Vísir - 11.11.1914, Blaðsíða 2

Vísir - 11.11.1914, Blaðsíða 2
V | S 1 R TJr frönskum blöðum. Aö sjá syni sína drepna, landið sitt eyðilagt og borgir og þorp í rustum er aö vísu sorgleg sjón, en í öllum þessum raunum sínum finn- s:r franska þjóðin hjá sér nýjan mátt. eða ef til vill öllu heldur s i n n gamla m á 11, er svo oft i hef>: leitt hana tii sigurs yfir óvin- j um sínum. Frakkar eru enn jafn- | miklar hetjur og þeir voru fyrir ; rúmum 100 árum, þegar frægð ; Napóleons stóð sem hæst. Þeir | þurftu einungis að fá tækifæri til 1 að sýna það, sýna að >a n d i n n ; 1 i f i r æ h i n n s a m i« og að öll j þessi afturför (degeneration), sem ; átti að eiga sér stað á Frakklandi, er ekki nema- hugarburður tómur. Það er ekki úrkynja þjóð, sem berst eins og Frakkar gera nú, og enn síöur er það úrkynja þjóð, sem hugsar um að b y g g j a upp meðan óvinurinn er enn í landinu. í 1 e T e m p s frá 28. okt, stendur fróðleg grein um ferðalag þeirra Briand (fyrverandi ráðherra) og Sarrant (fræðslumálaráðherra) um norðausturhéruðin, þar sem Þjóð- verjar hafa farið yfir með báli ög brandi. Briand segir svo frá : »Það var hryggileg sjón, að fara um þessi héruð. Bæirnir Nomeny, Revigny, Beazép, Gerbeviller, Oer- mont en Argonne, Leronville, Van- bécourt og Luneville allir í eyði. Þjóðverjar hafa ekki látið stein yfir steini standa. Þessi héruð, sem fyrir skemstu voru fögur og frjó- söm, eru nú eintómar rústir. Hryðju- verkum óvinarins verður ekki með orðum lýst. Hús brend að óþörfu, íbúunum varpað í eldinn, saklaus- um fórnað ö. s. frv. En upp frá þessum rjúkandi rúst- um hggur sarnt b u g g u n. Vesa- b ' fólloð, sem hefir orðið fyrir 'Im ósköpum, hefir hvorki mist •'kkið né vonina um beíri fram- 1 Vér höfum með aðdáun séð konur, börn og gamalmenni, er flúið höfðu, snúa heim aftur og ótrauð byrja vinnu aftur, reyna að bjarga því af uppskerunni, sem hinir æðisgengru Tcvíónar höfðu skilið eftir óskemt. Hvergi höfum vér heyrt kvart- anir, og verð eg að segja, að mér hefir fundist mikið til um það. Bændur sögðu við okkur; »Þetta hlaut að koma, ekki satt? En við munum hafa betur á endanum?« A ð f á s i g u r ! Það er hið eiua, sem aumingja fólkið þráir. Það er hið eina, sem það hugsar um, en ekki um eignír sínar og eigið böl. Dátarnir í skotgryfjunum sýna hið sama hugarþrek, fjör, traust og eldmóð, og hvernig er þá hægt að efast urn úrslitin? Samvinnan milli foringja og dáta er svo innileg og svo bróðurleg, að ekki verður heragans vart, þó strangur sé, því dátarnir gefa sig undir hann af svo góðu geði. Allir foringjar, sem við höfum átt tal við, hafa fullvissað oss um, að heil- brigðisástandið sé ágætt. Vér höfum verið á vígvellinum, þar sem embættisbróðir okkar Rey- mond (efri deildar maður í franska þinginu) var særður. Hann fór njósnarferð í loftfari, en varð fyrir óhappi. Loftfarið féll til jarðar, flugmaðurinn beið bana, en Rey- mond særðist mikið. En í kring- um loftfarið hófst snörp orusta, því Frakkar vildu ekki, að loftfarið né flugmennirnir féllu í hendur ó- vinanna. Reymond varð í tvær klukkustundir að iiggja grafkyr sem dauður væri, til þess að Þjóðverjar ekki gerðu út af við hann; en þeg- ar loasins Frökkum hafði tekist að reka þá á flótta og gátu sint hon- um, þá harkaði hann af sér og gaf nákvæma skýrslu án þess að gleyma neinu atriði, en var síðan fluttur til spílalans í loul. Þegar vérkomum til haus þar, rétti hann okkur hend- ina og sagði: »Það er úti um mig; eg vona, að þið minnist mín með vinsemd«. Við ætluðum að hugga hann, en hann hr.'sti höfuðið og sagðiaftur; »Nei, það er búið«. Það var hans síðasta kveðja. Hann dó með bros á vörum, því hann hafði gert skvldu sína. Alla leið frá Verdun til landa- mæranna höfum vér andað að okk- ur þessu sama heilnæma lofti, þrungnu af trúnaðartrausti, hug- rekki og sjálfsafneitun. Úr ferðinni berum vér úr býtum óbilandi sann- færingu um sigur bandaþjóðanna á óvini, sem blindaður af reiði hleyp- ur á sig hvað efiir annað. íbúar þessa héraöa hafa gefið á- takanlegt dæmi til eftirbreytni, sem á að vera oss hvöt til að vona og vinna. Jafnvel áður en búið erað slökkva bálið, sem óvinirnir hafa kveikt, látum oss hugsa um, að byggja upp aptur ný hús, og ekki eitt augnablik megum vér snúa hug- anum frá hinni daglegu vinnu, þá mun ekkert geta veikt lífsafl föð- urlandsins* *. Thora Friðriksson. Fréttaútdráttur úr »Daily Mail« (27.