Vísir - 15.10.1914, Síða 3

Vísir - 15.10.1914, Síða 3
VÍSIR M M M i M M Dömuklæðið góða er komið afíur í jWstwsfcrætt Ásg, G, Gunnlaugsson &Co. 4* w :mc Broderingar og allskonar Smávörur eru komuar í feikna miklu úrvali í AUSTTJBSTEÆTI 1. V S- S^^auasson & Co. -----------------"'VTilsTi- OTO— ***__....... Massage-iæknir Guðm. Pétursson Garðas/ræti 4. Heima kl. 6—7e. h. Sími 394. Sendið allarauglýs- ingar eins tíman- Iega og hægt er. Námsskeið fyrir stulkur held eg undirrituð næstkomandi vetur eins og að undanförnu. Um ýmsar námsgreinar verður að velja, svo sem íslensku, dönsku og ensku (kent að skilja, tala og skrifa bæði málin), skrift, reikning, bókfærslu, landafræði, sögu, heilsufræðí, söng og ýmiskonar handavinnu. Náms- skeiðið byrjar 15. okt. og endar 15. maí og fer kenslan fram síðari hluta dags. > Hólmfríður Arnadóttir Hverfisgötu 50 (áður 12) hús Garðars Gíslasonar (að hitta kl. 4-5 síðd.) Vísir Vísir Vísir ER AREIÐANLEGA FJOLBREYTT- ASTA BLAÐ LANDSINS AÐ EFNI. FLYTUR NÝJUSTU OG ÁREIÐAN- LEGUSTU FRÉTTIR FRÁ STYRJ- ÖLDINNI. ER STUDDUR AF HELSTU SKÁLDUM OG RITHÖFUNDUM LANDSINS MEÐ KVÆÐUM OG RITGJÖRÐUM. ER EINA BLAÐIÐ SEM GETUR SANNAÐ AÐ þAÐ HAFI-LANG MESTA ÚTBREIÐSLU í REYKJAVÍK, AUK STÖÐUGT V A X A N D I ÚT- BREIÐSLU UM LAND ALT. Allir auglýsa því í Vísi sir ER LANG ÓDÝRAST A BLAÐIÐ SEM GEFIÐ ER ÚT Á LANDINU EFTIR BLAÐAFJÖLDA. Allir verða að kaupa Vísi Nýir kaupendur fá blaðið ókeypis til mánaðar- móta, og þar að auki sérprentun af hinni ágætu húskveðju séra Magnúsar Helgason- ar yfir Þorsteini Erlingssyni. 9 1$ alþektu, margar tegundir, með ýmsu verði ætið fyrirliggjandi hjá Jóni Sigmundssyni, gullsmið. Laugaveg 8. Fallegi hvíti púkinii. • Eftir Guy Boothby. Frh. Við stóðum því upp og fórum út með henni út fyrir flötina í rjóðr- ið í kjarrskóginum, þar sem eg sagði henni frá ást minni daginn áður. Hún ntælti fátt eða ekkert á leið- inni, og er hún sneri sér við og bauð okkur að sitja, var sami hörku- svipurinn á andliti hennar sem þeg- ar hún dæmdi Kwong Fung til dauða á veggsvölunum fyrir 2 mán- uðum iúmum. »Herrar mínirl* tók húntilmáls. »Eg hef kvatt ykkur hingað á ráð- stefnu í hinu mikilvægasta vanda- máli — Dr. de Normanville, áður en eg vík að aðalefninu, ætla eg að geta þess, að eg hef haft frá- bærilega gott tækifæri til þess að kynnast skapferli yðar, svo sein þér hafiö fengið tækifæri til þess að kynnast mér. Víst vitið þér hve högum mínum er háttað, en hinu má ekki gleyma, að þér eruð hér aðeins sem gestur. — Þess vegna gef eg yður fararleyfi ef þér óskið þess, áður en þér fáið nokkuð frek- ara að vita. En á hinn bóginn full- vissa eg yður um það, að eg er yður mjög þakklát, ef þér viljið ieyfa mér að njóta ráða yðar. Þér, Walworth, hafið verið fulltrúi minn og trúnaðarmaður um mörg iiðin ár, og betri mann gæti eg ekki kosið mér. Eg bíð nú ákvörðunar yðar, læknir.« Hún horfði fast og hvast á mig °g eg fór að renna grun í hvar fiskur lá undir steini. »Leyfið mér að vera ráðanautur yðar,« mælti eg skýrt og hátt. »Eg held þér vitið, að þér megið bera ótakmarkað traust til mín.« »Þess er eg fullviss,* svaraði hún hátíðlega og að svo mæltu dró hún upp úr vasa sínum bréfið sem hún féklc um morguninn. »Þetta bréf«, mælti hún, »er irá manni í Singapore, sem eg hef alira fylstu ástæðu til þess að rengja ekki á nokkurn hátt. Hann segir, að umboðsmaður minn þar, — trúnaðarmaður minn, sem eg hef hingað til borið ótakmarkað traust til, — sein eg hef bjargað frá að verða öreigi og það sem meira er, — á mér og göfuglyndi mínu líf sitt að þakka, — þessi góði mað- ur er að hugsa um að selja mig í hendur bresku yfirvaldanna. Bréf- ritarinn, sem er í hárri stöðu í Sunda-nýlendunum, segir mér að þessi ragi svikari hafi þegar gefið stjórnarvöldunum í skyn, að hann sjái sér færi á að koma til ieiðar þessu langþráða stefnumóti með mér og stjórninni. Hann semur að- eins um þetta á Iaun, eftir um- mæium hans að dæma, því hann er milli tveggja elda þar sem eg er annars vegar, og vegna þess fer hann fram á að fá tvöfalt fé það er lagt er til höfuðs mér. En stjórn- arvöldin, — og sá er skrifar mér þetta, er einn þeirra, — hafa beð- ið hann að bíða þangað til nýr breskur flotaforingi kemur, sem von er á til Singapore, snemma í næsta mánuði á leið til Hong Kong. Jafn- skjótt sem hann kemur verður mað- ur þessi yfirheyrður formlega og tekið til alvarlegra starfa, — gang- skör gerð að því að Iosa veröldina við illræmda hvíta púkann.« »Svikarinn, — þorparinn, — sá skal fá makleg málagjöld !« ískraði í Walworth og hann gnísti tönn- um. Eg þagði eins og þorskur. En ef til viil var eg eins og ugian og hugsaði því fleira. Að ininsta kosti fullvissaði eg sjálfan mig um það í hljóði tneðan eg hélt niðri í mér andanum, að þessum þræl yrði það enginn auðnuvegur, ef eg næði tök- um á honum. Og er eg leit snöggv- ast framan í Alie, þóttist eg sjá, að ekki væri honum betur borgið, ef hann gengi í greipar henni. — Hún vakti aftur máls: »Eg get samt huggað mig við eitt«, mælti húu, »og það er, að naumast er líklegt, að þessi maður ljósti því upp, að hann hafi verið umboðsmaður minn síðastliðin fimm ár, og þess vegna getur hann ekki borið vitni nema eftir sögusögn annara. Hitt væri honum sjálfum verst.« »Það má til að koma í veg fyr- ir að hann beri nokkurt vitni!« hrópaði Walworth, og leit á hana allhvast.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.