Vísir - 21.12.1914, Blaðsíða 1
12 i 4
V í S 1 R p ' V 1 S ! R
Stærsta, besta og ódýrasta blað á íslenska tungu. Um 500 tölublöð um árið. Verð innanlands: Linstök blöð 3 au. Mánuöur 6Cau Ársfj.kr.1,75. Arg.kr.7.oo. Erl. kr. 9,oo eða 2'f doll. VISIR Mánudaginn 21. desember I9S4. kemur út kl. 12 á hádegi hvern virkan dag. Skrit- I stofa og afgreiðsla Austur- ; str.14. Opín kl. 7 árd. til 8 i síðd. Sími 400.—Ritstjóri: GunnarSigurðsson(fráSela- læk). Til viðt venjul. kl.2-3síðd.
._v**w W - ■■ ■lr "-lr,ii"i” —................................................................----------
JDtefeftfö f\\S etiga feampavm sUtoti S\á >SawUas\ S'w‘\ \^ö.
I
Samfa ^vó
•KffliæiXbúr: bbxí saEsssa*::ví«.-*i
Drotntng
kvikmyndanna
Stórfenglegur sjónleikur
4 þáttum eftir URBAN GAD
Aðalhlutverkið er leikið af
frú Ásíu Nielsen.
;i
Skriflð þetta
bak yið eyrað.
Þó einhver eigi að hafa eltthvað
hugfast þá g et u r gleymskau
skolað því í burtu, en það verötir
ekki afþvegið að
Jólahveitið »Víking er ódýr-
ast á Laugaveg 63.
Um verð á annari Matvöru
vita allir um, sem hana hafa keypt
að undanförnu, að hún er ddýrust
á Laugaveg 63.
Kaffi* og Matarstell fást
mcð afslætti fyrir jólin.
Þar tæst vindillinn Patti.
Þar fást Spil og Kerti bæði
stór og smá.
Allskonar sælgæti á Jólatré.
Margskonar Kex og Kaffi-
brauð.
Vfking-mjólk, Suitutau 3
tegundir, Blandaðir ávextir,
Jarðarber. Allskonar krydd.
Epli, Appelsfnur,
Vínber,
Allskonar Sykur kom nú með
síðasta skipi, þar á nieðal
Kandis.
Öddssotv,
Laugaveg 63.
Sími 339.
Landar í H5ín
þakka ráðherra fraitikomu hans.
(Frá fréttaritara Vísis í Höfn.)
Nokkrir landar hér hófust handa
eftir ríkisráðsfundinn og boðuðu
til fundar meðal íslendinga hér. í
funJarboðinu stóð meðal annars, að
þakka ætti ráðherra sköruglega og
djarflega frammistöðu á móti kon-
ungsvaldinu.
Á tundinn komu um 50 ruanns,
alt ungir menn, stúdemar og hand-
iðnamenn hér. Ekki var ráðherra
á fundinum.
Fundurinn stóð í örfáar mínútnr.
Samþykt var þakklætisávarp ti! ráð-
herrans með á að giska 25 atkv.
Hinir fundarmenn greiddu ekki at-
kvæði.
Rilzau-skeyti, sem sent var af
einum fundarboðenda, hermir, að á
fundinum bafi verið 150manns, og
í sumum dönskum blöðum erskýrt
svo frá, aðþetta hafi verið »demon-
stration« móti Dönum, en á ofan-
greindu geta metin séð, að um slíkt
var ekki aö ræða.
Fréttir frá
Danmörku
Dönsk blöð.
Úrslitin á ríkisráösfundinum 1.
þ. m. hafa eins og vænta mátti
vakið hér feiknaftiikla eftirtekt, þrátt
fyrir stríðið mikla. Öll hafa blöðin
flutt ritstjórnargreinar um málið, flest
fleiri en eina.
Þau eru öll sammála um það, að
stefna og ákvörðun konungsins hafi
verið sú rétta og fagna því, að loks
sé föst afstaða tekin, sem ekki verði
frá vikið gagnvart kröfum íslendinga.
Annars líta þau ýmsan vegámálið.
Politíken heldur, að hér sé aðeins
um bráðabirgðastrand að ræða,se
Iagast muni, þegar foringjar flokk-
anna komi hingað niður, en tekur
skýrt fram, að skilning ráðherrans
á ríkisráðsákvæðinu geti Danir aldr
ei aðhylst.
