Vísir - 09.10.1914, Síða 2
VÍSIR
3fci5a^ús
Glsla Þorbjarnasonar
við Bergstaðastræti 36 fæst keypt
nú þegar, laust til íbúðar 14. niaí
n. k.
Bréf
frá Þýskalandi.
Pjóðverj’ar eru afar gramir yfir
því sem vonlegt er hvað ein-
hliða fréttir berast út um heim-
inn frá enskum og frönskum
heimildum. — Merkur borgari
hér í bæ hefir fengið bréf frá
Líibeck sem hann er beðinn að
birta kafla úr í íslensku blaði og
hefir Vísir verið beðinn að flytja
þetta, og gjörir hann það með
ánægju:
»Fréttastofa Reuters færirfljót-
ar fregnir en hlutdrægar, með þvf
að hún stendur í sambandi við
ensku stjórnina, sem með sir
Edvard Orey í broddi fylkingar
eigi að eins hefir sett allan flota
sinn í hreyfingu gegn Pýskalandi
heldur og allan frettaburð út um
víða veröld. Alstaðar þar sem
Englendingar hafa símasambönd
eða geta náð síma á sitt vald
þar breiða þeir út fréttir sem ein-
ungis eru í vil þeim sjálfum og
bandamönnum þeirra. Óförum
Englendinga, Frakka og Rússa er
leynt meðan hægt er.
Pýsk símasambönd eru slitin
og hinn risavaxni floti Englend-
inga og Frakka heldur vörð um
öll höf og tekur öll skip sem
flytja þýskar vörur eða þýskan
póst. Með því vona þeir að sér
takist að lama verslun Pýskalands
og rjúfa öll fréttasambönd við
það. En þetta mun verða til
einskis! Sannleikurinn hefir ein-
lægt að Iokum unnið bug á of-
beldi og ósvífinni undirferli. —
Enda eru menn jafnvel í Frakk-
landi og Englandi hættir að trúa
á þessa sífeldu »sigra« Frakkaog
Belgja, sem svo mikið var gum-
að af í byrjun ófriðarins. Brátt
veit öll Evrópa hvað gerst hefir
hingað til.
7. ágúst var Luttich tekin.
20. ágúst rak her krónprinsins
frá Bæjaralandi 8 hersveitir Frakka
(400,000 manns) á flótta og tók
yfir 150 fallbyssur.
22. ágúst bíður annar franskur
her ósigur fyrir her þýska krón-
prinsins við Longvy.
23. ágúst sigrar her hertogans
frá Wúrtemberg fjandmennina hjá
Neufchateau og við Maubeuge er
riddaralið Englendinga sigrað.
26. ágúst Teknar vígisborgirn-
ar Namur og Longvy.
26.—28. ágúst. Enski herinn
hjá St. Quentin sigraður.
28.—29. ágúst. Sigraður Narew-
herinn rússaeski hjá Ortelsburg
og Gilgenburg. 90 þús. Rússar
teknir höndum og 50 þús. dauð-
ir eða særðir. Að eins 1y, her-
sveit af 5 komst af austur yfir
landamærin, Öll stórskotagögn
þessara hersveita annað hvort
gerð ónýt eða tekin.
I. sepiember. Franskur her á lín-
unni milli Verdun og Rheims
(hálf miljón) sigraður.
26. ágúst til 2. september. Sjö daga
orusta milli Austurríkismanna og
Rússa á sviðinu milli Lemberg
og Lublin. Austurríkismenn sigra
á við Lublin ogSamosc en Rúss-
ar við Lemberg.
3. sept. Hinir fyrstu þýsku
flugmenn fljúga yf ir París. Franska
stjórnin yfirgefur borgina og f.yst
til Bordó. Vígin Mirgon, Mt.zí-
eres, Condé, La Feré og Laon
tekin.
5. sept. Rheims-borg tekin við-
námslaust. Ógrynni herfangs af
fallbyssum, skotfærum og flug-
vélum.
7. sept. Vígið Maubeuge gefst
upp eftir ákafa mótstöðu. 40 þús.
fangar og 400 fallbyssur falla í
hendur Þjóðverja.
10. og //. sept. Sigur Pjóöv.
yfir Njemen-her Rússa við aust-
urlandamærin.
Frá þessum atburðum hafa
ensku og frönsku fréttastofurnar
ekkert sagt í byrjun, en látið r.ér
nægja að skýra frá fransk-ensk-
um sigrum og hetjuverkum. Pað
var fyrst er franska stjórnin flutt
ist til Bordó að þær fóru að
kannast við sannleikann. — En
óannindi sín um hermdarverk í
Belgíu hafa þær ekki enn tekið
attur. Belgiskir borgarar skutu
þýska hermenn og voru skotnir
aftur, Belgir læddust út á víg-
vellina og drápu varnarlausa
særða menn og rændu þá. Þeir
fengu makleg málagjöld. Belg-
iskir borgarar gáfust upp og
drógu upp hvíta fána á hús sín
og úr þessum sömu húsum
skutu þeir þýska hermenn, þýska
lækna og hjúkrunarfólk. Auðvit-
að voru þessi hús brend til ösku
og morðingjarnir í þeim skotnir.
