Vísir - 16.11.1914, Blaðsíða 4

Vísir - 16.11.1914, Blaðsíða 4
.... it i . o+mrnm ' -j ■ ^iestut-^Wndw \ 6Sx\Stvuw. Þegar er þaö frjettist, aö Canada- - enn væru teknir að búa her til tnaipar Bretum f Norðurálfustyrj- Öldinni miklu, þótti mega ganga að því vísu, að á meðal liösveita þeirra myndu veröa einhverjir landa vorra vestan hafs. Þeir telja sér það sóma, að þeir séu engu verri breskir þegnar en aðrir vestur þar, og und- arlegt mætti það heita, þar sem synir þessa fámenna þjóðflokks hafa staðiö vel í sporöi annara þjóöa mönnum þar í landi í flestu eða öllu öðru, ef þeir yrðu miklir eftirbátar allra annara, er til ófriðar kemur. Þá væri heim undarlega í ætt skotið, þótt langt sé nú síöan (slendingar hafa fengist viö herskap, svo að telj- andi sé. Það fór og svo sem vænta mætti, að brátt tókust umræöur um það og ráðagerðir með Vestur-íslend- inguiD, hvort og þá á hvern hátt þeir skyldu taka þátt f ófiiðnum. Áður hefir verið frá þvf skýrt í fsl, blöðum, að fyrverandi ritstjóri Lög- bergs, herra Sig. Júl. Jóhannesson, varð að láta af ritstjórn fyrir það, að hann þótti hafa íekið of dræmt f það mál, og bendir það til þess, að töluverður hiti hafi verið í mönn- um og ófriðaráhugi. Síðan var hald- inn íWinnipeg »þjóðræknisfundur«, er svo var nefndur, fimtudagskveldið 9. septbr. og málið rætt þar. Var þar samþykt áskorun um fjárfram- lög, bæöi til ófriðarins og svo til styrktar Ifknarstarfsemi »Rauða kross- ins«, en síöast, en ekki síst, var þar samþykt þessi uppástunga, er H. M. Hannesson lögmaöur bar fram : »Þessi fundur ályktar, að vér ís- lendingar í Winnipeg eigum nú þegar að stofna sjálfboðaliðsflokk, og að sá flokkur sameini sig ein- hverri af þeim herdeildum, sem myndast hafa hér í borg.« Var svo kjörin 15 manna nefnd til þessa að hafa þessi mál með höndum og koma þeim í fram- kvæmd. En jafnframt þessu heyrast og þar vestra aðrar gætnari raddir, sem vara íslenska unglinga viö því, að láta ginna sig athugalaust út í strfð, ef þeim sé það eigi hjartans mál og þeir f alvöru búnir til þess að taka afleiðingunutn. Ein af þeim rödd- um er kviðlingur þessi eftir St. G. Stephansson: Ögranir. Þegar sérhver gauti og gjóstur grunnhyggnina æsti í róstur, fús til sig og sína að spara, sjálfur ætlar hvergi að fara! Eggjaði hæst í múga-mannsins mannablót til föðurlandsins viss, að bera í sínum sjóði sæmd og auðlegð frá hans blóði, tómum köilum kokhreystinnar kaupa nafnbót þjóðhyllinnar; stærstan huga þurfti þá, að þora að sitja hjá. Þessir eru Vestur-íslendingar þeir, er nýkomin vestan-blöð segja komna í strfBftð; V {.S 1 R ,bm 'ism■jjí 1. JÓíl (AöalS' . L-XOai, oalg eant við heideild frá Edmontcn, Alberta,sonurMrs. SigríðarSwai- son í Winnipeg og fyrri manns hennar, Aðalsteins Jónseonav; fæddur í Eyjafirði; rúmt þrítugu”, 2. Jóhunn V. Austmaun, skotkap; - inn íslenski, með 90. herdeild- inni í Winnipeg, sargeant, sonur Snjólfs J. Austmanns trésmiðs at Austurlandi; fæddur í Winnipeg, rúmt tvítugur. 3. Kolskeggur T.Thorsteinsson,með sömu herdeild, sonur Tómasar Þorsteinssonar íWtnnipeg, fædi’- ur í Skagafuði, tæpl hálfþií- tugur. 4. Bjögvin G. Johnson, með 106. herdeildinni, corporal, sonur Guðm. Jónssonar kaupmanns úr Þingryjarsýslu, fæddur í Win- nipeg, rúmt tvítugur. 5. Jóel B. Pétursson, með 90. her- deildinni í Wir.nipeg, fæddur á Bakka í Austur-Fljótum í Skaga- firði 1895. 6. Pétur E. Jónasson, með sömu herdeild, sonur ívars Jónassonar í Winnipeg, fæddur þar 189T 7 Magdal Hermanrisson með sömu herdeild, sonur G. Hermanns- sonar í Winnipeg; fæddur á Seyðisfirði 1895. 8. G. Hávarðsson með 100. gre nadier-herdeild, sonur Guðm. Hávarðssonar; fæddur á Austur- landi. 9. G. Goodmann frá Kenora, Ont.; með sömu herdeild. 10. Guðm. P. Goodman, fór meö »34. Fort Garry Horse«; fæddur í Winnípeg 1895. 11. Þorsteinn G. Ólafsson, með sömu herdeild, sonur Guðlaugs smiðs Ólafssonar úr Húnavatns sýslu; fæddur í Winnipeg 1895. 12. Biarni B. Víborg frá Kenora, Ont., fór með »98. Light Infant- ry«, sonur Guðm. gullsmiðs Viborg, fæddur í Rvík. 13. Þórhallur Blöndahl, Benedikts- son úr Vatnsdal í Húnavatns- sýslu og fæddur þar; hann er nær þrítugur og hefir verið þrjú ár í Bandaríkjahernum á Filipps eyjum. Fór með »The Army Hospital Corps«. 