Vísir - 20.05.1914, Blaðsíða 3

Vísir - 20.05.1914, Blaðsíða 3
V 1 S 1 K Dömuklæðin dæmalausu, vönduð — vel unnin — fallef, frá 1,45 til 2,75, fást í Versl. Edínborg. Hafnarstræti 12. * * Ford-bifreiðar. | Hinar heimsfrægu Ford-bifreiðar hafa lækkað í verði, frá 1. maí þessa árs, þannig: 6 manna bifreið, sem áður kostaði 4500 kr., kostar nú 4000 kr. V-'agninn er 1630 pund að þyngd, 6 fet og 5 þuml. á hæð, 5 fet og 10 þuml. á breidd og 11 fet og 3 þuml. á lengd. 5 manna bifreið, sem áður kostaði 3500 kr., kostarnú3IOO kr. þessi bifreið er 1400 pund að þyngd, 4 fet og 3 þuml. á hæð, 5 fet og 10 þuml. á breidd og 10 fet og 10 þuml. á lengd. 2 manna bifreið, sem áður kostaði 3100 kr., kostar nú 2900 kr. þessi bifreið er 1400 pund að þyngd, 4 fet og 3 þuml. á hæð, 5 fet og 10 þuml. á breidd og 10 fet og 10 þuml. á lengd. Vöruflutninga bifreið, sem áður kostaði 3800 kr., kostar nú 3600 kr. þessi vagn er 1479 pund á þyngd, 6 fet og 5 þuml. á hæð, 5 fet og 10 þuml. á breidd, 11 fet og 3 þuml. á lengd og ber um 1000 pund upp hvaða brekku, sem ekki rís meir en 1:6. þessi mikli verðmunur stafar af hinnu miklu eftir- spurn og hinni feiknarlegu sölu á þessum bifreiðum. "T. d. árið 1913 voru 290000 Ford-bifreiðar seldar.' Allar Ford-bifreiðar hafa 20 hesta ah og hraðinn er upp að 60 enskum mílum á klukkustund. Bifreiðarnar verða fluttar fyrir þetta verð á hvaða höfn sem er á Islandi og skip koma. Ef eigandl tekur við vagninum ósamsettum, fæst IOO króna afsláttur. Rafmagnsljós og annar nýtísku útbúnaður Ford-bif- reiðum viðvíkjandi fæst keypt hjá undirrituðum, sem einn- ig gefur allar upplýsingar, hvort heldur munnlega eða skrifl. Einnig get jeg selt þeim, sem þess óska, stærri, þyngri, skrautlegri, kraftmeiri og dýrari mannflutninga bifreiðar. — Verð 4500 kr. upp í 9000. Sömuleiðis stærri, þyngri og kraftmeiri vöruflutninga- bifreiðar, sem bera frá 1500 —40000 pund. Verð 5500 kr. upp í 23000 kr. — Ennfremur vagna sem hinar þyngri vöruflutningabifreiðar draga. Verð 450 kr. upp í 16 000 kr. Allt eftir stærð og lögun vagnanna. Myndir af öllum þessum bifreiðum, vögnum og verð- skrár eru tíi sýnis. — Komið og finnið mig áður en þjer festið kaup annarstaðar. Fyrst um sinn verður mig að hitta á Kárastíg II. (Kárastöðum,norðanverðu uppi) kl. 10-12 og 6-8. Tals. 429. Sveínw Öddssow (Einkaumboðsmaður fyrir Ford-bifreiðar á íslandi). „íþróttafjelag Reykjavíkur” heldur hina árlegu fimleikasýningu sína Uppstigningardag kl. 2 e, h. á íþróttavellinum. Leikið verður á horn. Allir verBa að %\í \iessa eintl $\mle\bas^n\Y\$\x ársins. © Kaffi brennt og malað kostar 1,10 í Templarasundi 3, óbrennt kaffi 0,75. Spariðfleog’kaupiðíijá Jóh. Norðfjörð Bankastræti 12. * Od^ustu o$ $\aldðestu tauin eru Iðunnar-dúkarnir. Þeir sem vilja fá sliigóð föt kaupið þau þar. Verkamenu,sjómenn munið þett? vauSs^\W^. Eftir Rider Haggard. Frh. Þakkarávarp. Af hrærðu hjarta votta jeg öll- um nær og fjær rritt alúðarfyllsta þakklæti, sem sýndu mjer hlut- tekningu við fráfall og jarðarför mannsins míns elskulega. Sjer- staklega þakka jeg hr. lækni Magnúsi Júlíussyni fyrir sína að- dáanlega góðu framkomu nú sem fyrri á mínu heimili. Hann var sem af guði sendur til að lina þrautir míns ástkæra manns í dauðanum, og einnig til að hugga okkur syrgjandi ástvinina bæði með orðum og gjöfum. Sömuleiðis þakka jeg af hjarta Slippfjelagsmönnunum, sem hafa tekið saman bróðurhöndum, til að gleðja mig í hinni þungu sorg minni. Og ótalmargir hafa rjett mjer hjálparhönd, sem yrði of- langt upp að telja. En guð þekk- ir þá og launar þeirra velgjörðir. Að síðustu bið jegalgóðan guð að blessa alla af ríkdómi sinnar náðar, sem hafa rjett mjer hjálp- arhönd í neyðinni. Ennfremur þakka jeg, öllum sem glöddu barn- ið mitt á Fermingardaginn sinn. 1914. Nýlendugötu 16. Guðrún Finnsdóttir. Goðfreður Karlsson lifði konu sína í tvo daga. Fjekk hann hægt andlát og þjáningalaust, var það blóðeitrun sem dró hann til dauða. þeir Hugi oð Rikki og Davíð viku ekki frá honum allan þenn- an tíma. Voru þeir, og ein far- lama kerling einu íbúar hússins, allir aðrir voru annaðhvort dauð- ir eða flúnir. Konan sauð mat þeirra; hafði sonarsonur hennar verið þjónn sendiherrans, og dá ið úr pestinni. Voru nægileg matvæli í húsinu því húsmóðir- in hafði verið búkona mikil og rausnarleg í öllu. þurftu þeir því ekki að kvíða hungurs, var óþægilegast að afla matar handa sjúklingnum, gat hann ein- ungis nærst á ávöxtum og vatns- blönduðu víni. í tvo daga fyrir andlátið lá Goðfreður meðvitundarlaus, en um nóttina, er hann dó, fjekk hann meðvitundina og kallaði þegar á Huga. Hugi svaf í næsta herbergi, en Davíð vakti þá stund- ina. Brá Hugi þegar við og þeir Rikki, og skunduðu inn til sendiherrans. Brosti hann er þeir komu, og var ró mikil yRr honum. „Vinir mínir“, mælti hann með veikri röddu, „fyrir Guðs náð verð jeg senn leystur úr þessum eymdarstað, og verður injer sæl heimkoma til himnaríkis. En ef þau undur er skeð hafa eru ekki upphaf heimsendis, þá vona jeg að þið eigið langt líf fyrir

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.