Vísir - 08.11.1914, Blaðsíða 2
Vis 1R
ló 6m; fi&ssa
kaupit1
}W5ttvstt3ttvevfcsnú3\att 3stanA
Gefjunardfikar komnif. Árni & Bjarni, Laugaveg 5.
Gefjt mardúkar
komu með s.s. FLÓRU til H. Andersens & Sön. (Aðalstræti 16).
Tvö her' Graðm. Om bÍört °& rúmgóð, hentug lirj y |. fyrir skrifstofur, eru til / leigu við Lækjargötu. Gramalíelsson.
Anton Jurgens
margaríne-
verksmiðjur,
Oss, Hollandl.
Slærsla margaríneverksmiðja í
tvrópu. Afgreiðir eins og vana-
lega fljótt via Leith eða Kaup-
mannahöfn og gjaldfrestur veitt-
ur eins og undanfarið. Merki
verksmiðjunnar eru H E D C
og verða frá næstu áramótum
og framvegis stimpluð með fullu
nafni verksmiðjunnar til þess að
hægt verði að þekkja þau frá
eftirlíkingum.
Aðeins selt til kaupmanna.
Umboðsmaður fyrir ísland og
Færeyjar:
Templarasundi 5, Reykjavík.
Frá vfgvellinum.
Þýsk herdeild eyðilögð,
Franska blaðiö »Joutnal« segir
svo frá, að þýsk herdeild hafi verið
nálega strádrepin, er hún hugðist að
hafa tekið Dixmuide. Blaðinu far-
ast þannig orð:
»Til þess að narra Þjóðverja til
Dixmuide létust frönsku og ensku
herdeildirnar hafa yfirgefið borgina.
Bragðið hepnaðist betur en menn
höfðu gert sér hugmynd um, því
þegar Þjóðverjar urðu ekki lengur
varir neinnar mótstöðu, tóku þeir
að nálgast borgina, og seinni hluta
dags var þegar ein herdeild komin
að hliðunum. Þeir sáu hvorki Belga,
Frakka né Engiendinga.
Þjóöverjar ásettu sér því að setj-
ast í bæinn, og gengu, eflir vanda
sínum, með hornablæstri og bumbu-
slætti inn í hann.
En þegar þeir voru komnir inn
í eina aðalgötuna var snögglega skot-
ið á þá frá ölltim hliðum úr vél-
byssum sem faldar höföu verið
í húsum umhverfis.
Þjóðverjar urðu gripnir af hinni
ógurlegustu skelfingu, og reyndu að
forða sét hver sem betur gat — um
vörn var ekki að tala — en kúlna-
regnið dundi á þeim hvaðanæfa.
Það var brátt hætt að skjóta á þá,
en hermennirnir sem faldir voru í
húsunum gengu nú að þeim Þjóð-
verjum sem eftir lifðu og hugðust
að vinna á þeim með byssustingj-
um, en þá köstuðu Þjóðverjar vopn-
um sínum og gáfust upp.
Manntjón Þjóðverja.
Símskeyti frá Berlin til blaðs eins
í Zúrich greinir frá að 15. manns-
fallslisti Þjóðverja sé kominn fyrir
almennings sjónir. Þar er skýrt frá
að manntjón Þjóðverja fyrstu 6 vik-
ur ófriðarins hafi verið 251 þús.;
sem sé:
Fallnir 36,531
Særðir 153,165
Saknað 55,522
(týndir og handteknir)
Meðal hinna föllnu er 2,385 liðs-
foringjar.
100,000 Austurrískir fangar,
Frá því ófriöurinn byrjaði hafa
liðlega 100 þús. Austurríkismerín
verið tluttir sem herfangar til Kietf.
Hvernig enskir sjóhermenn
berjast.
Fregnriti >Chicago Daily News«,
sem nú er í Flandern segir svofrá:
Meðan eg var að athuga orust-
una, kom til mín belgiskur höfuös-
rnaður sem sagði mér frá enskuin
liðsforingja er hefði nýlega koniíð
í Jand af herskipi er lá nálægt
ströndinni. Liðsforinginn kom í
land með 20 menn og 3 vél-
byssur. Þegar hann kom til Nieu-
port sá hann að Belgar höfðu beð-
ið mikið tjón að því er aðstööu
snertir við að hafa tapað bærr-
um Grootebamberge, þá um morg-
uninn. Hann réðist því með hina
20 menn sína beint að skotgröfum
Þjóðverja, en þangað var yfir all-
langt svæði að fara og kúlurnar
dundu eins og hagl. Sjónarvottar
segja að hann hafi gengið eins ró-
Iega og hann væri á skemtigöngu,
kallað fyrirskipanir til manna sinnn,
og gefið þeim merki með benu-
ingum.
Árangurslaust kallaði belgiski liös-
foringinn til Englendingsins, aö
Þjóðverjar væru mannmargir fyrir,
og annaðhvort hefir hann ekki
heyrt það, eða ásett sér að vinna
staðinn hvað sem það kostaði. Þeg
ar hann var 50 metra frá takmark-
inu fell hann dauður niður, kt u
hafði hitt hann á milli augnanna.
Menn hans létu þá undansíga,tóku
þeir byssurnar með sér og endur-
minningarnar um hetjuna sem falliö
hefði fyrir augum þeirra.
