Vísir - 23.07.1914, Page 1
31
Ferðalög
og sumardvalir
í sveit takast best ef nieun
nesta sig í
Nýhöfn
Fimiud. 23. júií E9I4
Hjermeð tilkynnist að
jarðarför þorgeirs sál.
Baldvinssonar fer fram frá
líkhúsinu kl. 1. e. m. á
á morgun.
U R B Æ' N U M
Þinglýsingar.
í dag.
1. Páll Stefánsson selur 11. f. m.
Jóhanni Jóhannessyni húseignina
nr. 8 við Aðalstræti fyrir 75 000
krónur.
2. Þorvarður Porvarðsson kaupir
18. apríl þ. á. húseignina nr. 9
við Rauðarárstíg á nauðungar-
uppboöi fyrir 1700 krónur.
sm
m UTLONDUM
Sænska skáldið
Verner v. Heidenstam
hefur verið sæmdur 5000 franka
verðlaunum fyrir rit sitt um
Maríu Antoninettu Frakkadrottn-
ingu. Er þetta því meiri sæmd
fyrir hann sem þýskur visindamað-
ur hafði borðið á hann, að hann
hefði falsað söguleg brjef í bók-
inni, en Heidenstam o. fi. höfðu
hrakið þann áburð. Heidenstam
er frægastur núlifandi ljóðskálda
með Svíum. Hann hefur ort
kvæði um G u n n a r á H 1 í ð-
a r e n d a, er hann nefnir: „ Jeg
á hvergi heimangengt!“ Sögur
hans þykja snildarverk hin mestu.
y
Uilægir úr Norður-
Sljesvík
eru Danir gerðir í hópum. Harð-
ýögi þjóðverja þar er takmarka-
iaus, mennirnir reknir burt án
allra saka aðeins af því að þjóð-
verja grunaraðþeir unnimeirþjóð-
erni sínu en þýskum yfirráðum.
týskur embættismaður einn hef-
ur haft á orði, að eftir 16. ágúst
fái enginn danskur maður að
setjast að þar í landi.
Ný uppreisn f Kína.
Kínastjórnin, þjóðveldis-
stjórnin nýja, hefur nýlega skipað
‘ öll embætti mönnum af fornu
keisaraættinni og gert fleira, er
bendir á, að brátt muni þjóðveld-
ið orðið að fullkomnu einveldi.
hetta mun hafa orðið orsök þess
Weðal annars, að nú er hafin upp-
reisn mikil í Kína. í H a n k a n
°g norðan C h a n -fljóts er her
uPpreisnarmanna orðinn full 50000
^anns og streymir fjöldi manns
daglega í uppreisnarherinn. Búast
má við stórtíðindum bráðlega úr
þeirri átt.
Lssfamertn heiðraðir Iffs
og liðnir,
Edvard Grieg, norska
stórskáldinu fræga, hefur verið
nýlega reistur minnisvarði mikill
og veglegur með viðhöfn mikilli
í Brooklyn í Vesturheimi. Og
þýska skáldinu heimsfræga G e r-
hard Hauptmann, hefur
hlotnast sá fágæti heiður að vera
gerður heiðursmeðlimur
í b r u n a 1 i ð i n u í bænum
Aquetendorff, þar sem hann á
heima. Skáldið þakkaði fyrir
sæmd (!) þessa með fyndinni
ræðu.
Fjörráð við Rússakeisara
eða Frakkaforseta.
Lögreglan í bænum B e a u-
m o n t á Frakklandi tók höndum
9. þ. m. tvo rússneska sfjórnfjendur,
Kiritschek og Trojanov-
sky; hjá þeim fundust sprengikúi-
ur og skjöl er sýna, að þeir eru í
sambandi við um 20 aðra erlenda
stjórnfjendur, er nokkrir hafa verið
teknir höndum og hjá þeim
fundist bæði fje og sprengitóF
Stjórnleysingjar þessir hafa játað, að
þeir hafi ætlað með morðtólin til
Rússlands til þess að vinna á Rússa-
keisara, en margt virðist benda á,
að þessar vítisvjelar hafi verið ætlaðar
til fjörráða við P o i n c a r é Frakka-
forseta,er einmitt var von á að færi um
skammt þar frá, er stjórnfjendurnir
höfðust við. Rannsóknum er ekki
Iokið, en grunur á að hjer sje um
stórt og rækilega undirbúið samsæri
að ræða gegn öðrum hvorum þjóð-
valdanna.
Laglega skilið við
»garðana í Gröf«.
Aðfaranótt sunnudagsins 12. þ.
m. Ijet H u e r t a forseti í Mexíkó
taka af lífi 2 3 0 m e n n, þar á
meðal marga embættismenn. Rjett
á eftir fór hann frá völdum. Allar
stjórnarskýrslur hans um kosning-
ar eru sagðar falsaðar. Blóðhund-
ur þessi verður með fólki sínu flutt-
ur úr landi á bresku herskipi. —
Óljósar símfrjettir í erlendum blöð-
um segja enn all róstusamt þar í
ríkintt, en sagan um víg V i 11 a
hershöfðingja virðist afýmsum fregn-
um að dæma vera hviksaga ein.
Fallbyssubátur springur í
loft upp.
Eldur hljóp í tundurbúr kínverska
fallbyssubátsins T u n g s i 13. þ.
Fórst þar s k i p s t j ó r i n n o g
35 hásetar, — voru þeir ailir
tættir sundur. Fjöldi annara særð-
ist. Grunur á að sprengikúlu hafi
verið laumað í skipið. *
'Jtá JUyinai.