14. Christian G. Sigurðsson, sonur Teits Sigurðssonar í West-Sel- kirk; fór með 16. deild Yorkton fótgönguliðsiss; fæddur í Win- nipeg, 23 á a. 15. Magnús Andrés Sigurðsson Breiö fjörð; hefir lautenants-nafnbói við sömu herdeild, er frá Churchbridge í Þingvallabygö. 16. Benedikt Þorláksson frá Verno i B. C., með »B. C. Horse, A. Squadron 30rhRegiment«,sonur Þorláks Þorlákssonar frá Fjalli i Kolbeinsdal í Skagafirði, fæddui i Ameríku, 21 árs. (STENOGRAFI) — Sloan-Duployan - kennir Helgi Tómasson, Hverfis- götu46. Talsími 177, heima 6 7e.m. Bæöi kend „Koniora- & „De i bat* Stenograji. sjM Jast \ Liverpool, um svcvUv. ---- Frh. Já, Laugardælir. Óvíða mun hvíldarþurfa ferðamanni kærari komustaður. Frá því er eg kom í skóla, hef eg oftast nær gist þar á ári hverju, og á engu frónsku heimili notið meiri alúðargestrisni,enda mun öll- um, sem þar hafa gist, koma saman um það, að vart mundi finnast betra heimili um land alt. Fer þar saman risna og höfðings- skapur húsbóndans, alúð og hí- býlaprúðmenska konunnar, sem auk þess er ein sú allra mentað- aðasta og gáfaðasta kona, sem eg minnist að hafa talað við. Ekki spilla heldur börn þeirra hjóna viðtökunum. þau eru 9 og — ekki að gleyma því — 6 þeirra gjafvaxta dætnr. Eg guðaði á nútíðarvísu áglugga þann, sem ljós skein í. „Fyrirgefðu Eggert minn,rað við gerum ónæði, við erum hér tveir unglingar allnauðulega staddir, syfjaðir, þreyttir og úti í synda- myrkri og ætlum því að beiðast gistingar." „Velkomið", sagði Eggert. Hestar okkar voru nú hirtir og við leiddir til stofu. „Og fari það nú bölvað, svona ætlar þá réttaveðrið að verða“, sagði eg við Magga, sem lá geispandi hinu megin í herberg- inu. Eg nuddaði stýrurnar úr augunum og glápti höggdofa á himininn, sem leit út eins og sót- svart rjáfur. Skýin þau arna gátu miðlað okkur nokkrum lítrum af vatni, það var þó huggun að eiga að fara að ríða austur Flóann. „Kom inn!“ Ein af heimasætunum kom inn með morgunkaffið og t-ar þar með ferðaáhyggjum okkar og sorgum að sinni drekt. „Ættum við nú ekki að fara að komast af stað“, sagði Maggi. „Og það er öllu óhætt, ekki er kom ið hádegi ennþá, mönnum geng- ur ávalt illa að komast af stað þaðan sem þeim líður vel, sér- staklega þegar út í óveður er að fara“. Skárri er það nú rigningin, en hvað um það, þótt rigndi niður eldi og brennisteini þá verðum við að fara í Landréttir, það hófð- um við svarið við alla heilaga. Austur Flóann þeystum viö gegn hrakviðrinu. Fjöldi fólks var að fara í réttirnar, ekki Landréttir heldur Reykjaréttir, það var sam- eiginleg iðja allra, sem um veginn fóru, að reyra að sér verjurnar og vinda vetlingana. Hlífar Magga reýndust ekki svo haldgóðar sem skyldi gegn árás- um sunnlenskrar stórrigningar. Eg hafði lofað konunni hans há- tíðlega að skila honum jafnóðum úr ferðinni. Gott. Eg hafði ein- hverntíma í sumar skilið eftir ol- íubuxur í Kálfholti. Nú var tæki- færið til að gera sér það til er- indis að sækja þær, eg hafði nú raunar oft komið að Kálfholti, án þess að eiga brýnt erindi, og ekki verið ver tekið fyrir þá sök. Eg hef líka þér að segja alt af verjð einn þeirra manna, sem aldrei finst krókur að því að koma á góða bæi. Hið ágæta Liptons- mQ Meliose- er komið aftur í Liverpool. VINN A Sendisveinar fást ávalt í Söluturninum, opinn frá8—11 sími 444. S t r a u n i n g fæst í Grjótag. 11. FÆÐI F æ ð i og húsnæði fæst í Berg- staðastræti 27.—Valgerður Briem. F æ ð i og húsnæði fæst í Lækj- argötu 5. Afgr. v. á. TA P AÐ — FU NDIB Sil furbrjóst n ál hefir tapast, Skilist á Laugaveg 45 gegn fundarlaunum. 3 hundar eru í óskilum hjá lögreglunni. Svartkolóttur, gulur lítill, og grákolóttur með ól. Verða dreppnir ef eigendur ekki hirða þá og fcorga áfallinn kostnað. KENSLA K e n s l|a fæst f skrift, reikn- ingi, landafræði, íslandssögu, mannkynssögu og náttúrufræði. Afgr. v. á. T i 1 s ö g n fæst í reikningi með góðum kjörum, sömuleiðis tekin ýmiskonar reikningsstörf. Skóla- vörðustíg 35, niðri. Prentsmiðja Sveins Oddssonar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.