Foringinn hét Wiser.
Kóleru gerlar í vatnsflöskum.
Blaðið »Army Messenger* stað-
hæfir að þýska herliðið láti undan
síga frá Mlava og Vetzlaosk í átt-
ina til Austur-Prússlands, og íbúun-
um þar sagt að flýja lengra inn í
land. Þýska liðið sem er á und-
anhaldi frá Warsjá til Vien eyði-
leggur járnbrautir og brýr þar sem
það fer yfir.
Á vestri bakka San fljótsins hafa
fundist vatnsflöskur með kólerugerl-
um, er Austurríkismenn höfðu skil-
ið eftir og ætlað Rússum að glæp-
ast á.
5. þ. m.
----- Frh.
8. Áœtlun um tekjur og gjöld
hafnarsjóðs Reykjavíkur fyrir árið
1913. 1. umr. lesin og vísað til
2. umr.
(í henni er gert ráð fyrir, að 800
þús. kr; gangi til hafnargerðarinn-
ar á næsta ári).
9. Fjárhagsáœtlun bœjarins nœsla
ár- 1. umræða.
Borgarstjóri kvaðst ekki ætla að
tala um, hvernig fjárhagurinn væri
eða mundi verða, heldur hvað hefði
vakað fyrir fjárhagsnefndinni, þeg-
ar hún samdi áætlun þessa, sem
væri að fá tekjurnar það auknar,
að eigi þyrfti að taka lán til eyðslu-
fjárs fyrir bæirin, heldur íáía tekjur
og gjöld standast á hvað það
snerti, ef auðið væri. Þar af leið-
andi væri tekjuliður 26 (niöurjöfn-
un eftir efnum og ástæðum) svo
hár. Nú væri hann áætlaður 178,
594 kr. 59 au., í ár hafi hann verið
141,744 kr. 53 au. eða nú um
37 þús. kr. hærri. Þetta væri mikil
hækkun, en þó nauðsynleg til að
standast aukin (og ekki aukin) út-
gjöld. Gjaldliður 20 b til þurfa-
manna eldri en 16 ára væri áætlað-
ur nú 60 þús. kr., í ár 43 þús.
kr. eða 17 þús. kr. hærri nú. Þó
væri þessi iiöur ekki áætlaöur hærri
en hann yrði í ár, þar eð þegar
væru útborgaðar 50 þús, kr„ og
líkur til hann verði 60 þús. áður
en tímabilinu er Iokið.
Gjaldl. 21 (til þurfamanna ann-
ara sveita) hækkaður úr 10 þús. upp
f 15 þús. kr.
Gjaldl. 22 nýr (bjargráðagjald)
3,500 kr.
I Tekjuhalli á reikningi 1913 kr.
j 23540,14, þar af ný viðbót fullar
i 13 þús. Þó þessar tölur væru
' lagðar saman mundi komin fylli-
lega sú fjárhæð, er aukning útsvara
nemur.
En bæði þessa og aðra gjalda-
liöi á áætluninni hefir nefndin sett
svo Iága, sem hún sá sér frekast
fært.
Tekjuhallar fyrri ára hafa jafnan
verið borgaðir með nýjum lánum.
Því vill nefndin kippa í lag með
því að auka tekjurnar, en þær, því
ver, ekki hægt að auka af öðrum
tekjuliðúm en útsvörum bæjar-
manna. Nokkrir fleiri gjaldliðir hefðu
hækkað t. d. til barnaskóla Reykja-
víkur um 3,200 kr. Væri það af-
leiðing af fjölgun kennara, er ó-
hjákvæmileg væri vegna aukningar
skólans ár frá ári.
En nækkun á þeim gjaldliöum
væri ekki fram yfir auknar tekjur
á öðrum tekjuliðum (að frátekinni
aukningu útsvara).
Hvort dregið væri úr aukningu
gasstöðvarinnar eða fjárframlögum
til holræsagerða hefði engin áhrif
á útsvörin. Það fé, sem til þessa
yrði varið, yrði aö fá til láns. Út-
litið nú væri eigi gott fyrir mörg-
um af almenningi. Þá vantaði
vinnu og eynid fáfæklinga yrði við
það meiri og annara ástæður þyngri.
Hvar fé fengist til nýrra lána væri
ekki að svo stöddu hægt að
benda á.
Skuldir bæjarins væru nú um
1 Vs miljón. Þessi lán hafa undan-
farið staðið nær afborgunarlaus;
nú fyrst væri gjaldlið (26) til vaxta
og afborgunar af lánum þessum
skift í tvent, afborgun og vextir.
Afborgunin væri að þessu sinni
ákveðin að eins 3°fn af upphæð
lánanna. Það fé, sem fæst fyrir
sölu lóða og fasteigna taldi fjár-
hagsn. rangt að hafa fyrir eyðslufé
eins og gert hefir verið. Eignir
bæjarins yrðu með því gerðar að
engu; nú ætti að taka það fé til
afborgunar á lánum.
Ath.semdum við áætlunina var
ekki hægt að koma fyrir þennan
fund, en verða sendar fulltrúunum
fyrir næsta fund.
bæjarstiórnarfuiidi