Neðri deild.
Fundur í dag.
1. m á I.
Frv. til laga um breyting á
póstlögum 16. nóv. 1907 (103);
3. umr.
Frv. satnþ. meö 15 atkv. samhlj.
og verður afgreitt til ráðherra sem
lög frá Alþingi.
2. m á 1.
Frv. til laga um breytingar á
ákvæðum siglingalaganna 22. nóv.
1913, um árekstur og björgun
(87, n. 163); 2. umr.
Breytingartillögur nefndarinnar
samþ. og frv. vísað til 3. umr.
3. m á 1.
Frv. til fjáraukalaga fyrir árin
1914 og 1915 (stj.frv.,n. 149,150,
165, 168, 169, 175); frh. 1. umr.
Pjetur Jónsson (fram-
sögumaður):
Nefndin hefur farið sem skemst
í að auka útgjöldin, hefur haft
þá stefnu að útiloka allar fjár-
beiðslur frá einstökum þingmönn-
um. þó hefur nefndin tekið til
greina fjárbeiðslur, sem alveg sjer-
staklega stóð á um, eins ogfjár-
veiting til Vífilstaðahælis, en hæl-
inu yrði að loka, ef ekki fær
það fjeð. Sama er að segja
um fjárveiting til kornforðabúrs
þessar fjárveitingar snerta ekki
i einstök kjördæmi heldur landið í
heild sinni. Nefndin hefur gefið
út sjerstaka skrá yfir fjárbeiðslur
sem hún hefur ekki tekið til
greina. — Sumar þeirra eru svo
að nefndin muni hafa tekið þau
til greina, ef nú væri reglulegt
alþingi, t. d. styrk til Magnúsar
Guðmundssonar skipasmiðs, til
utanfarar að kynnast skipasmíði.
Fjárbeiðslur til vita, að breyta
Arnarnessvitanum í blossvita og
hlaða nýjan vita á Norðfjarðar-
horni, hafa ekki fundið náð í
augum nefndarinnar. enda liggur
nú ekki fyrir neitt álit vitastjóra
um þessa vita.
Skúli Thoroddsen.
Jeg hafðijbúist við, að einhverj-
ir þeirra þingmanna, sem ráðnir
eru í því að fella frv., mundu
taka til máls- Jeg er þakklátur
stjórninni fyrir að hafa lagt þetta
frv. fyrir þingið og tel það rjetta
aðferð. En flokkur sá sem jeg
telst til, hefur nú samþykkt að
fella frv. þótt jeg þess vegna, úr
því að örlög frv. einnig eru fyr-
irfram ráðin, geti látið vera að
greiða atkvæði, þá kann jeg þó
betur við, að þeir, sem vilja stytta
frv. aldur, geri grein fyrir ástæð-
um sínum, svo að almenningi sje
ljóst, hvað hjer sje um ræða.
E i n a r A r n ó r s s o n:
Að eins lítil fyrirspurn til stjórn-
arinnar. Síðastliðinn vetur var
sett nefnd í fánamálið, nú hlýtur
sú nefnd að hafa kostað eitthvað.
Nú vil jeg spyrja stjórnina, hví
útborgunarheimild fyrir þeim
kostnaði er ekki tekin á fjár-
aukalögin?
Umboðsm. háðherra.
(Klemens Jónsson):
þessari fyrirspurn svarast svo,
að þegar fjáraukalögin voru sam-
in og borin undir konung, var
ekkert komið frá fánanefndinni
og því engan kostnað hægt að
setja í frv. Hvort við síðari
meðferð fjáraukalagafrv. kunni
að koma brtiil. um þetta efní frá
stjórninni, skal jeg ekki segja um
að svo stöddu.
Frv. felt frá 2. umr. með 10
atkv. gegn 10 að viðhöfðu nafna-
kalli.
J á sögöu:
Eggert Pálsson.
Einar Jónsson.
Guðm. Eggerz.
Hannes Hafstein.
Jóh. Eyjólfsson.
Jón Magnússon.
Magnús Kristjánsson.
Matthías Ólafsson.
Pjetur Jónsson.
Stefán Stefánsson.
N e i sögöu:
Guöm. Hannesson.
Benedikt Sveinsson.
Bjarni Jónsson.
Björn Kristjánsson.
Einar Arnórsson.
Jón á Hvanná.
Siguröur Gunnarsson.
Sveinn Björnsson.
Þórarinn Benediktsson.
Þorleifur Jónsson.
Atkvæði greiddu ekki þeir
Björn Hallsson, Hjörtur Snorra-
son, Sigurður Sigurðsson og Skúli
Thoroddsen.
4. m á I.
Frv. til laga um breyting á lög-
um um friðun fugla og eggja nr.
59, 10. nóv. 1913 (50, n. 119);
2. umr.
Vísað til 3. umr. með 14 atkv.
gegn 7.
5. mál.
Frv. til laga um breyting á
lögum nr. 64, 22. nóv. 1913, um
sjódóma og rjettarfar í sjómálum
(60, n. 151); 3. umr.
Frv. samþ. með 14 atkv. samhlj.
og afgreitt til efri deildar.
6. m á 1.
Frv. til laga um um heimild
fyrir stjórnina til þess að ábyrgj-
ast fyrir hönd landsjóös skipalán
hf.„Eimskipafjelags íslands" (118);
2. umr.
Frv. vísað til 3. unir. með 17
atkv. samhlj.