Vísir - 15.10.1914, Blaðsíða 2

Vísir - 15.10.1914, Blaðsíða 2
v i s i r< Til Guðm. Björnssonar á 50 ára afmæíisdaginn. Kveðjur frá skáidunum Guðm. Guðmundssyni og Guðm. F-ílagnússyni. Fimtíu ára! — Kveðju kæra konan góða, vor allra móðir, flytur syni, er fagrar vonir færir henni, sem manninn kennir: Langrýn hygni, hagsýn lægni henni’ er þörfust í vandastörfum. Vertu lengi á landsins þingi líf og sálin í vandamálum! Kliðinn snjalla, — háa, hvella hljóma láttu á þingi óma, rökin gjalla, skotin skella, skúma’ og lóma keyrðu’ í dróma, spóa alla* er úti vella innantóma í fölskum ljóma láttu falla, og foldu svella fagna blóma réttra dóma! 0, Q. þú hefir enga þreytu sýnt þrátt fyrir hríðir kaldar. þar hefir að eins þróttinn brýnt þrælkun hálfrar aldar. Málmur sá, sem í þér er, ei hefir verið deigur. Enn hann hverja öldu sker eins og drekafleygur. Orðstír þinn og heiður hár hærra fjöllum gengur fimtíu sinnum fimtíu ár og fimtíu sinnum lengur. G. M. Jörundur Brynjólfsson og Stgr. Arason : Reikningsbók handa alþýðuskólum. Rv. 1914. Dagbók úr þýskum herbúðum. 25. sept. Enskt loftskip ferst. Rotterdam 24. sept. 2 ensk loftskip flugu yfir Kanal- inn og komust til Ostende. Ann- að fórst skömmu síðar; hitt hvarf í áttina til Frakklandsstranda og vita menn ekkert um það síðan. 400 Austurríkismenn gegn 2000 Rússum. Wien 24. sept. Wilhelms fréttastofa birtir bréf frá særöum riöilsstjóra. Bréfið segir frá atviki, sem ljóslega sýnir, hví- líkum eldmóði hinar austurrísku hersveitir eru gæddar. 400 Aust- urríkismenn réðust á 2000 Rússa með byssustingjum. Með dæma- fárri hreysti neyddu þeir Rússa til að gefast upp og hertóku þá síð- an. Einn af rússnesku foringjun- um á að hafa sagt: »Ef eg hefði að eins haft lítinn flokk slíkra her- manna, þá hefðuð þið ekki sigrað okkur*. Frá Serbíu. Sagt er, að blöðin í Serbíu séu nú loksins hætt að flytja sigurfréttir, sem þau áður hafa ausið yfir land og þjóð. Þau sjá sér eigi lengur fært að kasta ryki í augu fólks. Vonleysi virðist breiðast út meðal þjóðarinnar. Kólera í Serbíu. Eins og áður hefir verið getið hefir kólera verið að stinga sér niður í Serbíu. Nú hefir hún magn- ast svo, að fjöldi manns flýr úr borgunum. Sagt er, að stjórnin hafi í hyggju að flytja frá Ueskúb. Belgiskir hermenn í þýsku nunnuklaustri. Belgiskir hermenn réðust inn í þýskt nunnuklaustur og tóku 40 manns til fanga, sem átti að fiytja yfir landamærin. Orsök ofbeldis- verksins kvað vera sú, að nunna ein hafði skorað á mann nokkurn, að biðja fyrir Þýskalandskeisara en ekki Belgíukonungi. Eitt af þýsku blöðunum skrifar 'anga grein með fyrirsögninui »Vei þér England*. í þeirri grein stend- ur meðal annars: »England hlýtur aö tapa vegna þess, að það hefir 3 hættulega galla: 1) það svíkur vini sína, 2) það spiliir sínum eigin áhugamálum og 3) það sýnir heim- inum sfnar veiku hliðar. Sagt er, að stjórnin í Rúmeníu hafi pantað 100 miljónir skothylkja frá Ítalíu. Frakkland og Rússiand hafa pantað 6 milj, hestajárn frá Pitsburg í Ameríku. Hræðsla vlð Ioftskip í London. í annað sinn hefir verið gefin út skipun í London, að ekki mætti loga á Ijóskerum vegna hættu, sem stafað geti af þýskum loftskipum. Jón Jónasson. Lei ðréttingar nokkurra mállýta. Rvík 1914. Þetta litla kver er orðasafn með á að giska 7—800 algengum mál- villum og úílenskuslettum og rétta þýðingu á þeim. Hafði Jón heit. Jónasson skólastjóri í Hafnarfirði tekið það saman áður en hann dó en ýmsir íslenskufróðir menn hafa farið yfir það, áður en það kom út. — Hugmyndin að þessu orðasafni er góð, og er líklegt að það verði til þess að kenna mörgum réttara mál en þeir nú tala, er þeir eiga þess kost að grípa til þessa kvers.«- Auðvitað mætti tína til margfalt fleiri mállýti, eins og höfundur bendir á, en segja má, að þetta sé góð byrjun og þörf, og er æskilegt að sem flestir noti tækifærið og fái sér kverið. Þessi reikningsbók er eingöngu sniðin eftir hinu nýja tugamáli, og er það mikilvæg og sjálfsögð endur- bót í stað þess að vera að láta börn stagla í máli og vog, sem hvergi tíðkast í heiminum lengur, Það er slæmt til þess að vita, hvað menn eru alment tregir til þess að hætta við gamla danska málið, eins og hið nýja er þó margfalt einfald- ara og léttara. Vissasti vegurinn til að uppræta hið gamla er auðvitað sá að Iáta það aldrei koma fyrir augu barnanna. Um nothæfi bók- arinnar verður reynslan að fella úr- skurð, en fljótt álitið virðist bókin viðfeldin og vel úr garði gerð. Urval af rammalistnm hjá EYV. ÁRNASYNI, Laufásveg 2. Bogi Brynjölfsson yfirrjettarmálaflutningsmaður, er f I u tt u r í Aðalstræti 6 (uppi). Venjulega heima kl. 12—1 og 4—6 síðd. Talsíml 250. GÆRUR keyptar hæsta verði hjá TSovJas$tv\ Det kgl. octr. Brandassurance Comp. Vátryggir: Hús, húsgögn, vörur alskonar o. fl. Skrifstofutími 12-1 og4-5. Austurstr.l pr. J. P. T. Bryde N. B. Nielsen. Olgeir Friðgeirsson Afgreiðslan á skrifstofunni í Miðstræti 10 veröur fyrst um sinn opin frá kl. IU/2— 3. Margaríne ágætt nýkomið 1 versl. £u§m Ölsetv., "KaJJv (brent og óbrent) er best að kaupa í versl. BEEIÐABLIE Lækjargötu 10 B. Járn- tunna afbragðs olíu-ílát með koparkrana sem tekur 140 lítra er til sölu. Afgr. v. á. OSTAR margar teg. sérstaklega ódýrir nýkomnir í versl. (steamkolin) hjá ^ölutvöv öe^ se,íast mes^. eru Breiðablík.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.