Vísir - 13.10.1914, Page 1
V I S I R
kemur út kl. 8]/2 árdegis
hvern virkan dag.—Skrif-
stofa og afgreiðsla Austur-
str.14. Opin kl. 7 árd. til 8
síðd. Sími 400.—Riístjói, :
GunnarSigurBsson(fráSela-
læk). Til viöt venjul. kl.2-3 siðd.
1193
V I S I R
l) Stærsta, besta og ódýrasta
| blað á íslenska tungu.
Um 500 tölublöð um árið.
Verð innanlands: Einstök
blöð 3 au. MánuðuröCau
Ársfj.kr.1,75. Arg.kr.7.oo.
Erl. kr. 9,oo eða 2V2 doll.
Þriðjud. 13. okt. 1914;
‘Jvá \n^\)eW\nwm
Vísir hefir fengið »The Times
Weekly«, frá 2. þ. m. og eru það-
en teknar fregnir þær, sern hér fara
á eftir.
Manntjón Þjóðverja fyrsta
mánuðinn.
Rotterdam 29. september.
Eg hefi nú séð 36. skrána um
manntjón Þjóðverja. Nær hún til
byrjunar septembermánaðar. Alls
voru þá fallnar af þeim eitt hundr-
að og sautján þúsundir manna.
Ótalið er þar alt, sem fallið hefir í
septembermánuði bæði eystra og
vestra.
Meir en 200 þúsundir vígra
Þjóðverja fjarstaddir.
Spánverskt skip kom nýlega með
tvö hundruð frakkneska hermenn frá
Mexiko. Um sama leyti ætluðu 160
Þjóðverjar að komast þaðan til þess
að taka þátt í ófriðnum, en ensk
herskip hömluðu ferð þeirra.
Sagt er, að alls muni nær tvö
hundruð þúsundir vígra Þjóðverja
dveljast í ýmsum löndum, er ekki
ná að komast heim. Láta Englend-
ingST- mikið yfir sér að geta stemt
stigu fyrir mönnum þessum; það sé
á við stórsigur á vígvelli að svifta
Þýskaland þessum liðstyrk, en kosti
Breta ekki annað en árvekni og at-
hugun.
*Á jólum í Berlín«.
Rennenkampf yfirhershöfðingi
Rússa í Póllandi hélt nýlega ræðu
ti! þess að telja kjark í lið sitt og
undirforinga. »Verið hugrakkir«,
mælti hann, »á jólum verðum vér
í Berlín*.
»Á jólum, svo erum vér á Hól-
um«, mælti Jón Arason forðum.
Það brást. — Eins kynni að fara
um spásögn Rússans.
Þjóðverjar í Valenciennes.
Hólf önnur miljón franka í
herskatt.
Boulogne 25. sept.
Flóttamenn frá Valenciennes komu
hingaö í gær og segja þeir, að
mikill fjöldi þýskra hermanna hafi
tekið borgina á vald sitt. Sumir
segja að þeir séu 6 þúsundir, aðrir
nær 12. Allir stigir eru stemdir
og enginn má fara ferða sinna án
orlofs. Herinn hefir lagt skatt á
borgina, sem nemur hálfri annari
miljón franka. Ef féð verður ekki
greitt innan sjö daga er hótað
meiri afarkostum.
Árás á Antwerpen.
Antwerpen 30. sept.
Ekki verður með vissu sagt, hvort
skothríð sú, sem nú er hafin, er
fyrirboði þess, að Þjóðverjar ætli
að láta til skarar skríða og Ieggja
undir sig borgina, en víst er um
það, að skothríðin er sýnu harðari
í dag en í gær. Þá var skotunum
að mestu beint á tvö vígi fyrir
sunnan borgina, Waelhem og Wavre.
í gær var skotið úr 28 senti-
metra fallbyssum (að hlaupvídd)i
Skothríðin hætti stundu fyrir mið-
aftan.
í dag hefir hríð verið gerð að
fleirum vígjum. Virðast nú stærri
fallbyssur hafðar, 42 sentimetra.
Er giskað á, að skotið sé úr þeim
á 12 rasta færi, eða jafnvel fullra
15 rasta sumstaðar.