—30. okt.). Frétfaritari »Daily Mail« lýsirað- stöðu bandahersíns gegn Þjóðverj- um. Hér skulu tekin ummæli hans: »Manntjón Þjóðverja hefir verið ótölulegt og búkar dauðra manna liggja eins og hráviði. Hugrekki þýska liðsins við Ostende er illa ábyggilegt, og því eru Þjóðverjar látnir drekka til þess að þeir geti barist«. Um ástandið í Vínarborg segir fréttaritari sama blaðs: »50 þúsundir særðra manna er sagt að séu í borginni. Lýöurinn sýnist vera kátur og hafa beztu vonir, enda flytja blöðin ekki annað en þýskar sigurfregnir og ailir ósigr- ar Austurríkismanna eru taldir her- kænskubrögð; sem enginn skilur, enginn nema herforingjarnir sjálfir vita sannleikann«. 29. okt. skrifar sama blað: »Það sem heimurinn má ekki ; gleyma er fórn Belga. Á mánu daginn var komn 9000 særðir Belg- Póstkort. Nokkur þúsund nýkomin af nýjum og fallegum póstkort- um. Einnig giftingar-, trúlofunar- og öll önnur tækifæris- kort í ríkulegu úrvali, seljast á Laugav. 10. (Klæðaversluninni). Guðm. Sigurðsson. Tímatal. — Sjávarföll og tunglkomur. Samdrátt af ferðaáætlun póstgufuskipanna. Skrá yfir fargjöld o.fl. með póstskipunum. Vegalengdir á sjó innanlands. — Skýringar um ísland. Vegalengd milli Reykjavíkur og ýmsra útlendra hafna. Áætlun landpóstanna. — Metrakerfið og gamla málið, o. fl. Bók þessarar getur enginn verið án. S»st á ajct- "Ois'vs. Anton Jurgens margaríne- verksmiðjur, Oss, Hollanói. Stærsta margaríneverksmiðja í cvrópu. Atgreiðir eins og vana- lega fljótt via Leith eða Kaup- mannahöfn og gjaldfrestur veitt- ur eins og undanfarið. Merki verksmiðjunnar eru H E D C og verða frá næstu áramótum og framvegis stimpluð með fullu nafni verksmiðjunnar til þess að hægt verði að þekkja þau frá eftirlíkingum. Aðeins selt til kaupmanna. Umboðsmaður fyrir ísland og Færeyjar: Jl, Qfcet&aixjA. Templarasundi 5, Reykjavík. ar í sjúkrahúsin. Belgar hafa dáið og þolað þrautir með ódauðlegri hreysti. Þeir hafa ekki varið Belgíu, heldur Frakkland og England með slíku líftjóni fyrir þá sjáifa, sem liver Frakki og Brefi þessa manns- aldurs ætti að reyna að endurborga um fram alt annað*. Blaðið flytur bréf prins Batten- bergs til enska flotamálaráðaneytis- ins, sem Iýsir því einkennilega, hve þýska nafnið og ætternið hefir orðið Bretum óþolandi *Eg hefi neyðst til þess að játa, að faðerni mitt er því til fyrirstöðu, að eg geti unnið gagn í flotamál- um Bretlands. Þess vegna segi eg af mér þeirri stöðu, sem eg hefi helgaö líf mitt og krafta*. Svar ráðherrans breska er ekki síður einkennilegt: »Þetta er ekki venjulegur hern- aður, heldur barátta milii þjóðanna til líts eða dauða. — Floti vor eins og hann er og þó íremur floti vor eins og hann mun verða, bera merkin af starfi yðar, — en eftir öllum atvikum er ákvörðun yðar rétt«. Svarta kýrin. í blaði, sem út kemur í fylkinu Pas de Calais er talið, að Þjóðverj- ar noti sömu aðferð við njósnir á landi og Tatarar og annar flðkku- lýður notar sín á milli, að teikna og skrifa á hús og virkisgaröa ýms- ar upplýsingar, sem koma mega að liði. Sú aðferö tíðkast mjög meðal þýskra njósnarmanna, sem ganga um eins og gráir kettir, klæddir sem bændagarmar, er skemta sér með að teikna eins og krakkar á múra og veggi, að draga mynd af svartri belju á múrana. Frakkar tóku eftir þessari lélegu dráttmynd sökum þess, hve oft þeir sáu hana, en hún vakti engan grun hjá þeim sökum þess, hve illa hún var gerð. En smámsaman tóku þeir eftir því, að stærðarhlutföllin á myndinni voru eitthvað einkennileg. Myndin var ýmist stór eða lítil, stundum var kusa á rölti eða lá og jórtraði. Oft voru hornin hlægilega löng sam- anborin við skrokkinn, og þar kom að lokum, að menn þóttust þess fullvissir, að þessar myndir væru annað og meira en illa gerðar teikn- ingar. Og það sem aðallega vakti gruninn var stærð beljunnar og svo það í hvaða átt hún horfði. Frakk- nesku iiðsforingjarnir hafa nú ráðið fram úr leyndardómum þessa merkjakerfis, sem auðsælega hefir veriö notað af njósnarmönnunum í her von Klucks. Lítil kýr þýðir, að lítið er fyrir til varnar; meðal- stór kýr, að lið bandamanna sé í nánd. En stór kýr er aðvörun og þýðir, að þar séu fallgryfjur, skot- gryfjur eöa önnur varnarvirki í nánd. Og beljan er ætíð látin horfa þang- að, sem hættan er fyrir. Ef kusa er háleit, þá þýðir það, að heppi- legt væri fyrir Þjóðverja að kanna umhverfið frá loftfari, áður Þe»r héldu lengra fram. Svo nú er Surtla alveg gagns" laus, en sennilega finna þeir þá upp : einhverja aðra aðferð.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.