Vísir


Vísir - 17.06.1914, Qupperneq 2

Vísir - 17.06.1914, Qupperneq 2
V f S I P V I S I R. Stœrsía blað á isltn ka tungu. Árgangurinn (400—5( 0 blöð) kostar erlendis 1;. 9,00 eða 272 dollars, innan- landslr.7 00. Ársfj.kr. 1,75, mán kr. 0,60. Skrifstofa og afgreiðslustofa í Austur- *træti 14 opin kl. 8 átd. til kl. 9 síðd. Sítni 400. Pósthólf A, 76. Ritstióri Einar Gunnarsson venjulega til viötals kl. 5-7. (Sendisvelnastöðin (Sími 444) annast út- curð um austurbæinn nema Laugaveg. ATgreiðsla UI utanbæjarkaupenda er_ á >kóiavörðustíg 16 (Simi 144, Póst- hólf A. 35)J. GrERLA- EAraSOOTABr STOFA Gísla Guðmundssonar, Lækjargötu 14B (uppi á lofti), er venjulega opin 11-3 virka daga. Isrek í Atlantshafi er nt3 með meira móti. Um síðustu mánaðamót varð eitt af slórskipum Cunard-línunnar að bíða á annað dægur fyrir sunnan Nýfundnaland, sakir þess, að fyrir því varð ís svo þjettur, að ekki var hægt að kom- ast leiðar sinnar milli jakanna. Indverjum bægt frá inn- flutningl til British Columbia. Á vesturströnd Norður-Ameríku er megn mótspyrna gegn innflutn- ingi Asíuþjóða, Indverja, Japana og Kínverja. Hefur orðið hinn megnasti fjandskapur út af því með- al Kalíforníuríkisins í Bandaríkjun- um og Japan. Eins hefur stjórnin í British Co- lumbia í Kanada reist sem ramm- astar skorður við innflutningi Asíu- manna og urðu mjög miklar deil- ur út af því fyrir síðustu mánaða- mót. Þá kom mannflutningaskip þangað með 600 Indverja frá Kal- kútta, en stjórnin bannaði þeim iandgöngu samkvæmt samþykkt, er í lög hafði verið tekin síöastliðinn aprílmánuð. Indverjarnir báru það fyrir sig, að breskir þcgnar ætti að hafa rjett til þess að setjast að hvar sem þeir vildi í breskum löndum, en hafa þó ekki fengið sitt fram. Ráöuneytisforsetinn í British Co- lumbia, Richard Mc.Bride, hefur sagt á þessa leið: »Bann það, sem lagt hefur verið fyrir þessa 600 innflytjendur frá Kalkútta, er bráðnauðsynlegt. Verð- ur eitt yfir alla að ganga. Vjerer- um nauðbeygðir að hamla af fremsta megni aðstreymi Asíuþjóða, því að eila er hvítum mönnum gersamlega útrýmt úr landinu.* Eimskip rekast á f Temsánni. Annað sekkur. Menn bjargast. Laugardaginn 6. júní rákust á tvö eimskip í ánni Téms: Corinthian, eign Allanlínunnar, og Oriole, stál- skip, 1510 smálestir að stærð. Oriole brotnaði þegar og sökk á skammri stundu. . Farþegar voru þrír eða fjórir, og urðu þeir 'að hlaupa fyrir borö, en varð bjargað af bálum og eins skipshöfninni. Nýr stjörnuturn. Nýjan stjörnutmn er frakkneska vísindafjelagið að láta reisa á Mont VASABTBÍ.TAft er nú komin og tæst hjá bóksölunum í Reykjavík. Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonat. ■ ■ Olgerðarhús Reykjavíkur brýtur alla samkeppni á bak aftur. Hvers vegna? Vegna þess, að ölið þaðan er ljúffengara, næringarmeira, hreinna, 1 aldbetra en annað öl. Eftirspurnin er afskapleg. Vjer höfum varla við að brugga handa neytendum vorum út um land og erlendum og innlendum skipum, auk fádæma þeirra, er seljast í bænum. íslendingábjórinn óviðjafnanlegi er þambaður jafnt á háborðúm höfðingjanna sem í hreysum kotunganna. Hvítölinu hvolfa menn í sig eins og spenvolgri