Belgiskar konur og stúlkur stungu
aagun úr varnarlausum særðum
mönnum og skáru þá á háls.
Gegn þessum skepnum var beitt
ströngum herréttar-refsingum.
Þetta er það sem Englendingar
kalla grimd. En um það mun
sannleikurinn síðar breiðast út
um allan heim.
ágætt til söluódýrt.
Afgr. Vísis vísar á.
Til sölu
byggingarlóðir á bestu stöðum
í bænum.
G-ísli Þorbjarnarson.
t
hjá
EYV. ÁRNASYNI, Laufásveg 2.
Til sölu
stærri og smærri íbúðarhús við
12 helstu götur bæjarins.
Grísli Þoibjarnarson.
Ofriðurinn
og
V
Islendingar.
Ekki alls fyrir löngu rrátti sjá
hverja greinina á fætur annari í
Vísi og fleiri blöðum um það,
hversu sjálfsagt væri, að íslending-
ar héldi sér hlutlausum í ófriðnum,
og að blöðin mætti eigi draga taum
einnar þjóðar, eða hailmæla annari.
Þó að greinir þessar væri birlar
í nafni réttlætis og sakleysis, þá
leyndi sér þó ekki, að þær voru
allar bornar fram Þjóðverjum til
varnar, enda hefir stungið svo í stúf,
að Vísir og fleiri blöð leggja nú
það eitt til málanna, að vefengja
staðfestar frásagnir um framgang
bandamanna og hossa hviksögum,
sem Þjóðverjar dreifa út um »sigra«
sína.
En það er hljótt um »hlutleys-
ingjana* síðan. Þeir þurfa eigi
lengur að brýna landann að gæta
»velsæmisins«. Þar sést alvaran og
óhlutdœgnin, sem verið hefir í
skrafi þeirra!
Stjórnleysi og stjórnarskrá.
Þótt eg geti verið greindum blaða-
mönnum samdóma um það, að ís-
landi ætti að vera meinlaust þó að
deilur stórveldanna væri látnar hlut-
lausar í blöðum vorum, þá virðist
mér þó engin ástæða til þess, að
banna umræður um þær, Eg er
með öliu ósnortinn af hlutleysis-
skrafi þessara manna, bæði af því
að tilgangur þeirra er bersýnilega
engi annar en sá, að fá næði til
þess að halla réttu máli, og eins
vegna þess, að eg sé alls ekkert at-
hugavert við það, þótt frjáls þjóð
leyfi sér að láta í Ijós skoðan á
slíkum deilum, sem nú eru uppi,
deilum um það, hvort gap^ýki eða
jöfnuður eigi að ráða í Norðurálf-
unni. Það væri og hreini og beint
stjórnarskrárbrot, ef banna ætti um-
ræður um þetta, því að í stjórnar-
skránni stendur, að ekki megi banna
landsmönnum að setja fram skoð-
anir sínar opinberlega, um hvaða
efni sem vera skal.
Þeir sem hæst hafa látið um hlut-
leysið, hafa sjálfir brotið það, og
gert tilraun til þess að brjóta stjórn-
arskrána. Þeim til afsökunar má
þó geta þess, að síðara atriðið
inunu þeir meira hafa gert af fálmi
og fávisku, en af ásettu ráði.
Um hvað er barist?
Það er vel hægt að komast að
raun um, um hvað barist er og
gera það Ijóst í færri oröum en
heilli skáldsögu, svo sem Zúrich-
leirskáidið hefir þurft til þess, að
eigin dómi. Sú bók er ágætt dæmi
um málarekstur Þjóðverja og mál-
stað, hversu þeir þurfa að hafa öll
spjót úti til þess, að afsaka sjálfa
sig og breiða út óhróður um mót-
stöðumenn sína. Þeir standa einir
uppi í jieim vopnaburði, en þessar
og því líkar endalausar afsakanir
eru óneitanlega eitthvað grunsam-
ar, því að »sá sem afsakar sig —
ásakar sig«.
Sú styrjöld, sem nú stendur yfir,
er háð um það, hvort »jafnvægið«
3
JSÉ
:0
“O
E
«0
'>
KO
(ð
u
O
J2
(ð
0)
bfl
bfl
O
PS
E
v
IA
V ÓRUHÚSIÐ
hefir óefað. slærsta og smekklcgasta úrval í bænum af
alfataefnum, yfirfrakka- og buxnaefn-
um, margar teg. af biáum og svörtum
efnum, hvítum og nsisl. vestisefnum.
10-20 ^
afsláttur
mót peningum út í hönd.
Frágangur hinn
vandaðastí,
Panfanir afgreiddar á 1—2 dögum.
Reynið og þið munuð sannfærast um, að
hvergi er betra að fá sér föt en í
VÖRUHÚSINU
3
C
V)
>■3
J=
3
L.
!0
>
(A
ns
u
U
^O
M
a
3
«
Hin alþektu Iðunnar-tau seijast með versmiðjuverði
frá 3,80—8,00 l:r. pr. meter. í
YÖETJHtíSIOT.