Vísir - 11.11.1914, Page 1
V í S I R
Stærsta, besta og ódýrasta
blað á íslenska tungu.
Um 500 tölublöð um árið.
Verð innanlands: Einstök
blöð 3 au. MánuðuróCau
Ársií.kr.t,75. Arg.kr.7.oo.
Erl. kr. 9,oo eða 2l/2 doll.
V I S I R
kemur út kl. 12 á hádegi
hvern virkan dag.~ Skrit-
stofa og afgreiðsla Austur-
str.14. Opin kl. 7 árd. til 8
síðd. Sími 400.—Ritstjóri:
GunnarSigurðsson(fráSela-
læk). Til viðt venjtil. kl.2-3 siðd.
Miðvikud. 11. nóv. 1914.
Háflóð árd. ki. 11,16 síðd. kl. 11,39.
Afmæli á morgun:
Magnús Helgason skólastjóri.
Lárus Lárusson kaupm.
Gamla Bíó
Ó T T I ií K.
Mexíkanskur sjónleikur f 2
þáttum.
Snildarlega vel leikin.
, Petta er einkennilegasta mynd-
| in, sem sýnd hefir veriö hér til
þessa því í henni eru ekki
nema 2 ríðandi menn.
Myndin er ákaflega spennandi.
BILLY á NÆTURFLAKKI.
Ameriskur gamanleikur.
HÉRMEÐ tilkynnist vinum og vandamönnum, að
jarðarför konu minnar elsitulegrar Þ u r f ð a r
Guðmundsdóttir er ákveðin á laugardaginn
14. þ. m. kl. 1172 f. h., hefst með húskveðju frá heimili
okkar Frakkastíg 12.
Krisfitn Jónsson.
Hér með tilkynnist vinurn og
vandamönnum, að okkar elsku Bjarn-
dís J. Jóhannessdóttir, andaðist þ. 6.
þ. m. á Heilsuhælinu, og er jaröar-
för hennar ákveðin fimtudaginn 12.
þ. m. og hefst í Fríkirkjunni kl. 3.
Rvík 10. nóv. 1914.
Ingibjörg M. Bjarnadóttir.
Jón Jóhannesson.
(Móöir og bróðir).
Ktf:
BÆJAPFRETTIR
P
Ljúffengasta
(II mest delikíite !!)
*V)«övV íihefcrattB *}Ca5S\fevau5
í bænum fæst aðeins í Austurstræti 10.
Theodor Johnson.
SIMSKiíYTI
Jón Jensson
yfirdómari liggur hættulega veikur.
London 10. nóv. kl. 114S f. h.
París: Þjóðvarjjar hafa sótt fram af nýju við
Dixmude og Ypres, en hafa alstaðar verið hraktir
tii baka. Bandamenn vinna á smátt og smátt á fiest-
um stöðum, en þokur gjöra erfitt fyrir með allar
framkvæmdir.
Petrograd : Rússar hafa tekið Goldap. Þjóð-
verjar hörfa undan f áftina til Thorn, Posen. Rússar
hafa unnið sigur á Tyrkjum í Kákasus og rússneskt
herlið er á ieiðinni til Erzerou-n.
Ýmsir niðurlenskir fregnritar segja, að þýskar
hersveitir hafi verið fluttar f skyndingu frá Belgíu
austur eftir.
Central News.
Goldap er bær í Gumbinnen.
Thorn er við Weichsel og er allsterkt vígi.
»SkaIlagrímur«
fer að líkindum ti! Englands í
dag. — Hann tekur ísfisk til flutn-
ings af íslandsfélaginu, fisk þann,
sem »Apríl« hafði a'lað.
Guðm. Guðmundsson
skáld kom heim í gær úr ferð
austur um sveitir.
Yinmæli til Þýskalands!
f Berl. Börs. Cour. er skýrt frá
því, að hinn alkunni franski rithöf-
undur Jean Richepin, sem er með-
limur franska vísindafélagsins, hafi
ritað grein gegn Þýskalandi í »Petit
Joumal*, og b'rtir blaðið þenna
kafla úr henni:
«Við skulum láta hið giaða veiði-
óp okkar gjalla á eftir hinu flýjandi
dýri, til þess að trufla flótta þess
enn meir, þar tii sá dagur rennur,
og hans verður ekki langt að bíða,
að það skríður í holu sína, hatað
og fyrirlilið af alþjóö, sem mun
blægja þegar kvikindið verður fíengt
með Kósakkasvipum og stungið með
byssustingjum Turkanna (Afríku-
fótgöngulið Frakka), er það veltir sér
í sínurn eigin saur og grátbeiðist
vægðar, sem engi vili veita því!«
Enskar konur
og
ófriðu inn.
Enskar konur vilja sý'a það, að
þær geti fleira en komið af stað
götuuppþotum og öðrum óeirðum,
sem þær krydda kvenfreisisbaráttu
sínr meö.
Nti hefir hertogafrúin frá Marl-
bor -ugh, sem er dóttir miljónamær-
ing is Vanderbilt, safnað sjálfboð-
um í eitt herfylki fótgönguliðs og
útbúið af eigin ramleik — senni-
legí' hefir hún þó notið hjálpar
karl ranna tii þess að æfa iiðið.
Heí i hún sent það til. herstöðv-
annr í Frakklandi. Hertogafrúin
Nýja Bíó
sýnir í kvöld og næstu kvöld:
Kærleiks-
verkið
mjög átakanlegan sjónleik f
4 þáttum eftir
IALBERT VARNER.
Leikinn af Nordisk Film Co.
Aðalhlutverkin leika: Frú
Betiy Nansen og
Adam Paulsen
sem bæði eru talin meðal fræg-
ustu leikenda nútímans. Reyk-
víkingum hefir einu sinrii áður
gefist tækifæri á að sjá leiklist
þeirra hér (í Nýja Bíó) og mur.
hinurn sömu nægilegt að heyra
nöfn þeirra til að vita, að hér
er um mynd að ræða, sem vert
er að sjá.
Myndin stondur yfir 1 */. stundar;
MST verð þó sama og aður. |
Leifélag Beykjavíkur
Ðrengurinn
minn.
Laugardaginn 14. nóv. 1914,
ki. 8 sfðd. í Iðnaðarm.húsinu.
Aðgöngumiða má panta í
bókaversl. ísafoldar í dag.
Fundur í verkamannafél.
,Dagsbrún’
la/u kl. 7 í Good-Tempiarahúsinu.
frá Westminster hefir og safnað
sjálfboðum í eitt skyttuherfylki og
útbúið að öllu. Ætlar hún sjálf
að fylgjast með liði sínu til ófrið-
arstöðvanna.
Meinleg prentvilla.
Svo meinleg prentvilla siæddist
inn í sérprentuðu skeytin frá Centrai
News í fyrra kvöld, að svo leit út,
sem Þióðverjar hetðu haft betur í
viðureigninni við bandamenn hjá
Armentieres.
Þetta þykir oss mjög leiðinlegt,
og það því fremur, sem það virð-
ist hafa orðið til þess, að einka-
fregnritari sá, er Morgunblaðið og
(safold eiga í vitum sínum suður í
Lundúnum, glæptist á þessu og
símaði þeim freguina.
En það er alveg réít hjá hon-
um, að Armentieres er í suðvestur
frá Ypres.