Berlingske Tidende segir, að þessi
árekstur (Konflikt) hafi vofað yfir í
mörg ár, Sig: Eggerz hafi nú strand-
að á því skeri, sem Hannes Haf-
stein hafi með gætni hingað til get-
að sneitt fram hjá.
Mörg af blöðunum, svo sem
Vort Land, Ekstrabladet, Hovedsta-
den og Kristilegt Dagblad, segja, að
ef ekki gangi saman nú þegar flokks-
foringarnir komi til Danmerkur, sé
ekkert annað fyrir hendi en skilnaður
ef íslendingar óski þess. Af Dana
hálfu muni ekkert vera því ti! fyrir-
stöðu. Skilnaður sé miklu betri en
stöðugt og árangurslaust þref.
Knud Beriin rifar í Köben-
havn og lýsir ánægju sinni yfir úr-
slitunnm.
F u n d u r hefir verið haldinn í
stúdentafélaginu danska, þar sem
Knud Berlin var málshefjandi. Dr.
Vallýr Guðmundssor. talaði þar líka.
Sigurður Norðal
»disputeraði« hér 2. þ. m. ogvarð
með heiðii og sóma doktor eins
og lög gera ráð fyrir.
„Hadda Padda“
hefur Guðmundur Kamban selt til
konunglega leikhússins í Stokkhólmi.
Hún er stöðugt leikin hér fyrir
fuliu húsi,
8
ÐÆJARFRETTIR
Háflæði í dag.
Árdegis háflæði kl. 8,22
Síðdegis — —8,41.
Afmæli í dag:
Jóh, Jóhannesson, stúd. med.
Afmæli á morgun:
Carl Ólafsson, Ijósm.
Lydia Theill, húsfrú.
Páll H. Gíslason, kaupm.
Guðlaug Magnúsdóttir, húsfrú.
Nic. Bjarnason, kaupm.
Æskan
hefir gefið út snoturt jólablað
með sögum og myndum, þar á
meðal eina söga eftir íslenskan höf-
und, Þorstein Finnbogason kennara.
Jólasögur
hefir K. H. Bjarnason prentari
nýlega gefið út. Sögurnar eru eftir
útlenda höfunda og hefur Karl þýtt
þær sjálfur. Máiið á þeim er einkar-
gott og lipurt.
| Nýja Bfó
y PB
Ur fu'rstátign í 1
gestgjafasíöðu. |
Sorgarleikur í 4 þáttum, 50
atriðum eftir Rudolf Presber.
Aðalhlutverkið leikur ítalska
danskonan heimsfrœga
Rita Sacchetto.
Einnig leika:
Augusta Blad, Alf Bliiecher,
Cajus Brun o. fl.
Miög stórkostlegur og hrífandi
sjónleikur, sem allir verða að sjá.
Leikurinn gerist í Evrópu og
Ameríku.
Sýningar standa yfir 1 x/2 kl.st.
Verð þó sama og áður.
reTrfTfrfTfTT,;TTfTfTRTTTfTí-f-f-TTf-fTf-TTfn
I Mímis
gosdrykkir bestii.
Sími 280.
Snorri goði
kom inn í gær morgun með
talsverðan afla. Skipið fór út aftur
síðastliðna nótt. Ætlar að vera á
fiski tvo til þrjá sólarhringa enn
bá, og halda síðan til Englands.
Vísir kemur aftur út
í dag síðari hluta dags.
Lándstjarnan.
Þegar menn gengu eftir Aðal-
stræti í gær, gat að líta skrautlega
gluggasýningu í sölubúð Land-
stjörnunnar. Þar var sælgæti og
vindlum í löngum röðun og öll
búðin í gas- og rafurmags-ljóshafi.
Njörður
seldi afla sinn í Fleetwood fyrir
541 pund sterling.
Hljómfeikar
— 12 manna hljóðfærasveit — Ieikur á Hótel Reykjavík í kvöld
undir stjórn herra P. BERNBURGS.
HT Þetta er í síðasta sinn, sem leikið verður af hljóðfærasveit á
Hótel Reykjavík. Notið nú tækifærið.