Skeytin eru ógurleg og hafa
valdið miklu tjóni í bygðinni um-
hverfis vígin, en ekkert vígið hefir
laskast til muna.
Flokkar fótgönguliðs hafa gert
tvenn hörð áhlaup í dag milli virkj-
anna og höföu þeir stórskotalið
með vélbyssum að baki sér. En
áhlaupunum var hrundið og biðu
Þjóðverjar allmikið tjón.
Þrátt fyrir árásir þessar er her
Belgja öruggur og borgarlýður
ekki mjög óttasleginn.
»Ceres« kom í fyrra dag aust-
an um Iand frá útlöndum. Meðal
farþega: Guðrún Jónasson kaupk.
frá Vesturheimi, Kirk verkfræðing-
ur, Jakob Einarsson stud., Snorri
Halldórsson stud., Hjörtur Fjeld-
sted kaupm., Þórður Stefánsson
snikkari frá Kaupmannnhöfn, Stein-
dór Gunnarsson prentari, Einar
Einarsson brúarsmiður, Sigurjón
Jónsson kennari o. fl. Ur Vest-
mannaeyjum kaupmennirnir: Gunn-
ar Ólafsson og Anton Bjarnason.
Kampavín heitir ágætt kvæði
eftir Sigurð Slembi, sem Vísir
fiytur á morgun.
Atlantis verður sýnd í síðasta
sinn í kvöld. Fáar myndir hafa
verið sýndar eins oft og þessi mynd.
Gestir í bænum. GesturáHæli,
sr. Ófeigur í Fellsmúla og Gunn-
laugur á Kiðabergi.
Nýja bakaríið.
---- Frh.
»Auðfundið að hér er þó unn-
ið«, sagði doktorinn.
»Ojá, okkur finst þeir ekki teknir
út með sitjandi sældinni hveiti-
brauðsdagarnir svarna*, sagöi Jón
og leit til Odds, um leið og hann
V í S I R
kemur út kl. 8]/2 árdegis
hvern virkan dag.—Skrif-
stofa og afgreiðsla Austur-
str.14. Opin kl. 7 árd. til 8
síðd. Sími 400.—Ritstjói. :
GunnarSigurBsson(fráSela-
læk). Til viðt venjul. kl.2-3 siðd.
hristi mesta deigið af höndunum
og þurkaði framan úr sér með
svuntuhorninu.
»Hlauptu eftir vatni í þessar
skjólur, Þorkell; deigið er að verða
of þykt«, sagði Oddur, ýtti frá sér
deigtroginu og settist upp á mjöl-
kistuna og biés mæðilega.
»Skárri er það nú andsk. vatns-
gangurinn*, svaraði Þorkell og yfti
öxlum. »Þú nennir aldrei að hræra
deigið nema að það sé lapþunu.
Hann þreif síðan tvær fjórðungs-
fötur og vatnsbera og þrammaði
út.
»Stingtu þessu inn í ofninn, stúf-
urinn«, sagði Jón um leið og hann
rétti Jóhanni brauðaflota allmikinn.
Jóhann tók flotann, lét hann inn
í ofmnn og kallaði til Trausta, sem
sat þar á kolabyng skamt frá: »Ætl-
arðu að láta eldinn drepast? Þetta
eldhús er ekki ætlað til þess að
skrifa »rómana« í«.
Trausti hrökk viö, misti handritið
og blýantinn ofan í bynginn, síð-
an tvíhenti hann kolarekuna og jós
kolum á eldinn af mikilli grimd og
harðneskju.
»Nóg af svo góðu«, sagði dokt-
orinn, sló út hendinni og snar-
aðist út.
»Að eins ein deild eftir, köku-
búðin*, og hann hljóp upp stigann.
Útbo
Þeir sem vilja taka að sér affermingu á nál. 900 smálestum af korn-
vðrum og kaffi, svo og 700 fðfum af steinolfu úr gufuskipinu Hermod, sem
væntanlegur er hingað 16.—18. þ. m.p sendi tilboð sín til stjórnarráðsins í síð-
asta lagi fimtudaginn 15. þ. m. Vörunum (nema steinolfunni) verður komið
fyrir í hinu nýbygða steinsteypuhúsi herra Thor Jensens.
Stjórnarráðið.