjer er mjög hátt,
og mikið hærra en það á að vera
samanborið við verð á fiski á heims-
markaðinum. Jeg hef orðið þess
áskynja, að margir vilja kenna
fisksölumönnunum um það,hversu
VASABIBLIAN
er nú komin og tæst hjá bóksölunum í Reykjavík.
Bókavcrslun Sigfúsar Eymundssonar.
ppgpgi
IEbkHt&tek
p—* H :G o CL
S>5 VÖRUR
< Q \\zx \i\xr $\S a8 ^aupa OL
Z <
Kaffi, sykur, saltkjöt, matvörur OL
uasá ÓL* allskonar, skófatnað, eldhúsgögn, > Q
Q* karlmannafatnað, húfur, drengja- O
fatnað, glervöru, svo sem : diska, i
Om W bollapör, skálar, járnvörur og CL
o ýmsar smávörur, D
< þá komið í CL
* sO
z VERSLUNÍNA >
z KAUPANG CL
■J ií) CL LU > pví bar eru góðar vörur, < Q O O
en þó mjög ódýrar.
Yeg gfóður
<
CD
Odi^ast jq
) Bankastræti 7.
fiskurinn er dýr, þeir segja seni
svo, að þetta komi af því, að
þeir bjóði hver i kapp við ann-
an í fiskinn um borð í trollurun-
um. En ekki lít jeg svo á það
mál. Hver getur láð fisksölumönn-
unum, þó þeir bjóði svo hátt í
fiskinn sem þeir treysta sjer, til
þess þó að geta aftur selt hann
með hagnaði? Og það vita allir,
sem það hirða að vita, að útgerð-
armennirnir t. d. frá Sandgerði
og Akranesi hafa selt fisk hjer í
bæ eins dýrt og jafnvel dýrara
en fisksalar nú. Eg er sannfærð-
ur um það, að þóttútgerðarmenn-
irnir hefðu sett fiskinn á uppboð
þá yrði fiskurinn ekki ódýrari
fyrir bæjarbúa. Á mcðan jeg var
á ísafirði, var vanaverð 4—5 au.
pundið af slægðri ýsu, en í vetur
voru það 10 aurar af hausaðri og
slægðri ýsu. þetta kom vitanlega
af því að það var fiskekla (sjald-
an farið á sjó) og þá hækkaði
verðið. það er algild regla í við-
skiftalífinu um allan heiminn að ef
eftirspurn eftir einhverri vöru er
meiri' en framboðin, þá hækkar
verðið, en ef framboðin eru meiri
en eftirspurnin þá lækkar verðið,
og það er þessi algilda regla, er
ræður fiskverðinu hjer í Reykja-
vík. Framboð á fiski er minna
en eftirspurnin. Og orsakirnar til
þess, að hjer er lítið fiskfram-
boð, eru auðsæar, aðallega eru
þær tvær: í fyrsta lagi, að Reykja-
vík er allt of laagt frá veiðistöð •
unum, og í öðru lagi, að markað-
urinn er oflítill til þess að troll-
ararnir geti gefið honum gaum.
Frh.
Bogi Brynjölfsson
yfirrjettarmálaflutn'ngsmaður,
Hótel ísland.
Annari hæð. Herbergi M 28.
Venjulega heima kl. 12 — 1
og 4 — 6
Tími 250.
ffÓLFDÚKAR,
o§ vaxdv&av,
allar tegundir, — allar breiddir. StaeTst úrval, — lægst verð hjá
JÓNATAN ÞORSTEINSSYNI.
3^ vet\\ ^omawda
i mun jeg veita mönnum tilsögn í
latnesku og grísku.
j Vilji nokkrir nema þessi mál
af mjer, bið jeg þá að láta mig
vita fyrir maílok, svo að jeg hafi
tíma til að sjá um að bækur
verði til.
Reykjavík 9/5 1914.
Bjarni Jónsson,
fra Vogi.
40 stúlkur
óskast í vinnu við síldarverkun
á Siglufirði frá 10. júlí.
H á 11 kaup.
Frítt hús, eldsneyti og frí ferð.
Menn snúi sjer til
B. Peterseri.
Lindargötu 9 B.
Vatnstígvjel og
verkmannaskór
góð og vel vönduð fást i
Aðalstræti 14 hjá
Hróbjarti Pjeturssyni
skósmið.
Góð útsæðisjarðepli
fást hjá
Petersen frá Viðey.
Hafnarstræti 22.
Trúlofunar'-
hrÍDga smíðar
BjörnSímonarson.
Vallarstr4.Sínii 153
j