nýmjólk. Maltölið hleypir hverjum manni í spik. Nýtfsku ölgerð. Erlend s]erþekking. Osvik- in efni. Greið og góð afgreiðsla. Allt þetta einkennir í ríkum mæli Ölgerðarhús Reykjavíkur. Talsimi 354. Norðurstíg 4. Blanc. Turninn slendur í 3450 metra hæð, og hefur þessi staður verið valinn sakir hins hreina og tæra lofts, sem er þar efra. Friðardómstól liafa Bandaríkin og Ítalía samið með sjer að setja um deilumál þau, er rísa kunna milli þeirra. Er þar ákveðið að þau deilumál, er stjórnendur ríkjanna geta ekki jafnað nieð sjer, skuli lögð fyrir alþjó'adómstól, er í sitja fimm menn. LögreglustjórniníChicago gaf út skýrslu um fjóra fyrstu mán- uði þessa árs og [sýnir hún, að aldrei hafa verið framdir jafnmargir glæpir þar í borginni á jafnlöngu tímabili. Bretar taka ekki þátt f Panamasýnhígunni í San Francísco. Enska stjórnin hefur nýlega lýst yfir því, að hún taki ekki opir- beran þátt f sýning þeirri inni miklu, er fram á að fara í San Fraticisco að ári, til minningar um þaö, aö Panamaskurðurinn er fullger. Aftur þiggur hún boð Bandaríkjanna, aö hafa flotadeild viðstadda þegar skurð- urinn verður opnaður til umferðar. — Stjórn Austurríkis hefur samþykkt, að taka þátt í sýningunni. ÞAKJÁRN, allar stærðir og lengdir, miklar birgðir nýkomnar. Hvergi eins ódýrt. Einnig miklar birgðir af þakpappa. Laugaveg 31. JÓNATAN ÞORSTEINSSON. fást ódýrastar hjá Isebarn Aðalstræti 5, Góður plægingamaður með góðum hestum og verkfærum fæst leigður í nokkra daga í vor. Sími 422. Stórt erfðafestuland hjer í bænum er til sölu. Liggur mjög vel til fískverkunar og físk- reita. þetta ættu útgerðarfjelög bæjarins að athuga. Upplýsingar gefur Sig. Björnsson Grettisgötu 38. Yatnsleysið í bænum. Hvernig stendur á vatnsleysinu í bænum ? Það hefur komið fyrir síðari hluta vetrarins og í vor, að vatnið hefur þrotið með öllu í húsum á hærri stöðum hjer í bænum um lengri eða skemnrri tíma í senn, og stundum í fleiri klukkustundir í einu. Er það af því að »Ovendarbrunn- ar« sje að þrjóta, eða af því vatn- ið sje látið renna út einhverstaðar að óþörfu? En af hverju sem það er, þá þarf að taka það til greina, og ráða bót á því tafarlaust, því að fólk unir því illá, sem vonlegt er, að eiga það á hætlu að missa vatnið fyrirvaraláust hvenær sem vera skal og hvernig sem á stend- ur, og borga þó fullt verð fyrir það (sem aðrir) að hafa það allt af nægilegt við hendina, — auk þess sem þaö geta orðið nokkuð alvar- legar afleiðingar af því að svifta fólk svona öllu neysluvatni á stóru svæði bæjarins þegar minnst varir, um óákveðinn tíma. Vatnsleiðsla bæjarins er líklega eitt af því nauðsynlegasta, er gert hefur verið hjer, — þó dýr væri, — eftir þeirri reynslu sem komin er allt að þessu af því verki. — Enda munu flestir ánægðir með það. — En þetta óvænta vatiisþrot, seru virðist vera að ágerast. setur óhug í íólk, og Vekur ýnisar spurningar, sem vonlegt er. Væri annars ekki gerandi að stofna eitt eða fleiri embætti upp a nokkrar þúsundir króna um árið, til þess að »rannsaka« þetla vatns- hvarf eéa orsakir þess, og annað er sne.tir framtíðar-öryggi vatns-

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.